Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 4
4 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR SKÓLAMÁL „Þetta tíðkaðist í kennslu á nítjándu öld og eitt- hvað fram á þá tuttugustu. En ég hélt að þetta væri liðin tíð,“ seg- ir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, um þau orð Davíðs Oddsonar forsætis- ráðherra að hann hafi lamið nemendur leiftursnöggt í höfuð- ið væru þeir með ólæti þegar hann kenndi í Verzlunarskólan- um um tíma. „Þetta er líklega skýringin á því að Davíð var að- eins eitt ár við kennslu,“ segir Eiríkur. Formaður Kennarasambands- ins er ekki í vafa um að það sé lögbrot að lemja nemendur í höf- uðið í kennslustund þó svo koma þurfi á kyrrð: „Maður lemur ekki fólk upp úr þurru án þess að þurfa að sæta ábyrgð. Þetta er ekki aðeins ósmekklegt, þetta er lögbrot,“ segir Eiríkur og telur að atburðir sem þessir séu eitt- hvað sem menn ættu að reyna að gleyma freka en að flíka og stæra sig af á opinberum vett- vangi. Þorvarður Elíasson, skóla- stjóri Verzlunarskólans, segist ekki hafa verið kominn til starfa þegar Davíð Oddsson kenndi við skólann: „Ég ber því ekki ábyrgð á Davíð Oddssyni þá frekar en nú,“ segir Þorvarður. „Hins veg- ar tel ég að menn verði að líta á skemmtigildi frásagnarinnar frekar en að um raunsanna lýs- ingu hafi verið að ræða. Ég hef aldrei heyrt um að nemendur hafi verið lamdir leiftursnöggt í höfuðið hér í skólanum. Hvorki af forsætisráðherra né öðrum,“ segir skólastjórinn.  Formaður Kennarasambandsins um kennsluaðferðir forsætisráðherra: Ósmekklegt lögbrot DAVÍÐ ODDSSON Segist hafa slegið nemendur leifturssnöggt í höfuðið væru þeir með ólæti í Verzlunar- skólanum. NÝBAKAÐUR NÓBELSVERÐLAUNAHAFI John Sulston er einn þriggja vísindamanna sem deila með sér Nóbelsverðlaununum í læknisfræði eða lífeðlisfræði þetta árið. Fyrstu Nóbelsverðlaunin tilkynnt: Hringorma- fræðingar fá Nóbels- verðlaun VÍSINDI Þrír menn, sem allir hafa varið stórum hluta lífs síns í að rannsaka erfðavísa hringorma, fá Nóbelsverðlaunin í lífeðlisfræði eða læknisfræði þetta árið. Þetta eru þeir John Sulston og H. Ro- bert Horvitz frá Bandaríkjunum og Sydney Brenner frá Bretlandi. Verðlaunin fá þeir fyrir upp- götvanir sínar á því hvernig erfðavísar stjórna þróun líffæra og frumudauða. Þeir hafa fundið erfðavísa sem stýra þessu í hringormum og sýnt fram á að sambærilegir erfðavísar séu til í æðri tegundum, þar á meðal manninum. Rannsóknir þeirra hafa varpað nýju ljósi á ýmsa sjúkdóma, svo sem alnæmi og krabbamein. Þeir einbeittu sér að því að rannsaka eina hringormategund sem nefnist caenorhabditis eleg- ans. Hún varð fyrir valinu vegna þess hve einföld hún er að allri gerð, en þó samsett úr frumum eins og æðri lífverur. Næstu daga verður skýrt frá því hverjir hljóta Nóbelsverð- launin í öðrum greinum. Verð- launin verða að venju afhent í Stokkhólmi 10. desember.  ÖLDRUNARMÁL Danir hafa horfið frá því að loka öldrunardeildum heilabilaðra og dregið mjög úr lyfjagjöfum að sögn Svövu Ara- dóttur sem hér er stödd til að halda námskeið fyrir íslenska heilbrigðisstarfmenn á öldrunar- deildum. Hún býr í Danmörku og vinnur við að leiðbeina þeim sem annast heilabilaða á stofnunum. „Mér finnst starfsfólk sem vinnur að þessum málum hérlendis stan- da sig ótrúlega vel. En það er alltaf sama sagan hvar sem litið er, það vantar fjármagn. Við verð- um að fara að huga að framtíðinni því öldruðum fjölgar hratt og að sama skapi mun þeim fækka sem fást til að starfa við að annast þetta fólk,“ segir Svava. Hún segir Dani vera að átta sig á að minni einingar og meiri menntun starfsfólks sé heillavæn- legri en stórar lokaðar deildir. „Þar er það einnig alltaf að aukast að heimilisdýr, bæði fuglar, hund- ar og kettir eru notaðir í meðferð heilabilaðra. Einkum eru hundar taldir góðir því þeim fellur betur að þóknast manninum en til að mynda köttum. Það mun vera mýkt þessara dýra sem veldur því að mönnum líður vel við að strjú- ka þeim.“ Svava telur að við ættum að horfa meira til þessara þátta hér- lendis en við höfum það fram yfir Dani að fjölskyldubönd eru mun sterkari og við sinnum öldruðum ættingjum okkar betur þess vegna, „Við verðum að fara að taka meiri ábyrgð á þessum hópi og hugsa fram í tímann. Við þurf- um ekki flottar og stórar íbúðir á dvalarheimilum heldur er mikil- vægara að þeir sem annist þetta fólk sé vel menntað og upplýst um þarfir þess.  Danir beita nýjum aðferðum í meðferð aldraðra: Fjölskylduböndin sterkari á Íslandi ÖLDRUÐUM FJÖLGAR EN ÞEIM SEM ANNAST ÞÁ FÆKKAR „Við verðum að fara að taka meiri ábyrgð á þessum hópi og hugsa fram í tíman,“ segir Svava Aradóttir sem heldur námskeið fyrir starfsfólk í öldrunarþjónustu. AP /M YN D Persónuvernd: Leyni- löggur ekki á borðum LEYNIÞJÓNUSTA „Ef einhver ber þetta upp við okkur þá tökum við það til skoðunar,“ segir Páll Hreinsson, formaður stjórnar Persónuverndar, um starfsemi lögreglunnar sem þegar vinnur þau störf sem leyniþjónustur er- lendra ríkja gera. Haft hefur ver- ið eftir Haraldi Johannessen rík- islögreglustjóra að engin þörf sé á leyniþjónustu ríkisins því lög- reglan hafi unnið og vinni öll þau störf sem slík leyniþjónusta myndi gera. „Við höfum ekki rætt þetta mál formlega og því er það ekki á okkar borðum,“ segir Páll Hreinsson. Ef marka skal orð ríkislög- reglustóra þá hefur lögreglan þegar safnað saman ýmsum upp- lýsingum um einstaklinga og fé- lög sem á einhvern hátt tengjast þeim verkefnum sem lögreglan fæst við hverju sinni. Haraldur Johannessen segir lagarammann sem lögreglan vinni eftir vel rúman þó vissulega megi treysta hann og styrkja. Ríkislögreglu- stjóri hefur engin áform uppi um að óska eftir frekari heimildum dómsmálaráðuneytis til eftirlits með borgurunum.  Húsvíkingar um atvinnuleysisbætur: Skammar- lega lágar KJARAMÁL „Fullar atvinnuleysis- bætur, sem í dag eru um 73 þús- und krónur á mánuði, eru ein- faldlega til skammar fyrir þjóð sem telur sig til ríkari þjóða heims,“ segir Aðal- steinn Árni B a l d u r s s o n , f o r m a ð u r Verkalýðsfé- lags Húsavík- ur. Félagið er að hefja undir- búning kjara- viðræðna og samþykkti um helgina álykt- un um kjaramál. „Við viljum fá lægstu laun hækkuð verulega og tryggja kaupmátt launa,“ segir Aðalsteinn. Félagið vill að skattleysis- mörk verði leiðrétt og segir að þau hafi lækkað um rúmar 26.000 krónur á mánuði frá því að stað- greiðslukerfi var tekið upp fyrir fjórtán árum. „Til þess að ná fram þessum markmiðum teljum við mikil- vægt að aðildarfélög Starfs- greinasambands Íslands standi saman í komandi undirbúningi og viðræðum við ríki, sveitarfélög og Samtök atvinnulífsins,“ segir Aðalsteinn Baldursson.  AÐALSTEINN BALDURSSON Samstaða mikilvæg í komandi kjarasamn- ingum eigi árangur að nást. BOWIE, AP Þrettán ára strákur var skotinn í maga og brjóst fyrir utan skólann sinn í bænum Bowie skammt frá Washington í Banda- ríkjunum í gær- morgun. Hann liggur þungt hald- inn á sjúkrahúsi. Byssumaður, sem talið er að hafi myrt sex manns í síðustu viku, er grunaður um að hafa framið þetta voðaverk líka. Byssuskot heyrðist við Benja- min Tusker skólann stuttu eftir klukkan átta í gærmorgun að staðartíma. Foreldrar margra barna náðu í börnin sín í skólann strax og þau heyrðu af skotárásinni. Víða í nágrenninu voru börn höfð inni í frímínútum og matartímum af ótta við aðra árás. „Maður heldur að maður sé ör- uggur, en öryggið nær ekki lengra en næsta skref,“ sagði móðir eins tólf ára drengs í skól- anum. Hún var nýbúin að senda hann í skólann þegar hún heyrði af skotárásinni. Hún hljóp sam- stundis út í skóla og náði í son sinn. Á miðvikudag og fimmtudag í síðustu viku voru fimm manns myrtir á almannafæri í Montgomerysýslu í Maryland, skammt frá Washington í Banda- ríkjunum: Tveir fyrir utan bens- ínstöð, sá þriðji fyrir utan mat- vöruverslun, sá fjórði á bekk við pósthús og sá síðasti þegar hann var að slá grasið fyrir utan bif- reiðaverslun. Á fimmtudaginn var svo sjötta fórnarlambið myrt á götuhorni í Washington. Rannsóknir á byssukúlum lei- ddu ennfremur í ljós að kona, sem skotin var á föstudaginn á bílastæði í Virginíuríki, um það bil 75 km suður af Washington, var skotin með sömu byssunni. Hún liggur á sjúkrahúsi og er sögð á batavegi. Engin vitni voru að morðun- um. Það eina sem vitað er um morðingjann er að hann er góð skytta. Hann skaut jafnan úr töluverðri fjarlægð og hæfði í fyrsta skoti. Lögreglan er að reyna að draga upp nákvæmari mynd af morðingjanum, meðal annars með því að rekja ferðir hans eftir því sem hægt er. Í gær fóru fram útfarir nokk- urra þeirra sem leyniskyttan óþekkta hefur orðið að bana.  Þrettán ára strákur skotinn Leyniskyttan lætur til skarar skríða í áttunda sinn skammt frá Was- hington. Lögreglan er engu nær. Óttaslegnir foreldrar náðu í börnin sín í skólann. Drengurinn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. „Maður heldur að maður sé öruggur, en öryggið nær ekki lengra en næsta skref“ EINS OG AÐ LEITA AÐ NÁL Í HEYSTAKKI Charles Moose, lögreglustjóri í Montgomerysýslu, svarar spurningum fréttamanna. Lög- reglan reynir að rekja ferðir leyniskyttunnar og fá með því einhverja mynd af því hvernig hann gæti verið innrættur. AP /N IC K W AS S KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is 41,6% Veit ekki 2,5% Á að heimila rekstur spilavíta? Spurning dagsins í dag: Er löggæslu ábótavant í Reykjavík? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is Nei 55,8%Já SKIPTAR SKOÐANIR Skiptar skoðanir eru á því hvort heimila eigi rekstur spilavíta á Íslandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.