Tíminn - 11.03.1971, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUK 11. marz 1971
TIMINN
11
Hor** um öxl
og fram á við
,■ f tilefni af því að um þessar
mundir eru liðin fimmtíu og
fimm ár síðan ég vígðist í reglu
góðtemplara vestur í Bolunga-
vík og gekk í ævilangt bindindi
á tóbak og áfangi og aðrar skað-
■autnir, skrifa ég þessar línur.
Af eðlilegum ástæðum fárast
menn útaf eiturneyzlu þjóðarinn-
ar og margir hverjir fálma í al-
gerðu ráðaleysi eftir einhverjum
úrræðum og umbótum, en snið-
ganga þá leið, er liggur upp á
sigurhæðirnar og auðfarin ætti
að vera hverjum manni.
Öruggasta leiðin er að snerta
aldrei við slíkum hlutum, forðast
fyrsta sopann og fyrstu sígarett-
una, eins og svo oft hefur verið
bent á, en þó aldrei nógu oft eins
og reynslan sýnir. Að sjálfsögðu
ætti að vera algjörlega bannað að
verzla með, veita og neyta allra
elturlyfja, hvort heldur það er
alfcohól, nikótín eða önnur fíkni-
lyf. Á áfengis- og eiturlyfja-
neyzlu verður að leggja sama
mælikvarða og þjófnað og mann-
dráp, og jafnvel þyngri dóm, þar
sem áfengisneyzla er oftast glæpa-
valdurinn.
Það er næsta ótrúlegt, að einn
frekar en annar sé fæddur til
þess að verða nautnadýrkandi,
heldur sé það sjálfsákvörðun
hvers og eins og félagsleg við-
horf og umhverfi, sem þeim hlut-
um ráða.
Ég hef aldrei t.d. lent í nein-
um erfiðleikum vegna þess að vera
bindindismaður, hvað umhverfið
eða annað snertir, hef þó unnið
með hundruðum manna bæði á
sjó og landi og ei.. og gerist og
gengur, verið boðið upp á áfengi
og tóbak. Ég hef aldrei þurft að
segja nema eitt litið „nei“, og
það hefur dugað. Einnig hef ég
ekki farið í neina launkofa með
það að ég er góðtemplari, og það
verið mér mikil vörn gegn uppá-
þrengjandi veitendum. Reynsla
mín er líka sú að menn bjóða
ekki áfengi eða tóbak þeim, sem
þeir vita að er algjör góðtempl-
ar. Svo hafa fleiri sagt og fundið
styrk í því samfélagi, er Góð-
templarareglan veitir.
Á þeim árum, sem allur almenn
ingur, æðri sem lægri, hópaðist
inn í stúkurnar hófst mikið menn-
ingartímabil í sögu þjóðarinnar
og vannst sigur í sjálfstaeðismáli
hennar. Nú steðja að þjóðinni
vandamál — eiturnautnavanda-
raálin, — er hún verður að leysa
og standa í gegn ef vel á að fara
fyrir henni, en það gerir hún bezt
með því að styðja af alhug það
þjóðnytjastarf, sem unnið er í
Reglunni. Foreldrar ættu ekki að
láta það undir höfuð leggjast að
iwnræta börnum sínum bindindis-
se:mi og senda þau í bamastúk-
urnar strax og þau hafa aldur til.
Undirstúkur Reglunnar eru líka
öllum opnar og fundir þeirra
þeim, sem þess óska, þó að þeir
séu ekki skráðir meðlimir. Þang-
að er m.a. hægt að sækja hvíld
frá daglegum erli og gleði þreytt-
um huga. T.d. fór síðasta fundur
stúkunnar „Framtíðin“ hér í
Reykjavík þannig fram að af varð
bezta skemmtun, en engu var til
kostað öðru en efni í kaffi, er
félagarnir sjálfir fram reiddu.
Virtust allir fara ánægðir og glað
ir heim rétt eins og hefði verið
um dýrkeypta skemmtun að ræða.
Áhugi manna fyrir eflingu Regl-
unnar virðist vera vaxandi eftir
þeim fjölda, ungra og gamalla,
að dæma, sem gengið hefur inn í
stúkuna á síðustu fundum henn-
ar.
Ekkert myndi vinna betur gegn
eiturnautnum en samfylking
góðra manna starfrækt á kristi-
legum grundvelli eins og Góð-
templarareglan gerir.
Góðtemplarareglan hefur nú
nýlega bréytí siðum sínum ‘óg'
starfsháttum í sámræmi við kröf-
'!ur timans óg er hth: því áðgengi-
legur vettvangur hverjum þeim,
sem vill að þessum málum
vinna, og hún er fær um að veita
forystu í baráttunni gegn eitur-
lyfjanautnum eftirleiðis, sem
hingað til. Hún er elzta og þrosk-
aðasta félagið í þessu landi, sem
slíkt, og frá henni eru öll bindind-
isfélög sprottin og félagsform og
starfshættir margra annarra fé-
laga.
Reynsla mín sem fimmtiu og
fimm ára bindindismanns er sú,
að þá hafi ég stigið mitt stærsta
gæfuspor á ævinni er ég gekk í
barnastúkuna Lilju nr. 26 í Bol-
ungavík og það leitt mig á þann
gæfuveg, er ég hef síðan gengið.
Það var líka gert í þeim heim-
ilisanda, sem ég ólst upp við í
föðurhúsum.
Margir telja sér og öðrum trú
um að þeir þurfi á víni og tó-
baki að halda sér til hressingar
við vinnu, vökur og kulda.
Reynsla mín er gagnstæð því.
Mér hefur aldrei fundizt ég þurfa
á þeim hlutum að halda, hef þó
unnið erfiðisvinnu bæði á sjó og
landi, vakað, sem þörf hefur kraf-
ið og mætt vosbúð og kulda og
jafnvel legið I köldum sjó oftar
og lengur en almennt gerist.
f þetta sinn ætla ég ekki að
ræða frekar um þær hættur, sem
af áfengi og öðrum eiturnautn-
um stafa og þann kostnað og leið-
indi, er þær hafa í för með sér. Ég
veit að öllum þorra hugsandi
mann eru þær kunnar, þó að ég
hafi nú nýlega heyrt og lesið að
gjörfallnar reykingamanneskjur
hafi sér það til afsökunar að þær
hafi ekki fyrir tuttugu og fimm
árum heyrt um skaðsemi tóbaks-
ins nú á þessum upplýsingatím-
um — sannindi, sem mæður okkar
fyrir sextíu árum. þá ólærðar al-
múgakonur, þekktu og bentu okk-
ur börnum sínum á.
Þegar ég nú renni huganum
fimmtíu,,9g,finRp,til sextíu ár til
bakg lófa ég hamingjuna fyrir að
hafa „verið í mótun < þau blessuð
bindindis- og bannár. er þá ríktu
og þakka af alhug þeim góðu
mönnum, sem fyrir því börðust á
vettvangi Góðtemplarareglunnar.
Lg á enga ósk heitari þjóð
minni til handa en að allt áfengi,
tóbak og önnur eiturlyf verði af-
máð úr lífi hennar.
Gott fólk! Verið velkomið til
samstarfs í Góðtemplarareglunni.
Guðjón Bj. Guðlaugsson,
Efstasundi 30.
(Sími 3-29-30).
£ Keflavík — Suðurnes I
£ Siminn er f
| 2 7 7 8 j
$ Prentsmiðja ^
^ Baldurs Hólmgeirssonar, f
Hrannargötu 7 — Keflavík
9
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivada
OMEGA
©IHJ
Jllpina. GHIIJIIIll
Wlagnús E» Baldvinsson
Laugavegi 12 - SIIM 22*04 '
Sólun
SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA,
JEPPA- OG VÖRUBÍLA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin á sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501.—Reykjavík.
Dr Luage, Bengaliforseti ... — Þú ert
eKkert á móti því, að vinna hjá S.Þ.?
— Nei, ég á vin þar. — Vin, sem heitir
Diana Palmier? Já. áður en ég var kosinn
forseti. vann hún hjá mér í lyfjastofn-
uninni. — Ég man , . Það er mikilvægt
fyrir þig að, hitta Díönu, en verkefnið er
mikilvægt fyrir mig og landið. — Segðu
mér, hvað það er, Dr. Luaga.
A FRIEh'P NAAitEP ^
P/AMA PALMER? YES,
BEFORE 1 WAS
ELECTEP PRES3IPENT)
SHE WORKEP IFOR
ME IN THE Ll.N.
MEPICAL COFfPS.
SEEINS PIANA
IMPORTANT
to you.
FOR My
CCUNTRy,
THE MlSS'lOh
IS EVEN
MORE
IMPORTANT/
FIMMTUDAGUR 11. marz
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir Tónleikar. 7,30
Fréttir Tónleikar 7.55 Bæn
8.00 Morgunieikfimi Tón-
leikar 8.30 Frettir og veður
fregmr Tónleikar 9.00
Fréttaágrip og útdráttur úr
forustuareinum dagblaðanna
9.15 Morgunstund barnanna:
Hugrún heldur áfram sögu
sinni um Lottu (11). 9,30
Tilkynningar Tónleikar. 9.
45 Þingfréttir 10.00 Fréttir
Tónleikar 10.10 Veðurfregn
ir 10.25 Við sjóinn: Sigurður
Halldó’-sson talar um þara-
og þangrannsóknir 11.00
Fréttir Tónieikar 11.30 í
dag: Endurt þáttur Jökuls
Jakobssonar frá s. 1. laugar
degi
12.00 Dagskráin Tónleikar. Tii-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til
kynningar Tónleikar.
13.00 Á frívaktinni
Eydís Eyhórsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Norska skáldið Tarjei Ves
aas
Heimir Pálsson cand. mag.
flytur síðara erindi .itt,
15.00 Fréttir Tilkynningar.
Frönsk tónlist:
Hljómsveit tónlistarskólans
í París og Maurice Duruflé
organieikari. flytja Sinfón
íu nr 3 í c-moli op. 78 eftir
Saint-Saens. Georges Préti’e
stjórnar
Gérard Souzay syngur aríur
úr frönskum óperum.
16.15 Veðurfregnir Létt lög.
17.15 Framburðarkennsla í frönsku
og spænsku
17.40 Tónlistartími barnanna
Jón Stefánsson sér um tím
ann.
18.00 Tónleikar Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 ísólfur Pálsson tónskáld —
aldarminning
Helgi Sæmundsson ritstjóri
flytur stutt erindi og flutt
verða lög eftir tónskáldið.
20.05 Leikrit: „Stúlkan við veg-
inn“ eftir Gert Weymann
Þýðandi Ásthildur Egilson.
Leikstjóri: Erlingur Gísla-
son Personur og leikendur:
Schmerders
Gisli Alfreðsson
Bensínafgreiðslumaótirinn
Sigurður Skúlason
Stútka
Brynja Benediktsdóttir
Maður
Bjarnj Steingrímsson
Anm
Þora Friðriksdóttir
Lögieglumaður
Guðjón Ingi Sigurðsson
21.00 Sinfóniuhliómsveit íslands
heldur hliómleika í Háskóla
bíóí
Stjórnandi Rohdan Wodicz
ko
Einieikuí a pianó: Rafae)
Orozeo fra Spáni
a Konsert eftú Herbert H
Ágústsson (frumflutnins
ur)
b Píanókonsert nr. 2 eftir
Sergej Prokofjeff.
21.50 V’ri hvita.i san:t
Áslaug av Hevgjum les úr
nýrn Ijóðabók sinni.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur Pass
fusálma (27)
22.25 Lundúr aoistill
Páh Hetfiar lonsson segxr
tra
22.40 Diassimtur
Jón Múli Árnason kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.