Morgunblaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 43
UMRÆÐAN
MIG undrar oft hversu stór sá
hópur er sem tignar Bakkus og
allt hans athæfi. Afsakar það enda-
laust þótt fjölmargir í kringum þá
falli í duftið fyrir eiturefnum. Hóp-
ur sem tilbúinn er að klappa þeim
á bakið sem vilja auðvelda aðgang
þessa skaðræðis sem áfengið er.
Vitandi betur að öll tilslökun leiðir
meiri áþján og bölvun yfir land og
þjóð.
Hópur sem ber hausnum við
steininn þó að í hvert skipti sem
opnað er fyrir útvarpið heyrist um
þær hörmungar sem áfengið og
eiturnautnirnar skilja eftir sig.
Skáldið Jón Trausti skynjaði allt
það böl sem áfengið veldur. Í
kvæðinu „Heyrðu yfir höfin gjalla“
talar skáldið enga tæpitungu:
Oft er það með ákefð varið,
Eymd og neyð sem stafar frá.
Fram það logna blákalt barið.
Blindir þeir sem eiga að sjá.
En það sanna sundurmarið.
Sett til spotts á krosstré há.
Þessu ennþá fram er farið,
Finnst þér rétt að standa hjá.
Nú er talað fyrir því á Alþingi
að minnka allt eftirlit með sölu á
áfengi og eiturlindum. Leggja
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
niður og leyfa varningnum að
fljóta í matvælaverslunum í land-
inu.
Jólin eru í aðsigi. Helgasti tími í
lífi þjóðarinnar. Því miður er fólk
orðið svo sljótt að það lætur áfeng-
ið setja svip á jólahaldið. Það gerir
sér ekki grein fyrir afleiðingunum.
Ég átti tal við einn af þingmönnum
landsins sem keppist við að auka á
vandann með því að tala fyrir til-
slökunum á sölu áfengis. Hann
vildi lítið um þetta ræða, við-
urkenndi að ástandið myndi ef til
vill versna í bili, en svo lærðu
menn að forðast snörur áfengis og
allt mundi jafna sig. Já jólin eru á
næsta leiti. Ill öfl eru ekki langt
undan og ástæða til að þingmenn
snúi við þeim blaðinu og íhugi önn-
ur vísuorð Jóns Trausta:
Sérðu eigi ótal eiturlindir,
ótal snáka sjúga blóð?
Sérðu ei ótal eymdarmyndir,
örbirgð, læging, spott og hnjóð?
Skyldi tilslökun á verslun með
áfengi einhvern tímann verða
“„ólagjöf“ þingmanna til fólksins í
landinu? Ég óska þess að góð öfl
taki í taumana og landsmenn geti
boðið hver öðrum gleðileg jól með
ósk um farsæld á komandi árum.
Landsmönnum öllum óska ég
gleðilegra og vímulausra jóla.
ÁRNI HELGASON,
fyrrverandi stöðvarstjóri
Pósts og síma,
Neskinn 2,
Stykkishólmi.
Finnst þér
rétt að standa hjá?
Frá Árna Helgasyni
Gleðilega hátíð með
foie gras frá LabeyrieSÍF óskar samstarfsaðilum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Frakkar eru annálaðir sælkerar og þar í landi er foie gras,
anda- og gæsalifur í ýmsu formi, höfð á borðum yfir
hátíðarnar. Nú geta íslenskir sælkerar einnig notið þessarar
lúxusfæðu en foie gras frá Labeyrie, einum fremsta
matvælaframleiðanda Frakklands, fæst í verslunum
Hagkaupa og Nóatúns.
SÍF hf. er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og sölu tilbúinna matvæla og hátíðarrétta í Evrópu.
Vörur SÍF eru m.a. seldar undir eftirtöldum vörumerkjum:
Munstruð kr. 4.995
Einlit kr. 3.995
Kokkabókastatív
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn