Tíminn - 27.06.1971, Blaðsíða 2

Tíminn - 27.06.1971, Blaðsíða 2
u 8ARNALEIKTÆKI ÍÞRÓTTATÆKI Vélaverkstæði BERNHARÐS HANNESS., Suðurlandsbraut 12. Sími 35810. ENSKER RAFOEYMAR LONDON BATTERY K.OMIN AFTUR i allar gerðir bíla og dráttarvéla. Lárus Ingimarsson, heildverzlun. Vitastig 8a. Sími 16205. JOHNS-MANVILLE glerullareinangrun er nú sem fyrr vinsælasta og örugglega ódýrasta glerullar- emangrun á rnarkaðnum » dag. Auk þess fáið þér frian álpappir með. Hagkvæmasta einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt borgar sig. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — Sendum hvert á land sem er. M U N ! Ð JOHNS-MANVILLE í alla einangrun. JÓN LOFTSSON H.F. HRINGBRAUT 121 SÍMl 10600 GLERÁRGÖTU 26, Akureyri. — Sími 96-21344. TIMINN SUNNUDAGUR 27. júní 1971 Frá sumarhátíðinni á Svartsengi, sem haldin hefur verið vlð góðan orð- stír tvö undanfarin sumur. aða úti urn land. Lögð hefur verið áherzla á að þetta yrðu hátíðir fyrir alla fjölskylduna og hefur víða verið tekið upp kjörorðið „ein helgi með fjöl- skyldunni“. Talsverður stofn- kostnaður er við að halda í fyrsta sinn slíkan sumarfagn- að. Lágmarkskostnaður við að koma upp nauðsynlegri að- stöðu er um 150—200 þúsund kr., þ.e.a.s. steyptum danspalli, yfirbyggðum hljómsveitar- palli, snyrtingu o. ö. þ. h. Jafn- framt þarf að velja sumarhátíð um stað, þai tem eru góð tjald stæði o.g aðstaða fyrir leiki og íþróttir. Nú þegar eru haldnar þó nokkrar glæsilegar ' sumarhátíðir ár hvert. Þrastaskógur Árið 1911 gaf Tryiggvi Gunn arsson Ungmennafélagi ís- lands 45 hektara í landi Önd- verðarness í Grknsnesi. Land þetta; sem hlaut nafnið Þrasta- skógur, hefur nú verið frið- að í nær 60 ár, þar ræktað- ur skúgur, og er nú oinstæður staður hér á landi. í Þrasta- skógi eru nú 35—40 tjaldstæði og UMFÍ á veitingaskálann Þrastalund, sem opinn er á sumrin. Nú hefur verið gerð- ur 110x60 metra stórt íþrótta- svæði í miðjum skóginum. Var þetta starf unnið að langmestu leyti í sjálfboðavinnu og er ekki sízt að þakka formanni stjórnar UMFÍ, Hafsteini Þorvaldssyni, sem var óþreyt- andi að fara þangað og vinna ásamt öðrum sjálfboðaliðum. Ætlunin er, að í Þrastaskógi verði verulega skemmtilegt úti vístarsvæði. Verið er að vinna að heildarskipulagi svæðisins með tilliti til frekari mann- virkjagerðar. Félagsmálaskólinn Félagsmálaskóli UMFÍ hóf starfsemi sína árið 1970, en með því vildum við undirstrika okkar forustuhlutverk í félags- málauppeldi þjóðarinnar. Við teljum grátlegt hvernig fræðslu löggjöfin gengur fram hjá því. Sigurfinnur Sigurðsson á Selfossi hcfur veitt skólanum forstöðu og er það sjálfboða- starf, en cinnig koma aðrir menn og ræða við nemendur um ýmis sérsvið. 1970 voru haldin félags- málanámskeið í Haukadal og á Suðurnesjum. í haust fengum við síðan um 40 beiðnir um að halda námskeið á ýmsum stöðum, en þessi starfsemi er ekki uundin við ungmenna- félögin. Voru námskeiðin hald- in á kvöldin og um helgar. í vetur voru þau sex tals- ins, í íþróttakennaraskólan- um að Laugavatni, Kennara- skóla íslands, Árnesi, Selfossi Og styttri námskeið í Hlíðar- dalsskóla og Skógaskóla. Það er athyglisvert að nemendur í Kennaraskólanum, sem voru að ljúka þar námi í vor og báðu um þetta námskeið hjá okkur, höfðu tæpast fengið nokkra tilsögn í ræðu- mennsku eða félagsmálastarfi. Ég get sagt þér svona til gamans svolitla sögu um árangurinn af nám- skeiði þessu. Á hverju vori fer fram keppni í ræðu- mennsku í Kennaraskólan- um og það var einn af nem- endutm úr félagsmálanám- skeiðinu hjá okkur, sem hlut- skarpastur varð að þessu sinni. Hann sagðist sjálfur aldrei hafa þorað upp í ræðustól áður en hann fór á námskeiðið og hefði örugglega ekki tekið þátt í kepppinni hefði hann ekki hlotið þennan undirbún ing. í Félagsmálaskóla UMFÍ er kennd ræðumennska, fundar- stjórn, fundarritun og jafn- framt hljóta nemendur al- menna þjálfun. Einnig eru sér- stök málefni tekin fyrir á nám skeiðum skólans svo sem, skipulag Og starfshættir UMFÍ, samkomuhald, féjagsh.eimil- in, starfsíþróttir, frumatriði í skyndihjálp, framsöign, sam- starf ungmennafélaga og skóla. Leikþáttasafn — leiklist og skák — Áður fyrr átti UMFÍ leik ritasafn, sem síðar lagðist nið- ur. Við urðum varir við að fé- lagar úti á landi sýndu oft áhuga á að fá efni til flutnings á kvöldvökum. Við höfum lagt ríka áherzlu á það að ung- mennafélag mætti aldrei verða eingöngu íþróttafélag, svo dæmi sé nefnt. Ungmenna- félag getur ekki lifað með svo einhliða starfi. Sumir tengja hugtakið kvöldvökur við gamla rómantík, sem kannski geti dugað uppi í sveit. Þessi er þó ekki raunin og má nefna sem dæmi að sumar deildir Ungmennafélagsins Breiðabliks í Kópavogi halda uppi kvöld- vökum regiulega. Til þess að styðja slíka kvöldvökustarf- semi skrifuðum við öllum ung- ungmennafélögum og öllum barna- os unglingaskólum landsins og báðum um það efni, sem þessir aðilar ættu í fórum sínum. Eigum við nú 35 leikþætti, sem skólar og ungmennafélög geta valið úr og fengið fjölrituð hér eins mörg eintök og þau vilja á sáralitlu verði. Getum við væntanlega bætt 70 þáttum við innan skamms. Gífurlega mikil leiklistar- starfsemi er einnig innan ungmennafélaganna og má segja að nær öll slík starfsemi í dreifbýli sé á vegum þeirra. Þá er skákþing UMFÍ hald- ið á hverju ári. Keppt er í fjórum riðlum á fjórum stöð- um á landinu, en úrslitakeppn- in fer fram á landsmótum, þau ár sem þau eru, en annars er efnt til sérstakrar keppni. í vetur tóku 14 héraðssambönd þátt í þinginu o,g keppa 4 sveit ir til úrslita á landsmótinu á Sauðárkróki 10.—11. júlí. Landgræðsla Auk þeirra verkefna, sem nefnd hafa verið, vinna ung- mennafélagar stöðugt að land- græðslu. Við höfum gert sér- stakan samning við Vegagerð ríkisins um sáningu í veg- kanta, en veittar eru 2 millj- ónir kr. á ári í því skyni. Áð- ur fór um fjórðungur þess fjár í vinnulaun, en nú höfum við tekið að okkur framkvæmdina í sjálfboðavinnu, og öllu fénu verjum við til fræ- og áburð- arkaupa. Nú í sumar var um 170 tn. af fræi sáð í vegkant- ana. Þessi samvinna hófst nú í sumar og er áætlað að halda henni áfram a.m.k. í 4 ár og þessi landgræðsla verði eins konar afmælisgjöf ungmenna félagshreyfingarinnar til lands og þjóðar á 1100 ára afmæli ís- lands byggðar 1974. Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki — Starfsemi UMFÍ og ung- mennafélaganna yfirleitt snýst um þessar mundir fyrst og fremst um landsmótið á Sauð- árkróki nú í júlí, sem raunar hefur verið sagt frá áður. Landsmót eru haldin á þriggja ára fresti. Á þessu móti taka uim 1000 íþróttamenn og kon- ur þátt í keppni í frjálsum iþróttum, knattspyrnu, körfu- knattleik, glímu, sundi, hand- knattleik, starfsíþróttum og skák. Að loknu mótinu verður efnt til hópferðar íþróttafólks og annarra ungmennafélaga á landsmót dönsku ungmenna- félaganna í Holstebro á Jót- landi 22.—25. júlí. Mikill áhugi er á landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki og hefur aðstaða sjaldan verið eins góð og falleg á nokkru móti áður. Fjármál — Hvernig er fjárhag UMFÍ varið? — Við fáum 800.000 kr. úr ríkissjóði til starfseimi okkar, en auk þess höfum við fengið 45.000 til skógræktar í Þrasta- skógi og 50.000 til starfsíþrótta. Okkur er alltaf fjár vant, eins og sést t.d. á félagsmálaskólan- um, sem virðist þó mikil þörf fyrir, en hann er rekinn ein- göngu með sjálfboðastarfi. Okkur finnst við óneitanlega afskiptir miðað við aðra aðila hér á landi sem vinna að æsku- lýðsmálum. — Ég hef skýrt nokkuð frá ýmsum verkefnum UMFÍ, sem mörg pru ný af nálinni, en auk þess hefur tímabilið síðan hin nýja stjórn UMFÍ tók til starfa einkennzt af beinum tengslum við félagsmenn hvaðanæva á landinu. Stjóm- in hefur verið á þönum úti um land. Og é,s held að ég og stjórnarmennirnir þekkjum alla forystumenn og mestu áhugamenn hvaðanæva ó land- inu. S.J. Frá handknattleiksforkeppni 14. landsmótsins sl. sumar. Frá leik UMSK og UMFN, Danspallurinn og hátíðarsvæðið á Svartsengi á Reykjanesi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.