Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 8. október 2002 21
TÓNLIST Lesendum tónlistartíma-
ritsins Q verður gefið tækifæri til
þess að halda þeim poppara sem
fer mest í taugarnar á þeim frá
verðlaunaafhendingu blaðsins í
ár. Verðlaunin heita „Q most
unwanted“ og verður þeim sem
fær flest atkvæði meinaður að-
gangur að hátíðinni í ár.
Aðstandendur hátíðarinnar
hvetja lesendur blaðsins að velja
þann poppara sem þeim finnst
hæfileikalausastur eða þann sem
er þekktastur fyrir það að haga
sér illa. Liam Gallagher er örugg-
lega í hópi þeirra sem koma til
greina.
Tilnefningar til verðlaunanna í
ár verða tilkynntar í London á
mánudag. Verðlaunaathöfnin fer
fram viku síðar.
Vanalega veitir blaðið verðlaun
fyrir „bestu smáskífu“, „bestu
plötu“, „besta myndband“, „besta
nýliðann“ og „besta tónlistaratriði
í heiminum í dag“.
Nýbreytni á Q verðlaunahátíðinni:
Kosið um óvin-
sælasta popparann
LIAM GALLAGHER
Hefur verið þekktur fyrir að haga sér illa á
verðlaunhátíðinni. Gæti því þurft að sitja
heima í ár.
KÓNGAFÓLK Prins Claus, hinn þýsk
ættaði eiginmaður hollensku
drottningarinnar Beatrix, lést á
sunnudag 76 ára að aldri. Hann
hafði átt í harðri baráttu við park-
isonveiki og hafði verið undir dag-
legu eftirliti í nokkra mánuði
vegna öndunar- og hjartveiki.
Claus var innritaður á spítala fyr-
ir tveimur vikum vegna sýkingar
í lungum sem að lokum dró hann
til dauða. Sonur konungshjónanna
var við banabeð föður síns.
Hundruð manna söfnuðust
saman fyrir utan Huis ten Bosch
höllina til að votta honum virð-
ingu sína. Þar var búið að raða
upp kertum, blómsveigum og
póstkortum.
Claus hafði verið meðlimur í
þýska nasistaflokknum. Hol-
lenska þjóðin átti því erfitt með að
viðurkenna hann þar sem hún var
enn í sárum eftir innrás Þjóðverja
í seinni heimsstyrjöldinni. Hann
var þó tekinn í sátt þegar þau hjón
eignuðust drenginn Vilhjálm Al-
exander. Vilhjálmur Alexander, er
fyrsti krónprinsinn sem fæðist í
heila öld og hefur hann notið gríð-
arlegra vinsælda heima fyrir.
Claus þótti afar heillandi mað-
ur og hafði mikið innsæi í hol-
lenskt atvinnulíf. Hann virtist
afar heilsuveill þegar hann kom
fram í sjónvarpi í byrjun síðasta
árs ásamt eiginkonu sinni þar sem
þau tilkynntu trúlofun Vilhjálms
Alexanders krónprins.
Þegar Claus verður jarðsung-
inn verður það fyrsta konunglega
útförin í Hollandi síðan Vilhelm-
ína drottning, amma Beatrix, var
borin til grafar árið 1962. Móðir
Beatrix, Júlíana, afsalaði sér
drottningarembættinu árið 1980.
Hollenska ríkisstjórnin til-
kynnti í gær að jarðarförin færi
fram þann 15. október. Claus
verður grafin í Nýju kirkjunni í
Delft, sem er frá 14. öld, en þar
eru 43 meðlimir konungsfjöl-
skyldunnar grafnir.
Þjóðin tók
hann seint í sátt
Prins Claus lést á sunnudag. Afar umdeildur maður en þótti heillandi.
Var meðlimur í þýska nasistaflokknum.
KONUNGSHJÓNIN
Beatrix og Claus veifa til mannfjöldans fyrr á þessu ári í tilefni af giftingu Vilhjálms Alex-
anders, krónprins.
BEÐIÐ FYRIR PRINSINUM
Hollenska þjóðin tók Claus seint og síðar
meir í sátt. Hann var meðlimur í þýska
nasistaflokknum.