Tíminn - 04.03.1971, Side 10

Tíminn - 04.03.1971, Side 10
FIMMTUDAGUR 4. mara 1971 TÍMINN \'J0*,íír''” THOMAS DUKE: NINETTE 27 lyrir honum ljós. Hann sneri sér Uið, gekk að stjórnarklefanum, bankaði og vatt sér inn án þess að bíða svars. Larsen skipstjóri sneri baki að dyrum. O'g lagði spil. — Halló skipstjóri, hvað segir þú um eitt glas eða svo uppj hjá Sally? Ég gef. hún á afmæli í dag, sagði Maríus og laug því. Larsen skipstjóri sneri sér við á stólnum. Undrun blandin gremju lýsti sér í svipnum. — Nú, þú virðist vera orðinn ðrlátur í ellinni, urraði hann. — Skítt veri meó það. þitt sinka svín. Hann fór að taka spilin saman. — Ágætt, ég er til eftir augna- Mik, sagði Maríus og hvarf á dyr. Hann brosti sínu breiðasta brosi, þegar hann gekk frammí til Grikkjanna. — Heyrið þið mig drengir, nú fer sá Gamli og ég í land, til að fá okkur í glas hjá Sally. Þið komið á eftir okkur að fimm mínútum liðnum. Það er ég sem gef. Sá eineygði var að bora í eyr- un á sér, stanzaðj við og hlustaði furðu lostinn á Maríus. Hinir Grikkirnir urðu dálítið efasamir á Svipinn. Þeir voru ekki búnir a6' gleyma síðusíu göngu sinni á þennan stað. Eigi að síður kink- uðu þeir ákaft kolli til Mariusar, ,.savvy savvy“. Annars var þetta fagur dagur. Síðdegissólin gaf kastaníutrján- um á Allées du la Liberté mjúkan, draumljúfan blæ. Hardy hafði enga sinnu á umhverfinu hann starði aðeins fram fyrir sig og gekk í áttina að Welcome Bar. Nú fékk hann greint þau, sátu öll við langt borð — Carles og Wivi sátu saman — þau voru svo sem auð- þekkt. Charles bar stráhatt með litríku bandi, Wivi var í hvitum flegnum sumarkjól. Hardy hraðari ósjálfrátt göngu sinni. Nú var honum nóg boðið. Skyldu þau vera búin að koma auga á hann? Þarna sat frá Wright. móiðr þessa súkkulaðidrengs. Umfang hennar var ógurlegt, hún bókstaf lega flaut út yfir stólinn, sem hún sat á. Vasaklútinn sinn not- aði hún sem blævæng. Charles pataði ákaflega. Hallaði Wivi sér ekki að honum og hló, sú litla tófa? Nú tók Charles undir hök- una á henni, Hardy gat bókstaf- lega séð hina flaðrandi, smjaðr- andi fyndni hans. Náungarnir, sem sátu við boroið, voru náttúr lega vinirnir. Hardy var svo upp- tekinn af því að glápa á samkvæm ið, að hann gekk beint á háa og granna konu. sem kom á móti honum.. Hann leit varla á hana, muldraðj aðeins afsökun og ætl- aði að halda áfram. En konan brá fvrir hann fæti. svo hann féll- endilangur á gangstéttina. Frá liinu langa borði kvað við hávær hlátur. þegar Hardy féll. Hann var varla staðinn upp aftur, þegar hann nánast skynjaði háan, skæran konuhlátur rétt hjá sér. Hin rauð-glóandi bræðj hans skiptist í augnablikinu á tvo staði: samkvæmið við langa borð- ið og ókunnu konuna. sem brá fætinum fyrir hann. Augu hans oru orðin blóðhlaupin, þegar hann virti ókunnu konuna fyrir sér. — Ninette, stundi hann upp. Að hann þekkti hana ekki strax mátti reikja til þess að hún var með vafhúfu á höfðinu, er breytti útiiti hennar mjög, gero'i hana ennþá heimsborgaralegri og dularíyllri. Hún virti hann háðslega fyrir sér: -— Kurteis ungur maður, sagði hún letilega. Hann greip andann á lofti. Aldrei hafði hann fundið til þess að hann hefði sérlega háan blóð- þrýsting, en nú fann hann greini- lega að svo hlaut að vera. Hann var eiginlega undrandi yfir því að hann skyldi standa báðum fótum á jörðinni. Þetta ástand var allra líkast því að hann væri sneisa- fullur af sprengiefni, og að hann mundi springa í frumeindir á næsta augnabliki. Hann hvessti augun grimmdarlega á hana. — Ha, öskraði hann og hljóp síðan við fót upp að langa borð- inu. Hann sá manneskjurnar eins og í gegnum kíki. fyrst eins og tíbrá, en brátt skýrðust þær og urðu óhugnanlega greinilegar. Hann sá undrunarsvipinn á hin- um sex ungu mönnum. hið fyrir- litningarfulla hnuss frú Wright og hinn gremjublandna undrunar- svip Wiviar, sem snerist upp í augljósa stórhneykslun. En þetta voru aðeins þýðingarJausir auka- leikarar á sviðinu. Sjálfa aðal- persónuna sa hann i rauðum þoku ■aug. Andlitið var í honum miðj- um, vantrúað og spottandi. Enginn sagði stakt orð. Hann stanzaði við boróíð beint fyrir framan Charles, og fyllti lungun af lofti. Honum hafoi aldrei til hugar komið að það værj svona notalegt að taka valdið í sínar hendur, það var eins og ölvíma. Aldrei vissi hann fyrri að tilfinn- ingalíf hans hefði svo margar hlið ar. Á einu andartaki flaug hugur hans stig af stigi, allt frá kaldri, villimannlegri morðfýsn að einfaldri nautn þess að kvelja fórnardýr sitt og gefa sér góðan tíma til aftökunnar. Reiðileg rödd Wiviar rauf loks ins þögnina. — Skammast þú þín ekkert, Hardy? Hann virti hana fyrir sér með hrukkað enni, og rak svo upp hlátursöskur. Bkkert var s\ o fjarri skapi hans á þessari stundu. — Hann er kolbrjálaður. sagði frá Wright skrækum rómi. Hún stóö svo snöggt á fætur að hinn umfangsmikli hattur féll niður að augum. — Farið, þér dýrslega mannskepna, sagði hún skipandi, um leið og hún lagaði hattinn. Hardy beygði sig yfir borðið, tók í eyrun á Charles, og togaði Charles orgaði upp um leið og hann lyftist úr sætinu. Hann hoppaði upp á borðið, hatturinn datt af honum og nokkur ölglös brotnuðu. Hardy sleppti ekki tak- inu á eyrunum, heldur teymdi Charles niður á gólfió beint fyrir framan sig. Wivi og frú Wright sátu sem stirðnaðar væru. Vinir Charlesar höfðu hálft um hálft staðið á fæt- ur, auðsjáanlega í vafa um hxort þeir ættu að gripa fram í, eða ekki Hinn sterklegi Hardy var ekki freistandi viðfangs. — Slepptu mér, veinaði Charles og horfði bænaraugum á vini sína. — Nú, likar þér ekki við mig? Hardy hélt honum armslengdina frá sér og brosti, en augun voru köld. — Ef þú ætlar að leiika þér við hann meira. verður bezt að þið komið öll hérna inn fyrir. Þar erum vio þó laus við lögregluna var sagt mjúkri, stillilegri rðdfdu bak við þau. Það var Sally. Hún hafói, svo lítið bar á, fylgzt með þróun málanna. Hún stóð með krosslagða handleggi, virti fyrir sér samkvæmið og renndi viður- kenningaraugum til Hardys. Hún opnaði dvrnar inn í drykkjuslof- una og brosti: S‘il vous pleit. — Þú ert alveg ágæt, Sally, sagði Hardy, og teymdi Charles á eyrunum á eftir sér. — Hjálp, hjálpið mér drengir, þessi þorpari drepur mig, kvein- aði Oharles. Hardy var nú búinn að taka hann í fangið, og bar hann spriklaði inn í vínstofuna. — Sleppið honum þegar í stað, heyrið þér það ofbeldismaður og ,,bulla“, hrópaði frú Wright. Hinn umfangsmikli líkami skalf nú all- ur. — Þú vogar þér ekki að snerta hann, stundi Wivi upp, en þá var Hardy horfinn með hann inn í vínstofuna. Frakkarnir scx horfðu hver á annan auðsjáanlega á báðum áttum. — Ætlið þið ekki aö' hjálpa honum, aumingjarnir ykkar, vein aði frú Wright. Hin umfangsmikla kona vatt sér fram á gólfið, með hattinn aftur á hnakka og innj í hálf- opnum munninum mátti greina gerfitennurnar, sem ýtzt höfðu til. Wivi var föl áliturn og ofsareið. Undir formælingum og mótmæl- um beindi nú allt samkvæmið för sinni inn í vínstofuna á eftir I-Iardy. Sú sjón. sem mætti þeim fram- kallaði gjallandi vein frú Wrights. Hardy stóð á miðju gólfinu með er fimmtudagurirm 4. marz Árdegisháflæði í Rvik kl. 11.40. Tungl í hásuðri kl. 20.07. KFH .Sl 'OÆIZI.A Slvsavarðstrtfan i Bnrgarspltalan- uro er opin allan sðlarhringlnn Aðeins mðttaka slasaðia Slm< 81212 Slökkvíltði? oe sjUkrahlfreiðir *vt ir Revkjavík oe Krtpavoe «imi 11100 Sjukrahifreið i Hafna-firði siitn 71336 Almennar upplýstngai nm lar>'.:aa þjrtnustu t bo>-glnni oru eefnar > simsvara Cæknafélags Revk’avik ur. slm. 18888 Fæðingarhelmilið I KApavnel Hliðarvegi 40, sími 426*4 Tannlæknavaki er i Heilsuvemc r sföðinnl þat sem Slvsavarðstot ao var oe ei opir. laueardaea ie sunnudaga fci 8—6 e. h Slmi 22411 Kópavogs Aprttek ei opi* daga kl 9—19. laugardaea kl o ___14. u- -Mags kl 13—-lft Keflavíkui Aprttek ei opi? vtrki- daga tí. 9—19, laugardaga fcl 9—1*. beleldsea 13—15 Apótek llafnarfjarðat «r opið alL virka daea frá kl 9—7 á laue ardöeum ki 9- 2 og á sunnu lögum os öðrum helgidögum u opið frá kl 2—4 MænnsóMarból” fvrlr full orðna fer fram I He.’suverndar stöð Revkjavíkur á manudöeim kl 17—18 Gengið inn frá Bar Ansit'? ■ ',f’T hrinia Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka í Reykjavík vikuna 27 febrúar — 5 marz annast Reykjavíkur Apótek og Borgar Apótek. öTTT7\öaR Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Austfjarðahöfnum á norðurleið. Herjólfur fer frá Vest- mannaeyjum í dag til Hornafjarð- ar. Herðubreið fer frá Rvík á morg un vestur um land í hringferð. Skipadcild S.Í.S.: Arnarfell fer frá Rví'k í dag til Vestfjarða. Jökulfell fór 26. f.m. frá New Bedford til íslands. Dísar- fell fór frá Svendborg 2. þ.m. til íslands. Litlafell fer frá Rvík í dag til Austfjarða. Helgafell er á Sauð- árkróki. fer þaðan til Hofsóss og Húsavíkur. Stapafell fór frá Rvík í gær til Breiðafjarðar og Vest- fjarðaliafna Mælifell fer væntan- lega 6 þ.m. frá Augusta/Sikiley til Rvíkur. rTrTTrcTTF Rauðsokkar. Nýir starfshópar um dagheimilis- mál skipulagðir á Asvallagötu 8. kjallara. föstudagskvöldið 5. marz kl 8.30 Kvenfélag llallgi ímskirkj heldur sína árlegu samkomu f.vr- ir aldrað fólk. sunnudaginn 7 marz kl 3 siðdegis Sigurbiörn Einars- son biskup fljdur ræðu. Frú Ruth Magnússon syngur einsöng. Upp- lestur. Kaffiveitingar. Kveonadeild styrktarfélags laniaðra og fatlaðra föndurfundur verður haldinn að Háaleitisbraut 13, fimmtudaginn 4. marz kl. 20.30. Stjórnin Kvenfélag Lágafellssóknar fundur að Hlégarði fimmtudaginn 4. marz, kl. 8.30 e.h. Kennt að flosa með aladínnál, sýndar fræðslu- kvikmyndir, kaffidrykkja. Stjórnin. Konur í Stvrktarfélagi vangef- inna. Fundur í Hallveigarst. fimmtu- daginn 4. marz kl. 20.30. Fund- arefni: Félagsmál og bókmennta- kynning. Kvæðamanuafélagið Iðunn. Ileldur árshátíð sína í Lindarbæ föstudaginn 5. marz Hefst með borðhaldi kl. 7. Miðapantanir í síma 14893 og 24665 fyrir miðviku dagskvöld 3. marz. 'APn^FNJ! 'ÍNO Miii>i''i,,’»’’ko,'t Kai’f>"'i<!ÍóðT Jóns Steinsrrímssonar fást á eftirtöV1"m sföðum' Minninsabúðinni. r>auga- vegi 56: Skartgripavérzl. Fmail. Hafnarstræti 7: Þórsk.iör. Lang- holtsvegi 128: Ilraðbreinsun A’ist urbæiar. Hlíðarvpti 29 r'ópav.: Þórð’ Stefánssyni Vík: Sr Sigur jóni Einarssyni, Kirkjubæ. r- klaustri Minningarspjöld y -I ™ Manu Jrtnsdé'i jr flusrfT fást á ef'Ttr''lu. . ú::1uiri V ;rzl Okulus Austurstræti > R'"'k Verzl l.ýsin” t>- vf-cc»ni|] 64 Rvík Snyrti.stofunm VaJböl] Lausav ',f> oe h.iá Marin fsdrtttur DvergR steim. Reyðarfirði- Minningarspjöld Dóntkirkjunn- ar verða afgretdd hjá: Bckabuð Æskunnar Kirkiutorgi Verzl Emntu Skólavórðustig 5 Verzi Revnime. Bræðraboraar stí; 22 Þóru Magnúsdóttur Sól- va'-götu 36 D::ný Ajðuns Garðastr 42 Elisabetu Arnaaótt u. Aragötu 15 Minningarspjöld Geðverndar- félags íslands eru afgreidd á eftirtöldum stöðum: Verzlun Magnúsar Benjamínsson- ar Veltusundi 3, Markáðinum Ilafn arstræti 11 og Laugaveg 3 Minn ingabúðinni Laugavégi 56 MinningaiTort Styrktarfélags vangefinna fást i Bókabúð Æskunnar Boka verzlun Snæbiarnar. verz.' Hlin. Skólavörðustíg 18. Minningabúð inni. Laugavegi 56. ve . • biémið, Rofabæ 7 og skriíríofu fé- lagsins, Laugavegi 11, sírni 15941. nFNKISSK-fMMING Nr. 22 — 1. marz 1971. 1 Bandar dollar H7.00 88,10 1 Steriingspund 212,40 212,90 1 Kanadadoilar 87,30 87,50 100 Danskar kr 1.174.44 1.177.:, MH- Norskar Iít 1 2HO 71 . >33 • 100 Sænskar kr. 1,702,00 1.705,86 100 Fmnsk mörk 2.109.42 2.114.20 irto Franskl' fr 1 593.80 l.„ 17 4i Irtrt Rele fr 177.lr 100 Svissn. fr. 2.041,00 2.045,66 :rtt Ijv'tn ' 4---. 100 V.-þýzk m. 2.417,58 2.423,00 :(hi Llrui 14.10 14.14 ,llrt Austuri seh 339.3t 340,13 .00 Bscudos 308.55 309.25 100 Pesetar 126:27 126.55 100 Rekmnaskronui - Vöniskiptalóno 99.86 '00.14 1 Reiknmasdollai - Vöruskipialöno «7.90 88.10 1 Retkmnsspund — Vöruskiptalönd 210.95 211.45 Lárétt: 1) Lautir. 5) Púki 7j Beita 9l 111 11) Röð 12) Afa. 13) Haf. 15) Dok. 16) Rifa úr skinni 18) Sæfi. Krossgáta Nr. 749 Lóðrctt: 1 > Vofa. 2) Lukka. 3) Titill 4) Þrír 6) Kátur 8) Trant 10) Álasi. 14) Þjálfað. 15) Eldur. 17) Kusk. Ráðiting á gátu nr. 748: Lárétt: 1) Jórunn. 5) Ata. 7) Ræð 9i Mál. 11) UT 12) Ró 13) Nit. 15) Oið. 16) Aar 18) Glufur. Lóðiétt: DHendur. 2) Ráð. 3) Ut 4) Nam. 6) Illóðir. 8) Ætl. 10) Ari. 14) Tál. 15) Örf. 17) Au.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.