Tíminn - 12.03.1971, Qupperneq 6
6
rÍMINN
FÖSTUDAGUR 12. marz 1971
AUÐVELDAR RIKISSTJORN A HVERJUM
TÍMA AÐ UMBUNA GÆÐINGUM SÍNUM
— og er þess vegna andvígur heimildarákvæðinu um sérstaka skipun sarfsmanns, sagði Ólafur Jóhannesson
í þingræðu í gær um frumvarpið um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna
EB-Reykjavík, fimmtudag.
Er stjórnarfrumvarpið
um réttindi og skyldur rík-
isstarfsmanna var til 1.
umræðu í efri deild í dag,
lýsti Ólafur Jóhannesson
sig andvígan því heimild-
arákvæði frumvarpsins um
sérstaka skipun sarfs-
manns til þjónustu við rík-
ið, án þess að hann eigi
kröfu til tiltekins starfs. —
Sagði Ólafur Jóhannesson
að hann hefði deilt á núver-
andi ríkisstjórn fyrir það,
að umbuna „gæðingum"
sínum og fylgismönnum
með nefndar- og bitlinga-
stöðum og yrði þetta heim-
ildarákvæði að lögum opn-
aðist mikil freisting fyrir
hvaða ríkisstjórn sem væri,
að >;mbuna stuðningsmönn
um sínum. Sagðist Ólafur
því ekki fella sig á neinn
hátt við þetta heimildar-
ákvæði frumvarpsins.
Ólafur gat þess, aS þetta
heimildarákvæði væri sniðið
eftir hugmynd svonefndrar
Hoover-nefndar er gert hefði
tillögur um þetta efni til
Bandaríkjastjórnar en hún
hafnað hugmyndinni. Hér væri
eftiröpunarhneigðin í algleym-
ingi. Aðstæður hér á landi væru
að ýmsu leyti ólíkar aðstæð-
unum í Bandaríkjunum. Það
ætti að laga okkar kerfi eftir
þörfum okkan- og reynslu og
heimildarákvæðið ætti því ekk
ert erindi inni í stjórnkerfi
okkar.
Þá gerði Ólafur í ræðu sinni
aðrar athugasemdir við ýmis
atriði frumvarpsins, en vakti
um leið athygli á því, að æski-
legt hefði verið, að þingmönn-
um gæfist tækifæri til þess, að
kanna frumvarpið betur áður
en það væri tekið til 1. umr.,
þar eð mikilsvert væri að fram
kæmu þá athugasemdir við
það, sem nefndin er um frum-
varpið fjallar gæti þá tekið til
Ólafur Jóhannesson
athugunar. (Framvarpið var
lagt fyrir Alþingi í gær).
Ólafur Jóhannesson sagði, að
svo náin tengsl voru milli lög
gjafarinnar um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins og
löggjafarinnar um kjarasamn-
Framhald á bls. 10
• •
MNGFRÉTTIR
GJALDEYRISVERZLUN
FURUHÚSGÖGN
Til sýnis og sölu sófasett, sófaborð, hornskápur,
svefnbekkir og kistlar.
Sýni vörur mínar í Málaraglugganum fram yfir
helgi.
Húsgagnavinnustofa Braga Eggerssonar,
Dunhaga 18 — Sími 15271.
(Geymið auglýsinguna).
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Gylfi Þ. Gíslason
| vi'ðskiptamála-
| ráðherra mælti
| í dag í neðri
■- í deild fyrir frum
^ varpi ríkisstjórn
° arinnar um skip
W an innflutnings-
j og gjaldeyris-
mála vegna
' ákvörðunar um
að veita Búnaðarbankanum, Verzl
unarbankanum og Iðnaðarbankan
um heimild til gjaldeyrisverzlun-
ar, en sem kunnugt er hafa þessi
réttindi aðeins verið í höndum
Landsbankans og Útvegsbankans.
Gert er ráð fyrir þvi, að veit
ingu gjaldeyrisréttindanna til
hinna þriggja banka fylgi viss skil
yrði. Annars vegar er fyrirhuga&
að framkvæmdin verði í áföngum
og þá við það miðað, að þróun
gjaldeyrisviðskipta verði ekiki
hraðari en tæknileg og fjárhags
leg geta hinna nýju gjaldeyris-
banka leyfir, og ennfremur, að
hiún valdi ekki' óéðlilega mikilli
röskun í viðskiptum.
Talið er Óhjákvæmilegt aS hin
ir nýju gjaldeyrisbankar taki að
sér fjölbreyttari viðskipti en
þeir hafa hingað til.haft og beini
fjármagni sínu í vaxandi mæli til
útflutningsatvinnuveganna og
undirstöóúfyrirtækja í verzlun og
iðnaði, en létti að sama skapi
SALA HLUTA UR
KOLLAFJARÐARJÖRÐ
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Einar Ágústsson
mælti á fundi í
efri deild í dag
fyrir frumvarpi
um heimild fyr-
ir ríkisstjórnina
til að selja Sig
urjóni Guð-
mundssyni fram
kvæmdastj. hluta
úr jörðinni
Kollafirði í Kjal
arneshreppi, en frv. er auk Ein-
ars, flutt af Axeli Jónssyni, Jóni
Árm. Héðinssyni og Gils Guð
mundssyni.
Greinargerðin með frv. er
svohljóðandi:
Frumvarp samhljóða þessu var
flutt á síðasta Alþingi, en varð
þé eigi útrætt. Þá fylgdi því svo
felld greinargerð:
Árið 1959 keypti Sigurjón Guð
mundsson framkvæmdastjóri,
Reykjavík, hluta úr jörðinni Kolla
firði í Kjalarneshreppi, 3.15 ha„
af þáverandi eiganda jarðarinnar,
GuÖmundi Tryggvasyni. Hóf hann
þegar mikla trjárækt í landi sínu,
og hefur hann nú gert þennan
reit einn hinn fagursta í þessum
landshluta, eins og allir þeir, er
leið eiga um Vesturlandsveg, geta
kynnt sér af eigin raun.
Nú hefur Sigurjón þegar fuil
ræktað eignarland sitt og hefur
hug á því að halda ræktun áfram.
en vantar til þess nokkuð aukið
landssvæði. -
Spilda sú, sem hér um ræðir,
er aðeins hálfur hektari og hefur
engin áhrif á notagildi jarðarinn
ar fyrir núverandi eiganda henn
ar, ríkissjóð.
Flutningsmönnum finnst vel við
eigandi að þakka Sigurjóni Guð
mundssyni frábær störf hans í
þágu skógræktar og landgræðslu
með því að gefa honum kost á
að kaupa það land, sem hann hef
ur hug á ao' eignast til áfram-
haldandi ræktunarstarfa.
byrðum af eldri gjaldeyrisbönkum
í þessu efni.
Framnald á bls. 10
leiðrétíing
Á þingfréttasíðu Tímans í gær
er frásögn af umræðum um til-
lögu til þingsályktunar Um rann
sókn á fiskverði á íslandi og í
Noregi, sem mér finnst ástæða til
að gera smáleiðréttingu við, að
því er tekur til þess, sem eftir
mér er haft.
í niðurlagi frésagnarinnar segir
svo:
„Eftir þeim upplýsingum, sem
Jón kvaðst hafa aflað sér þyrfti
að hækka fiskverðið hér um 13%
til þess að sambærilegt skiptaverð
gilti hér og í Noregi, væri miða&
við s. 1. áramót“.
Þetta er ekki nægilega skýrt.
Ég kvaðst hafa upplýsingar um.
að fyrir s.l. áramót hefði þurft
að hækka fiskverð hér um 13%
til þess að það væri sambærilegt
við fiskverðið í Noregi án ríkis-
styrkja.
Þetta breytir miklu, ef haft er
í huga, að ríkisstyrkur á kg. í
Noregi er kr. 3,50. sem koma til
skipta til áhafnar og ennfremur,
að áf kr. 10,90 á kg, sem tisk
kaupendur greiddu hér fyrir síð
ustu áramót ganga kr. 3,20 í stofn
fjársjóð, útgerðarkostnað, útflutn
ingsgjald og verójöfnunarsjóðs-
gjald o. fl. sem ekki koma að
neinu leyti í hlut áhafna.
Aðalatriðin í þessu máli eru,
að skiptaverðið í Noregi fyrir
síðustu áramót. var a.m.k. helm
ingi hærra en hér. Hins vegar
er mér tjáð. að skiptaprósenta,
sem hlutur áhafna miðast við sé
talsvert hærri hér en í Noregi.
Rannsókn sú, er tillagan gerir
ráð fyrir að fram fari á fiskverði
hér og í Noregi ætti að geta leitt
í ljós hvað sambærilegt fiskvcrí
er í þessum tveim löndum.
Jón Skaftason.
ÞREM B0NKUM HEIMILUÐ