Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 4
Ég hafði ákveðið að kalla í LogaGeirsson en hann datt út úr
myndinni í fyrrakvöld vegna
meiðsla. Logi getur leikið fleiri en
eina stöðu og hefði þar með getað
leyst ákveðin vandamál sem við eig-
um við að etja í stöðu skyttunnar
vinstra megin. En því er ekki að
heilsa núna og því verður að leysa
það innan þessa hóps takist Jaliesky
Garcia ekki að ná sér á strik í ein-
hverjum leikjum á EM. Þá koma
Arnór Atlason, hugsanlega Guðjón
Valur Sigurðsson og Sigurður Egg-
ertsson til sögunnar.“
Viggó segir að í alþjóðlegum hand-
knattleik í dag verði leikmenn að
geta leyst fleiri en eina stöðu á leik-
vellinum og svo sé um flesta leik-
menn íslenska landsliðsins, að mark-
vörðum, línumönnum og hugsanlega
Þóri Ólafssyni undanskildum. „Við
erum með mjög fjölhæfa leikmenn
og ég tel að Sigurður Eggertsson sé
hrein viðbót við þann fjölbreytileika.
Hann hefur svolítið annan stíl, getur
verið „jóker“ okkar í ákveðnum stöð-
um. Ég lít svo á að Sigurður hafi
ákveðna kunnáttu sem aðrir leik-
menn landsliðsins hafa ekki,“ sagði
Viggó sem var ekki í neinum vafa um
valið á Sigurði sem var reyndar fyrst
kallaður inn í landsliðið í haust. Þá
meiddist Sigurður á hné áður en á
hólminn var komið á móti í Póllandi.
Arnór hefur nýtt
möguleika sína vel
Þú velur Arnór nú, er hann í betri
málum en hann var í haust þegar
hann kom ekki til greina?
„Svo sannarlega. Hann hagnast á
því að margir leikmenn Magdeburg
hafa meiðst. Þar með opnuðust
möguleikar fyrir Arnór sem hann
hefur nýtt vel að mínu mati. Ég hef
séð fjóra leiki með honum á stuttum
tíma og í þeim hefur hann staðið sig
vel. Ég hef alltaf vitað hvaða hæfi-
leikum hann er búinn, en það er nú
bara einu sinni þannig að þegar leik-
menn fá ekki tækifæri með sínum fé-
lagsliðum er landsliðið ekki neinn
vettvangur fyrir „prufukeyrslur“.
Arnór hefur sýnt frábæran „karakt-
er“ með því meðal annars að rífa sig
upp úr þeirri stöðu sem hann var í
hjá sínu liði. Arnór kemur örugglega
mjög sterkur til leiks að þessu sinni.“
Roland er valinn á ný eftir að þú
ákvaðst að velja aðra markverði í
hans stað í undangengna leiki?
„Roland glímdi við ýmis meiðsli í
haust sem urðu þess valdandi að
hann var ekki valinn. Ég vissi alltaf
hvað hann gat, hann var alltaf inni í
myndinni þótt hann hafi ekki tekið
þátt í æfingaleikjunum í haust og
vetur. Þá fengu aðrir markverðir
tækifæri til að spreyta sig og þeir
eru klárlega ekki betri en Roland.
Ég og Bergsveinn Bergsveinsson,
aðstoðarmaður minn, lítum á Birki
Ívar sem fyrsta markvörð landsliðs-
ins. Roland er þá frábær kostur til að
hlaupa í skarðið fyrir Birki ef hann
nær sér ekki á strik. Roland getur
leikið afar vel og hreinlega lokað
markinu sé sá gállinn á honum.“
Engin ástæða til að senda
leikmenn í þrekpróf
Þú verður með hópinn í 20 daga
fyrir keppnina í Sviss. Hvernig verð-
ur þeim tíma varið?
„Ég ætla ekki að vera á þungu nót-
unum. Á þessum tíma verður unnið í
leikskipulagi og þeirri snerpu sem
menn eru í verður viðhaldið. Leik-
menn koma hingað til lands eftir að
hafa verið í miklu leikjaálagi. Af
fenginni reynslu finnst mér það ekki
vera rétta leiðin að hefja undirbún-
ing landsliðsins á því að senda leik-
menn í þrekpróf. Leikmenn eru
valdir í landsliðið af því að þeir skara
fram úr og hafa verið að leika með
sínum félagsliðum. Leikmenn sem
leika allt upp í níu kappleiki á einum
mánuði eru einfaldlega í formi, málið
er ekkert flóknara en það.“
Hópurinn nú er svipaður þeim
sem var á HM í Túnis. Er hann
reynslunni ríkari að þínu mati?
„Það er greinilegt hvað þeir leik-
menn sem komu nýir inn í fyrra fyrir
HM í Túnis eru ábyrgðarmeiri nú.
Þeir eru orðnir hluti af liðinu. Á HM
fannst mér margir vera hálfábyrgð-
arlausir, voru ekki einbeittir og
gerðu sér ekki grein fyrir að þeirra
var ábyrgðin þegar á hólminn var
komið. Nú er staðan gjörbreytt.“
Ólafur Stefánsson hefur lítið leikið
með Ciudad Real upp á síðkastið.
Hefur þú skýringu á því?
„Ciudad Real hefur tvo mjög
sterka leikmenn auk Ólafs í hans
stöðu. Þjálfari liðsins hefur þá stefnu
að tefla þeim jafnt og þétt fram. Það
þýðir að stundum situr Ólafur eftir,
er ekki í liðinu. Þannig vonast þjálf-
arinn til að dreifa álaginu og koma í
veg fyrir að leikmenn verði orðnir
uppgefnir þegar á leiktímabilið líður.
Þar af leiðandi leikur Ólafur minna
en hann hefur gert síðustu ár.“
Ólafur er í hörkusamkeppni
Hefur þú áhyggjur af því að Ólaf-
ur sé ekki í góðu leikformi?
„Ég held að Ólafur verði fyrir vik-
ið bara hungraðri þegar hann mætir
til leiks með landsliðinu. Hann getur
ekki boðið okkur upp á að leika aftur
eins illa og hann gerði á HM í Túnis,
það kemur bara ekki til greina.
Hins vegar er Ólafur kominn í
hörkusamkeppni í landsliðinu. Hann
þarf að berjast við Snorra Stein Guð-
jónsson á miðjunni og við Einar
Hólmgeirsson í skyttustöðunni. Ef
Ólafur stendur sig ekki þá spila hin-
ir. Það er ekkert flóknara en það.
Síðan ég tók við landsliðinu hefur
orðið sú breyting á að ég hef gefið
mönnum tækifæri með því sem þeir
hafa gripið feginshendi. Fyrir vikið
eru þessir leikmenn farnir að skáka
stórstjörnum eins og Ólafi.“
Hvert er markmið þitt á EM?
„Ég ætla að vera hógvær að þessu
sinni. Markmiðið er að komast upp
úr riðlinum með einhver stig í far-
teskinu. Takist það tel ég allar leiðir
vera okkur opnar. Við erum með al-
veg jafnsterkt lið og Danir, Serbar
og Ungverjar sem eru með okkur í
riðli. Á góðum degi getum við unnið
allar þessar þjóðir, spurningin er sú
að hitta á þennan góða dag. Ef það
verður þá getum við unnið alla. Ég
finn að strákarnir hafa gríðarlegan
metnað og andinn innan hópsins er
góður. Þá hafa flestir leikmenn liðs-
ins mikinn meðbyr hjá sínum fé-
lagsliðum, sjálfstraust þeirra er í
lagi. Þess vegna vel ég ekki leikmenn
sem gengur ekki vel. Þeir koma bara
með vandamál inn í hópinn.“
Viggó Sigurðsson segir markmiðið vera að komast upp úr riðlakeppni EM
Allir vegir færir
„ÞETTA er klárlega sterkasti
hópur sem völ er á um þessar
mundir. Logi Geirsson og Mark-
ús Máni Michaelsson væri
örugglega með ef þeir væru
ekki meiddir,“ sagði Viggó Sig-
urðsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, þegar hann til-
kynnti um val á 15 leikmönnum
sem skipa landsliðið á Evr-
ópumeistaramótinu sem hefst í
Sviss 26. janúar. „Nú bara að
krossa fingur og vona að við
verðum ekki fyrir fleiri áföllum.“
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Hornamaðurinn Þórir Ólafsson í leik gegn Norðmönnum.
!"
#
$
#
%
&
'
(
)#*+
$
,-"
.
"(
**
.
//
"
"
0
$00%!
*
1
&
!#
2
333
0
4556
("
.
4557
(*8
4559
(:$
„ÁSGEIR Örn Hallgrímsson er
fyrst og fremst sóknarmaður, hann
er ekki góður varnarmaður. Það
getur vel verið að hann sé topp-
formi en það kemur ekki fram í
hans leik með Lemgo nú um stund-
ir,“ sagði Viggó spurður um af
hverju hans gamli lærisveinn hjá
Haukum, Ásgeir Örn, hljóti ekki
náð fyrir augum landsliðsþjálf-
arans að þessu sinni.
„Síðan má ekki gleyma því að
um þessar mundir er landsliðið af-
ar vel mannað af leikmönnum í
þeirri stöðu sem Ásgeir leikur í.
Þar á ofan geta þeir allir leikið bet-
ur í vörninni en Ásgeir. Þegar við
bætist að Ásgeir stendur sig ekki í
sóknarleiknum með Lemgo þá ein-
faldlega lendir hann fyrir aftan
Alexander Petersson, Einar Hólm-
geirsson og Ólaf Stefánsson í röð-
inni,“ segir Viggó.
Ásgeir ekki
nógu sterkur
Ásgeir Örn Hallgrímsson
„NORÐMENN ætluðu að bjóða
Serbum og Dönum ásamt okkur á
fjögurra þjóða mót í Noregi fyrir
Evrópumeistaramótið, en við sett-
um Norðmönnum stólinn fyrir
dyrnar, sögðum að það kæmi ekki
til greina að spila við Serba og
Dani svona skömmu fyrir Evrópu-
meistaramótið. Þar með breyttust
forsendur fyrir mótahaldinu í Nor-
egi,“ sagði Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri Handknatt-
leikssambands Íslands, þegar hann
var spurður um landsleikina við
Norðmenn ytra 12. og 15. janúar
nk. í undanfara Evrópumótsins.
Eftir þá hefur íslenska landsliðið
leikið sex sinnum við Norðmenn á
skömmum tíma. „Við erum að end-
urgjalda Norðmönnum heimsókn
þeirra hingað í síðasta mánuði.
Ástæðan fyrir því að Einar setti
Norðmönnum stólinn fyrir dyrnar
með að bjóða Serbum og Dönum til
mótsins var sú að íslenska lands-
liðið leikur í riðli með þessum þjóð-
um á Evrópumeistaramótinu sem
hefst 26. janúar.
Sögðu nei
við Norðmenn
„ÞAÐ er alveg frábært að fá
Frakka hingað til lands í tvo leiki
rétt fyrir EM, sannkallaður kon-
fektmoli,“ sagði Viggó Sigurðsson
landsliðsþjálfari um tvo síðustu
vináttulandsleiki íslenska lands-
liðsins fyrir Evrópumeistaramótið
en það eru tveir leikir við Frakka.
„Margir telja Frakka koma sterk-
lega til greina sem Evrópumeist-
arar og því ljóst að þar er á ferð
feikisterkt lið. Það verður mikill
prófsteinn fyrir bæði lið að mætast
í alvöruleikjum svo skömmu fyrir
EM. Þau verða þá komin nærri því
formi sem þau verða í á Evrópu-
mótinu og þar með verður um frá-
bæra leiki að ræða,“ sagði Viggó
ennfremur.
Franskt
konfekt rétt
fyrir EM