Morgunblaðið - 16.12.2005, Side 1
2005 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER BLAÐ C
NJARÐVÍKINGAR ÁFRAM Á SIGURBRAUTINNI / C3
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ZLATKO Gocevski, körfuknattleiksmaðurinn hávaxni
frá Makedóníu sem hefur leikið með Keflvíkingum í vet-
ur, hefur sennilega spilað sinn síðasta leik með félaginu.
Keflvíkingar eru ekki ánægðir með frammistöðu þessa
2,06 metra háa miðherja sem hefur aðeins skorað um 7
stig að meðaltali í leik í úrvalsdeildinni og enn minna í
Evrópuleikjum liðsins.
„Já, hann hefur valdið okkur vonbrigðum, sérstak-
lega þar sem við töldum okkur vera örugga með hann
sem öflugan leikmann, enda hafði hann leikið mjög vel
og var með mikla reynslu úr efstu deild í heimalandi
sínu. En hann hefur ekki náð sér á strik, hverju sem um
er að kenna, og við erum að líta í kringum okkur eftir
nýjum manni,“ sagði Gunnar Jóhannsson varaformaður
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur við Morgunblaðið í
gær. Gocevski lék ekki með Keflavík gegn CAB Madeira
í gærkvöld en Gunnar sagði að það hefði verið vegna
þess að hann hefði ekki verið með vegabréfsáritun til að
millilenda í Englandi á leiðinni til Portúgals.
Gocevski á förum
frá Keflavík
ROY Keane, fyrrum fyrirliði Man-
chester United, skrifaði í gær und-
ir eins og hálfs árs samning við
skoska úrvalsdeildarliðið Celtic.
Þessi 34 ára gamli miðvallarleik-
maður var mjög eftirsóttur. Mörg
ensk úrvalsdeildarlið sóttust eftir
kröftum Írans og að auki var hann
í viðræðum við
Real Madrid en
á endanum
ákvað hann að
láta gamlan
draum rætast
og ganga til liðs
við Celtic.
Keane kemur
til með lækka
um helming í
launum en
verður þó engu að síður hæst laun-
aði knattspyrnumaður í Skotlandi.
Vikulaun hans hjá Celtic verða
45.000 pund, rétt um 5 milljónir ís-
lenskra króna, en hjá Manchester
United fékk hann um 10 milljónir
króna.
,,Þetta eru frábær skipti og til-
breyting að spila með nýju liði, við
önnur lið á öðrum völlum og fyrir
framan nýja áhorfendur. Hér
finnst mér ég heima og hingað er
ég kominn til að leggja hart að mér
og að vinna titla. Ég hef alltaf haft
miklar taugar til Celtic eða frá því
ég var strákur en við héldum þá
allir með Celtic. Síðustu vikur hafa
verið mjög skrýtnar eftir að ég
yfirgaf Manchester United en nú
tekur við nýr kafli á mínum ferli
sem ég hlakka tilað takast á við,“
sagði Keane í gær en fyrir sex ár-
um lét hann hafa eftir sér að hann
vildi enda feril sinn með Celtic.
Keane verður ekki löglegur með
Celtic þegar liðið mætir Hearts í
úrvalsdeildinni á nýársdag svo
hans fyrsti leikur verður gegn
Clyde í bikarkeppninni viku síðar.
Roy Keane lét
gamlan draum
sinn rætast
Roy Keane
DANSKI miðvallarleikmaðurinn
Hans Mathiesen verður áfram í
herbúðum Framara en nokkur lið
úr Landsbankadeildinni hafa á
undanförnum vikum borið víurnar
í leikmanninn. Mathiesen hefur
skrifað undir nýjan þriggja ára
samning við Safamýrarliðið sem
eins og kunnugt er féll úr Lands-
bankadeildinni í haust. Daninn,
sem gekk til liðs við Framara fyrir
síðasta tímabil, lék 17 leiki Fram-
liðsins og skoraði eitt mark og
þótti hann einn besti leikmaður
liðsins á leiktíðinni.
Mathiesen um
kyrrt hjá Fram
Það kom beiðni frá leikmönnumum að byrja ekki æfingar fyrr
en 5. janúar og ég ákvað að verða
við því þar sem það er
mikið álag á þeim í
desember. Sem dæmi
má nefna að Gum-
mersbach, sem Guðjón
Valur Sigurðsson og
Róbert Gunnarsson
leika með, spilar níu
leiki í þessum mánuði,
svipað er uppi á ten-
ingnum hjá fleiri
landsliðsmönnum,“
segir Viggó.
Íslenska landsliðið
leikur fimm landsleiki
á undirbúningstíman-
um fram að Evrópu-
meistaramótinu, tvo
við Norðmenn, einn
við Katar og tvo leiki við Frakka.
Þrír fyrstu leikirnir verða í Krist-
jánssundi í Noregi 12.–15. janúar
og síðan koma Frakkar hingað til
lands til tveggja leikja, hinn fyrri
verður fimmtudaginn 19. janúar í
Laugardalshöll og sá síðari verður
háður á Ásvöllum í Hafnarfirði
tveimur dögum síðar.
„Það mætti hugsanlega hafa
færri leiki fyrir Evr-
ópumeistaramótið, en
alls ekki fleiri en þessa
fimm,“ sagði Viggó
sem ætlar að halda
einu sæti opnu í lands-
liðinu fram undir ára-
mót.
Ætlaði að velja
Loga Geirsson
„Ég ætlaði að velja
Loga Geirsson en síð-
an datt hann út úr
myndinni í fyrradag
þegar ljóst var að bak-
meiðsli hans höfðu
tekið sig upp á ný.
Þess vegna hef ég
ákveðið að halda síðasta sætinu
opnu eitthvað áfram en vera búinn
að skipa í það þegar landsliðið kem-
ur saman til æfinga snemma á nýju
ári,“ sagði Viggó. Svo var á honum
að skilja að Baldvin Þorsteinsson,
hornamaður úr Val, væri líklegasti
handknattleiksmaðurinn til að
skipa þetta umrædda sæti.
„Hópurinn sem ég hef valið nú er
sá sterkasti sem völ er á. Hann er
sterkari en sá sem ég var með á
HM í Túnis, þá einkum vegna þess
að þeir menn sem þá voru að stíga
sín fyrstu skref eru núna tilbúnir að
standa undir meiri ábyrgð,“ sagði
Viggó.
Spurður um markmið landsliðs-
ins sagði hann; „Ég ætla að vera
hógvær að þessu sinni. Markmiðið
er að komast upp úr riðlakeppninni
og inn í milliriðla með einhver stig í
farteskinu.“
Ensku landsliðsmennirnir PeterCrouch og Steven Gerrard, fyr-
irliði Liverpool, skoruðu mörkin –
Crouch tvö. Leikmenn Liverpool
hafa ekki fengið á sig mark í ellefu
leikjum í röð og er það nýtt met hjá
Mersey-liðinu. Gamla metið var frá
keppnistímabilinu 1987–1988, þegar
Kenny Dalglish var knattspyrnu-
stjóri Liverpool.
Rauði herinn fékk óskabyrjun er
Crouch skoraði mark eftir aðeins
tvær mínútur eftir sendingu frá Dji-
bril Cisse. Gerrard skoraði annað
markið með föstu skoti á 32. mínútu,
eftir góða sendingu frá John Arne
Riise og síðan var Crouch aftur á
ferðinni á 58. mínútu, þegar hann
komst inn fyrir vörn Saprissa.
„Það var ánægjulegt að skora tvö
mörk og ég er kominn á skotskóna á
nýjan leik. Ég örvænti aldrei þó að
mörkin hefðu látið standa á sér um
tíma – ég vissi alltaf að það kæmi að
því að ég myndi finna taktinn með
Liverpool,“ sagði Crouch, sem var
keyptur frá Southampton sl. sumar.
Hann hefur nú skorað fjögur mörk á
stuttum tíma fyrir Liverpool.
Reuters
Peter Crouch, miðherji Liverpool, fagnar hér fyrra marki sínu í
leiknum gegn Deportivo Saprissa frá Kosta Ríka í Japan í gær
ásamt Norðmanninum John Arne Riise.
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari
karla í handknattleik
Vill ekki fleiri
landsleiki
fyrir EM
„ÉG tel að undirbúningur landsliðsins verði fínn og ég vil alls ekki fá
fleiri leiki áður en haldið er til Sviss. Mér finnst skipulagið vera fínt
eins og það lítur út núna,“ sagði Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari
karla í handknattleik, þegar hann tilkynnti val sitt á 15 leikmönnum
fyrir Evrópukeppnina í Sviss í lok janúar á næsta ári. Viggó heldur
einu sæti opnu sem hann hyggst velja mann í undir áramótin. Ís-
lenska landsliðið kemur saman til æfinga fimmtudaginn 5. janúar.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
■ Allir vegir færir /C4
Viggó Sigurðsson
Liverpool með met
EVRÓPUMEISTARAR Liverpool tryggði sér rétt til að leika um nafn-
bótina besta lið heims þegar þeir lögðu Deportivo Saprissa frá
Kosta Ríka að velli í Japan í gær, 3:0. Liverpool leikur til úrslita við
brasilíska liðið Sao Paulo á sunnudaginn.