Morgunblaðið - 21.12.2005, Side 1
2005 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER BLAÐ C
Í HEIMSÓKN HJÁ SKAUTAFÉLAGI REYKJAVÍKUR / C2, C3
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
AIME Antheunis mun taka við þjálfun Íslendingaliðsins
Lokeren á nýju ári eða um leið og hann stígur niður úr
stóli landsliðsþjálfara Belga 31. desember næstkomandi.
Undir stjórn Antheunis tókst Belgum ekki að vinna sér
sæti í úrslitakeppni HM í Þýskalandi næsta sumar en
það er í fyrsta sinn frá árinu 1978 sem Belgar eiga ekki
lið í lokakeppni HM.
Antheunis tekur við starfi Slavoljub Muslin sem hefur
verið ráðinn þjálfari rússneska liðsins Lokomotiv
Moskva frá og með 1. janúar.
Antheunis er öllum hnútum kunnugur hjá Lokeren
þar sem þrír Íslendingar eru á mála – Arnar Þór Við-
arsson, Rúnar Kristinsson og Arnar Grétarsson. Þetta
verður í þriðja sinn sem hann er ráðinn þjálfari liðsins.
Hann stýrði liðinu fyrst frá 1985 til 1987 og aftur 1988
til 1993.
Lokeren er sem stendur í sjöunda sæti belgísku 1.
deildarinnar með 29 stig eftir 18 leiki, sjö stigum á eftir
Standard Liege sem trónir á toppnum.
Antheunis til
Lokeren í þriðja sinn
Tvö met féllu í viðureign Kiel ogMagdegurg. Aldrei áður hafa
verið skoruð fleiri mörk í leik í þýsku
1.deildinni, 88 talsins, og þá setti
Kiel markamet og varð fyrsta liðið til
að rjúfa 50 marka múrinn.
Sigfús Sigurðsson skoraði 5 mörk
fyrir Magdeburg, Arnór Atlason
komst ekki á blað en markahæstur
var pólski landsliðsmaðurinn Greg-
orz Tkaczyk með 7 mörk. Marka-
hæstur í liði Kiel var Nikola Karab-
atic með 12 mörk.
Sigfús fámáll
,,Ég vil ekkert tjá mig um leikinn
fyrr en ég búinn að sjá hann á mynd-
bandi,“ sagði Sigfús Sigurðsson við
Morgunblaðið þegar haft var sam-
band við hann til að leita skýringa á
óförum liðsins en ekkert náðist í
þjálfarann Alfreð Gíslason.
Gummersbach, sem tapaði sínum
fyrsta leik um síðustu helgi þegar
liðið lá fyrir Magdeburg, hristi af sér
slyðruorðið og sigraði Flensburg á
útivelli, 34:32, eftir að staðan hafði
verið jöfn í hálfleik, 17:17. Kóreski
risinn Yoon var markahæstur í liði
Gummersbach með 9 mörk, Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk, og
Róbert Gunnarsson 5 en báðir áttu
mjög góðan leik fyrir Gummersbach.
Á þriðjudaginn mætast tvö efstu
lið deildarinnar þegar Gummers-
bach tekur á móti Kiel í Köln Arena
höllinni en fyrir löngu er búið að
selja alla 19.250 miðana á leikinn.
Guðjón Valur: „Gott veganesti
fyrir leikinn gegn Kiel“
,,Þetta var virkilega sætur sigur
og gott hjá okkur að koma svona
sterkir til baka eftir skellinn á móti
Magdeburg. Við lékum virkilega vel
og það segir sitt að þetta var fyrsti
tapleikur Flensburg á heimavelli í
einhverjum 40 leikjum. Nú þurfum
við bara að fylgja þessum sigri eftir á
þriðjudaginn þegar við mætum Kiel.
Alla vega förum við með gott vega-
nesti í þann slag og ekki veitir okkur
af eftir að hafa heyrt um ófarir
Magdeburg gegn Kiel,“ sagði Guð-
jón Valur sem hefur nú skorað 130
mörk í 16 leikjum eða 8,1 mark að
meðaltali.
,,Það hafa margir talað um að
staða okkar gæfi ekki rétta mynd af
stöðu liðsins þar sem við ættum eftir
að mæta stórliðunum og eftir tapið á
móti Magdeburg heyrði maður radd-
ir um að þetta væri búið hjá okkur.
Við afsönnuðum það með þessum
frábæra sigri,“ sagði Guðjón Valur.
Róbert Sighvatsson skoraði 4
mörk fyrir Wetzlar í sigri liðsins á
Nordhorn. Wetzlar er í 14. sæti
deildarinnar með 10 stig.
hálfleiks með mörkum frá Saha og
Park. Jiri Jarosik minnkaði muninn
fyrir Birmingham á 75. mínútu en
markið vakti litla gleði í herbúðum
liðsins og virðist sem dagar Steve
Bruce knattspyrnustjóra liðsins séu
senn taldir enda er liðið í næstneðsta
sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Man.
Utd hefur aðeins einu sinni fagnað
sigri í þessari keppni, árið 1992.
Franski sóknarmaðurinn LoisSaha náði loks að setja boltann í
mark andstæðingana en hann skor-
aði tvívegis á St. Andrews í gær í
Birmingham og Ji-Sung Park frá S-
Kóreu skoraði sitt fyrsta mark fyrir
Man. Utd. Ekkert mark var skorað í
fyrri hálfleik en lærisveinar Sir Alex
Ferguson gerðu nánast út um leik-
inn á fyrstu fimm mínútum síðari
„Ég er að vakna eftir langa mar-
tröð og ég hef sagt það áður. En ég
er að reyna að horfa fram á veginn
og þessi mörk hjálpa mér við það og
það var góð tilfinning að upplifa það
að skora mörk á ný. Það mikilvæg-
asta var að við unnum leikinn og það
gefur okkur meira sjálfstraust,“
sagði Saha í gær og Ferguson var
sáttur við úrslitin.
„Ég held að Wayne Rooney hafi
breytt miklu í upphafi síðari hálf-
leiks en við fengum tækifæri til þess
að skora í þeim fyrri. Það var
ánægjulegt að Park skyldi skora þar
sem hann hefur fengið fín færi í vet-
ur,“ sagði Ferguson.
Nýliðar Wigan áttu ekki í vand-
ræðum með Bolton á heimavelli sín-
um en þar skoraði Jason Roberts
bæði mörk Wigan á fimm mínútna
kafla undir lok fyrri hálfleiks. Þetta
er í fyrsta sinn í sögu Wigan sem fé-
lagið leikur til undanúrslita.
Paul Jewell knattspyrnustjóri
Wigan getur nú látið sig dreyma um
að lið hans sé nú aðeins þremur
leikjum frá því að komast í Evrópu-
keppn. En í undanúrslitum keppn-
innar er leikið heima og að heiman.
Wigan hefur verið í deildarkeppni í
27 ár og aðeins tvívegis komist í
undanúrslit bikarkeppni neðrideild-
arliða.
Reuters
Ji-Sung Park, landsliðsmaður frá Suður-Kóreu, fagnar fyrsta marki sínu fyrir Manchester United
gegn Birmingham í gær og Wayne Rooney tekur þátt í fögnuðinum.
Park og Saha brutu ísinn
MANCHESTER United og Wigan komust í undanúrslit ensku deilda-
bikarkeppninnar í gær en Man. Utd. lagði Birmingham á útivelli 3:1
og Wigan vann Bolton á heimavelli sínum 2:0. Í kvöld ræðst hvaða
lið verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitum keppn-
innar en Arsenal sækir 2. deildarliðið Doncaster heim og Middles-
brough tekur á móti Blackburn í slag úrvalsdeildarliðanna.
Skin og skúrir í gærkvöldi hjá Íslend-
ingaliðunum í þýska handboltanum
Markamet í
stórsigri Kiel
á Magdeburg
ÞAÐ skiptust á skin og skúrir hjá Íslendingaliðunum í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gærkvöldi þegar fjögur efstu liðin mætt-
ust í innbyrðisleikjum. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg
máttu þola hroðalega útreið gegn meisturum Kiel en 54:34 urðu
lokatölurnar í Ostseehalle í Kiel. Í hinum toppleiknum gerði Gumm-
ersbach góða ferð til Flensburg þar sem liðið fagnaði sigri, 34:32.
Kiel trónir á toppi deildarinnar með 30 stig, Gummersbach hefur
28, Flensburg 27 og Magdeburg hefur 22 stig í fjórða sæti.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is