Tíminn - 20.03.1971, Síða 6

Tíminn - 20.03.1971, Síða 6
6 TÍMINN LAtTGA*nAGUR 20. marz 1971 Helgi Haraldsson, Hrafnkelsstöðum: Síðasta hefti Samvinnunnar er helgað ungu kynslóðinni og hefir bessa yfirskrift: Unga fólkið og samtíðin. Koima þarna íram hvorki meira né minna en 60 ungir menn og konur, flest skólafólk. Er fróðlegt og skemmtilegt að líta yfir þessar greinar, enda eru þær yfirleitt betur skrifaðar en maður á að venjast frá ungu fólki nútímans, og er það ánægjulegt. Ung stúlka úr Menntaskólan- um, sem heitir þessu fornfræga nafni Mjöll Snæsdóttir, skrifar grein, sem hún nefnir „Það er mörgu logið“. Bragð er að þá barnið finnur, segir sá gamli og góði málsháttur. Þarna kemst þessi unga stúlka svo að orði: Það er ekki auðhlaupi® að því að bjarga heiminum, og sú kynslóð sem nú er ung er naum- ast líklegri til þess en sú næsta á undan. Ef við sem nú erum ung höf- um aðrar hugmyndir en næsta kynslóð á undan, er ástæðan ekki sú líffræðilega staðreynd að við erum 20—30 árum yngri heldur hitt a® sífellt verður til nýr sannleikur en þó einkum og sérílagi ný lygi.Og hina nýju lygi og það sem endingarbezt hefir orðið af hinni gömlu gleyp um yið jafn sæl og fyrri kyn- slóðir gleyptu sína. Við með- tökum þær lærisetningar sem nú eru uppi án mikillar hugsun- ar yfirleitt. Hafðu sæl sagt, stúlka mín. Ég ætla að skjóta því hér inn í, að það var ekki keypt 1 o*kkur vitið fyrií tvo miiijarðá á ári, unglingana á fyrra helm- ingi þessarair aldar, eins og nú er hrósað sér af. Við kunnum sögur af Vel- lygna-Bjarna og æra-Tobba, en þeir voru ekki orðnir hátt settir embættismenn, eins og nú Ritstjóri Samvinnunnar skor- ar á eldri menn að skýra frá sínu sjónarmiði í blöðum, á sama hátt og unga kynslóðin gerir í þessu blaði. Það er nú bezt að ég verði vi® þessum tilmælum, þótt af veikum mætti sé, og svo koma aðrir á eftir. Við höfum ekki annað að gera, sem komnir erum á þann aldur að geta sagt með konunni á 75 ára afmælinu: Er það vissa og örugg tirú, óðum styttist leiðin. Ég hef álpazt yfir þrjú aldarfjórðungs skeiðin. Það er margt, sem við höfum séð, sem höfum lifað þrjá aldar- fjórðunga eða .ríflega það. Fræðslulögin komu ekki fyrr en 1907 og Kennaraskólinn var stofnaðuir 1908. Þar var fyrstur skólastjóri séra Magnús Helga- son, sjálfsagt einn ágætasti skólamaður, sem þjóðin hefur átt. Það er táknrænt, að nemend- ur hans létu skera á öndvegi®, seni þeir gáfu honum sjötugum, ummæli Snorra um Erling Skjálgsson: „Ollum kom hann til nokkurs þroska.“ Þetta var engin hræsni frá nemendunum, eins og afmælis- gireinarnar, sem hann fékk, v°.uf>- ari en svo, að gaddaveturinn 1918 var þessi eini kennara- skóli ekki látinn starfa, vegna þess, að ríkið hafði ekki efni Tilhoð óskast í fólksbifreiðar, sendiferðabifreiðar og jeppabif- reið er verða sýndar að Grensásvegi 9, miðviku- daginn 24. marz kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. ÚTBOD Tilboð óskast í smíði innréttinga (skápar, dyr í hús Öryrkjabandlags íslands, 1. hæð. Útboðsgögn verða afhent á teiknistofunni Óðins- torgi s.f. gegn kr. 1.000,00 skilatryggingu. Öryrkjabandlag íslands. FÓSTURHEÍMILI Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar vill ráða einkaheimili í borginni til þess að taka böm í gæzlu allan sólarhringinn um skamman tíma í senn. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Félagsmálastofnunarinnar Vonarstræti 4, en þar eru jafnframt veittar flánari upplýsingar. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. á að hita hann upp með kolum, sem þá voru dýr, í lok fyrri heimsstyrjaldar. enda torfengin. Magnús tók sér vetursetu í Birt- ingaholti og notaði vetuirinn til þess að rita bókina Uppeldis- mál. Svona var nú ástatt fyrir hálfri öld, en þá þekkti enginn orðið unglingavandamál og þá höfðu unglingar yfirleitt engan tírna til þess að láta sér teiðast. Þá var enginn í vandræðum með þær fáu frístundir, sem fengust, og ekki þurfti að skipu- leggja þær fyrir unglingana, eins og nú er oft heimtað. Þá hefði sjálfsagt þótt gott, ef unglingar hefðu fengið jafn- margar vikur til náms og nú eru ár. í minni sveit, Hruna- mannahreppi, voru nokkrir vet- ur, sem enginn kennari var í sveitinni. Ég er ekki alveg ókunnugur þessum málum, því þá var stund um leitað til mín í vandræðum, með börn, sem áttu að fermast. Því þá var barnapróf á vorin ouðið lögskipað. Em það var gott ungmenna- félag, þar sem unglingarnir fengu verkefni að glíma við. Þar var líka gott lestrarfélag, með flestum þeim bókum, sem þá voru til og nokkuð kvað að. Fastafæðan var auðvitað forn- bókmenntirnair, og þær voru lesnar í þá daga. Síðast, en ekki sízt, var svo prestur í Hruna séra Kjartan Helgason, sem hægt var að leita til, enda eng- inn samkomustaður nema kirlcj- “ áh ‘ éða þirighús sveitarlnnár i Hruna. Svona var þetta í sveitunum í þá daga, þótt ég nefni þá sveit, sem ég þekki bezt. Mér eiru minnisstæð orð gam- als Mývetnings, sem sagði: Þeir sem lásu biblíuna og fornritin, voru betur menntaðir en nú- tímafólkið. Hann gerði glögg skil á milli lærdóms og mennt- unar, sá mæti maður, en er það gert nú á þessu landi? Nú er sagt, að reynslan sé ólygnust og hún segir, að margt af þessu fólki, sem ólst upp vi® þau skilyrði, sem ég hefi nefnt, urðu hinir mætustu þjóðfélags- þegnar og hafa staðið í fremstu röð í okkar þjóðfélagi til þessa dags. En nú eru þeir farnir að leggja niður vopnin, hver af öðrum, enda farið a® tala um þetta þjóðfélag sem öldunga- þjóðfélag, af takmarkaðri virð- ingu frá ungu kynslóðinni. Nú verður gjörbreyting í þjóð félaginu á næstu árum, og þá kemur í ljós, hva® dýrkeypta vitið dugar. Mér kemur ekki til hugar að vera með neinar hrak- spár um unga fólkið, ef því er sæmilega stjórnað. Hávaða- menn eru nú fleiri meðal ungu kynslóðarinnar en dæmi eru til um áður , og væri tilvalið að nefna þá kynsló®, sem stjórnar síðari hluta 20. aldarinnar, há- vaðamenn. Það er gott og gilt íslenzkt orð, síðan sögur hóf- ust, og er alveg hliðstætt við aldamótamenn, sem nú eru að hverfa af sviðinu. Það er erfitt að neita því, a® okkar saga og menning hvílir á bókmenntunum. Við höfum engin fræg monnvirki til þe-ss að státa af. Hvað halda menn, að margir úti í hinum stóra heimi þekktu þessa þjóð, ef þar hefðu ekki lifaið nokkur þús und bændur og fiskimenn við Helgi Haraldsson sult og seyru, og ódauðir aðeins, ef þeir hefðu engan staf skrif- að á umliðnum öldum? íslend- ingar hefðu jafnvel ekki lifað af hafísnauð og svartadauða, ef þeir hefðu ekkert haft a® lesa. Það virðist komið á daginn, að Danir meta skinnblöðin okk- ar ekki svo lítils. Eða hvað myndu frændur okkar Norð- menn meta Heimskringlu Snorra á, ef hún væri virt til fjár? Eða hvað myndu stórþjóð- irnar gefa fyrir þa®, ef þær ættu bók um sitt land, eins og Landnámu okkar? Og svo mætti lengi telja. Það er eitt af sorglegum tákn- um vorra tíma, að nú þykir sá mestur maður, sem lengst geng- ur í því að gera þessar bók- menntir að ómerkilegum lygi- sögum. Nýjustu vísindin eæu þau, að Ingólfur Arnarson hafi aldrei verið til. Þá verða nú hinir minni léttvægir fyrir vopn um þessara vígamanna nútím- ans. Hvað ætli að Norðmenn segðu við því, ef þeim væri sagt, að Heimskringla væri lygasaga frá rótum og Haraldur hárfagri hefði aldrei verið til? Það væri hliðstætt, og sagan skrif- uð á sömu öld og okkar sögur. Þessa háskólagengnu hálfvita okkar ætti að kæra fyrir land- ráð. Ef þetta er ekki rétta nafn- ið á þessari starfsemi, hvað heitir hún þá? Mér er spurn, hvað eigum vi@ að gera með handritin heim og fá þau í hend urnar á þessum mönnum? Hvernig var litið á þessi mál um aldamótin? Um það er bezt að taka Landnámu sem dæmi, enda er h4n eitt mesta bltbein- ið nú. Doktor Helgi Péturs- son sagði í alþýðufyrirlestri, að sér þæt.tl vænzt um Landnámu allra bóka. Séra Matthías Joch- umsson sagði, að þegar Land- náma sín væri í láni, fyndist sér eins og vantaði einhvern bezta manninn á heimilið'. Dr. Finnur Jónsson velur Landnámu þessi einkunnarorð: „Að hún sé risaverk að efni, ágætisverk að frágangi heim- ildarrit í bezta skilningi." Þá er eftir sá maðurinn, sem hefir gert þessu máli bezt skil, séra Magnús Helgason, sem er aðalhöfundur fræðslulaganna frá 1907, og fyrsti skólastjóri Kennaraskólans. Það vill svo vel til, að hann hefui rita® ágæta grein um Landnámu, sem prentuð er í Kvöldræðum. Þar segir á þessa leið: Ég ætla nú að segja fyrir hvað mér þykir vænst um bókina og með hverju hún tekur hug minn fanginn. Það er þá fyrst, að hún er einstök bók í bókmenntum heimsins, að þvi er ég til veit. Engin þjóð í heiminum á henn- ar líka. Annars veit ég ekki til að stórþjóðirnar hafi reynt að semja slíka bók, enda sjálfsagt langt um ófært öllum þeim. Þær mundu gefa fyrir slíka bók, ef þess væri kostur, mörg jafn- vægi hennar í gulli. Heimildirnar að La-ndnámu eru furðulega góðar og áreidan- legar, þar sem hver sagnamað- urinn öðrum betri hefur um hana fjallað öld eftir öld, og unnt að rekja heimildirnar allt aftur að þeim tíma, er at- burðirnir voru i fersku mlnni. Það er von að mönnum, sem ekki þekkja nöfn langafa sinna blöskri, að heyra ættir raktar í 30 liði eða meira. En eins og áður er sagt aiCt. ast Landnáma fjórar fyrstu ald- irnar af sögu landsins um það efni. Landnáma er undirstaða ís- lenzkrar sagnfræði og ættvísi, er hvorugt má án hins vera, og hún er traustari og áreiðan- legri en margir menn hyggja. Þetta segir sá mæti maður, sem áreiðanlega hefir mótað æskulýð lands meira en nokk- ur annar, fyrsta þriðjung þess- arar aldar. Það var ekkert óæti, sem hann bar á borð fyr ir nemendur sína. Nú má segja með skáldinu: „Breitt er um síðu brugðið öld, brákaðan fellur ryð á skjöld.“ Mér kemur í hug saga frá fornöld. Árið 356 fyrir Krist kveikti Hcrosti-tos í hofi Arte- misar í Efesus. Það var talið eitt af furðuverkum heims. Hann gerði þetta til þess að verða fræguir, en varð að þola hræðilegan dauða í refsingar- skyni. Slík frægð er stundum nefnd Herostratusarfrægð. ís- lendingar hafa þýtt þetta orð á ágæta íslenzku og nefnt það að verða frægur að endemum. Það liggur við að manni dettl í hug, að sú hugsun að verða frægur á þennan hátt sé ekki aldauða með þessari þjóð. Við erum svo gæfusamir, íslendingar, að eiga eitt furðuverk, serii er eiri-' stætt í öllum heiminum, þar sem ei Landnáma. En ekki er það andskotalaust, að við skul- um líka hafa eignazt okkar Herostratos, og ekki einn held- ur hóp af þeim. Nú er um fátt meira talað en mengun I öllum mögulegum myndum, í lofti, á jörðu og legi. Hvort væri nú ekki tímabært að tala um mengun á gamalli og gróinni menningu okkar ís- lending ? Ég legg það fyrir hið háa Al- þingi þegar búið er að koma út- gjöldum til menntamála upp í 2 milljarða, hvort ekki væri þá vel viðeigandi að verja ein- hverju til þess að hreinsa þau óþrif, sem setzt hafa á okkur menningu á síðustu árum? Er það ekki varasamt, þegar okkaar menningarmusteri er orðið svo hátimbrað, sem raun ber vitni, að taka undirstöðu- steinana undan því og láta þá upp á þakið, svo að þa® beri meira á þeim? Það nýjasta í blaðafréttum er það, að ungur námsmaður íslenzkur, úti í Sviþjóð hinni köldu, ætli að fara að gefa út sögu Bósa og Herrauðs. Telur hann sig hafa fengið sænskan teiknara til þess a® mynd- skreyta bókina. Gerir hann ráð fyrir að láta safna áskriftum að bókinni í unalingaskólum lands- ins og selja hana fyrir gjafverð eftir gæðum auðvitað. Væri nú leyfilegt að spyrja: Ætla þingmenn og yfirvöld að láta millifótamenningu þeirra Svianna halda innreið sína í ís- lenzkav fornbókmenntir? Hvort eru íslenzkar nútima- bókmenntir og Hamaroró eKki lengur fær um að annast þessa nauðsynlegu fræðigrein milli- f ótamenni n garinnar? Nú er orðið laust.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.