Tíminn - 31.03.1971, Page 16

Tíminn - 31.03.1971, Page 16
Borgarstjórn á morgun: Nauthólsvíkin verði tekin í notkun í sumar EJ-Reykjavík, þriðjudag. Á fundi borgarstjómar fimmtu- daginn 1. apríl ver'ður m.a. á dag- skrá eftirfarandi tillaga frá bórg- arfulltrúum Framsóknarflokksins: „Með tilliti til þess, hversu rík áherzla er nú lögð á að vekja áhuga almennings á útivera og hreyfingu, felur borgarstjóm borg arverkfræðingi að hefja- þegar und irbúning að þvi, að unnt verði að taka Nautshólsvíkina til sjóbaða í sumar. Jafnframt felur borgarstjóra borgarverkfræðingi og hitaveitu- stjóra í samvinnu að kanna, hvort unnt sé, án ærins tilkostnaðar að hita víkina upp yfir sumartímann með vatni frá hitaveitunni". Miklum verðmætum stolið á Keflavíkur- flugvelli NÚ STARFSKYNN- ING í 3 SKÓlUi SG-Reykjavík, þriðjudag. Hagaskólinn hefur tekið upp þá nýbreytni, að nemendur fjórða bekkjar, sem eru 110 alls, hafa verið latnir/fara í starfskynningu til ýmissa fyrirtækja í borginni. Hagaskólinn er þriðji skólinn, sem tckur þetta upp, en fyrr hafa verið Vogaskóli og Hvolsskóli í Rangarválláfsýslu. i Hafa nemendur Hagaskóla verið við störf hjá fyrir tækjum undanfarna tvo daga. Sigríður Gunnarsdóttir, nemandi í fjórða bekk A i Hagaskólanum, hefuir í tvo daga fylgzt með störf- uim blaðamanna Timans, en Sig- ríður tekur nú þátt í starfsfræðslu skólans, sem saigt er frá í blaðinu. Sigríður valdi sér blaiðamennskuna, þar sem hún segist hafa haft mik- inn áhuga á henni undanfarið. Hún sagðist ekki hafa orðið fyrir von- brigðum, því séir virtist starfið f jöl- breyitt og skemmtilegt. Sigríður hefur nokkuð gert af því að skrifa, m.a. í skólablað Hagaskólans. — Myndina tók GE af Sigríði við EVERESTLEIÐANGURINN ERU KOMNIR AÐ TOR- VELDUSTU HINÐRUNINNI skriftir á Títnanum. Skólastjóri Hagaskóla, Björn Jónsson, sagði í viðtali við Tim- ann, að hann hefði lengi haft í huga að koma þessu á, og að hann héldi að slíka kynningu vantaði í fræðslukerfið, en ekkert hefði orðið úr framkvæmdum fyrr en nú, þar sem kenara vantaði. Nú varð hins vegar úr, að séra Bern- harður Guðmundsson lét sína bekki fara til starfa hjá fýrirtækj um, og á eftir kom séra Frank M. Halldórsson með sína bekki. Bekkirnir eru aðeins einn til tvo daga í starfskynningunni, sem skólastjórinn sagði að væri allt og stuttur tími, en þetta væri aðeins byrjunarviðleitni, en myndi eflaust verða veglegra næst. Einnig sagði hann, að of stuttur umhugsunartími hefði ver ið þar sem allt var mjög óákveð- ið fram á síðustu stundu. En á næsta ári yrði þetta mun betra, þá vissi fólk að hverju stefndi og hefði nægan umhugsunartíma. Bekkirnir dreifðust á marga staði og fór það mikið eftir bekkj ardeildum. M.a. voru nemendur á sjúkrahús um, á dagblöðum, á fæðingár- deildinni, kynntust flugfreyju- starfi, kennslu vangefinna, svo nokkuð sé nefnt. Lík Hauks Hansen fundið OÓ-Ryekjavik, þriðjudag. Miklum verðmætum var stolið á Keflavíkurflugvelli um helgina. Var brotizt inn í verzlun Navy Exchange, sem eingöngu er ætl- uð vamarliðsmönnum og fjölskyld um þeirra. Var unnið mjög fag- mannlega að innbrotinu og eru lítil vegsummerki sem lögreglan getur stuðzt við. Var stolið skart- gripum og úrum, og segulbands- tæki. Verðmæti þýfisins er áætlar milli 4 og 5 þúsund dollarar, eða 350 til 450 þúsund ísl. kr., en ekki er enn fullkannað hve miklu var stolið. Brotizt var inn með þeim hætti að tekin var rúða úr glugga og farið þar inn. Þegar þjófurinn, eða þjófamir, voru búnir að at- hafna sig inni í verzluninni var rúðan sett í aftur, og það var ekki fyrr en starfsfólk áttaði sig á að varning vantaði í verzlunina, að sýnt var að framið hafði verið innbrot. Calley dæmdur sekur - áfrýjar Bandaríski liðsforinginn William Calley var í gær dæmdur sekur Um morð á ótilteknum fjölda al- mennra borgara í My Lai í Suð- ur-Vietnam. Það var herréttur í Fort Benning í Georgiu, sem kvað upp dóminn. Lögfræðingur Catl- eys, George Latimer hefur áfrýj- að úrskurðinum. EJ-Reykjavík, þriðjudag. Alþjóðlegi Everest-leikangurinn hefur nú komið sér fyrir í aðal- bækistöðvum sínum í 17.800 feta hæð skammt frá hinum svonefnda Khumbu-skriðjökli, sem er ein ill- færasta hindrunin á lciðinni upp á cfsta fjallstind jarðarinnar. Þar létu sjö Sherpa-menn lífið á síð- asta ári, þegar tilraun var gerð til að klífa Everest, og árið 1963 lét bandarískur fjallgöngugarpur, John Breitenbach, þar cinnig lífið. Skriðjökutl þessi er á stöðugri hreyfingu, en aðalstöðvar leiðang- ursins eru í um 1500 feta fjar- lægð frá jaðri hans, og hefur eng- inn Everest-leiðangur áður haft aðalstöðvar sínar svo nálægt, skriðjöklinum. Fjallgöngumennirnir, og burðar menn þeirra, munu nú reyna að ikomast yfir skriðjökulinn með vist ir sfnar og að svonefndum efri bækistöðvum, sem verða í 21.000 feta hæð (merkt „advance base“ á kortinu), en þaðan verður lagt upp í lokaáfanga leiðangursins upp á Everest-tindinn. Leiðangursstjórinn, Norman Dy hrenfurth frá Bandaríkjunum, er vongóður um að ferðin yfir skrið- jökulinn takist vel. Telur hann, að sæmilega fær leið sé vinstra megin á skriðjökulinn, þótt taka þurfi til hendi til að gera þá leið vel færa og hættulitla. Hins vegar cru leiðangursmenn ekki of bjartsýnir um leiðina frá efri bækistöðvunum og upp á tind inn. Þeim virðist sem óvenjulítill snjór sé' á Everest núna, og það mun gera lokakaflann mun erfið- ari, vegna lausra steina, sem ella væru fastir í snjó og is. Án þess er hætta á grjóthruni. Það var einmitt þetta tvennt sem gerði það að verkum, að Japanir, sem reyndu í fyrra að komast upp á Everest, urðu að hætta við. Þegar er búið að velja þá menn, sem fara eiga þessa beinu leið upp á tindinn. Það eru Dougal Haslon og Don Whillans frá Bret landi, sem yrðu fyrstu Bretarnir sem kæmu á hæsta tind veraldar ef alit fer að óskum, Reizo Ito og Naomi Uemera frá Japan, Leo Schlömmer og Tony Hiebeler frá Þýzkalandi og Dave Peterson, Garý Colliver og John Evans frá Bandarfkjunum. Hópurinn, sem fara á vestur- hryggsleiðina, en hún er talin mun auðveldari, hefur einnig verið val- inn. Það eru hjónin Yvette Vauc- her og Michel maður hennar, bæði frá Sviss, — en Yvette verður. ef vel tekst til, fyrsta konan, sem Framhald á bls. 14. SST—Reykjvík, þriðjudag. Hjálparsveit skáta í Njarðvíkum fann í dag lík Hauks Hansen, flug- vélstjóra, rekið í Litlu Sandvik á Reykjanesi, á sömu slóðum og hann hvarf á fimmtudaginn í síð- ustu viku, er hann var þar á gangi með félögum sínum. Haukur lætur eftir sig konu og börn. 169.000 pund af hörpudiskí fil USA EJ-Reykjavík, þriðjudag. Á síðasta ári seldu íslendingar 169 þúsund lbs. af hörpudiski til Bandaríkjanna, en aðeins 45 lbs. árið á undan. Nam útflutningum íslendinga um 1% af innfluttum hörpudiski til Bandaríkjanna á síðasta ári. Á árinu jókst innflutningur Bandaríkjamanna á hörpudiski úr 14.353 þúsund Ibs. árið 1969 í 16.830 þúsund lbs. Mest magn kom frá Kanada, 11.700 þúsund ibs. Næst komu Bretar og Argen- tínumenn, en íslendingar voru í sjötta sæti hvað magn snertir. Njarðvíkingar Aðalfundur Framsóknarfélags Njarðvíkur verður haldinn í dag, miðvikud. í litla salnum í Stapa. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundar- störf. 2) Kosning fulltrúa á flokks þing. 3) Önnur mál. AKRANES Framsóknarfélag Akraness held ur almennan félagsfund í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 20.30 í Fram sóknarhúsinu Akranesi. Dagskrá: 1) Fjárhagsáætlun Akraneskaup- staðar fyrir j971, 2) Kosning full- trúa á flokksþing Frainsóknar- flokksins, 3) Önnur mál. Sluðnings menn Framsóknarfl. eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. ÁRNESSÝSLA Fundur í Biramsóknarfélagi Ámessýslu verður haldinn í Framsóknarsalnum, Eyrarvegi 15, Sel- fossi, mánudaginn 5. apríl, og hefst kl. 21. Á fundinum flytur Helgi Bergs ávarp. Kosnir verða fulltrúar á fimmtánda flokksþing fram- sóknarmanna, og irædd verða félagsmál. Kortið sýnir leiðirnar upp á Everest og til hliðar og að ofan eru myndir af þeim, sem eiga að reyna að halda upp á toppinn. Leiðangurinn hefur komið sér fyrir í 17.800 feta hæð á Khumbu-jökli, um 1500 fet fyrir neðan hinn haettulega Khumbu skriðjökul. Hluti leiðangursmanna mun fara svo- nefnda vnsturhryggsleið (west ridge route á kortinu) upp á Everest, en hinn hlutlnn beinustu leið upp (direct route á kortinu).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.