Morgunblaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 47
MINNINGAR
(Lítil frásögn um
heimsókn til Ingimars
á vinnustað hans.)
ED. „Sæll og blessaður, Ingimar
minn, hvernig sæki ég að þér?“
IS. „Nei, ert það þú, Erlingur,
komdu blessaður og sæll, gaman að
sjá þig. Já, þú ert að eiga stór-
afmæli á næstunni, til hamingju
með það. Þetta verður maður nú að
ganga í gegnum eftir því, sem að
ber. Hva og þú verður“
(ég man ekki hvort ég varð sex-
eða sjötugur) „og þú heldur þér
svona skrambi vel, ja-há.“ (stutt
þögn, rýnir í plögg á borðinu fyrir
framan hann) „Ja, hvað má ég nú
gera fyrir þig í dag, vinur?“ (ED er
með eitthvað kvabb eins og oft áð-
ur) „Ég fékk þetta nú lánað hjá þér
fyrir nokkrum árum manstu?“
IS. „Já, alveg rétt, sjálfsagt.
Heyrðu, bíddu aðeins, ég þarf að
eiga orð við“ (nefnir nafn ) „áður en
hann fer, hann er að fara með brú-
arbitana í brúna á“ (nefnir nafn á
brú) „kem alveg, bíddu aðeins.“
IS (kemur aftur eftir örskots-
stund.) „Jæja, hvað segirðu, já ein-
mitt, ég óska þér hjartanlega til
hamingju með afmælið“ (um leið og
hann tekur í hönd mína og leggur í
hana brúna pappírssnuddu. Á hana
er rituð afmælisvísa, með hlýlegum
óskum af tilefninu. skrifuð um leið
og hann afgreiddi bílstjórann.) „Já,
þig vantar það, farðu og talaðu við
hann,“ (nefnir nafn á starfsmanni)
„hann veit allt. Gangi þér allt í hag-
inn. Blessaður – en farðu varlega
svo þú ekki slasir þig á…“ (gripn-
um).
Já, svona var að hitta Ingimar
Sigurðsson á vinnustaðnum, alltaf
jafnhress, vinsamlegur í viðmóti,
skemmtilegur í viðræðum, vel
minnugur um skemmtileg/óvænt at-
vik frá liðnum árum, sívinnandi, oft
með vísu á takteinum eins og í ofan-
INGIMAR
SIGURÐSSON
✝ Ingimar Sig-urðsson fæddist
á Litlu-Giljá í Aust-
ur-Húnavatnssýslu,
3. ágúst 1924. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
7. desember síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Kópa-
vogskirkju 15. des-
ember.
greindu tilviki milli
þess sem erill dagsins
kallaði.
Vertu blessaður,
Ingimar, og ég bið
Guð alföður að leiða
þig um þín fram-
tíðarheimkynni.
Þakka þér fyrir
ánægjulega viðkynn-
ingu um árafjöld,
minningin um hana
mun lifa mig.
Erlingur Dagsson.
Ég vil kveðja einstakan vin sem
ég eignaðist þegar ég var ung
stúlka, Ingimar eða Ingi eins og við
kölluðum hann var mikill vinur
minn og þær voru ekki ófáar ferð-
irnar sem ég trítlaði til Huldu og
Inga. Maður var ávallt velkomin í
heimsókn til að skoða dótið og
spjalla aðeins um daginn og vegin
við hann Inga, og yfirleitt gekk ég
inn og var komin úr öllum útifötum
þegar ég loksins bankaði til að fá að
kíkja í heimsókn. Oft minntist Ingi
á þetta eftir að ég varð fullorðin
hvað honum fannst þetta fyndið. En
því miður vorum heimsóknirnar fá-
ar eftir að ég varð eldri, ég passaði
þó uppá að þessi sérstaki vinur
fengi ávallt að fylgjast með mér og
dóttur minni sem hann unni alveg
jafnmikið. Með þessum fáu orðum
vil ég biðja guð að geyma þig og
hana Huldu þína sem þú færð nú
loks að hitta aftur, og ég geymi
minningarnar þar til við hittumst
næst og getum spjallað saman um
allt það liðna.
Þín vinkona
Guðrún Halla.
Ingimar Sigurðsson, félagi í
Lionsklúbbnum Munin, er fallinn
frá. Hann var stofnfélagi og einn af
máttarstólpum klúbbsins. Hann var
heiðraður af félögum sínum, gerður
að Melvin Jones-félaga sem er
æðsta viðurkenning sem Lions-
hreyfingin veitir. Ingimar var einn
ötulasti hvatamaður að stofnun
Sunnuhlíðarsamtakanna og einn af
aðalforsvarsmönnum þeirra sem
stóðu að söfnun meðal bæjarbúa til
að reisa hér hjúkrunaheimili aldr-
aðra. Afreki sem lengi verður
minnst í sögu Kópavogs. Hann var
frá upphafi forsvarsmaður okkar
við stofnun og rekstur Sunnuhlíðar
og sat í stjórn hússins um árabil.
Við klúbbfélagarnir minnumst
hans sérstaklega þegar hann tók
sig til og hélt yfir okkur tölu um
gildi Lionsstarfsins og hvernig við
ættum að reyna að bæta unhverfi
okkar. Taldi það raunar nánast
skyldu hvers hugsandi manns að
sinna slíkum málum. Hann var sér-
lega næmur á kjör þeirra sem
minna mega sín. Sem dæmi um það
er að hann var upphafsmaður að því
að styrkja Íþróttafélagið Ösp með
því að gefa bikara og verðlaunapen-
inga. Ingimar taldi að það hefði
mikla þýðingu fyrir félaga þess að
fá hvatningu til að taka þátt í upp-
byggilegu íþróttastarfi. Hann var
ávallt reiðubúinn að taka þátt í
hverju því sem klúbburinn tók sér
fyrir hendur og var ekki eiginlegt
að gera mikið úr verkum sínum.
Þegar fyrirlesarar komu á fundi til
að kynna okkur hin ýmsu málefni
var hann jafnan meðvitaður um efni
þess. Hann spurði krefjandi spurn-
inga og tjáði sig í örfáum orðum um
efnið með skýrum og hnitmiðuðum
hætti. Við félagarnir hlustuðum af
áhuga á það sem hann lagði til mál-
anna.
Ingimars verður sárt saknað úr
okkar hópi. Blessuð sé minning um
góðan Lionsfélaga.
Innilegar samúðarkveðjur send-
um við börnum hans og fjölskyldum
þeirra.
F.h. Lionsklúbbsins Munins,
Einar Long Siguroddsson.
Drýpur sorg á dáins vinar rann,
Drottinn, huggaðu alla er syrgja hann,
börnin ung sem brennheit fella tár,
besti faðir, græddu þeirra sár.
þú ert einn sem leggur líkn með þraut
á lífsins örðugstu þyrnibraut.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Í dag kveðjum við góðan vin okk-
ar hann Ingimar eða Inga eins og
við kölluðum hann.
Nú þegar hann er farinn frá okk-
ur streyma minningarnar fram í
hjörtu okkar. Allar tjaldútilegurnar
sem við fórum í og ekki var leið-
inlegt þegar hann bauð okkur í bíl-
túr og sagði okkur skemmtilegar
sögur. Ingi og Hulda fylgdust alltaf
með okkur og er ég þeim það æv-
inlega þakklát. Með þessum fáu
orðum viljum við minnast góðs vin-
ar. Kæra fjölskylda, guð veri með
ykkur.
Gyða Marvinsdóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS BOLLASONAR,
Bjargi,
Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- og hjúkrun-
arheimilinu Hlíð fyrir vinsemd og hlýju.
Jónaína Þórðardóttir,
Ævar Ragnarsson, Ragna Pálsdóttir,
Katrín Ragnarsdóttir, Vífill Valgeirsson,
Bolli Ragnarsson, Laugheiður Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð við andlát og útför okkar elskulega eigin-
manns, föður og tengdaföður,
HALLDÓRS K. HALLDÓRSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 3-B,
Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir frábæra umönnun.
Sesselja Halldórsdóttir,
Rósa Halldórsdóttir
og Ragnar Hjaltason.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför hjartkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HJARTAR HARALDAR GÍSLASONAR
flugvirkja,
Brautarlandi 7,
Reykjavík.
Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Gerða Friðriksdóttir,
Halldóra Hjartardóttir, Kristján Ólafsson,
Benedikt Hjartarson, Elín Borg,
Matthildur Hjartardóttir, Guðni Þór Ingvarsson,
Anna Hjartardóttir, Kristinn Ingvarsson,
Gísli Hjartarson, Gréta Ingþórsdóttir,
Dagrún Hjartardóttir, Guðmundur Sigurjónsson
og barnabörn.
Við sendum hugheilar þakkir öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og stuðning við fráfall og
útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og sonar,
KRISTINS ÓSKARS MAGNÚSSONAR
framkvæmdastjóra
Fráveitu Hafnarfjarðar,
Hjallabraut 43,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins
og líknardeildar Landspítala Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Alúðarþakkir fyrir allt.
Margrét B. Eiríksdóttir,
Berglind M. Kristinsdóttir, Ólafur K. Eyjólfsson,
Katrín J. Kristinsdóttir, Birgir Sólveigarson,
Sigríður Ólafía Ragnarsdóttir,
Guðrún Sveinsdóttir.
Hugheilar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
PÁLMA ÓLAFSSONAR
frá Holti á Ásum.
Aðalbjörg Þorgrímsdóttir,
Jósefína Hrafnh. Pálmadóttir, Ingimar Skaftason,
Vilhjálmur Pálmason, Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Guðrún Pálmadóttir, Andrés Arnalds,
Þorgrímur Pálmason, Svava Ögmundsdóttir,
Ólöf Pálmadóttir, Valdimar Guðmannsson,
Elísabet Pálmadóttir, Jón Ingi Sigurðsson,
Bryndís Pálmadóttir, Sighvatur Steindórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Mér bárust þær
hræðilegu fréttir þar
sem ég var staddur úti
á sjó að Siggi Róberts
vinur minn væri dáinn. Ég fékk að
fara í land til að vera við útför Sigga.
Nú er ég kominn suður til Lilju syst-
ur sem býr í Kópavoginum í hverfinu
sem við Siggi ólumst upp í og mér
finnst eins og við höfum verið að gera
prakkarastrik hérna úti í gær. Siggi
átti heima í átta hæða blokkinni en
ég í tíu hæða. Það var stór vinahópur
sem kom saman, í Vörðufellssjoppu,
fótboltavellinum, skiptistöðinni eða
að fá húsverðina á hreyfingu í blokk-
unum okkar. Kvöld eitt ráfaði ég út
með disco-klippinguna sem Hulda
María systir Sigga hafði klippt, til að
hitta einhvern í sjoppunni eða fót-
boltavellinum og hitti Sigga. Hann
var að fara til Hauks sem var einn
heima. Biggi og Ommi komu líka, og
framkvæmdum við stærsta prakk-
SIGURÐUR ARNAR
RÓBERTSSON
✝ Sigurður ArnarRóbertsson
fæddist í Reykjavík
20. maí 1967. Hann
lést af slysförum
mánudaginn 12.
desember síðastlið-
inn og var jarðsung-
inn frá Fossvogs-
kirkju 20. desem-
ber.
arastrikið þetta kvöld.
„Við fórum á rúntinn“
og vorum heppnir að
lifa það af þar sem við
fórum nokkrar veltur.
Maður spyr sig: Af
hverju gat Siggi ekki
lifað þetta slys af líka?
Fáum við kannski
bara einn séns?
Vinahópurinn
dreifðist er leið á ung-
lingsárin en samt hafa
leiðir okkar Sigga leg-
ið saman öðru hverju.
Þegar Siggi kom suð-
ur eftir langa veru á Akureyri end-
urnýjuðum við kynnin og vorum tals-
vert í sambandi.
Það var gott að tala við Sigga,
hann var alltaf rólegur og yfirveg-
aður. Siggi er einn af þeim sem móð-
ir mín (sem nú býr í Noregi) spyr
hvað sé að frétta af þegar ég heyri í
henni. Hún er oft búin að segja mér
frá því þegar hún kom til landsins
fyrir um þremur til fjórum árum og
hitti Sigga: „Hann var svo æðislegur,
leit svo vel út og allt gekk svo vel.
Gengur ekki allt vel ennþá hjá hon-
um?“
Ég hef hitt Sigga öðru hverju und-
anfarið þar sem ég bý á Akureyri, en
segi við mig núna: Af hverju fór ég
ekki oftar á Cafe Amor til að hitta
Sigga? Ég veit að englar himins og
mamma þín eru með þér núna, Siggi
minn. Það er sárt að hugsa til þess að
þú sért farinn, en við hittumst örugg-
lega seinna. Guð veri með börnum
þínum, ættingjum og vinum í sorg-
inni.
Þinn vinur,
Ingólfur.
Minningargreinar sem birtast eiga
þriðjudaginn 27. og miðvikudaginn
28. desember þurfa að berast okk-
ur fyrir hádegi á Þorláksmessu,
föstudaginn 23. desember.
Greinar sem eiga að birtast
mánudaginn 2. og þriðjudaginn 3.
janúar þurfa að berast fyrir hádegi
föstudaginn 30. desember.
Minningargreinar skulu ekki
vera lengri en 400 orð eða 2.000
slög (með bilum). Greinarnar skal
senda í gegnum vefsíðu Morgun-
blaðsins: mbl.is – smella á reitinn
Senda efni til Morgunblaðsins – þá
birtist valkosturinn Minningar-
greinar ásamt frekari upplýsing-
um.
Einnig er hægt að senda greinar
á netfangið minning@mbl.is. Nafn
og símanúmer þarf að fylgja, ef
greinar eru sendar þannig. Sjálf-
virkt svar er sent um hæl þar sem
spurt er um nafn og símanúmer.
Skil um hátíðarnar