Morgunblaðið - 21.12.2005, Side 4
BJÖRN Margeirsson, FH, setti í
fyrrakvöld fyrsta Íslandsmet full-
orðinna í nýju frjálsíþróttahöllinni
í Laugardal. Þá kom hann í mark í
2.000 metra hlaupi á 5.25,23 mín-
útum. Björn taldi sig hafa bætt Ís-
landsmet Ágústar Ásgeirssonar,
ÍR, um rúmar 13 sekúndur því
samkvæmt metaskrá Frjálsíþrótta-
sambands Íslands (FRÍ) var Ís-
landsmetið í greininni 5.38,8 mín-
útur sett af Ágústi 24. janúar 1976
í Cosford í Englandi. Metaskrá FRÍ
er röng því Ágúst setti fyrrgreint
met í 2.000 m hindrunarhlaupi sem
er talsverður munur á. Met Björns
er að öllum líkindum fyrsta Ís-
landsmetið sem sett er í 2.000 m
hlaupi innanhúss.
Þegar Ágúst hljóp 2.000 m
hindrunarhlaupið í Cosford fyrir
nærri 30 árum á breska meistara-
mótinu kom hann fyrstur í mark og
fyrrgreindur tími var jafnframt sá
annar besti sem náðist í 2.000 m
hindrunarhlaupi innanhúss það ár-
ið í heiminum. Ágúst sagði við
Morgunblaðið að hann hefði aldrei
keppt í 2.000 m hlaupi innanhúss á
hlaupaferli sínum á áttunda og ní-
unda áratug síðustu aldar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Björn setti met
en sló ekki
STJÓRN körfuknattleiksdeildar
Hauka hefur sagt upp samningi við
bandaríska leikmanninn DeeAndre
Hulett og er þetta gert að tillögu
þjálfara meistaraflokks Hauka.
Hulett hefur átt við þrálát
meiðsli að stríða og hefur ekki náð
að sýna sitt rétta andlit, en hann
þykir mjög hæfileikaríkur leik-
maður. Hulett lék tíu leiki með
Haukum og gerði 22,8 stig að með-
altali í þeim og tók auk þess 8,3
fráköst, gaf 1,2 stoðsendingar í
leik. Hann tapaði knettinum 3,4
sinnum að meðaltali.
Haukar hafa þegar hafið leit að
nýjum bandarískum leikmanni.
Hulett farinn
frá Haukum
Mourinho er sagður hafa sentjólakort til allra hinna 19
knattspyrnustjóranna í úrvalsdeild-
inni, samkvæmt enskri hefð. Í kort-
inu til Wengers hafi verið sérstök
kveðja, með það að markmiði að
binda endi á óvináttu þeirra sem
blossaði upp þegar Mourinho kallaði
Wenger „gluggagægi“ og sagði að
hann væri haldinn þeirri áráttu að
njósna um Chelsea og hjá sínu félagi
hefði verið tekin saman 120 blað-
síðna skýrsla til sönnunar á því.
Wenger brást hart við, hótaði að
kæra Mourinho fyrir ummælin en
féll síðan frá því.
Wenger sendi ekki jólakort til
Mourinhos, og sagði aðspurður að
það væri enskur siður sem hann
skipti sér ekki af. Starfsmaður Ars-
enal hóf hins vegar eftirgrennslan
um hvort kortið væri í raun og veru
frá Mourinho. Portúgalinn reiddist
því og forráðamenn Chelsea sögðu í
gær að hann hefði jafnframt beðið
eftir því fyrir leikinn í gær að Weng-
er kæmi og byði sig velkominn á
Highbury en af því hefði aldrei orðið.
Jólakort eykur enn ́a óvináttu
ÞAÐ vakti mikla athygli á sunnudaginn, þegar leik Arsenal og
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni lauk á Highbury, að José Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea, gekk beint út af vellinum og tók ekki í
hönd Arsenes Wengers, kollega síns hjá Arsenal, eins og venjan er.
Enskir fjölmiðlar sögðu í gær að það hafi verið út af jólakorti.
SAMUEL Eto’o var í kastljósinu í gær á Nou Camp í
Barcelona í gær er spænska meistaraliðið lagði Celta
Vigo, 2:0, en landsliðframherjinn frá Kamerún skoraði
bæði mörk liðsins en hann hefur nú skorað 17 mörk í
deildinni. Að venju var mikil athygli á Brasilíumanninum
Ronaldinho sem í fyrrakvöld var valinn besti knatt-
spyrnumaður heims í kjöri FIFA en þetta er annað árið í
röð sem Ronaldinho er efstur í kjörinu.
Barcelona bætti félagsmetið með 13. sigurleik sínum í
röð í spænsku deildarkeppninni og Meistaradeildinni en í
þessum leikjum hefur liðið skorað 39 mörk en aðeins
fengið á sig 5. Barcelona er með fimm stiga forskot á
Osasuna sem er í öðru sæti með 35 stig en Barcelona hef-
ur leikið 17 leiki, einum meira en Osasuna. Real Madrid
er í þriðja sæti, 11 stigum á eftir Barcelona, en Real
Madrid á leik til góða á Barcelona.
Fyrir leikinn var Ronaldinho hylltur af stuðnings-
mönnum liðsins og Eto’o einnig en hann varð þriðji í kjör-
inu á knattspynumanni ársins hjá FIFA.
Reuters
Kamerúninn Samuel Eto’o skoraði bæði mörk
Börsunga og hefur þar með skorað 17 mörk.
Samuel Eto’o
á skotskónumLUCA Toni, markaskorari Fiorentina í ítölsku
knattspyrnunni, er hjátrúarfullur maður og telur
að yfirnáttúruleg öfl komi nú í veg fyrir að hann
nái að skora sitt 17. mark í 1. deildarkeppninni
þar í landi í vetur. Toni byrjaði tímabilið með lát-
um og skoraði 16 mörk í fyrstu 13 leikjum liðsins
en síðan hefur ekkert gengið, hann hefur verið
hittinn á markstangirnar og ekki einu sinni náð að
skora úr vítaspyrnu.
Á Ítalíu er 17 talin óhappatala, rétt eins og talan
13 er víðast annars staðar. „Ég er frekar hjátrúar-
fullur og er farinn að trúa því að þetta séu álög
tölunnar 17,“ sagði Toni við íþróttadagblaðið
Gazzetta dello Sport í gær.
Og þetta er ekki öll sagan því Toni hefur líka
týnt verndargrip sínum, litlu rauðu horni sem hef-
ur jafnan hangið í speglinum á bílrúðunni hjá hon-
um. Hann telur það ekki eiga síðri þátt í mikilli
óheppni sinni upp við mark andstæðinganna í
undanförnum leikjum.
Hjátrúin fer illa
með Luca Toni
VALDO, miðjumaður spænska
knattspyrnuliðsins Osasuna, er ekki
ánægður með framkomu Roberts
Carlos, brasilíska bakvarðarins hjá
Real Madrid, í leik liðanna á sunnu-
dag. Carlos braut þá illa á Valdo
strax á 18. mínútu með þeim afleið-
ingum að sá síðarnefndi fór af velli,
meiddur á ökkla. Hann reiddist mjög
og kastaði boltanum í áttina að Carl-
os.
VALDO segir að ástæðan hafi ver-
ið sú að Carlos hafi hlegið að sér og
sagst ætla líka að sparka í hinn ökkl-
ann á sér. Þeir voru áður félagar hjá
Real Madrid. „Carlos hefur breyst
mikið. Hann var áður kátur og lífs-
glaður fótboltamaður. Þeir sem
meiða aðra í leik biðjast vanalega af-
sökunar og ég varð fyrir miklum
vonbrigðum með hans framkomu,“
sagði Valdo.
KNATTSPYRNUSAMBAND
Sádi-Arabíu hefur rekið argentínska
þjálfarann Gabriel Calderon, þrátt
fyrir að landslið þjóðarinnar hafi
undir hans stjórn tryggt sér sæti í
lokakeppni HM næsta sumar á afar
sannfærandi hátt. Í stað hans hefur
verið ráðinn brasilíski þjálfarinn
Marcos Paqueta.
OBAFEMI Martins, nígeríski
knattspyrnumaðurinn hjá Inter Míl-
anó, hefur skrifað undir nýjan samn-
ing við félagið til ársins 2010. Mart-
ins er 21 árs gamall og hefur skorað
23 mörk fyrir liðið í efstu deild frá
því hann kom þangað fyrir þremur
árum. Samkvæmt nýja samningnum
nema árslaun hans um 190 milljón-
um króna.
KAIO Marcio, brasilískur sund-
maður, setti um helgina heimsmet í
50 metra flugsundi í 25 metra laug.
hann synti á 22,60 sekúndum á
brasilíska meistaramótinu sem fram
fór í Sao Paulo og bætti met Banda-
ríkjamannsins Ian Crocker frá því í
fyrra um 11/100 úr sekúndu.
ALLT bendir til þess að Paul
Scharner, miðvörður Brann í Nor-
egi og austurríska landsliðsins í
knattspyrnu, gangi til liðs við enska
úrvalsdeildarliðið Wigan Athletic
um áramótin. Wigan hefur komist að
samkomlagi við Brann um kaupverð
og nú er beðið þess hvað komi út úr
viðræðum Scharners við Wigan um
kaup og kjör.
MART Poom, eistneski landsliðs-
markvörðurinn í knattspyrnu, verð-
ur áfram í láni hjá Arsenal frá Sund-
erland út þetta tímabil. Hann var
fenginn til félagsins í haust þegar
Jens Lehmann var í banni í Evrópu-
keppni en verður áfram þrátt fyrir
að hann sé á eftir þeim Lehmann og
Manuel Almunia í röðinni hjá Arsen-
al.
PÓLSKI landsliðsmaðurinn Emm-
anuel Olisadebe, framherji gríska
liðsins Pantathinaikos, er á leið til
reynslu hjá enska úrvalsdeildarlið-
inu Portsmouth. Þessi 27 ára gamli
leikmaður sem fæddur er í Nígeríu
en er með pólskan ríkisborgararétt
hefur leikið undanfarin fimm ár með
Panathinaikos en var þar áður í her-
búðum Polonia Varsjá. Standi leik-
maðurinn undir væntingum og
kemst í gegnum læknisskoðun er
fastlega búist við því að hann skrifi
undir stamning við Portsmouth.
STEVE Davis n-írski landsliðs-
maðurinn í liði Aston Villa skrifaði í
gær undir nýjan þriggja og hálfs árs
samning við félagið. Davis er 20 ára
gamall miðvallarleikmaður sem hef-
ur á undanförnum dögum verið orð-
aður við Manchester United en hann
hefur þótt einn af bestu leikmönnum
Villa á leiktíðinni. Davis á að baki 5
landsleiki með N-Írum og hefur
skorað eitt mark. Villa hefur hins-
vegar gengið illa á leiktíðinni og er
samningur Davis gleðiefni fyrir
stuðningsmenn félagsins.
FÓLK