Tíminn - 27.06.1971, Síða 4
16,
TÍMINN
SOTíNUDAGUR 27. júní 1971
HALL GAiNE:
GLATAÐI SONURINN
3
að fara í Kaupmannahafnarhá-
skóla það árið. Það var nú í þá
daga, sem stúdentar lifðu ekki
eins reglusömu lífi og æskilegt
hefði verið. Þrír þessara fjög-
urra luku samt námi án teljandi
misfella, en hinum fjórða varð
fótaskortur og það slys eru ef til
vill fyrstu drögin að þessari
sögu, Þeigar skilnaðarstundin
rann upp, fór einn fjórmenning-
anna til Oxford, sem aðstoðarbóka
vörður og varð seinna háskóla-
kennari, annar fór til Lundúna
og gerðist starfsmaður í banka
oa vann sig upp í að verða banka-
stjóri, hinir tveir héldu tryggð við
þjóðerni sitt, Stefán Magnússon
hvarf heim og lagði stund á lög-
fræðistörf, en Óskar Nílssen var
um kyrrt í Danmörku við verzl-
unarstörf. Næstu tíu árin óx vel-
gengni vinanna stöðugt, vegur
Stefáns endaði með því, að hann
varð Landshöfðingi og Nílssen
fluttist aftur tit íslands, fyrst var
hann verzlunarstjóri fyrir fyrir-
tæki í Kauþmannahöfn, síðan setti
hann á stofn eigin verzlun. Á
þessu tímabili höfðu báðir kvong-
azt, Landshöfðinginn gekk að eiga
einkadótjtur Gríms óðalsbónda á
Þingvöllum, sem var þá stærsta
bújörð landsins, en öllum til stórr
ar furðu kvæntist faktorinn áður
en hann kom heim. Enginn vissi
nein önnur deili á konu hans en
þau, að hún var frá Kaupmanna-
höfn. En hneykslissögur eru van-
ar að skila sér, enda hvisaðist það,
að kona Óskars væri minniháttar
ieikkona í léttúðarleikjum, 0g að
hann hefði kynnzt henni á
stúdentsárunum og neyðzt til að
kvænast henni.
Kona Landshöfðingjans fæddi
bónda sínum tvo sonu, þann eldri
nefndi hann Magnús cftir föður
sínum, en hinn yngri Óskar í höf-
uðið á vini sínum, sem einmitt
kom mátulega til að verða guð-
faðir drengsins, Kona faktorsins
hafði alið honum tvær dætur, þá
eldri bar hún í fanginu, þegar hún
kom ti! íslands, hún hét Þóra, eft-
ið föðurmóður sinni. Hin dóttirin
fæddist skömmu seinna, faktorinn
vildi skíra hana Önnu, í höfuðið
á konu vinar síns, en kona hans
vildi það ekki, því var telpan skírð
Helga, í höfuðið á móður sinni.
Það var lítill aldursmunur á þess-
um fjórum börnum, Magnús var
elztur og Helga yngst, Óskar og
Þóra voru næstum jafnaldrar. Eig-
inkonur vinanna hefðu varla get-
að verið ólíkari en þær voru.
Anna var blátt áfram og óbrotin
að útliti, kiæðaburði og allri fram
komu, hún var dæmigerð íslenzk
húsfreyja, hagsýn og myndarleg.
Þó að staða Landshöfðingjans
væri virðingarstaða, þá voru tekj-
urnar heldur rýrar og Anna hagaði
því seglum eftir vindum, scm lífs-
fleyi eiginmanns hennar hlotnað-
ist. Anna var vel gefin en ómennt
uð, hún stjórnaði manni sínum á
þann hátt að vera honum hlýðin,
enda fannst honum hún vera góð
heimilisforsjá og hinn bezti og
tryggasti ráðgjafi, hann bar tak-
markalaust traust til eðlisávísana
hennar, pn öllu ininna til gáfna
hennar. Þegar hann var óráðinr
um eitthvað, þá leitaði hann æ'-in-
lega ráða hjá Önnu og á meðan
hún sagði honum hvað hann ætti
að gera, þá hlustaði hann af stakri
kostgæfni, en strax og hún byrj-
aði að útskýra málið, þá flýði
Landshöfðinginn.
Eiginkona faktorsins var afar
lagleg o? hviklynd og hégóma-
gjörn, framkoma hennar gæti vel
hafa átt að stuðla að því, að rétt-
læta hne.vkslið, sem var bundið
við nafn hennar. Helga var sund
urgerðarkona í klæðaburði, léleg
húsfrf'yja, eirðarlaus, hún var róm
antísk í eðli sínu og ekki leið á
löngu, áður en hún fór að kvarta
um fábreytni og tómleika um-
hverfisins. Léttúðug kona gerir
eiginmann sinn þunglyndan. Þeg-
ar hér var komið sögu, var faktor-
inn enn ekki orðinn auðugur, hon
um varð fljótt ljóst, að hann hafði
gert skakkt, þegar hann kvæntist
þessari fríðu dönsku konu,
að hann hefði keypt varning, sem
hann gat hvorki skipt á, né skilað
aftur. Helga vanrækti heimilis-
stjórnina og var lítilfjörleg móð-
ir. Systurnar urðu fyrstar til að
finna áhugaleysi móðurinnar á
íslandi, aftur á móti var alltaf hlý-
legt og glatt andrúmsloft í Lands-
höfðingjahúsinu, þar voru ávallt
einhver hátíðahöld, Magnús var í
fríi eða verið var að halda upp á
afmæli Óskars, það voru engir há-
tíðisdagar eða afmælisdagar
heima hjá þeim, þar var venjulega
allt hljótt og oftast kalt. En móð-
ureyrað er þunnt og það var eins
og Anna skynjaði hjartaslög litlu
telpnanna þrátt fyrir bilið sem
hafði opnazt á milli Landshöfð-
ingjahússins. og Faktorshússins.
Anna reyndi því að bæta systrun-
um upp, það sem þær fóru á mis
við heima. Faktorsfrúnni þótti gott
að losna sem oftast við dæturnar,
sem henni fannst eins og hver önn
ur leiðindabyrði, hún gat þá haft
næði til að gleypa í sig hneykslis-
rit og franskar skáldsögur, út-
koman varð því sem hin sanna
móðurímynd fyrir hugskoti þeirra
alla þeirra ævi, þegar þær hugs-
uðu til bcrnsku sinnar og æsku.
Hin fjögur börn áttu dásamlegar
stundir saman undir verndarvæng
Onnu. Á meðan þau voru <511 lítil,
var Landshöfðingjahúsið eins og
söngfuglahreiður, en þó að stund-
um mætti líkja því við apabúr,
þá var þar alltaf fjör og ham-
ingja, börnin lögðu undir sig allt
húsið, nema skrifstofu Landshöfð-
ingjans, þar með talið eldhúsið.
f þá daga var aðeins ein þjón-
ustustúlka á heimilinu, og henni
þótti eins vænt um börnin og hús-
móðurinni. Á sumrin gengu þau
að mestu sjálfala úti, en á vet-
urna ærsluðust þau inni. Það
mátti segja, að Anna hálf eyði-
legði þau öll með dekri, henni
hafði aldrei verið sú list lagin að
vera hörð við börn. Um jóla- og
nýársleytið tók hún sjálf virkan
þátt í ólátum þeirra, hún útbjó
sjálf handa þeim sælgæti, þar á
meðal karamellur, sem þau gerðu
úr allavega ströngla sem vakti
mikla kátínu. Anna kveikti fyrir
þau á kertum, sem þau gengu
með um allt húsið, ofan frá lofti
og niður í kjallara til að leita að
huldufólkinu, sem átti að koma
ofan úr fjöllunum, sumir þessara
álfa voru sagðir vondir og talið,
að þeir kæmu til að stela gófÞ
um börnum. Á slíkum dögum sátu
Landshöfðinginn og Faktorinn
inni í skrifstofu Stefáns og reyktu
langar pípur, en þó komu þeir
stundum að eldhúsdyrunum til að
horfa á leiki barnanna. Þegar
Landshöfðinginn sá konu sána í
miðjum barnahópnum, líkasta guð
móður úr álfheimum, hún var þá
orðin miðaldra, en fegurð ástar-
innar ljómaði af hversdagslegri
ásjónu hennar, þá tautaði hann í
barm sér, „Guð blessi hana,“ og
Faktorinn muldraði, ,Guð blessi
móðurlausu telpumar mínar“. Svo
drupu vinimir höfði og vora á
brott. Þeir héldu þá áfram a8 ríeða
stjórnmál.
Baraið vex en brókin ekki, lund
arfar einstaklingsins breytist held
ur ekki með aldrinum. Böm þeirra
Landshöfðingjans og Faktorsins
lutu auðvitað þessari reglu, þau
héldust óbreytt í eðli sínu tií ævi-
loka. Þóra var alltaf glaðlynd,
stöðugt bros ljómaði af fríðri
ásjónu hennar, vanalega hélt hún
er sunnuudagurinn
27. júní
Árdegisháflæði í Rvík kl. 09.22.
Tungl í hásuðri kl. 17.21.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan l Borgarspítalan
um er optn allan sólarhringinn
Simt 81212.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðtr fvr
lr Revkjavik og Kópavog stmt
11100
Sjúkrahifreið t Hafnarfirði simt
51330
Tannlæknavaki er i Heilsuveradar
stöðinnt paT sem Slysavarðstot
an ffar. og er optn laugardaga or
sunnudaga kl 5—0 e h — Sim"
22411
Almennar applVstngai um lækna-
þjonustu i borginnt eru gelnar ■
stmsvara t.æknafélags Revkiavlk
ur slm) 1888b
Fæðingarhelmtlið i KOpavogl.
Hlíðarvegt 40 slmt 42644
Kopavogs ApOtek ér optf irkt
dag. ki 0—-19 taugardaga k t1
—14. ttelgtdaga ki 13—lö.
Keflavtkur Apotek er opið vtrka
Claga kL 0—lb laugardaga kl
9—14. nelgtdaga fcl 13—lft-
Apótek Hafnarfjarðar er optð al'
vtrka da^- trá kl 9—7. a laugar
dögum kl 9—2 og á mnnudög-
urn og öðrum helgidögum er op-
fTt> fcl 2—4
Kvöld- og hclgarvörzlu apóteka í
Reykjavík vikuna 19- til 25. júní.
annast Vesturbæjar Apótek og
Háaleitir Apótek.
Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka
í Rcykjavík vikuna 26. júní — 2.
júlí annast Ingólfsapótek og Laug-
arnesapótek. Næturvarzla er í Stór-
holti 1.
Næturvörzlu í Keflavík 26. og 27
júní annast Arnbjörn Ólafsson.
Næturvörzlu í Keflavík 28. júní
annast Guðjón Ólafsson.
FÉLAGSLlF “
Félagsstarf eldri borgara
í Tónabæ.
Þeir sem hafa pantað far í Kolla-
fjörð og að Reykjalundi á morgun
en geta ekki farið eru vinsamlega
beðnir að láta vita í síma 18800.
Félagsstarf eldri borgara kl. 9—11
fyrir hádegi.
Óháði söfnuðurinn.
Farið verður í skemmtiferðalag
sunnudag 4. júlí að Skógum undir
Eyjafjöllum. Lagt verður af stað
stundvíslega kl. 9 f. h. frá Sölf-
hólsgötu við Arnarhól. Fjölmennið
og takið með ykkur gesti. Upplýs-
ingar og farmiðasala þriðjudag-
inn 29. og miðvikudag 30. júní frá
kl. 6—9 í Kirkjubæ, sími 10999.
Kvenfélag Langholtssafnaðar,
sumarferð félagsins verður farin
fimmtudaginn 1. júlí. Farið verður
i Borgarfjörð og snætt að Varma-
landi. Lagt af stað frá Safnaðar-
heimilinu kl. 8.30 f.h. Upplýsingar
veitir Margrét sími 36206, Sigríð-
ur sími 30929 og Ragnheiður sími
32646.
Ásprcstakall.
Safnaðarferð verður farin sunnu-
daginn 4. júlí næstkomandi. Farið
verður að Krossi í Landeyjum og
messað þar kl. 2, síðan skoðað
byggðasafnið á Keldum, Bergþórs-
hvoll ofl. Þátttaka tilkynnist til
Guðrúnar sími 32195 eða Jóns
sími 33051.
KÍRKJAN
Helgistund í Garðakirkju
á Alftanesi á Sunnudagskvöld kl.
8.30 á vegum Þjóðræknisfélagsins.
Sr. Bragi Friðriksson predikar og
Brynjólfur .Tóhannesson leikari les
upp. Ólafur G. Einarsson sveitar-
stjóri mun ávarpa Vestur-lslending
ana, en það er í tilefni heimsóknar
þeirra sem helgistundin er haldin.
Heimamönnum er heimill aðgang-
ur á meðan rúm leyfir, en ferð verð
ur frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8,
fyrir þá sem þurfa með. Þess er
vænzt. að allir Vestur-islendingar.
sem hér eru á ferð, sjái sér fært að
koma til helgistundarinnar.
ÁRNAÐ HEILLA
Áttræður verður á morgun,
mánudag, Guðjón Davíðsson, bóndi
í Fremstuhúsum, Dýrafirði. — Af-
mælisgrein mun birtast í íslend-
ingaþáttum Tímans síðar.
BLÖÐ OG TÍMARIT
Júníblað FAXA
er komið út. Blaðið er 32 síður og
myndum prýtt. I blaðinu er m.a.
þetta efni: Drög að sögu Keflavfk-
ur eftir Skúla Magnússon, Útivist-
arsvæði á Suðurnesjum: Ragnar
Guðleifsson. Elzti borgari Keflavfk
ur 100 ára eftir ritstjórann. Frá
Njarðvíkingum á síðustu tugum
18. aldar eftir Guðmund A. Fian-
bogason. Kosningavísur eftir sama,
Frá árshátíð Vélstjórafélags Kefla
víkur. Þar fær öll fjölskyldan verk
að vinna eftir Pál Jónsson. Félag
í vexti — frá aðalfundi Iðnaðar-
mannafélagsins eftir Guðna Magn-
ússon, Læknir leysir frá skjóðunnL
Skólaslit á Suðurnesjum. Afla-
skýrslur og aflakóngar Suðurnesja
o.m.fl. Blaðið Faxi er gefið út af
samnefndu málfundafélagi í Kefla-
vík og hefir það komið reglulega
út í nærfellt 31 ár. Ritstjóri Faxa
er Hallgrímur Th. Björnsson.
»
FREYR búnaðarblaðið nr. 14,
júlí 1971
Efni: Innflutningur sauðnauta til
íslands, Óttar Indriðason. Islenzk-
ar eiturjurtir, Ingólfur Davíðsson.
Um fæðuvalið, Torstein Storgáards
Kraftfóðurframleiðsla nútímans.
MEANWMLE, /V SHOETH/LLS • • •
— Hefurðu nokkra hugmynd um, hvar
menn tnínir gætu helzt fundið þennan
Indíána, Arnarklóna? — f smáhæðunum
liklcga. Hann er þar með grímumanni og
Indíána. — Arnarkló, það er engin lausn
að láta þá handtaka þig. — Rétt er það.
Og förum við ekki héðan, finna leitaiv
mennirnir okkur.
A/vyNor/oN
YPOSSE CAN P/NP 7N/S
LONp
suopr///LLS ^
/SA L//CELyAEEA,
SPEP/EP/ UES CArtP-
/NG /wr//A
MAS/CEP MA//A//P
AN /NP/AN/