Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 16. apríl 2003 23 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Tilboð 700 kr. CHARLOTTE GRAYkl. 5.45, 8 og 10.20 CRUSH kl. 5.50 og 8 ABOUT SCHMIDT kl. 5.45 Tilboð 700 kr. ABRAFAX OG SJÓR. Tilboð 400 kr. kl. 4 kl. 5.45 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára Sýnd kl. 10.10 THE HOURS b.i. 12 kl. 8 CHICAGO b.i. 12 kl. 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10 b.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10.10 b.i. 12 ára COMEDIAN kl. 10.20 EL CRIMEN DEL PADRE AMAR kl. 6 GOOD GIRL kl. 6 GAMLE MÆND I NYE Biler kl. 6 KVIKMYNDAHÁTIÐ 101 Fjórða breiðskífa bandarískurokksveitarinnar Deftones er væntanleg í búðir 19. maí. Platan, sem heitir einfaldlega nafni sveit- arinnar, er ellefu laga. Fyrsta smá- skífan „Minerva“ kemur út viku fyrir útgáfu stóru plötunnar, eða þann 12. maí. Lagið „Lucky You“ verður notað í væntanlegri fram- haldsmynd „The Matrix“. Upptökustjóri plötunnar var Terry Date, sá sami og gerði síð- ustu skífu „White Pony“ með sveit- inni árið 2000. Í kringum útgáfuna leggur Deftones í tónleikaferðalag um Bandaríkin í för með Metallicu, Limp Bizkit og Linkin Park. Lagalistinn á nýju plötunni er sem hér segir; „Hexagram“, „Needles and Pins“, „Minerva“, „Good Morning Beautiful“, „Deathblow“, „When Girls Tele- phone Boys“, „Battle-Axe“, „Lucky You“, „Bloody Cape“, „Anniversary of an Uninteresting Event“ og „Moana“. ■ Deftones: Fjórða breiðskífan kemur í maí Robert Del Naja, höfuðpaurMassive Attack, tjáði sig í fyrsta skiptið um handtöku hans og ákæruna um að hafa haft barna- klám inni á tölvu sinni. Del Naja neitaði að gefa viðtöl á meðan mál- ið stóð yfir en gaf NME viðtal eftir að kærurnar voru felldar niður. Herferð breskra yfirvalda til að útrýma barnaklámi á Bretlandi varð til þess að spjótin beindust að Del Naja. Krítarkortsnúmer hans fannst á skrá hjá netfyrirtæki sem hefur í gegnum tíðina rekið hund- ruð vefsvæða, þar á meðal síður með barnaklámi. Del Naja hafði borgað 3 dollara til þess árið 1999. „Ég var í London þegar vinur minn hringdi í mig og sagði mér að hann hefði þurft að hleypa lögregl- unni inn í húsið mitt,“ segir Del Naja. „Þeir tóku allt, allar mynd- bandsspólur, minniskubba, harða diska og grandskoðuðu allt í heilan mánuð. Þeir fundu ekki neitt.“ Del Naja segist hafa íhugað að fara í skaðabótamál við lögregluna en ákvað síðar að falla frá því. „Það myndi bara taka langan tíma og verða dýrt. Ég vil ekki að líf mitt snúist um þetta lengur. Ég vil ekki eyða peningunum mínum í þetta.“ Áður en kærurnar voru felldar niður hóf Massive Attack tónleika- ferð um heiminn. Þegar mestu læt- in stóðu yfir kom sveitin fram á tónleikum í Ástralíu og Nýja-Sjá- landi. Del Naja segir það hafa ver- ið afar erfiðan tíma. Í viðtalinu segist hann enn lenda í vandræðum vegna ásakananna. ■ Höfuðpaur Massive Attack: Tjáir sig um barnaklámsmálið ■ TÓNLIST ROBERT DEL NAJA Höfuðpaur Massive Attack segir það hafa verið versta tíma ævi sinnar þegar hann var grunaður um að eiga barnaklám. ■ TÓNLIST DEFTONES Síðasta plata Deftones var mögnuð og það gæti orðið erfitt fyrir liðsmenn sveitarinnar að fylgja henni eftir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.