Fréttablaðið - 13.11.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.11.2002, Blaðsíða 2
2 13. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR Vilhjálmur Egilsson: Nauðsynlegt fyrir flokk- inn að taka á málinu PRÓFKJÖR „Umfangið á þessu var meira en við vissum á fimmtudags- kvöld þegar sáttin var gerð,“ segir Vilhjálmur Egilsson alþingismaður um ástæður þess að hann hefur vak- ið athygli á kosningamisferli á Akranesi þrátt fyrir að fulltrúi hans hafi undirgengist sátt um að jafna út ágreininginn. Vilhjálmur, sem hafnaði í fimmta sæti í prófkjörinu, hefur lýst því að hann og stuðningsmenn hafi verið beittir brögðum kosn- ingasmala á Akranesi og sigur hafð- ur af þeim. Þar var um að ræða að farið var með kjörgögn um götur og torg og vegfarendur látnir kjósa. Aðeins munaði 41 atkvæði á Vil- hjálmi og Sturlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra í fyrsta sæti listans og segir Vilhjálmur að stuðnings- menn Sturlu hafi tekið þátt í mis- ferlinu þótt sjálfur segist hann ekki eiga hlut að máli. Vilhjálmur segir að Skagamenn- irnir hafi ekki fullnægt skilyrðum sáttarinnar þar sem þeir hafi ekki skilað inn fullnægjandi gögnum og engin leið hafi verið til þess að átta sig á umfanginu. „Við treystum mönnum sem reyndist ekki vera treystandi,“ seg- ir Vilhjálmur. Hann segist ekki hafa ákveðið næstu skref í málinu en kveðst horfa til þess að Sjálfstæðisflokkur- inn hljóti að taka á málinu. „Það er nauðsynlegt fyrir flokk- inn að leysa úr þessu máli. Stjórn kjördæmaráðsins verður að skoða þetta út frá þeim staðreyndum sem blasa við,“ segir Vilhjálmur.  Norðvesturkjördæmi: Stjórnin fjallar um Skagamál PRÓFKJÖR Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvest- urkjördæmi kemur saman í dag þar sem fjallað verður um meint kosningasvik sem lýst hefur verið að átt hafi sér stað á Akranesi. Þórólfur Halldórsson formaður staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið í gær. „Meðal annars verður fjallað um þessi mál,“ segir Þórólfur. Skagamálið hefur vakið mikla athygli enda hefur Vilhjálmur Eg- ilsson alþingismaður verið ómyrkur í máli og telur að smöl- unin á Akranesi hafi verið með vitund Guðjóns Guðmundssonar alþingismanns og að Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra hafi látið þetta óátalið á meðan stuðn- ingsmenn hans hafi verið á kafi í smöluninni.  Fljótandi kjörklefi í Grundarfjarðarhöfn Farið var með kjörgögn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um borð í Helga SH og áhöfnin kaus. Vegfarandi fékk að kjósa á bryggjunni. Gerðum þetta að beiðni útgerðaraðila, segir trúnaðarmaður flokksins. PRÓFKJÖR „Það hentaði áhöfninni að við gerðum þetta svona. Útgerðar- aðilinn bað um það,“ segir Ásgeir Valdimarsson, kjörnefndarmaður á Grundarfirði, sem fór með kjör- gögn um borð í bát í höfninni þar sem áhöfnin fékk að taka þátt í próf- kjöri Sjálfstæðis- flokksins. Á Grundarfirði fór utankjörstaðar- kosning fram á heimili Ásgeirs, sem er skammt frá höfninni. Þar var kjörkassi vegna at- kvæðagreiðslunn- ar staðsettur. Miklar deilur hafa spunnist vegna þess að ábyrgðarmenn Sjálfstæðisflokksins á Akranesi fóru með kjörgögn um allan bæ og létu menn kjósa. Vilhjálmur Egils- son alþingismaður hefur lýst því sem svindli sem hafi haft af hon- um sigur í prófkjörinu. „Báturinn kom inn um morgun- inn til löndunar. Hann fór aftur út um klukkan 14 og mennirnir máttu ekki vera að því að koma hingað upp eftir. Við settum upp kosningaskrifstofu uppi í brú fyr- ir þennan mannskap sem vildi kjósa í stað þess að þeir stormuðu allir heim í stofu til mín. Þetta var að beiðni þeirra sem kusu og ég sá ekki muninn á því hvort þeir keyrðu hingað, 100 metra upp í pláss, eða að ég kæmi á staðinn,“ segir Ásgeir. Aðspurður um það hvort rétt væri að maður sem hann mætti á leið sinni upp bryggju eftir kosn- inguna um borð í Helga SH hefði fengið að kjósa staðfesti Ásgeir að það væri rétt. „Hann spurði hvort hann mætti ekki kjósa. Ég bauð honum að koma með mér heim en hann vildi það ekki,“ segir Ásgeir og ít- rekar að beðið hafi verið um að kjósa en það hafi ekki verið ákvörðun kjörnefndar að láta kosningu fara fram á höfninni eða um borð í bátnum. „Við geng- um ekki á menn heldur mættum bara um borð,“ segir Ásgeir. Hann segir að sér hafi engar athugasemdir borist vegna þess- ara mála. Kjörkassinn hafi alltaf verið á sama stað nema þegar farið var á elliheimilið til að leyfa fólki þar að kjósa. „Við fór- um ekki gagngert í fyrirtæki eða annað til að smala,“ segir Ásgeir. Samkvæmt lögum Sjálfstæð- isflokksins ber trúnaðarmönn- um flokksins að auglýsa einn ákveðinn stað þar sem utankjör- staðarkosning fer fram, hvort sem um er að ræða heimili, vinnustað eða annan skilgreind- an stað. rt@frettabladid.is VALHÖLL Meint kosningasvindl á Akranesi hefur borið á góma í höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins. „Við settum upp kosninga- skrifstofu uppi í brú fyrir þennan mannskap sem vildi kjósa í stað þess að þeir stormuðu allir heim í stofu til mín.“ VILHJÁLMUR EGILSSON Flokkurinn hlýtur að taka á málinu. Össur Skarphéðinsson fékk 56,9% atkvæða í fyrsta sæti. Það þýðir að 43,1% kusu hann ekki í fyrsta sætið. Nei, síðast þegar ég fann fyrir höfnunar- kennd var það gagnvart Kolbrúnu Berg- þórsdóttur blaðamanni, sem vann hjá mér á Alþýðublaðinu. Svo tók hún mig í sátt aft- ur. Ég hélt mig algerlega fyrir utan kosn- ingaslaginn sem var býsna harður. Mér sýn- ist hlutfall þeirra sem ekki settu mig í fyrsta sæti vera í samræmi við þann fjölda sem gekk í Samfylkinguna síðustu dagana fyrir valið. Mig satt að segja grunar að eitthvað annað hafi dregið það góða fólk í flokkinn en einbeitt þörf fyrir að kjósa mig. SPURNING DAGSINS Finnurðu fyrir höfnunartilfinningu? HAFNARSTRÆTI Ákærðu börðu og spörkuðu í Magnús Frey Sveinbjörnsson með þeim afleiðingum að hann lést nokkrum dögum síðar. Árás í Hafnarstræti: Tveir menn ákærðir ÁRÁS Ríkissaksóknari hefur lagt fram kæru á hendur tveimur mönnum vegna líkamsárásar í Hafnarstræti að morgni 25. maí síðastliðins sem dró hinn 22 ára gamla Magnús Frey Svein- björnsson til dauða. Mennirnir eru ákærðir fyrir stórfellda lík- amsárás. Þeir börðu og spörkuðu í Magnús Frey af alefli í höfuðið auk þess að sparka í hann þar sem hann lá í götunni. Leiddu höggin og spörkin til þess að hann höfuðkúpubrotnaði og hlaut blæðingu inn á heilann. Magnús Freyr lést síðan 2. júní af völdum heilablæðingar og heilabjúgs. Þá er annar hinna ákærðu sakaður um stórfellda líkams- árás á Bar 101 á Vegamótastíg 7. apríl síðastliðinn. Skallaði hann einn gestanna þannig að hann féll í gólfið með þeim afleiðing- um að hann hlaut heilablæðingu og brot í höfuðkúpu. Þá er hinn sami maður ákærður fyrir aðra líkamsárás sem gerð var síðar sömu nótt. Krafist er refsingar og greiðslu skaðabóta að upphæð rúmlega níu milljónir. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag.  Bakteríur á Landakoti: Öldrunar- deild lokað SJÚKRAHÚS Öldrunarlækningadeild á Landakoti hefur verið lokað eft- ir að ónæmur stofn af bakteríunni „Staphylococcus aureus“, svoköll- uð mósa, greindist þar á sjúkling- um og starfsfólki. Bakterían veld- ur heilbrigðum einstaklingum ekki vandkvæðum en getur valdið sýkingum hjá sjúklingum. Bakt- erían var mjög sjaldgæf hér á landi, en tilfellum hefur fjölgað verulega á síðustu tveimur árum. Sama baktería greindist á bækl- unarskurðdeild Landsspítala í október. Deildin hefur verið sett í sóttkví og henni lokað. Um 20 sjúklingar verða fluttir á aðra deild meðan deildin verður sótt- hreinsuð.  Nýtt deiliskipulag við Laugaveginn: Tillaga um verslunarmiðstöð í miðbænum SKIPULAGSMÁL Heimilt er að rífa alla húsalengjuna, sem nær frá Vegas við Laugaveg 45 og niður Frakkastíginn að Hverfisgötu, samkvæmt tillögum að nýju deiliskipulagi við Laugaveginn. Jóhannes Kjarval, deildar- stjóri hjá Borgarskipulagi, segir að undanfarin ár hafi verið unnið að nýju heildarskipulagi fyrir Laugaveginn. Sú vinna sé enn í fullum gangi. Samkvæmt nýju deiliskipulagi fyrir tvo reiti, sem afmarkist ann- ars vegar af Vatnsstíg og Klapp- arstíg og hins vegar af Vatnsstíg og Frakkastíg, sé gert ráð fyrir mikilli uppbyggingu. Hann segir að Borgarskipulag hafi meðal annars látið teikna nýja verslun- armiðstöð við Frakkastíg, sem gefi fyrirhuguðum framkvæmd- araðilum hugmynd að því hvernig svæðið gæti litið út. Jóhannes segir að gert sé ráð fyrir blandaðri byggð við Lauga- veginn, verslunum á fyrstu hæð en íbúðum þar fyrir ofan. Hann segir að þó tillögur Borgarskipu- lags heimili niðurrif um 20 húsa þýði það ekki að það sé nauðsyn- legt. Báðar tillögurnar verða form- lega kynntar á næstunni, en eftir það fá borgaryfirvöld þær til af- greiðslu.  GÖTUMYND LAUGAVEGS OG FRAKKASTÍGS Borgarskipulag hefur látið teikna fyrir sig nýja verslunarmiðstöð við Frakkastíg. Aðeins er um hugmynd að ræða. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.