Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 2. september 2002
2. sep kl.06-1030. l. -1
Stundataflan á staðnum
og á www.raektin.is
2. sep kl.06-1030. l. -22
tilboð 29.900 árskort
www.raektin .is
Suðurströnd 4 551 2815
Body shape Body max unglinga box Box fyrir fullorðna Pallatímar
Spinning Byrjenda Fitnessbox
Aðhaldstími í boxi Body pump
Fitnessbox Jóga
Funkeróbik
Byrjenda spinning
Nálastunguskóli Íslands
Býður upp á undirstöðumenntun í Nálastungum
Kennslan hefst í september í Fjölbrautarskólanum í Ármúla
Nánari upplýsingar í síma: 553 - 0070
FÓTBOLTI Njáll Eiðsson hefur verið
leystur undan samningi sem þjálf-
ari meistaraflokks karla ÍBV í
knattspyrnu. Samkvæmt fréttatil-
kynningu frá stjórn knattspyrnu-
deildar ÍBV er ástæðan sú að
frammistaða liðsins hefur ekki
staðið undir væntingum. Hall-
grímur Heimisson, aðstoðarþjálf-
ari liðsins, mun taka við stjórn
þess og stýra í næstu leikjum.
Á þriðjudag í síðustu viku
ræddi Fréttablaðið við Jóhann
Inga Árnason, framkvæmdastjóra
knattspyrnudeildar ÍBV, sem
sagði að árangur liðsins væri í
sumar væru mikil vonbrigði.
Hann bætti þó við. „Við höfum
alltaf sagt að við stöndum með
þjálfaranum okkar. Málin eru nú
oft flóknari en það að hægt sé að
kenna einum manni um.“ Þegar
Jóhann Ingi var inntur svara í
gær hvað hefði breyst í millitíð-
inni sagði hann að stjórnin vildi
ekki tjá sig frekar um málið.
Njáli Eiðssyni sagt upp störfum hjá ÍBV:
Baki snúið við
þjálfaranum
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
og félagar í Chelsea gerðu 1-1
jafntefli við Englandsmeistara
Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í
gær. Chelsea varð fyrri til að
skora með marki frá Gianfranco
Zola. Patrick Vieira var vikið af
velli eftir að hafa fengið að líta
gula spjaldið öðru sinni. Chelsea
náði þó ekki að nýta sér liðsmun-
inn og jafnaði Kolo Toure leikinn
með fyrsta marki sínu fyrir
Arsenal.
Guðni Bergsson og félagar í
Bolton lögðu Aston Villa að velli.
Michael Rickett skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu.
West Bromwich Albion vann
sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni í
fjölda ára þegar liðið lagði Ful-
ham að velli með einu marki gegn
engu. Lárus Orri Sigurðsson var
ekki í leikmannahópi W.B.A.
Manchester United gerði 1-1
jafntefli við Sunderland. Roy Kea-
ne, fyrirliðið Manchester, var
samur við sig og fékk að líta rauða
spjaldið fyrir olnbogaskota. Ný-
liðar Birmingham lögðu Leeds að
velli 2-1. Tottenham, sem er í efsta
sæti deildarinnar, lagði South-
hampton að velli með tveimur
mörkum gegn engu. Tottenham er
með tíu stig, tveimur stigum á
undan Arsenal og þremur á undan
Liverpool, sem á leik til góða.
Chelsea er í fimmta sæti deildar-
innar og Manchester United í því
áttunda með fimm stig. Liðið hef-
ur aðeins unnið einn leik af þrem-
ur, en gert tvö jafntefli.
GÓÐUR
Eiður Smári Guðjohnsens og félagar gerðu 1-1 jafntefli við Englandsmeistara
Arsenal í gær.
Arsenal
krækti í stig
einum færri
Arsenal og Chelsea gerðu jafntefli í ensku úr-
valsdeildinni í gær. Patrick Vieira og Roy Kea-
ne fengu báðir að líta rauða spjaldið um helg-
ina. Tottenham á toppi deildarinnar.
ÆFUR
Roy Keane hrópar hér ókvæðisorðum að
Jason McAteer eftir að hafa gefið honum
olnbogaskot. Keane fékk að líta rauða
spjaldið fyrir vikið.