Fréttablaðið - 13.11.2002, Blaðsíða 1
AFMÆLI
Nám fram
yfir jeppa
bls. 22
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 13. nóvember 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 16
Íþróttir 10
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
ÚRSKURÐUR Jón Kristjánsson, settur
umhverfisráðherra, kveður upp úr-
skurð í kærum vegna umhverfis-
mats Norðlingaölduveitu.
Úrskurður um
Norðlingaölduveitu
EFNAHAGSMÁL Hagstofan birtir tölur
um fiskaflann í október.
Fiskafli í október
TÓNLEIKAR Þórir Jóhannsson kontra-
bassaleikari leikur verk eftir David
Ellis, Karólínu Eiríksdóttur og Óli-
ver Kentish á háskólatónleikum í
Norræna húsinu. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 12.30.
Bassi í hádeginu
FUNDUR Stefán Már Stefánsson flyt-
ur fyrirlestur um framtíðarskipan
Evrópusambandsins í stofu L-101 í
Lögbergi á vegum Lagastofnunar
Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er
opinn öllum og hefst klukkan 12.15.
Framtíðarskipan
ESB
ERLENT
Úrskurðar
Saddams beðið
RÍKISJARÐIR Gjafafé sem Skógrækt
ríkisins var afhent og skilyrt var til
skógræktar í Borgarfirði fór í kaup
á jörð í Borgarfjarðarsýslu. Eitt hús
stendur enn á jörðinni og er það
leigt starfsmönnum Skógræktarinn-
ar og landbúnaðarráðuneytisins til
sumar- og helgardvalar. Þetta kem-
ur meðal annars fram í svari Guðna
Ágústssonar við fyrirspurn Gísla S.
Einarssonar. Þingmaðurinn spurði
hve margar jarðir ríkið ætti, hverj-
ir nýttu þær og hverjar leigutekjur
væru.
Ráðherra sagðist ekki hafa
fjölda ríkisjarða á reiðum höndum
þar sem jarðirnar væru á forræði
eða í umsjón ólíkra ráðuneyta og
ríkisstofnana. Hann upplýsti hins
vegar að jörðin Litla-Skarð, sem
keypt var fyrir gjafafé sem skilyrt
var til skógræktar, væri í umsjá
Skógræktar ríkisins. Skógræktin
hafi gróðursett töluvert á jörðinni,
auk þess sem komið hafi verið upp
rannsóknaraðstöðu á sviði alþjóð-
legra vatnarannsókna. Gagngerar
endurbætur hafi verið gerðar, öll
hús verið rifin utan eitt, en í því var
sumardvalaraðstaðan útbúin. Það er
eins og áður segir leigt starfsmönn-
um Skógræktar ríkisins og landbún-
aðarráðuneytisins til sumar- og
helgardvalar. Heildarleigutekjur í
fyrra námu samtals 112 þúsund
krónum.
Skógrækt ríkisins:
Gjafafé fór í orlofsbústað
HEILBRIGÐISMÁL Læknar í Grinda-
vík voru nálægt því að taka tilboði
heilbrigðisráðuneytisins um nýjan
þjónustusaming fyrir helgi en
höfnuðu því eftir að hafa rætt við
H a f n a r f j a r ð a r -
lækna og stjórn Fé-
lags heimilislækna
að sögn Elsu Frið-
finnsdóttur, aðstoð-
armanns heilbrigð-
isráðherra.
Elsa segir að allt
útlit hafi verið fyrir
að samningar væru
að takast þegar
læknarnir höfnuðu
þeim óvænt daginn
eftir. Þórir Kol-
beinsson, formaður
FÍH, segist ekki kannast við að
hafa haft afskipti af þjónustu-
samningi við læknana í Grindavík
en hann viti að til tals hafi komið að
gera verktakasamninga við lækna
til að sinna bráðaþjónustu á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. „Ég
veit ekki til þess að læknarnir hafi
farið fram á að fá greitt meira en
sérfræðingslaun með verktakaá-
lagi. Það vita það allir að ákveðn-
um gjöldum þarf að bæta við verk-
takalaun.“
Áður en ráðherra fór utan fól
hann Elsu og embættismönnum
ráðuneytisins að ræða við lækna á
Suðurnesjum. Elsa segir að tveir
fyrrverandi læknar heilsugæslu-
stöðvarinnar hafi verið ráðnir á
sjúkrahúsið til að sinna lágmarks-
þjónustu.
Unnið væri að því að fá tvo til
viðbótar á verktakasamning en það
hafi ekki tekist því launakröfur
þeirra væru mjög háar. „Það sýnir
sig að þó að þeir segi að ekki sé um
kjarabaráttu að ræða heldur rétt-
indabaráttu þá steytir á peningum
þegar öllu er á botninn hvolft.“
Elsa telur undarlegt að þrátt
fyrir að læknar hafi ítrekað sagt að
um sé að ræða einstaklingsupp-
sagnir sem bundnar séu við tvo
staði sé formaður Félags heimilis-
lækna talsmaður þeirra sem sagt
hafa upp. „Ég velti fyrir mér hver
staða formannsins er í þessu sam-
bandi.“
Þórir Kolbeinsson segir að allir
þeir læknar sem sagt hafi upp séu
félagsmenn í FÍH og því sé ekki
óeðlilegt að félagið styðji við bakið
á þeim. „Það er ekki sanngjarnt að
þeir reki einir sína einstaklings-
baráttu án stuðnings frá félaginu.
Að halda öðru fram er enn ein til-
raunin hjá ráðuneytinu að neita að
horfa á þetta sem réttindabaráttu,“
segir Þórir. bergljot@frettabaldid.is
Launakrafa
lækna allt of há
Elsa Friðfinnsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, segir baráttu
lækna snúast um peninga, ekki réttindi. Þórir Kolbeinsson telur
ráðuneytið skorast undan að viðurkenna réttindabaráttu læknanna.
MIÐVIKUDAGUR
226. tölublað – 2. árgangur
AP
/M
YN
D
bls. 6
TÓNLIST
Leikkerfi
5-4-1
bls. 16
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
46%
75%
FÓLK
bls. 10
Erfiðleikar
í hjóna-
bandinu
FÓTBOLTI
Newcastle
heldur í
vonina
bls. 21
REYKJAVÍK Norðaustan
3-8 m/s. og léttskýjað. Hiti 0
til 4 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Éljagangur 3
Akureyri 3-8 Él 0
Egilsstaðir 3-8 Él 0
Vestmannaeyjar 3-8 Léttskýjað 2
➜
➜
➜
➜
VERSLUNIN BRYNJA
Samkvæmt tillögu að nýju deiliskipulagi
er heimilt að rífa verslunina Brynju
við Laugaveg.
Laugavegur:
Heimilt að
rífa 20 hús
SKIPULAGSMÁL Gert er ráð fyrir að
rífa megi um 20 hús á tveimur
skipulagsreitum, sem afmarkast
af Laugavegi, Hverfisgötu,
Frakkastíg og Klapparstíg. Meðal
þeirra húsa sem heimilt er að rífa
samkvæmt tillögum að nýju
deiliskipulagi er Laugavegur 29,
en þar er verslunin Brynja til húsa.
Götumynd Laugavegs mun taka
miklum breytingum ef tillögurnar
verða samþykktar af borgaryfir-
völdum. Auk þess að veita heimild
til að rífa hús sem standa við göt-
urnar, sem reitirnir tveir af-
markast af, heimila tillögur Borg-
arskipulags einnig að hús á baklóð-
um verði rifin.
Jóhannes Kjarval, deildarstjóri
hjá Borgarskipulagi, segir að á
baklóðum sé fjöldinn allur af hús-
um sem engin ástæða sé til að
varðveita. Með því að rífa þau sé
hægt að nýta svæðið betur og auka
byggingarmagnið í miðborginni
henni til framdráttar. nánar bls. 2
„Það sýnir sig
að þó að þeir
segi að ekki
sé um kjara-
baráttu að
ræða heldur
réttindabar-
áttu þá steytir
á peningum
þegar öllu er
á botninn
hvolft.“
GJALDSKRÁ AÐ LITLA-SKARÐI
Vetur Sumar vor/haust
Vikudvöl 5.500 8.000 7.000
Helgardvöl 4.000 - - - - - -
ÚTFÖR Í SKUGGA KJARADEILU Þúsundir breskra slökkviliðsmanna fylgdu einum félaga sinna til hinstu hvílu í gær meðan talsmenn
stéttarfélags slökkviliðsmanna sátu að samningaborði með ríkisstjórn Tonys Blairs. Slökkviliðsmenn höfnuðu tilboði stjórnvalda um 11%
launahækkun og sögðu það móðgun en krafa þeirra hljóðar upp á 40% launahækkun. Flest bendir því til að breskir slökkviliðsmenn
leggi niður vinnu í kvöld en það yrði í fyrsta sinn í aldarfjórðung. Boðað verkfall stendur í tvo sólarhringa en þrenn átta daga verkföll til
viðbótar eru ráðgerð fram að jólum. Breski herinn er í viðbragðsstöðu og hafa rúmlega 800 úreltir slökkvibílar hersins frá 1950 verið
teknir í gagnið á ný.
Kosningar:
Má telja
víðar
Telja má atkvæði á fleiri en ein-
um stað í hverju kjördæmi í næstu
þingkosningum, samkvæmt laga-
frumvarpi sem Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra hefur kynnt í
ríkisstjórn. Samkvæmt frumvarp-
inu geta yfirkjörstjórnir ákveðið að
talið verði á nokkrum stöðum í við-
komandi kjördæmum. Þannig má
flýta fyrir talningu þar sem ella
þyrfti að flytja atkvæðaseðla um
langar vegalengdir í víðfeðmum
landsbyggðarkjördæmum. Slíkt
getur líka komið í veg fyrir tafir á
talningu vegna ófærðar, svo sem
milli lands og Eyja.