Fréttablaðið - 16.04.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 16.04.2003, Blaðsíða 23
52 ÁRA Björgvin Halldórsson er 52 ára í dag. Óþarfi er að kynna af- mælisbarnið, sem ber aldurinn vel og gefur ekki tommu eftir: „Þetta gerist einu sinni á ári og ekkert við því að gera,“ segir Björgvin um afmælið og ætlar bara að vinna eins og hann er van- ur. Björgvin er alltaf að: „Ég vil alltaf hafa eitthvað að gera; eitt- hvað að sýsla og nú er ég að taka upp plötu. Ætla að nota páskadag- ana í það. Þá er friður,“ segir hann. Björgvin neitar því ekki að töluverður munur sé á því að vera 52 eða 25 ára: „Nú hefur maður náð þeim þroska sem maður óskaði sér, er vitrari en áður. Hins vegar var oft gaman að hafa ekki vit á hlutunum og láta slag standa.“ Þegar Björgvin var strákur voru afmælin stórmál, „jafnvel þó þau stæðu á oddatölu,“ eins og hann orðar það. En dagurinn í dag verður öðrum líkur nema hvað að ekki er ólíklegt að Björgvin og Ragnheiður eiginkona hans fái sér eitthvað gott að borða í ljósaskipt- unum. Annars eru þau að flytja og því í mörg horn að líta: „Við erum bara að flytja um nokkra metra,“ segir Björgvin en þau hjónin eru svo til orðin ein á heimilinu og þurfa ekki að vafra um í 260 fer- metra einbýlishúsi lengur. Fundu hæð í næsta húsi sem Kjartan Sveinsson teiknaði: „Engar dórísk- ar súlur heldur algert seventies,“ segir afmælisbarnið, sem er alls ekki farið að hyggja að ævikvöld- inu þó árin færist yfir eitt af öðru: „Það yrði æðislegt að sitja í sól undir sólhlíf og taka því rólega. Sáttur við allt og alla,“ segir hann. En þess er langt að bíða. Seinni hálfleikur rétt að byrja. ■ Með súrmjólkinni 28 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR FEGURÐARSAMKEPPNI Ungfrú Ís- land.is verður kjörin í beinni sjónvarpsútsendingu á Skjá ein- um föstudaginn 25. apríl. Keppnin fer fram í höfuðstöðv- um Bifreiða og landbúnaðarvéla á Grjóthálsi í Reykjavík en fyrstu verðlaun eru einmitt Getz-bifreið frá umboðinu. Ung- frú Ísland.is leggur ekki ein- vörðungu upp úr útliti keppenda heldur skyggnist undir yfirborð- ið og metur innri mann að jöfnu við þann ytri. Athygli hefur vak- ið að tveir keppenda eru af er- lendu bergi brotnir þó komnir séu með íslenskan ríkisborgara- rétt. Irena kemur frá Póllandi og Svetlana er rússnesk. Báðar hafa stúlkurnar verið búsettar hér á landi um nokkurra ára skeið. ■ Smáauglýsingar: Bolabítur til sölu. Borð-ar hvað sem er. Hefur mjög gaman af börnum. FÖGUR FLJÓÐ Keppendurnir í Ungfrú Ísland.is. Tveir útendingar eru í hópnum, Svetlana er önnur frá vinstri í fremstu röð og fyrir ofan hans stendur Irena frá Póllandi. Fegurð í bílahöll BJÖRGVIN HALLDÓRSSON Ber aldurinn vel og gefur ekki tommu eftir. Þetta gerist... Afmæli BJÖRGVIN HALLDÓRSSON ■ er 52 ára í dag og ætlar að vinna eins og fyrri daginn. Það var meira um að vera þegar hann átti afmæli sem strákur. Jafn- vel þó afmælið stæði á oddatölu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.