Tíminn - 04.03.1971, Qupperneq 1

Tíminn - 04.03.1971, Qupperneq 1
Hafft eftir HomffSrðisigiam, IjSs. S-7 guðmundar Bergþóruqötu 3 Símar: 19032 — 20070 LJÓSA PERUR 3&/r<atJL£jcchtAAéjLcUx, A./* BAFTÆKJADEILO, HAFNARSTBÆTI 23, SlMI 1Í39S §>2. tbl. — Fimmtudagur 4. marz 1971 55. árg. FERMINGARBÖRNIN MEÐ LÁNAÐAR BÆKUR: Sálmabækur uppseldar Geirfuglinn verSur boðinn upp í London í dag, uppstoppaður í sínu bezta skarti. Settur undir hamarínn í dag SJ—Reykjavík, miðvikulag. Dr. Finnur GuSmundsson, fugla fræðingur, og Valdimar Jóhann- esson, framkvæmdastjóri geir- fuglssöfnunarinnar, fóru utan til Lundúna í morgun og verða þeir viðstaddir uppboðið hjá Southby í fyrramálið. Ætluðu þeir að reyna Framhald á 14. síó'u. Flúor-leið- réttingunni er nú lokið EJ—Reykjavík, miðvikudag. Flúornefndin svonefnda hefur nú endurskoðað hluta af skýrslu sinni frá því í október 1970 um mengun frá álbræðslunni í Straums vík, og er þar um ðð ræða kafl- ann um skaðsemismörk. Sem kunn ugt er hafa íslenzkir vísinda- menn bent á, aó' fullyrðingar í skýrslunni um þetta efni væru rangar, og beinlínis ranglega vitn að í erlend vísindarit. Hefur þessu nú verið kippt í lag af hálfu nefnd arinnar, og þýðingar á þeim köfl um, sem um ræðir í erlendu vís- indaritunum, nú orðnar réttar — að því er fram er haldið. FB-Reykjavík, miðvikudag. Eitt af því, sem hvert fermingarbarn fær, er sálmabók. Á þessu vori verða fermingar- börnin sennilega að láta sér nægja að fá sálma bækurnar sínar lánaðar, þar sem þær eru gjör- samlega uppseldar, og verður bókin ekki endurprentuð í því formi, sem síðasta sálmabók var gefin út í, þar sem starfandi hefur verið nefnd, sem fjallar um endurskoðun sálma- bókarinnar ,og hefur hún ekki enn lokið störfum. Blaðið sneri sér til biskupsins, hr. Sigurbjörns Einarssonar en hann er formaður Sálmabókar- nefndar, og sagði hann, að efcki hefði þótt fært að láta endur- prenta sálmabókina eins og hún hefur verið, enn einu sinni, þar sem svo skamrnt væri í nýja bók, og sú gamla yrði þá um leið úr- elt. — Ný útgáfa er fyrirhuguð inn an skamms, og vonandi getur hún komið út á þessu ári, sagói bisk upinn. — Þess vegna var ekiki átt við að prenta bókina upp, þegar upplagið þraut, því það hefði ver- ið að tjalda aðeins til einnar næt- ur. Sálmabók sú, se,m verið hefur í notkun, kom fyrst út árið 1945, en hefur verið endurprentuð hvað eftir annað síðan. — Allmiklar breytingar verða á bókinni við þá endurskoó'un, sem nú stendur yfir, o,g er nánast lok- ið. Þó enu smávægileg atriði enn, sem eftir er að ganga frá. Sálmum mun fækka allverulega í bókinni, því nú hverfa út úr bókinni ýms ir Sálmar sem lítið eru notaðir, eða alls ekki. Eitthvað kemur nýtt ein það er þá tiltölulega lítið. í sálmabókarnefndinni voru fiimm menn, en einn þeirra, Séra Sigurður Einarsson í Holti er fall inn frá. Aðrir í nefndinni auk biskupsins eru Tómas Guðmunds- son sfcáld, sr. Sigurjón Guðjóns- son prófastur og dr. Jakob Jóns- son. Konan og börnin koma frá Ástralíu á mánudag FB—Reykjavík, miðvikudag Ræðismanni íslands í Melbourne í Ástralíu liefur verið sent skeyti þess efnis, að fanniðar liggi nú fyrir handa konunni og börnunum þremur, sem að undanförnu hefur verið safnað fyrir hérlendis. Hins vegar hefur ekki verið greiddur farmiði fyrir heimilisföðurinn, enda mun það ekki hafa verið ætluniii í upphafi, þegar söfnun hófst fyrir fjölskylduna. Ekki hafa opinberir aðilar liér haft samband við fólkið persónu- lega heldur hafa öll viðskipti far- ið fram í gegn um ræðismanninn í Melbourne, Var honum tilkynnt, að fyrir lægju opnir flugmiðar fyrir fólkið, og stungið upp á aö það kæmi með flugvél á mánudag inn kemur, en þó ekki sett að skil- yrði, þar sem ekki er vitað, hvort sá dagur hentar fólkinu. Flugferð er frá Melbourne skömmu fyrir há- degi á mánudögum til London. Eemur flugvélin til London fyrir hádegi næsta dag, en síðdegis á þriðjudögum er einmitt bein flug ferð frá London til Reykjavíkur. Ekki var talið hentugt að þiggja boð Eimskipafélagsins um far fyr- ir fóikið heim með einhverju skipa félagsins frá höfn í Evrópu. þar sem vel hefði getað farið svo, að hótelkostnaður hefði orðið tölu- verður og erfiðleikar við að sam- Strengur leigir hluta af Laxá í Suður-Þingey|arsýslu: STÖNGIN í 8 ÞilS. A DAG EB-Reykjavík, miðvikudag. ★ Veiðifélagið Strengur hefur nú tekið á leigu í 5 vikur í sumar, vciðisvæði í Laxá í Suður- Þingeyjarsýslu, sem Hermóður Guðmundsson í Árnesi liefur um- ráð yfir. Staðfesti Hermóður þetta í viðtali við Tímann, en vildi lítt um samninginn segja. ★ Tíminn hefur hins vcgar hler að, að samningurinn við Streng sé þannig, að stöngin kosti 8 þús. kr. á dag, cn 5 stangir eru á veiðisvæðinu. Eru innifalin í þessum samningi ýmis hlunn- indi, svo sem húsnæði, matur og leiðsögn um veiðisvæðið. Er það í júlí og ágúst í sumar, scm Strengur hefur aðgangsrétt að þessum feita bita, sem ýmsir aðr- ir aðilar, m.a. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hafa áliuga á, en á ræma komu fólksins til hafnar- borgar og brottför Eimskipafélags skips þaðan aftur. Söfnunin fyrir Ástralíufarana hefur nú staðið í rúman mánuð, og munu hafi borizt nokkuð yfir tvö hundruð þúsund krónur. End anlegar tölur lig'gja e'kkj fyrir ennþá, enda söfnuninni ekki hætt, þrátt fyrir það, að fólkinu hafi verið sendir flugmió'arnir. Verð- ur henni haldið áfram enn um sinn, þar sem ekki er enn komið nægilegt fé til þess að greiða flugmiðana til fulls. Hins vegar mun ekki hafa þótt rétt að draga lengur að aðstoða fólkið við að komast heim. Farið fyrir konuna og börnin þrjú kostar samtals 274 þúsund krónur. þessu veiðisvæði dvaldi Bing Crosby í íslandsferð sinni um árið. ★ í fyrrasumar mun það hafa verið norsk-amerísk ferða- skrifstofa, sem liafði umrætt veiði svæði á leigu, en Hermóður mun hafa slæma reynslu af þeirri stofn un, þar sem hún mun nú skulda honuni enn talsvcrt af leiguvcrð- inu. Trygve Bratteli GERIR MIÐ- FLOKKURINN BRATTELI AÐ FORSÆTISRÁÐH. NTB-Osló, miðvikudag. Mikil spenna ríkir nú í norsk um stjórnmálum, og er mið- stjórnarfundar Miðflokksins, sem haldinn verður á fimmtu- daginn, beðið með mikilli eft- irvæntingu. Ýmsir telja hugs- anlegt, að miðstjórnin kunni að hafa nokkuð aðra afstöðu til stjórnarmyndunar en fram- kvæmdastjórn og þingflokkur Miðflokksins, en þó er almennt talið nokkurn veginn víst, að miðstjórnin muni hafna stjórn arþátttöku og gera þannig Trygve Bratteli að forsætisráð herra minnihlutastjómar. Látið hefur verið að því liggja, að skiptar skoðanir hafi verið innan framkvæmdastjórn ar og þingflokks Miðflokksins, en þessar stofnanir flokksins hafa lýst því yfir, að með ör- lögum Bortens-stjórnarinnar hafi grundvellinum verið kippt undan frekari fjór-flokka-stjóm í Noregi. f miðstjórninni, sem hefur fund sinn snemma í fyrramálið, eiga sæti fulltrúar lir öllum kjördæmum Noregs, auk þingmanna og ýmissa ann arra, samtals 40—50 manns. Fundurinn mun standa fram eftir degi, og að honum lokn- um vcrður Ijóst, hver mun mynda næstu ríkisstjórn. Bernt Ingvaldsen, forseti Stórþingsins, sem Ólafur kon- ungur fól að kanna möguleik- ana á stjórnarmyndun, hefur lýst því yfir, að ef ekki sé grundvöllur fyrir nýrri ríkis-1 stjórn borgaraflokkanna fjög-! urra, þá muni hann leita til konungs og ráðleggja honumi að fela Bratteli myndun minni- hlutastjórnar. Hugmyndin um minnihluta- Framhald á 14. síÖu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.