Tíminn - 04.03.1971, Side 2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 4. marz 1971
BÚIZT VID MIKILLIÞÁTT-
TÖKU I NORRÆNA BYGG-
INGARDEGINUM Í FINN-
LANDIIJÚNÍMÁNUÐI
Prófessorshiónin (HeiSrún Rútsdóttir og SigurSur Jónsson), 'Hillaríus og
Matthildur (Magnús ÞórSarson og ValgerSur GuSlaugsdóttir) og t.h. Thor-
kelsen sýslumaSur (Björn Jónsson).
Leikstarfsemi endur-
vakin í Vík í Mýrdal
Á s.l. ári var stofnað ungmenna-
félag 1 Vík í Mýrdal. Segja má,
afð það hafi þegar nokkru afrekað,
sem telja má til menningarauka
hér um slóðir á sviði íþrótta og
félagsmála.
Leikstarfsemi hefur lengi legið
niðri í Vík. Én rneð tilkomu félags
heimilisins Leikskálar, hefur að-
staðan batnaó' til muna. Ungmenna
félagið hefur nú tekið upp þráð-
inn og á vonandi eftir að gera
meira. Alþýðlegur, vinsæli gaman-
leikur, „Húrra krakki“, varð fyrir
valinu. Frumsýning fór fram í fé-
lagsheimilinu s.l. laugardag, og
var þar mjðg glatt á hjalla þetta
kvöld.
Leikstjóri er ungur Skaftfelling
ur, Sævar Helgason, sem lokið
hefur prófi frá Leikskóla Þjóð-
leikhússins. Leikstjöld málaði hann
einnig ásamt Sigurjóni Rútssyni,
en leiktjaldsmíði annaðist Sigurð-
ur Ævar Harðarson ásamt félögum
úr ungmennafélaginu.
Persónur og leikendur eru: Guð
mundur Geðdal leikinn af Sigurfði
Jónssyni, skrifst.m. Hanna kona
hans leikinn af Heiðrúnu Rútsdótt
ur, Thorkelson sýslumaður af
Birni Jónssyni, skólastjóra. Matt-
hildur, kona hans af frú Valgerði
Guðlaugsdóttur. Úlfur Austman,
Helgi Gunnarsson verzl.m. Helga
Stefáns af frú Önnu Björnsdóttur,
Hillaríus af Magnúsi þórðarsyni,
loftsk.m. Anna, stofustúlka af frú
Sóleyju Ragnarslóttur og Tómas
tútomma af Birni Friðrikssyni,
verrzl.m. Leikendur eru allir úr
Vík.
Hlutverkin voru öll vel af hendi
leyst og sum með mestu prýði,
þegar haft er í huga, að tími til
æfinga var naumur og leikendur
allflestir viðvaningar. Sýningin var
me® léttum blæ og greinilegt, að
stjórnlagnir leiðbeinendur geta
miklu orkað.
Sviðsbúnaður var ágætur og á
Ungmennafélagið Drengur þakkir
skilið fyrir að hafa nú hafizt handa
á myndarlegan hátt, til heilla
Þalíu, eftir áralangt hlé.
Leikskrá var vel úr garði gerð,
skreytt merki félagsins, sem er
af Reynisdröngum með íslenzka
fánann í forgrunni. Merki þetta er
gert af Sigurjóni Rútssyni, raf-
virkja í Vík. Þar leynist greinilegt
listahandbragð.
Húsfyllir var á frumsýningunni
Framhald á 14. síöu.
FB—Reykjavík, mánudag.
Norræni byggingardagurinn,
hinn ellefti í röðinni, verður hald
inn í Helsinki í Finnlandi dag-
ana 9. til 11. júní næst komandi.
Síðasti bygigingardagurinn var
haldinn hér í Reykjavík i ágúst
1968. Þá komu hingað um 700 er-
lendir gestir auk nokkur hundruð
íslenzkra þátttakenda. Nú er bú-
izt vió, að þáttakendur verði milli
1500 og 2000 talsins.
Skipulagðar hafa verið ferðir
á Norræna byggingardaginn. Kostn
aður við vifou dvöl í Finnlandi
og ferðir fram og til baka er frá
18 þúsund krónum, en auk þess
verða menn að greiða sérstakt
þátttökugjald. Veita byggingaþjón
usta AÍ, Laugavegi 26 og Ferða-
skrifstofan Útsýn allar upplýsing-
ar um þátttöku í Byggingardeg-
inum.
Norræni byggingardaguirinn er
stærsta ráðstefna, sem byggingar-
menn halda meó' sér á Norður-
löndum. Hverri ráðstefnu er val-
ið ákveðið verkefni og hafa Finn-
ar valið verkefnið Byggingarstarf-
i semin endurnýjuð.
Fjögur aðalerindi verða flutt og
| eru þau þessi:
Flytja út vatn
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Bæði ís- og vatnsútflutningur
virðist vera að komast í tízku.
Danir flytja sem kunnugt er út
ís frá Grænlandi, og nú hafa Norð
menn hafið útflutning á vatni m.
a. til Danmerkur. Kallast vatn
þetta Norwater. og kemur frá upp-
sprettu á Kragerö-svæðinu í suð-
urhluta Noregs. Er hér um að
ræða hreint og tært drykíkjar-
vatn.
Freyjukonur,
Kópavogi
Keramiknámskeiðið hefst 10.
marz. Þær sem ekki hafa látið
Skrá sig, geri þaö' strax í síma
41712 og 41786.
A MALÞINGI
Aldrei hafa ísliendingar staðið í
eins mörgum endurheimtum og síð-
ustu árin. Fyrst kom handritaheimt,
þá Paradísarheimt og nú síðast geir-
fuglsheimit, • en það segja fróðir
menn, að milljónamæringurkm frá
Delaware hafi ekkert að segja í
okkur, einkum þegar víst má telja
að þeir sem stóðu að Skarðsbókar-
heimt á sinurn tíma ætll að togazt á
við hann um fuglinn. Þar með verð-
ur ekki komizt hiá að endurheimta
eitthvað af þeun möl, sem fylgdi
handritunum utan á sínum támiá, en
pundið í mölnum er nokkuð dýrt,
þegar það hefur verið reiknað út
með vöxtum og vaxtavöxtum í gegn-
um aldirnar. Auðvitað er skömm
að því, ef við náum efoki fuglinum.
Menn geta svona rétt getið sér þess
til hvort amerísiku miHijónamæringa-
hjörtun hefðu ekiki farið að slá út í
siíðurnar, hefðu þeir frétt að ein-
hver enskur barón hefði geymt síð-
asta móhíkanann uppstoppaðan á
háaloftinu hjá sér. Þá hefði fundizt
fleiri en einn mililjónamæringuir í
Delaware. Gott ef móhíkanarnir voru
ekki úr nágrenninu. Móhíkianinn
hefði verið sleginn á tíu geirfugls-
verð, svona uppstoppaður, mölétinn
og fínn.
Hjuggu tönnum í
náttúruverndina.
Það var ekki náttúruverndinni fyr-
ir að fara á seinni hluta nítjándu
aldar. Allt sem ætit var geikk frá
hendinni til munnsins, og menn
hjugigu tönnurn sínum í náttúru-
vemdina, án þess að hafa hugmynd
um fyrirbærið, endia var það ekiki
uppgöitvað fyrr en löngu síðar. Hefði
aðeins helmingurinn af því, sem nú
er sagður og skrifaður náttúrunni
til verndar, verið fluttur á þeim tima,
þegar geirfiuglinn var að deyja út
hefði hann bjargazt, og mundi sóma
sér nú, stoltur skerbúi úti í hafinu.
Þeir sem útrýmdu honum, gerðu sér
ekki grein fyrir því, að þeir voru
að fækka dráttunum á andiiiti jarð-
arinnar. 1 dag er barizt fyrir lífi
annarra geirfugla í ríki náttúrunnar.
Nú geta engir skriðið undir huliðs-
hjálrn fávizkunnar langur, en samt
þykja geirfuglarnir girniilegir til út-
rýmingar. Hins vegar ætti það að
vera þeim, sem vilja hina nýrri geir-
fugla feiga, nokkur aðvörun, að fólk
leggur unnvörpum fram fé til að
bjarga hingað heim uppstoppuðum
útverði, sem félil fyrir aimáttugri
hendi vanþekkingarinnar
Sva rthöfSi.
Byggingarstarfseimin endumýj-
uð, Teuvó Aura, yfirborgarstjóri
í Helsingfors.
Forsendur, Niels Salicath, cand.
juris., forstjóri, Kaupmannahöfn.
Marfomiðið, P.A.M. Mellbye, arki
tefot, Oslo.
Leiðirnar, Olof Eirksson, arfoi-
tekt, Stofokhólmi.
Á eftir þessum aðalerindum
verða umræðufundir og stutt fram
söguerindi 15—20 mínútur.
Einn íslendingur tnun flytja er-
indi á Byggingardeginuim. Er það
Guðmundur Einarsson, verikfræð-
ingur, og fjallar hann um Tækni-
lega endurnýjun byggingarað-
ferða.
Á meðan á ráðstefnunni stend-
ur, verður haldin yfirgripsmikil
byggingarvörusýning og verður
þar eflaust margt merkilegt að
sjá. R'áðstefnudagana verða farn-
ar kynnisferðir um Helsingfors og
nágrenni borgarinnar.
Frestur til að tilkynna þátttöku
í ferðinni á Norræna byggingar-
daginn rennur út 15. marz næst
komandi.
Skákkeppnin
Svart: Taflfélag Akureyrar:
Jóhann Snorrason og
Margeir Steingrímsson.
vaoaaáOH
co
Ift
eo
N
ABCDEFGH
Hvítt: Taflfélag Reykjavíkur:
Gunnar Gunnarsson
og Trausti Björnsson.
25. leikur hvíts: Re2xHgl.
Dansleikur
FUF í kvöld
FUF í Reykjavík heldur almenn
an dansleik á fimmtudagskvöldið,
og verður dansað til kl. 2 eftir
miðnætti. Tvær hljómsveitir leika
fyrir dansi. Dansleikurinn verður
í Veitingahúsinu að Lækjarteig 2.
FUF-félagar eru hvattir til að
fjölmenna á FUF-gleðina.
— Stjóm FUF.
Bakkabræður ræöast viS í upphafi leiksins.
Sýningum UIVIF Skeiðamanna á Ráðskonu
Bakkabræðra vel tekið
STJAS-Vorsabæ, mánudag.
UMF Skeiðamanna sýndi gam-
anleikinn „Ráðskonu Bakka-
bræðra“ í Félagslundi s.l. föstu-
dagskvöld. Húsfyllir var og
skemmtu áhorfendur sér prýði-
lega og þökkuðu lcikendum með
langvarandi lófaklappi í lok sýn-
ingarinnar.
Frumsýning á leiknum var í
Brautarholti 13. febrúar s.l. Hef-
ur leikritið verið sýnt fimm sinn-
um í Brautarholti og ávallt verið
húsfyllir.
Leikstjóri er Eyvindur Erlends
son. Hann hafði einnig umsjón
með gerð leiktialda. Leiktjöldin
málaði Garðar Vigfússon, en leik
tjaldasmíði annaðist Leifur Ei-
ríksson.
Hlutverkin í leiknum eru 11,
sum vandasöm og viðamikil, t.d.
hlutverk ráðskonunnar, sem Sjöfn
Halldórsdóttir leikur snilldarlega
vel. Það er engin tæpitunga töl-
uð á Bakka — þessu sögufræga
setri íslenzkra þjóðsagna — eftir
að nýja ráðskonan hefur tekið
þar völdin í sínar hendur.
Vilmundur Jónsson, Garðar Vig
fússon og Leifur Eiríksson, leika
bræðurna, Gísla, Eirík og Helga.
Þessi fjögur hlutverk setja hvað
mestan „svip“ á leiksýninguna,
enda til þess ætlazt af hendi höf-
undarins.
í heild er sýningin létt og vek-
ur ósvikna kátínu áhorfenda. Al-
varan á einnig sín augnablik og
það er stundum „barizt upp á
líf og dauða", þetta eina ár, sem
ráðskonan ræður ríkjum á
Bakka. Auðvitað fer allt vel að
lokum og allir „sammáia" í leiks
lok.
Ráðskona Bakkabræðra hefur
fyrr verið á ferð hér austan-
fjalls. Ég ætla, að UMF Stokks-
eyrar hafi fyrst verið með hana
á fjölunum veturinn 1937—38.
Oft síðan hefur „hún“ verið au-
fúsugestur á ýmsum stöðum, þar
sem leiklistin er í hávegum höfð.
Það hefur því vakið undrun nokk
urra hér um slóðir, að sjónvarp-
ið sá sér ekki fært að segja frá
frumsýningu UMF Skeiðamanna
á þessu ágæta leikriti. Ástæðam
Höfundur leikritsins er ekki ís-
lenzkur!