Tíminn - 12.03.1971, Síða 10

Tíminn - 12.03.1971, Síða 10
10 TIMINN FÖSTUDAGUR 12. marz 1971 Framsóknarkonur Félag framsókn arkvenna heldur sl ' HS fund að Hallveig arstöðluim. mið- vikudaginn 17. marz kl. 20.30. Þórarinn Þórar- inss. alþingismað ur flytur ræðu. Kosnir verða fulltrúar á flokksþing, félagskon ur athugið breyttan fundardag. Fjölmennið. — Stjórnin. EFLUM OKKAR HEIMABYGGÐ f SKIPTUM VIÐ SPARISJÓÐINN SAMBAND ÍSL. SPARISJÓÐA GARÐYRKJUSTÖÐ Tilboð óskast í 800 ferm. garðyrkjustöð og 1000 ferm. vinnuhús (1 ha. erfðafestuland, 2 sek.lítrar heitt vatn). Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins merkt: „Gróðurhús 1143“ fyrir 23. marz. STARFSMANNAFÉLAG RÍKISSTOFNANA Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl í samkomuhúsinu Sigtúni og hefst kl. 20.00. STJÓRNIN. SENDISVEINN A SKELLINÖÐRU óskast. Helzt allan daginn (til frambúðar). Upplýsingar í síma 12323. DAGBLAÐIÐ TÍMINN Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Dagnýjar Níelsdóttur. Bryndís Sigurðardóttir Haraldur Sigurðsson Inga Arngrímsdóttir Sigurborg Sigurðardóttir Eggert Jóhannesson Sigurður Sigurðsson Karen Einarsdóttir Kristinu Sigurðsson Auður Guðmundsdóttir og barnabörn Af hrærðum huga þökkum vlð alla vlnsemd og hlýju okkur sýnda, við andlát og jarðarfö.r Böðvars Högnasonar. Fyrir hönd ættingja. Una Sigurðardóttir Faðir okkar, Ámundi Jónsson frá Hvammstanga, andaðist [ sjúkrahúsinu á Akranesi 10. marz. Jarðsett verður frá Hvammstangakirkju þriðjudaginn 16. marz, klukkan 2 síðdegis. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Óiafur Ámundason Útför föður okkar, Ásgeirs Guðmundssonar frá Krossnesi, Mánabraut 6, Akranesi, sem andaðlst 6. marz, fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 13. marz 1971, kl. 2 e. h. Sigrún Ásgeirsdóttir Ólafía Ásgeirsdóttir Ásgelr Ásgeirsson Snorri Ásgelrsson Ákæruvaldið Framhald ai bls. 3. um hvarf byssunnar og cndurfund hennar sé svo fjarstæðukenndur, að trúnaður verði eigi á hann lagður. Þá segir: Þá er lögreglumenn spurðu ákærða upphaflega um byssu þá, sem vígið var framið með, þótt ist hann ckkert um. hana vita. Rúmu ári eftir vígið fannst hún fullhlaðin sjö skotum í vörzlum hans. Hann fullyrti mánuðum sam an við próf, að hann hefði þá fyrst haft byssuna undir höndum, er henni hefði án vitundar hans ver iL1 komið fyrir í leigubifreiðinni R-15612 rétt eftir miðjan janúar 1969. Loks viðurkenndi ákærði 28. júní 1969, að hann hefði hnupl að byssunni 1965, en sagði jafn framt fjarstæðukennda sögu um hvarf byssunnar óhlaðinnar úr bifreiðinni R 1402 á árinu 1966 og endurfund hennar fullhlaðinn- ar í bifr. R 15612 upp úr miðj- um janúar 1969. Allur framburóUr ákærða í sínurn ýmsu myndum bendir til þess, að hann hafi eigi misst byssuna að óvilja sínum. frá því að hann hnuplaði henni og þar til hún fannst í vörzlum hans, fulihlaðinn sjö skotum, sem ætla má, að tekin hafi verið frá Jóhannesi Jósefssyni. Líkurnar gegn ákærða eru því svo sterkar, að fullnægt er sönnunarskilyrðum 108. og 109. gr. laga nr. 82/1961. Með skírskotun til þess. sem sagt var, og málavaxta þeirra, sem raklir eru í sératkvæði Þórð ar Björnssonar yfirsakadómara, verður að telja, að ákærði hafi I átt hlut að vígi Gunnars Sigurð ar Tryggvasonar. Ber þvi að refsa honum eftir 211. gr. laga nr. 19/ 1940. Við ákvörcíun refsingar ber að taka tillit til, hvernig málið er í pottinn búið. íþróttir FramKhald af bls. 8 beztu ferðum í svigi og stórsvigi urðu þessi: Stúlkur 14—15 ára: stig Svandís Hauksdóttir KA 26 Margrét Baldvinsdóttir KA 24 Margrét Vilhelmsdóttir KA 17 Sigríður Frímannsdóttir KA 14 Margrét Þorvaldsdóttir KA 9 Drengir 14—15 ára: Tómas Leifsson KA 28 Ásgeir Sverrisson KA 16 Einar P. Árnason KA 14 Hallgrímur Ingólfsson Þór 13 Sigurbjörn Gunnþórsson KA 9 Drengir 16—17 ára Haukur Jóhannsson KA 28 Gunnlaugur Frímannsson KA 24 Sigurjón Jakobsson KA 14 Guðm. Sigurbjörnsson Þór 10 Ailfreð Þórsson KA 9 • • Olfusborgir Á víðavangi Framhalo ai Ots 3 öll ágreiningsatriði undir úr- skurð alþjóðadómstólsins í Haag og hann óttaðist, að sá úrskurður yrði okkur ekki í hag. Því væri nauðsynlegt fyr- ir okkur að losna undan samn- ingnum með einum eða öðrum hætti.“ Þá er birt i blaðinu álykt- un stjórnar Vöku um land- helgismálið, þar sem skorað er á ríkisstjórn og Alþingi að beita öllum tiltækum aðgerð- um til að færa hið fyrsta út fiskveiðilögsögu íslands í 50 mílur. — TK Frá Alþingi Framhald af bls. 6. í greinargerð frv. segir, að það sé kunnara en frá þurfi að segja að ástand á gjaldeyrismörkuðum utanlands og innan hafi á undan förnum árum ekki ætíð verið svo tryggt sem skyldi. Æskilegt sé því að hafa ákvæði í lögum sem heimilað að grípa til sérstakra ráð stafana, þegar slíkt óvissuástand skapist. Þess vegna er í frv. ákvæði þess efnis, að viðskipta ráúuneytið geti að höfðu samráði við Seðiabankann takmarkað eða stöðvað um tíma hvers konar gjald eyrisviðskipti. Halldór E. Sig- urðsson spurðist fyrir um það, hvort Samvinnu- bankanum vrði heimiluð gjaldeyr isverzlun sækti bankinn um það. Gylfi Þ. Gísla son kvaðst ekki geta um það sagt. Sækti bankinn um slíka heimild. myndi Seðlabankinn fjalla um umsóknina og gera síð an um þa& tillögu til ráðherra. Framhald af bls. 1 hús í Ölfusborgum. Þeir voru ráðnir til verksins af verktakan- um Bóasi Emilssyni. Rétt fyrir jólin 1964 fengu þeir að vita, að þeir myndu ekkert fá greitt fyrir vinnu sína. Ilöfðu þeir þá lokið við 70—80% verksins. Forsvars menn Alþýðusambandsins buðu þeim þá greiðslu lítils hluta vinnu launanna, sem þeir áttu inni gegn því að þeir lykju að fullu við verkið. Þeir höfnuðu þvi og kröf&' ust þess að þeir fengju öll laun sín greidd. Árni Guðjónsson, hæstaréttar- lögmaður, tók að sér innheimtu vinnulaunanna. Gerði hann kröfu í þrotabú Snæfells. Varð fljótlega ljóst, að ekkert yrði til í búinu upp í forgangskröfur. í viðtali við blaðið í gær, sagði Árni Guð jónsson. að þegar sér hefði orðið ljóst, að vinnulaunin fengjust ekki innheimt í þrotabúi Snæfells og að mennirnir, sem við verkið unnu, ættu enga lagálega kröfur á hendur Alþýðusambandinu, hefði hann farið á fund forsvars manna Alþýðusambandsins og gert þeim grein fyrir tjóni mannanna. Sagðist hann hafa fyrir hönd oess ara launamanna flutt þá beiðni til ASÍ að það bætti mönnunum tilfinnanlegt tjón þeirra, bótt bein lagaskylda knýi þá ekki til. Forsvarsmenn ASÍ hefðu svarað því til a& þeir væru búnir að greiða þessi laun til Bóasar Emils sonar og þeir ætluðu sér ekki að greiða þessi laun tvisvar og höfn uðu beiðni mannanna. Þá sneri blaðið sér til Þorgeirs Þorsteinssonar, sem skipaður »ar sérstakur skiptaráðandi yfir þrota búi Snæfells. Hann sagði, að skipt in hefðu dregizt svo mjög á lang inn vegna þess að þrotabúið hefði hefði staði& í löngum og dýrum málaferlum við Síldarverksmiðjur ríkisins og hefði þrotabúið gert all verulegar kröfur á hendur verksmiðjustjórninni. Kostnaður við þessi málaferli næmi hundruð um þúsunda, en þrotabúið fékk kröfum sínum ekki framgengt. Sagði Þorgeir, að heildarkröfur í búið væru 7—8 milljónir en eignir búsins væru sáralitlar og ljóst, að ekkert væri til upp í forgangskröfur, þegar búið væri að grei&'a kostnað og skatta. Nán ast væru aðeins formsatriði eftir til að ljúka þessu þrotabúsmáli. Þeir. sem ættu vangoldin vinnu laun hjá þrotabúinu myndu því ekki fá eyri greiddan. Alþýðusambandið skuldar engum neitt, vegna byggingar Ölfusborga f blaðinu Þjóðólfi, sem kom út 6. marz s.l. ér grein með fyrir- inni „Á tugi þúsunda í ógoldnum vinnulaunum hjá ASÍ.“ — í grein þessari er því haldið fram, að Árni Jónsson, trésmið- ur, Hveragerði, eigi tugi þúsunda inni hjá Alþýðusambandi íslands vegna framkvæmdanna í Ölfus- borgum. Þá hefur dagblaðið Tím- inn tekið upp hluta úr grein þess- ari, sem blaðið birtir undir fyrir- sögninni: „ASÍ neitar að greiða trésmiðum laun fyrir vinnu við ÖIfusborgir.“ Vegna þeirra, sem lesa þetta, og ókunnugir eru þessu bygging- armáli, telur Alþýðusambandið sjálfsagt að skýra frá hinu rétta í málinu. Bygging Ölfusborga var boðin út og lægsta tilboði tekið. Al- þýðusambandið stóð í fullum skil- um við verktakann. Hann réð að sjálfsögðu verkamenn og iðnaðar- menn í sína þjónustu til að fram kvæma verkið. Að því leiðir, að lögfræðingur iðnaðarmanna þeirra, sem réðu sig hjá verktak- anum, hefur gert kröfu fyrir þeirra hönd í þrotabúi hans, er því útilokað, að þeir geti jafn- framt beint þeim kröfum sínum til ASÍ, enda til þess enginn rétt- argrundvöllur. Af framansögðu er Ijóst, að Al- þýðusamband íslands skuldar eng um neitt vegna byggingar Ölfus- borga, og væntum við þess, að blöð þau, sem gert hafa mál þetta að árásarefni á Alþýðusambandið sýni þá drenglund að hafa heldur það, sem sannara reynist. Miðstjórn Alþýðusambands íslands. Kaffistofa Framhalo af hls 1 Þess má geta, að sumir telia. að framkvæmdir á þessari hæð hafi þegar kostað um 10 milljónir. Gunnar sagði að lokum. að fram kvæmdirnar í útvarpshúsinu við Laugaveg væru hæði dýrari tækju lengri tíma. vegna þess að útvarpið hefði ekki á lausu f.iar- magn Það vrð’ að láta hraða franv kæmdanna ráðast af þvi fjármavni sem fyrir hendi væri á hverium tima — en útvarpið hefði enga sjóði til að leeaia fiármnen úr i þessar framkvæmdir. og tæk- ekk ert lánsfé til heirra Þetta h'H'O að framkvæmdirnar tækiu !°"""i tíma en ella oa væru einnie dýrav Þess má geta. að þegar sjónva’-n- ið tók upphafiega vfir hluta af húsnæði því. sem það er íú i, þurfti að innrétta bæði skrifstnfn húsnæði og stúdíóið Hafði kn-"i aður við þær fra.nkvæmdir n't"'-5 23 milljónum króna í árslok ’hes en á núverandi gengi kvað't Gtitm ar áætla. að það væru 50—60 milli Alþingi Framhald af bls 6 inga. að oðlilegt væri að end urskoðun þessara tveggja lög- gjafa héldust nokkuð í hend- ur. Það væri vitað mál, að lög- gjöfin um eldri kjarasamninga þarfnaðist endurskoðunar og við þá endurskoðun væru upoi óskir af ýmissa hálfu, t..d Banda lags háskólamanna um að fá að- ild að kjarasamningum. í kjara samningunum í haust, hefði ekki þótt fært að verða við ósk þeirra háskólamanna og væri það auðvitað skiljanlegt frá sjónarmiði ríkisins sem eðlilega fynndist þægilegast að semja við einn aðila. Sú krafa háskólamanna að verða viður- kenndur samningsaðili væri skiljanleg og eðlileg, og draga mætti mjög í efa, að það yrði stætt á því í framtíðinni að ætla að halda við það skipu- lag, að einungis einn aðili, væri löggiltur samningsaðili fyrir alla opinbera ríkisstarfs- menn. Annarra atriða úr ræðu Ól- afs Jóhannessonar verður get- ið i blaðinu á morgun. j

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.