Tíminn - 31.03.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 31.03.1971, Blaðsíða 7
MTOVIKUDAGm 31. marz 1971 TIMINN Köpavogsvakan er menningar- legt átak og lofsvert fordæmi Kópavogsvökunni er lokið. Hún tókst með ágætum, og er þeim, er að henni stóðu, til sóma, og ætti að verða öðrum bæ.tnm til fyrirmyndar. Skil- yrði Kópavogs til þess að efna öl slíkrar menningarviku eru þó engan veginn ákjósanleg. Þvi veldur nábýlið við Reykja- vfk. Hver Kópavogsbúi, er hálf ut í félags- og mgnningarlífi Reykjavíkur, er þar í ýmsum félögum og því vanastur að sækja sér andlega næringu þangað — i leikhús, á hljóm- leika, í söfn og á sýningar. Þeim stóra samanburði verður það, sem heima er gert, að lúta, og það reynist löngum torvelt að fá íbúa slikra jaðar- bæja til þess að sækja sam- komur í heimaranni. Hins veg- ar veitir nábýlið við Reykja- vík líka nokkur tækifæri, eins og fram kom á Kópavogsvök- unni — það er auðvelt að lcita til listafólks, sem býr í Reykja- vík, alveg eins og Reykjavík nýtur ýmissa góðra listamanna, sem eiga heima rétt utan við borgarmörkin. Slík landamæri eiga lítinn rétt á sér, og góðar samgöngur eiga að gera landið allt að miklu sameiginlegra félags- og menningarsvæði en verið hefur. Kópavogsbær stofnaði lista- og menningarsjóð fyrir nokkr- um árum og leggur árlega til hans hálft prósent af útsvars- tekjum bæjarins. Sú upphæð er nú rúmlega hálf milljón á ári. Tilgangur sjóðsins felst í nafninu. Hann hefur keypt 33 listaverk — málverk og högg- myndir — og hefur þeim verið dreift um skóla, skrifstofur og almenningsgarða bæjarins. Auk þess hefur sjóðurinn styrkt marga aðra menningarstarf- semi. Það var stjórn þessa sjóðs, sem stóð að þessari Kópavegsvöku og kvaddi til liðs við sig nokkur önnur fé- lagssamtök í bænum, en ég hygg að á cngan sé hallað, þótt fullyrt sé, að Hjálmar Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri, hafi léð því máli mest atfylgi. Einn þáttur Kópavogsvök- unnar er það, að listaverkum bæjarins hefur verið safnað saman til sýningar í Félags- heimilinu. Sú sýning hefur vakið verðuga athygli, enda dylst ekki glöggum gesti, að þarna er saman komið ágætt safn, sem ber vitni um alúð í vali og góða yfirsýn, þótt verk- in séu harla sundurleit og ekki einnar stefnu. Kópavogsvakan var sett laug ardaginn 20. marz með því, að Skólahljómsveit Kópavogs lék við Félagsheimilið. Sú hljóm- sveit hefur á síðustu árum vak- ið verðuga athygli, enda hefur stjórnandinn, Björn Guðjóns- son. náð undraverðum árangri með börnum og unglingum úr skólum bæjarins í þessari hljómlist. Siðan söng Samkór Kópavogs undir stjórn Garðars Cortes. Þá hófst samfelld dag skrá, sem kölluð var ,.Frá morgni æsku ljósum“. og voru þar fluttar sögur eftir Líneyju Jóhannesdóttur og Frímann Jónasson og ljóð eftir Jón úr Vör og Þorsteín Valdimarsson. Þetta var í senn létt og geð- þekk dagskrá. Sunnudaginn 21. marz var dagskrá Bókasafns Kópavogs, en þar var lesið úr verkum Guðmundar G. Hagalíns, Gísla Ástþórssonar. Jóns Óskars, Hannesar Péturssonar, Jóhann- esar úr Kötlum, Vilborgar Dag- bjartsdóttur og Þorsteins frá Einnig var sýndur stuttur þátt ur úr Lénharði fógeta, og allt var þetta hin bezta sjálfstæðis- eggjun. Þá söng Guðrún Hulda Guðmundsdóttir nokkur lög, Hjálmar Ólafsson spjallaði stundarkorn um Stein Steinarr og greip niður í ljóð hans, og dóttir og Stefán Jón Jónsson. Þó fannst mér leikur Jóhönnu bera þar af, enda er hún ekki nýliði í leik. Aðrir leikarar voru: Gerður S. Elimars, Ingibjörg Marmundsdóttir, — Margrét H. Högnadóttir, Jóna K. Guðmundsdóttir, Hamri, en Guðrún Tómasdóttir söng nokkur lög við ljóð eftir Þorstein Valdimarsson. Loks var stutt spjall nokkurra manna um nýbókmenntir. Þessi dagskrá var öll hin þckkilegasta, vel saman sett úr sundurleitu efni til góðra heiid aráhrifa. Þriðjudagurinn var að mestu helgaður tónlist, og sá Tónlist- arfélag Kópavogs um hana. Þar voru flutt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Fjölni Sef- ánsson og var þar ágætt lista- fólk að verki. Á fimmtudagskvöldið var dagskrá Leikfélags Kópavogs. Þar fluttu fjórir leikarar úr Kópavogi þátt eftir Gunnar M. Magnúss, og nefndist hann Vonarstund, og fjallaði um Fjölnismenn. en Gunnvör Braga Sigurðardóttir var leik- stjóri. Þessi þáttur var laglega saman settur, en í raun og veru má ekki lita á hann sem sjálf- stætt leikverk, enda mjög stuðzt við ljóð Jónasar Hall- grímsscnar. Þetta var fallegt og hugþekkt atriði, en þó fannst mér sem ljóð Jónasar væru notuð helzti mikið. Frá setningu Kópavogsvöku. Auðunn Bragi Sveinsson las kvæði sín. Loks söng Hjörtur Hjartarson nokkur iög cftir Sigfús Halldórsson við undir- leik hans. Á laugardaginn fékk Lcik- íélag Kópavogs góða gesti, leik flokk unginennafélagsins Dags- brúnar á Rangárvöllum, og sýndi hann Syndir annarra eft- ir Einar H. Kvaran. Ekki þarf að kvnna Syndir annarra þeim. sem komnir eru á miðjan ald- ur, svo alþekkt verk er þessi kenningarsaga í leikbúningi. Að s.jálfsögðu var meðferð leik- enda mjög misjöfn, og cinkum á það við um framsögnina. Mér virðist ieikurinn bera þess merki, að leikstjóri hafi ekki verið nógu harðhcntur eða þol inmóður við að knýja á um betri framsögn. Það hlýtur þó jafnan að teljast meginatriði í leiðbeiningum, sem óvönu áhugafólki eru veittar á leik- sviði. Þarna var margt snotur- lega gert af hendi leikara, og þeir höfðu ekki verið tældir til ofleiks. Þau hlutverk, sem mest reyndi á. voru og í hönd- um fólks, sem fór með þau af skilningi, alúð og smekkvísi, en það voru þau Ragnar Böðvarsson. Jóhanna Axels- Sigmar Olafsson, Hallgrímur Sigurðsson, Lilja Sigurðardótt- ir, Auður Sigurðardóttir og Jón Einarsson. Fyrsta atriði leiksins, gróu- klúbburinn, var anzi dauflegur og blæbrigðalítill, en síðari atriði miklu fyllri að lífi og trúverðugum áhrifastyrk gömlu konunnar, en hann niá sízt vanta til þess að leikurinn og einkum boðskapur hans haldist í rökréttum farvegi. Þessi leiksýning var þó i heild enn eitt dæmið um það, hvað áhugafólk getur á sviði, þegar unnið er af alúð, en ábyrgð leikstjóra er meiri þar en í atvinnuhópnum, og leið- sögn þarf að vera miklu per- sónulegri með augu fest á öðr- um s.iónarmiðum. Það er mjög til fyrir- mvndar að fá kunnáttusama leikstjóra út meðal áhugafólks, en því miður er oftast svo að siá, að þeir geti ekki fylgt æf- ingum eftir eins vel og lengi og þyrfti, og þeir verða einnig að gera sér ljóst, hvcrjum tök- um þeir þurfa að taka slíka leikstjórn. Ég er ekki að segja, að Eyvindur Erlendsson hafi ekki gert það, en mér virtist sem meðferð leikenda bæri þess merki, að þeir hefðu ekki notið leiðsagnar hans nógu lengi, svo að hennar sæi gi-eini- legan stað. Á Kópavogsvökunni var sitt- hvað fleira en það, sem hér hefur verið drepið á. Sérstak- lega má nefna vandaðar barna- skemmtanir í umsjá Jóninu Herborgar Jónsdóttur, leik- konu, en dagskráin var að mestu unnin úr verkum Stef- áns Jónssonar, ritliöfundar. Var þar lesið úr sögum Stcf- áns, aðallega Hjalta Iitla, og Auður Jónsdóttir flutti kvæði eftir Stefán við látbragðsleik barna. Salur var einnig skreytt ur teikningum. Á þessum skemmtunum söng skólakór tónlistarskóla Kópavogs undir stjóm Margrétar Dannheim, og Linda Róbertsdóttir söng ein- söng. Kópavogsvökunni lauk sunnw dagskvöldið 28. marz með Goethe-kvöldi Þar söng Elísa- bet Erlingsdóttir allmörg lög við texta eftir Goethe, og vakti söngur hennar og meðferð aug- ljósa athygli. Ævar R. Kvaran flutti síðan mjög skemmtilegt erindi um Fást og Goethe, og fóru menn margs fróðari um þetta stórkáld og frægustu fyr- irmynd hans af þeim fundi. Erindið var í senn stórvel samið, föng dregin víða að, og það var einkar notalega ílutt. Loks má minna á það, að Kópavogsbíó vandaði sérstak- lega til sýninga sinna á þess- ari viku Kópavogsvökunnar. Þar voru sýndar að minnsta kosti fjórar afbragðsgóðar og vandaðar kvikmyndir, sem hér skal ckki um rætt. Þegar litiö er yfir Ixópa- vogsvökuna í heild, verður ekki annað sagt, en vel hafi til tekiiít. Að undirbúningi ‘hefur verið unnið af vandvirkni, bæði af'' forgöngumönnum og listafólki, sem til var fengið. Þar var jöfnum höndum heyj- að efni heima og utan bæjar- marka, og er það sjónarmið vei við hæfi. Ýmislegt, sem þarna var flutt af nýju tagi. má til tíðinda telja, og verður áreiðanlega auðið lcngra lífs en einnar kvöldstundar. Kópa- vogsvakan var til fyrirmýndar. Ýmsir aðrir bæir mættu huga að fordæmi hennar. — AIv LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA rómas Arnasor brl. og Vilhjálmur Arnason hrl. Lækiargötu 12 dðnaðarbankahúsiö. 3 b.) Símar 24635 — 16307 Hafið þér heyrt um HEYHLEÐSLUVAGNANA frá Þór h.f.? HS! •••••••• ••' búvelar hafa sanrtað notagildi sitt við islcnzkar aðstæöur, Reynslan er ólygnust, þess vegna Verð erum við stoltir að geta boðlð kr. 124.000 yður FAHR búvélar. ÞOR HF REYKJAVIK SKÓLAVÖROUSTÍG 25

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.