Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 1
bls. 14 TANNLÆKNAR Standast tímans tönn bls. 16 MÁNUDAGUR bls. 22 164. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 2. september 2002 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Skemmtanir 16 Bíó 14 Íþróttir 10 Sjónvarp 20 Útvarp 21 KVÖLDIÐ Í KVÖLD Fjárfestar skila inn upplýsingum KAUP Þrír hópar fjárfesta sem hafa lýst áhuga á að kaupa hlut ríkisins í Landsbankanum skila inn upplýs- ingum á hádegi í dag um útfærslur á vissum atriðum sem einkavæð- ingarnefnd hafði óskað eftir. Davíð talar í Jóhannesarborg UMHVERFISRÁÐSTEFNA Davíð Oddsson, forsætisráðherra, flytur ræðu á umhverfisráðstefnunni í Jóhannes- arborg klukkan hálf fjögur í dag. Fundur hjá fjárlaganefnd FJÁRLÖG Fundur verður haldin í fjár- laganefnd Alþingis í dag klukkan 11.15 í dag. Þar mun fulltrúi þing- flokks Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs óska eftir því að fjármál heilbrigðisstofnana verði tekin til umræðu. Fjórir leikir hjá körlunum í kvöld FÓTBOLTI Fjórir leikir verða í 16. um- ferð Símadeildar karla í kvöld. KR tekur á móti ÍBV í Frostaskjóli, Fylkir heimsækir Þór fyrir norðan, FH tekur á móti Keflavík í Kaplakrika og Grindavík fær KA í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 18.00. TÓNLIST Gagnvirkt plötuumslag AFMÆLI Rótary og Rollingar REYKJAVÍK Vestlæg átt, 3-8 m/s og skúrir. Hiti 6 til 12 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Skúrir 5 Akureyri 5-10 Skúrir 8 Egilsstaðir 5-10 Skúrir 8 Vestmannaeyjar 5-10 Skúrir 9 + + + + VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜ ➜ ➜ UPPSAGNIR Nokkur uggur er meðal starfsmanna Íslenskrar erfða- greiningar í kjölfar uppsagna hjá fyrirtækinu að undanförnu. Við- mælendur blaðsins úr röðum starfsfólks segja fólk óöruggt og óttast að það kunni að koma til frekari uppsagna hjá fyrirtæk- inu. Íslensk erfðagreining hefur að undanförnu gengið frá starfslok- um nokkurs fjölda fólks. Starfs- fólk sem stjórnendur hafa hug á að láti af störfum hefur verið kallað á fundi og beðið um að segja upp störfum þannig að ekki sé um eiginlega uppsögn að ræða. Því sé samið um starfslok fólks. Flestir munu hafa gengist inn á þetta fyrirkomulag enda viðbúið því að vera sagt upp störfum ella. Þá mun ekki vera ráðið í störf þeirra sem láta af störfum, hvort sem þeir eru að ráða sig til ann- arra starfa eða halda í nám. „Við reynum frá degi til dags og mánuði til mánaðar að ná fram hagræðingu í rekstri fyrirtækis- ins,“ segir Páll Magnússon, fram- kvæmdastjóri upplýsinga- og samskiptasviðs. Hann segir að haldið verði áfram að reyna að ná fram hagræðingu í rekstri fyrir- tækisins, þar á meðal í manna- haldi. „Það er ekkert óeðlilegt við það að í jafn dýnamísku fyrirtæki og Íslenskri erfðagreiningu taki samsetning vinnuaflsins breyt- ingum.“ Páll segir að uppsagnirnar nái nokkuð jafnt yfir deildir fyrir- tækisins þótt mest sé um þær í fjölmennari deildum fyrirtækis- ins. Hvort tveggja hafi verið hag- rætt í rekstri og eins hafi aukin sjálfvirkni, til dæmis í rann- sóknadeild Íslenskrar erfða- greiningar, gert fyrirtækinu kleift að fækka fólki. Ekki fengust upplýsingar um það hversu mikil breyting hefur orðið á heildarfjölda starfsmanna hjá fyrirtækinu. brynjolfur@frettabladid.is VEÐUR Djúp lægð gekk yfir landið í gær. Í kjölfar þess losnuðu þak- plötur af húsum bæði á höfuðborg- arsvæðinu og á Suðurlandi. Þurfti í nokkrum tilfellum að kalla til að- stoðar björgunarsveitarmanna. Þá leitaði einn maður í Hafnarfirði sér læknisaðstoðar eftir að hafa fengið þakplötu í andlitið. Innanlandsflug lá að mestu niðri í gærdag. Þá voru engar sam- göngur til Vestmannaeyja þar sem bilun varð í Herjólfi. Í Gnúpverja- hreppi og nágrenni varð rafmagns- laust þegar vírar slitnuðu vegna óveðursins. Veður lægði til muna víðast hvar í nótt. Í dag verða vestlægar áttir ríkjandi og víða 5-10 m/sek. Þá verður hvassara og rigning framan af degi norðaustan til en léttir heldur á Suðausturlandi. Bú- ist er við að hiti komist mest í 12 stig en svalast verður á Norðvest- urlandi. Sjá nánar á bls. 2 og 4 Haustlægð yfir landinu: Veður olli tjóni og truflunum á samgöngum HUGAÐ AÐ ÖNDUNUM Í ÓVEÐRINU Meðan flestir kúrðu inni í vonda veðrinu í gær gerðu þessar óeigingjörnu konur sér ferð niður að Reykjavíkurtjörn og gáfu öndunum brauð. ÞETTA HELST Skeifan 4, s. 585 0000, www.aukaraf.is GPS SporTrak Map Kr. 39.900 m/ íslandskorti Uggur í starfsfólki vegna uppsagna Í kjölfar þess að Íslensk erfðagreining hefur sagt upp fólki hefur gætt nokkurs uggs meðal starfs- manna fyrirtækisins um framhaldið. Frekari uppsagnir eru taldar líklegar. ÍSLENSK ERFÐAGREINING Uppsagnir fyrirtækisins að undanförnu hafa valdið nokkrum ugg meðal starfs- manna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002. Fr é tt a b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára á mánudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002 29,1% D V 70.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuð- borgarsvæðinu á mánudögum? 63,0% Philip Green og Baugur unnuað því um alla helgina að finna leið út úr þeirri sjálfheldu sem tilboð félaganna í Arcadia er komið. bls. 2 Landbúnaðarráðuneytið er sagtí tilvistarkreppu, verði veiga- mikill þáttur í starfi þess flutt til sjávarútvegsráðuneytis. bls. 6 Tíu stærstu fyrirtækin eru 100milljörðum verðmætari nú en fyrir þremur árum. bls. 8 Formaður Hundaræktarfélags-ins ekki sáttur við hundabú á Kjalarnesi. bls. 10 KR varð bikarmeistari kvennaí knattspyrnu á laugardag. bls. 12

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.