Tíminn - 11.07.1971, Blaðsíða 12

Tíminn - 11.07.1971, Blaðsíða 12
 j Sunnudagur 11. júlí 1971. Greiddu þung högg og stór við Þórscafé OÓ—Reykjavík, laugardag. Oft er óeirðasamt utan við dansstaðinn Þórscafé um það bil sem ró er komin á inni í húsinu og gestir fá ekki leng ur útrás við að stíga dansinn. í nótt lenti tveim piltum þar saman og slógu hvorn annan í höfuðið með þeim afleiðing um, að báðir voru flutir á slysa varðstofuna. Við yfirheyrslu í morgun bar annar þeirra, að sér hafi verið hrint niður tröppurnar utan við dansstaðinn. Var hann með handtösku meðferðis. Tók hann nú steinhnullung upp af göt- unni og setti í töskuna og réð ist með þetta vopn að þeim sem hrinti. Slengdi hann nú grjótfylltri töskunni í höfuð andstæðings síns. Var það mik ið högg og sprakk fyrir á enni mannsins og varð af mikill skurður, sem síðar var saumað ur saman. Sá sem fyrir högginu varð, hefur þykka höfuðskel og vildi ekki láta sitt eftir liggja. Náði hann töskunni af hinum kappan um og lamdi hann með henni á svipaðan hátt í höfuðið. Eftir að hvor hafði fengið sitt höfuðhögg þótti bardaga- mönnum nóg að gert, enda báð ir vankaðir nókkuð. Lágu þeir hlið við hlið meðan læknar gerðu að sárunum og voru þá orðnir hinir rólegustu. VALT VIÐ GRAFARHOLT OÓ—Reykjavík, laugardag. Cortinabíll valt við Grafar- holt í morgun. Er unnið af miklum vegaframkvætndum þarna og oft grjótruðningur á veginum og kantar eru óörugg ir. Bíllinn var á leið í átt til. Reykjavíkur um kl. 8, þegar bíl stjórinn missti hann út í kant mn og grjótruðning, sem þar er. Rann bíllinn nokkurn spöl á kantinum og fór síðan út af veginum og valt. Bílstjórinn var fluttur á slysavarðstofuna. Iceland Review hyggst kynna stefnuna í landhelgismálinu SB—Reykjavík, föstudag. Tímaritið Atlantica & Ice- land Review hefur á prjómtn- um áætlun um að kynna ítar- lega síðar á þessu ári afstöðu íslands í landhelgismálinu. Mestur hluti upplags ritsins fer að jafnaði úr landi. Ekki er ákveðið, hvort upplag blaðsins um landhelgismálið verður stærra en venjulega. Þetta kom fram í viðtali við annan af ritstjórum blaðsins, Heimi Hannesson. Sagði hann, Framhald á bls. 22 Frá setningu landsmótsins i gærmorgun. íþróttafóik gengur fylktu liði undir fánum inn á íþróttavöMinn á Sauöárkróki. (Tímamyndir Gunnar) Sól og hiti á Landsmótinu ET-Sauðárkróki, laugardag. Fjórtánda Landsmót UMFÍ var sett á Sauðárkróki í morg un, í glampandi sólskini og hita. Keppendur gengu fylktu liði inn á íþróttasvæðið, og síðan voru flutt nokkur ávörp, og loks setti Hafsteinn Þor- valdsson form. UMFÍ, Lands- mótið. Rúmlega 600 keppend ur eru mættir til leiks, og fjöimargir gestir eru komnir og þeim fjölgar jafnt og þétt. Upp úr hálf níu í morgun, fylktu keppendur liði, undir fánurn ung- mennasambandanna og gnegu inn á leikvanginn. Gangan var mjög löns uppundir 1 km. Fremst fór lúðrasveit, þá fánaberi, síðan for ráðamenn mótsins. Fyrstir kepp- enda gengu UIA, gestgjafar, sjð- asta landsmóts, siðan hvert sam- bandið af fætur öðru, en síðast kom UMSS. Er kornið var inn á leikvanginn fór fram fánahylling mótstjóra. Stefán Pedersen form. Landsmótsnefndar flutti ávarp og bauð keppendur og gesti vel- komna. Þá flutti Guðjón Ingi- mundarson, form. íþróttanefndar Sauðárkrókskaupstaðar ávarp, og rakti bygigingasögu hins nýja íþróttasvæðis og loks afhenti hann svæðið Hákoni Torfasyni bæjar- stjóra, fyrir hönd kaupstaðarins, yfirráð yfir hinu nýja svæði. Há- kon Torfason flutti þvx næst ávarp og þakkaði íþróttanefnd og öllum öðrum, sem unnnið hafa að gerð íþróttasvæðisins, vel unnin störf. í lok ávarpsins lýsti Hákon íþrótta mannvirkin tekin í notkun, fyrir þá sem fyi'gja reglum hins sanna íþróttamanns. Að þessum ávörpum loknum tók Hafsteinn Þorvaldsson til máls, bauð hann boðsgesti sérstak lega velkomna, einnig óskaði hann Sauðái-ki-óksbúum til allra heilla með 100 ára afmælið og þakkaði Landsmótsnefnd fyrir frábær und irbúningsstörf, að lokum setti Haf steinn 14. Landsmót UMFÍ. Kl. 10 hófst svo íþróttakeppni í frjáls um íþróttum, knattspyrnu, körfu- knattleik, handknattleik og starfs íþróttum. Eftir hádegi hefst svo sundkeppni. SSLENDINGA- ÞÆTTIR Á ÞRIÐJUDAGINN íslendingaþættfr fylgja blaðinu á þriðjudagmn. Gestlr tjalda á tjaldstæðinu á landsmótssvæðinu á Sauðárkróki. Hafsteinn Þorvaldsson, formaður UMFÍ, setur landsmótið í gærmorgun.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.