Tíminn - 25.05.1971, Qupperneq 6
TIMINN
ÞRTOJUDAGUR 25. maí 1971
GIRÐINGAREFNI
gott úrvál dgóó/i verói
TÚNGIRÐINGANET
GADDAVÍR
IÁRN- OG TRÉSTAURAR
LÓÐANETPLASTHÚÐUÐ
• ÚTVEGUM GIRÐINGAR OG JÁRNHLIÐ UM
ATHAFNASVÆÐI, ÍÞRÓTTASVÆÐI O. FL.
j fóður
j grasfm
j girðinjyirefii
S!
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR 8
i R
i
Símar: 11125 11130
Frá vinstri: Bjarni Bjarnason læknir, formaður Krabbameinsfélags íslands, Eðvarð Sigurðsson formaður Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar og Sigurður Samúelsson prófessor formaður Hjarfaverndar.
Dagsbrún gaf Krabbameinsfélaginu
og Hjartavernd 200 þúsund krónur
Frá skólagörðum Kópavogs
Innritun fer fram í görðunum við Fífuhvamms-
veg og Kópavogsbraut, fimmtudaginn 27. maí
1971, kl. 1—5 e.h.
Rétt til þátttöku hafa börn á aldrinum 9—12 ára.
Þátttökugjald kr. 450,00 greiðist við innritun.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur:
Skírteinisauki 1971
Frá 1. júní n.k. eru áður útgefin samlagsskírteini
því aðeins gild heimild um réttindi samlagsmanns
að skírteinisauki fylgi.
Skírteinisaukinn verður borinn heim til samlags-
manna í þessari viku og eru menn beðnir að setja
hann í plasthylkið með skírteininu, þannig að
skírteini og skírteinisauki snúi bökum saman.
Jafnframt verður dreift smáriti með ýmsum upp-
lýsingum til samlagsmanna og er ætlað eitt á
hverja íbúð.
Þeir sem ekki fá skírteinisaukann í hendur í vik-
unni, en telja sig vera í réttindum í samlaginu,
snúi sér til afgreiðslu þess í Tryggvagötu 28.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR
Aðstoðarlæknastöður
Tvær stöður aðstoðarlækna við Bamaspítala
Hringsins í Landspítalanum eru lausar til um-
sóknar. Stöðurnar veitast til 6 mánaða, önnur frá
1. júlí og hin frá 1. október n.k. Laun samkvæmt
kjarasamningi Læknafélags Reykjavíkur og stjórn-
arnefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítal-
anna, Eiríksgötu 5 fyrir 21. júní n.k.
Reykjavík, 24. maí 1971.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Hinn 21. apríl sl. voru forsvars-
menn Iljartaverndar og Krabba-
meinsfélags íslands kvaddir á
fund forystumanna Dagsbrúnar og
Styrktarsjóðs Dagsbrúnarm., og
hvoru félagi um sig afhent hundr-
að þúsund króna gjöf í tilefni af
10 ára afmæli styrktarsjóðsins á
þessu ái’i, sem þakklætisvott fyrir
gott heilsugæzlustarf í þágu al-
mennings á undanförnum árum.
Prófessor Sigurður Samúelsson,
fox-maður Hjartaverndar og Bjarni
Bjarnason læknir, formaður
Krabbameinsfélags Islands, þökk-
uðu f.h. félaga sinna þessa höfð-
inglegu og góðu gjöf, og eins og
próf. Sigurður komst að orði, og
ekki síður þann hlýhug, sem gjöf
unum fylgdi.
HESTAÞING Á VESTURLANDI
16. TIL 18. JÚLÍ NK.
.--.0 iijtj Ol>
Fjórðungsmót í Faxaborg við
Hvítá, fyrir Vesturland, Vestfirði
og Sti-andir, verður haldið dag-
ana 16., 17. og 18. júlí í sumar.
Hestamannafélagið Faxi í Borg-
arfirði, sem á mannvirki í Faxa-
borg stendur að mótinu nú eins
og endranær, en félagið hefur
oftast séð um mót þessi. Sú ný-
breytni verður nú, að Hrossarækt
arsamband Vestui'lands verður að-
ili til jafns við Hestamannafélag-
ið Faxa. Er þetta í fyrsta sinn,
sem hrossaræktarsamband gerist
beinn aðili að fjórðungsmóti og
vinnur að undirbúningi og tek-
ur á sig ábyrgð og áhættu þvl
samfara.
0' Ai^iÚÁJÍÍÍ i, : .v v
Árni Gnðmnndsson á Beigalda
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri mótsins. Honum til fullting
is af hálfu fyi'rnefndra samtaka
um Friðgeir Friðjónsson form.
Faxa og Leifur Kr. Jóhannesson,
gjaldkeri Hrossaræktai'sambands
Vesturlands. Ýmsar lagfæringar og
nývirki hafa verið og verða gerð
á sýningarsvæðinu m.a. lögð ný
hringbraut fyrir hrossasýningar
og kappreiðar. Ýmis ný ati-iði
verða sýnd svo sem hlýðnisæfing-
ar (A-próf) eða sömu atriði og
keppt var í á Evrópumestaramót-
mótinu í Þýzkalandi sl, sumar. Þá
verða sýnd afkvæmi ýmissa stóð-
hesta, sem notaðir hafa vei-ið á
Fjórðungsglíma
Suðurlands
fer fram föstudaginn 11. júní n.k. í Þjórsárveri
kl. 6 síðdegis. Þátttökutilkynningar berist til
Harðar Óskarssonar, Selfossi, sími 1227 fyrir
8. júní.
Glímunefnd H.S.K.
Aöstoöarlæknisstaöa
Staða aðstoðarlæknis við sýklarannsóknadeild
Rannsóknarstofu Háskólans er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
Reykjavíkur og stjórnarnefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítal-
anna, Eiríksgötu 5, fjTÍr 1. ágúst 1971.
Reykjavík. 24. maí 1971.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
sambandssvæðinu frá upphafi
þeirrar starfsemi.
Mörg ung kynbótahross hafa ver
ið tamin og þjálfuð í vetur bæði
hryssur og stóðhestar og verður
fróðlegt að sjá hvernig þau standa
sig, þegar til mótsins kemur. Val
á þátttökuhrossunum á kynbóta-
sýningum verður gert eftir 17.
júní en dómnefnd skipa: Iljalti
Gestsson, Guðmundur Pétursson,
Egill Bjarnason, Brynjólfur Sæ-
mundsson og Þorkell Bjarnason.
Þá verður mikil góðhestasýn-
ing og keppni og taka þátt 1 henni
gæðingar frá 5 hestamannafélög-
um af svæðinu. Ekki er búið að
fullskipa þá dómnefnd. Þátttöku-
fjöldi fer eftir félagafjölda, þau
félög, sem telja 50 félaga eða færri
mega senda tvo hesta í hvorn
flokk o.s.frv. Veðlegar kappreiðar
verða háðar og keppnisgreinar eru
þessar: 250 m skeið, 1500 m brokk,
300 m unghesta og nýliðahlaup,
400 m stökk og 800 m stökk. Eru
þetta óvenju fjölbreyttar vega-
lengdir og skemmtilegar og er
vitað að þátttaka verður mikil.
Ber að tilkynna þátttöku til Þor-
steins Valdimarssonar, Borgarnesi,
fyrir 25. júní. — Þátttöku kyn-
bótahrossa ber að tilkynna til
formanna hestamannafélaganna
fyrir 15. júní, og velur dómnefnd
svo úr þeim á ferð sinni um hér-
uðin.
Stóðhestar verða sýndir í þrem-
ur flokkum:
1. Stóðhestar með afkvæmum,
2. Stóðhest 6 vetra og eldri, 3.
Stóðhestar 3—5 vetra, reiðfærir.
Kynbótahryssur: 1. Hryssur með
afkvæmum, 2. Hryssur 6 vetra og
eldri, 3. Unghryssur 4—5 vetra.
Framkvæmdanefnd býður gesti
velkomna. hún vonast til að geta
búið vel að þeim og væntir þess,
að þeir sýni af sér góða umgengni
og í-eglusemi í hvívetna svo sam-
koman megi verða öllum til sóma
og virðingar og beri vott um menn
ingu hestaunnenda.
Frá framkvæmdanefnd.