Morgunblaðið - 22.12.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 31
Dunilin gerir flér kleift a› töfra fram glæsilega servíettuskreytingu
í takt vi› tilefni›. Fjölbreytt litaúrval au›veldar flér a› ná fram
fleirri stemningu sem flú leitar eftir.
Í verslunum liggur frammi bæklingur frá
Duni flar sem finna má fjölmargar hugmyndir
a› servíettubrotum og bor›skreytingum.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
18
8
3
5
af flví besta!
BrotGlæsilegir skartgripir
Laugavegi 15 • sími 511 1900 • www.michelsen.biz
Það skiptir máli hvernig þeimskepnum líður sem gefa afsér matvöru. Neytendur eru
sem betur fer orðnir meðvitaðir um
það og vilja vita um uppruna vör-
unnar, í hvernig umhverfi og við
hvaða aðstæður hún er framleidd,“
segir Herdís Þórðardóttir hjá Brún-
eggjum og þarf að brýna raustina
þar sem hún gengur um á meðal
fimm þúsund hæna sem ganga laus-
ar í tvískiptu stóru húsi að Teigi í
Mosfellsbæ. Söngur sá sem hæn-
urnar gefa frá sér lætur nokkuð hátt
í eyrum fyrir óvana, en þær mæðgur
Herdís og dætur hennar Erla og
Birna, kippa sér ekki upp við gaggið
þar sem þær standa í stórræðum við
eggjatínslu. Hænurnar eru brúnar
að lit rétt eins og eggin sem þær
gefa og blómlegar í meira lagi, leika
sér og velta sér. „Þeim líður aug-
ljóslega betur og þrífast líka betur
heldur en þær hænur sem eru í þaul-
eldi og þurfa að dúsa í þröngu búri
með nokkrum öðrum hænum, eins
og tíðkast langoftast í eggjafram-
leiðslu.“
Vinirnir ánægðir með eggin
Brúnegg er lítið fjölskyldufyr-
irtæki og Herdís segir að hug-
myndin að því hafi lengi verið í skoð-
un. „Við erum tvenn hjón sem höfum
í nokkur ár alið með okkur þann
draum að fara út í vistvænan búskap
með hænur sem gefa brún egg og
með áherslu á velferð dýranna. Við
fórum loks af stað fyrir einu og hálfu
ári og eggin eru nýlega komin í búð-
ir. Þessar hænur eru frá Noregi, rétt
eins og hvítu hænurnar sem eru fyr-
ir hér á landi og eru af kyni sem heit-
ir Lohmann. Þessar brúnu hafa
þann kost að verpa einu eggi á sólar-
hring, sem eru góð afköst, en brúni
litur eggjanna er líka aðlaðandi. Við
höfum verið að gauka eggjum að vin-
um og kunningjum áður en þau
komu á markað og höfum fengið
mjög góð viðbrögð. Mörgum finnst
þessi egg bragðmeiri og betri en þau
hvítu. Skurnin er líka sterkari, rauð-
an fallega rauð og hvítan stinnari, en
það kemur líka til af því að þetta er
ungur fugl.“
Alltaf til egg í ísskápnum
Búkonurnar og systurnar Erla og
Birna voru duglegar að hjálpa til og
komnar í syngjandi jólaskap. Þær
skemmtu sér með hænunum, tóku
þær í fangið og klöppuðu þeim. Á
heimili mæðgnanna eru óhjákvæmi-
lega oft egg í boði og Herdís segir
systurnar vera duglegar að borða
egg en Birna geri þá kröfu að hafa
kál með sínu eggi. „Þeim finnst alltaf
jafngott að fá egg í brauði og við eig-
um alltaf til slatta af harðsoðnum
eggjum í ísskápnum. Ég baka líka
mikið af marengs, sem krefst
margra eggja, rétt eins og jólaísinn
heimagerði sem er ómissandi um há-
tíðirnar,“ segir Herdís og heldur
áfram að pakka eggjum úr hæn-
unum frjálsu sem væntanlega verða
hamingjusamar á jólunum.
Jólaís
Fyrir sex til átta
4 eggjarauður
4 msk. sykur
1 msk. vanillusykur
½ l rjómi
100 g suðusúkkulaði
50 g heslihnetukjarnar (en hnetu-
magni ræður þó hver og einn)
Stífþeytið saman eggjarauður og
sykur. Bætið vanillusykri saman við.
Stífþeytið rjómann og blandið hon-
um varlega saman við eggjarauð-
urnar.
Fínsaxið suðusúkkulaðið og
hnetukjarnana og hrærið út í blönd-
una.
Hellið ísblöndunni í eins lítra
hringform eða aflangt form og fryst-
ið í að minnsta kosti einn sólarhring.
Takið ísinn úr frysti og losið hann
úr forminu þannig: Dýfið forminu
augnablik í heitt vatn og hvolfið
forminu á disk eða fat. Setjið aftur í
ísskáp eða frysti.
Skraut
100 g suðusúkkulaði
3 dropar matarolía
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og
blandið olíunni saman við. Hellið
bræddu súkkulaðinu yfir ísinn.
Meðlæti: Gott er að bera ísinn
fram með ferskum ávöxtum.
Eggjabomba Herdísar
Fyrir fimm
10 egg
1 laukur
2 stk. bökunarkartöflur
1 pakki beikon
1 pakki skinka
tómatar
ostur
Skerið laukinn í litla bita og kart-
öflurnar í teninga og steikið á pönnu.
Setjið í eldfast mót. Steikið síðan
beikonið og skinkuna og setjið í mót-
ið. Hrærið eggin saman, kryddið
með salti og pipar og hellið yfir
blönduna í mótinu. Saxið tómatana
og setjið yfir, skerið ostinn í sneiðar
eða rífið hann og setjið að lokum yfir
allt saman. Bakið í ofni við 180–200
C í 40 mínútur.
NÝJUNG | Vistvæn brún egg í fyrsta sinn á markað hérlendis
Hamingju-
samar hænur
á jólunum
Sjónvarpskokkurinn klæðalitli Jamie Oliver
notar eingöngu brún egg í sinni matargerð og
tekur ævinlega fram að þau séu vistvæn. Nú geta
íslenskir matgæðingar fengið slík egg hérlendis.
Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti mæðgur á
eggjabúi sem handléku brún egg af mikilli
list morgun einn á aðventunni.
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Búkonurnar Erla og Birna
léku sér við hænurnar sem
leyfðu þeim að halda á sér.
Þessi sveinki
kemur með brúnt
egg til byggða á
jólunum.
DAGLEGT LÍF