Fréttablaðið - 01.07.2003, Blaðsíða 4
4 1. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Lögreglufréttir
Hvað finnst þér um leyndina sem
hvílir á viðræðum um framtíð
varnarliðsins?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig gengur Barnsley undir stjórn
Guðjóns Þórðarsonar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
11,7%Frekar ósátt(ur)
53,2%Mjög ósátt(ur)
16,6%Mjög ósátt(ur)
18,5%Frekar sátt(ur)
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
HINDÚAGUÐINN SHIVA
Búist er við því að hátt í 150.000 hindúar
muni taka þátt í árlegri pílagrímaferð til
hellis í Himalaya-fjöllum.
Indverskir pílagrímar:
Tryggja sig
fyrir árásum
INDLAND, AP Hindúar á leið í árlega
pílagrímaferð til Kasmír verða að
kaupa sér líftryggingu vegna yfir-
vofandi árása herskárra múslíma.
Hverjum pílagrími ber skylda
til að greiða sem svarar um þrem-
ur íslenskum krónum til ind-
versks tryggingarfélags áður en
haldið er af stað til Amarnath-
hellis í Himalaya-fjöllum. Ef hann
er drepinn á leiðinni fær fjöl-
skyldan andvirði um 160.000 ís-
lenskra króna í bætur.
Pílagrímaferðin hefst í borg-
inni Jammu 12. júlí. Hátt í 20.000
her- og lögreglumenn munu sjá
um að gæta öryggis pílagrímanna.
Á síðustu þremur árum hafa 49
pílagrímar verið drepnir af víga-
mönnum þrátt fyrir öfluga örygg-
isgæslu. ■
KÆRÐI MORÐTILRAUN
Kona hafði samband við lögregl-
una í Reykjavík á laugardags-
morgun og sagði mann hafa reynt
að myrða sig. Ráðist hafði verið á
konuna og var hún flutt á slysa-
deild.
LÍBERÍA, AP Leiðtogar ríkja Vestur-
Afríku hafa farið fram á það að
Bandaríkin sendi 2.000 hermenn
til Líberíu til að taka þátt í friðar-
gæslu í landinu. Fulltrúar örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna
ræddu við leiðtogana á fundi í
Gana.
Óstaðfestar heimildir herma
að tillögur leiðtoganna feli í sér að
Vestur-Afríkuríki leggi til 3.000
friðargæsluliða og Bandaríkin
2.000 til að reyna að skilja að
stríðandi aðila. Í þrjú ár hafa upp-
reisnarmenn barist við hersveitir
stjórnvalda með það að markmiði
að ná yfirráðum í Monróvíu, höf-
uðborg Líberíu, og steypa Charles
Taylor forseta af stóli. Á aðra
milljón Líberíumanna hefur orðið
að flýja heimili sín vegna átak-
anna. Stjórnarherinn hefur verið
ásakaður um stríðsglæpi á borð
við morð, nauðganir og mannrán.
Kofi Annan, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, hefur farið fram á
að sent verði alþjóðlegt friðar-
gæslulið til Líberíu og hvatt
öryggisráðið til að taka málin í
sínar hendur. Annan hefur ekki
farið leynt með þá skoðun sína að
Bandaríkjunum beri að taka virk-
an þátt í því að koma á friði í
landinu.
Fram til loka kalda stríðsins
var öflugt viðskipta- og stjórn-
málasamband milli Bandaríkj-
anna og Líberíu, en Líbería var
stofnuð á 19. öld af bandarískum
þrælum sem veitt hafði verið
frelsi. ■
FÓRNARLAMB BORGARASTRÍÐS
Hinn eins árs gamli Courage Sumowar
missti handlegginn í sprengjuárás á
bandarískt sendiráðshverfi í Monróvíu
þar sem fjöldi líberískra flóttamanna
hafði leitað skjóls undan átökum.
FLUGMÁL Flugmaður litháískrar
farþegaflugvélar sem flogið var
af leið yfir Þingholtin á sunnu-
dagskvöld virðist hafa ætlað að
lenda á rangri flugbraut. Ekki
hafa fengist upplýsingar um ná-
kvæma flugleið.
Tveir menn voru um borð í
vélinni, sem kom hingað til
lands frá Litháen um Björgvin í
Noregi með lokaáfangastað í
Bandaríkjunum. Báðir hafa
einkaflugmannsréttindi. Flug-
maðurinn fékk
heimild til að-
flugs og var á
eðlilegri stefnu
yfir Faxaflóa
þar til flugvélin
kom niður úr
skýjum um það
bil yfir ytri
höfninni.
Flugmaður-
inn virðist hafa
talið að hann
ætti að lenda á
gömlu 2-4 flugbrautinni sem
liggur frá norðaustri til suðvest-
urs í stað þess að lenda á Norð-
ur-Suður brautinni 1-9 við
Tjarnarendann. Hann beygði
því yfir Þingholtin.
Flugmaðurinn sveigði loks að
réttri flugbraut en varð að
hætta við lendingu þar sem vél-
in var komin of langt inn á
brautina. Flugumferðarstjóri
gaf flugmanninum fyrirmæli
um að sveigja til hægri í nýtt að-
flug en þá brá svo við að flug-
maðurinn beygði til vinstri í átt
að Fossvogi. Hann lenti vélinni
síðan áfallalaust.
Ekki reyndist unnt í gær að
fá yfirlit yfir flugleið og flug-
hæð Litháanna yfir byggðinni í
Þingholtunum.
Einn sjónarvottur fullyrti við
Fréttablaðið að vélinni hefði
verið flogið mjög lágt yfir Lista-
safni Einars Jónssonar, Hnit-
björgum, sem stendur aðeins
um 100 metra frá Hallgríms-
kirkju. Flughæðin hafi örugg-
lega verið minni en þeir 75
metrar sem kirkjan gnæfir yfir
Skólavörðuholti.
Flugmálastjórn sagðist í gær
hafa kyrrsett mennina vegna
gruns um brot á loftferðalögum.
Lögregla var beðin að taka
skýrslu af mönnunum tveimur.
Heimir Már Pétursson upplýs-
ingafulltrúi sagði Flugmála-
stjórn vera að afla upplýsinga
um flugmannsréttindi Litháanna
og skráningu flugvélarinnar.
Þormóður Þormóðsson, rann-
sóknarstjóri Rannsóknarnefnd-
ar flugslysa, sagðist í gær ekki
geta staðfest hvort hætta hafi
stafað af fluginu. „En við lítum
á þetta sem alvarlegt flugat-
vik,“ sagði Þormóður.
Flugmaður sem Fréttablaðið
ræddi við taldi málið vera storm
í vatnsglasi: „Hafi flugmaður-
inn verið kominn í sjónflug hef-
ur aldrei verið nein hætta á
ferðum. Hann hefur séð hvert
hann var að fara og haft fulla
stjórn á vélinni.“
gar@frettabladid.is
Hvorki Rannsóknarnefnd flugslysa né Flugmálastjórn upplýsa um
flugleið litháísku flugvélarinnar yfir Þingholtunum. Flugmaðurinn
ætlaði að lenda á rangri flugbraut og flaug rétt við Hallgrímskirkju.
Flaug rétt framhjá
kirkjuturninum
FLUGLEIÐIN
Enn hefur ekki verið skýrt frá flugleið lit-
háísku flugvélarinnar yfir Þingholtunum. Af
viðtölum við sjónarvotta og öðrum upplýs-
ingum sem blaðið hefur virðist þó sem
leiðin hafi líkst því sem gefið er til kynna á
meðfylgjandi korti.
„Hafi flug-
maðurinn
verið kominn
í sjónflug hef-
ur aldrei verið
nein hætta á
ferðum.
LITHÁÍSKA FLUGVÉLIN
Flugvél Litháanna bíður þar til Flugmála-
stjórn heimilar áframhaldandi för þeirra.
Flugslysanefnd:
Ósátt við
töf hjá Flug-
málastjórn
FLUGMÁL Þormóður Þormóðsson,
rannsóknarstjóri Rannsóknar-
nefndar flugslysa, segist ósáttur
við að Flugmálastjórn hafi ekki
tilkynnt undir eins um óeðlilegt
flug litháískrar flugvélar við
Reykjavíkurflugvöll á sunnudag.
Það mun hafa gerst áður að
Rannsóknarnefnd flugslysa hafi
ekki umsvifalaust fengið upplýs-
ingar um alvarleg flugatvik frá
flugmálastjórn, til dæmis þegar
flugvél brotlenti með tveimur
mönnum í Hvalfirði í fyrravetur.
„Það er mikilvægt að okkur
berist upplýsingar sem allra fyrst
til að getum hafið rannsókn,“ seg-
ir Þormóður.
„Flugmálastjóri hefur áréttað
við flugstjórn að öll atvik verði til-
kynnt símleiðis til RNF eins fljótt
og verða má,“ sagði í tilkynningu
frá Flugmálastjórn í gær. Þormóð-
ur Þormóðsson sagðist sáttur við
yfirlýsingu Flugmálastjórnar. ■
VILDI ÓKEYPIS ÍS OG PENINGA
Lögregla handtók mann sem hafði
pantað sér tvo ísa á bensínstöð í
Reykjavík á sunnudagsmorgun.
Maðurinn greiddi ekki fyrir ísana
heldur hélt með þá að borði einu
þar sem hann tók upp nokkur
veski og tæmdi. Þá tók hann upp
stóran hníf sem var á borðinu
áður en lögregla kom á vettvang
og flutti manninn í fangelsi.
■ Lögreglufréttir
Vestur-Afríkuríki vilja bandarískt friðargæslulið:
Bandaríkin kölluð til ábyrgðar
HALLGRÍMS-
KIRKJA
HNITBJÖRG
N/S
NA/SV
VIÐSKIPTI Kaupþing jók hlutafjár-
eign sína í Skeljungi í gær en hélt
þó ekki í við Sjóvá Almennar og
Burðarás sem keyptu ríflega 20%
hlut Shell Petroleum og eiga eftir
það samanlagt um 48% í Skelj-
ungi. Að auki eiga tengdir aðilar
hlutabréf sem tryggja fyrirtækj-
unum tveimur meirihluta í Skelj-
ungi. Kaupþing á hins vegar um
35% hlut, fyrirtækið bætti stöðu
sína rétt fyrir lok viðskipta þegar
félagið keypti talsvert hlutafé.
Fyrir viðskipti gærdagsins
áttu Skeljungur, Sjóvá Almennar
og Eimskipafélagið saman hluta-
fé í Eignarhaldsfélaginu Hauk-
þingi sem stofnað var eftir að
Kaupþing seildist eftir auknum
ítökum í Skeljungi. Í upphafi við-
skipta í gær var Haukþing skráð
fyrir þremur milljörðum króna í
fyrirtækjunum þremur en í lok
dags stóð einungis eftir 900.000
króna hlutur Burðaráss.
Benedikt Jóhannesson, stjórn-
arformaður Skeljungs, kveðst sjá
eftir gamla móðurfélaginu.
„Shell vildi selja og það er ekkert
leyndarmál að þeir hafa verið
mjög góðir hluthafar. Shell hefur
stutt núverandi stjórnendur og í
sjálfu sér mun ekkert breytast
hjá Skeljungi út frá sjónarhóli
starfsmanna og annarra hlut-
hafa.“ ■
SKELJUNGUR
Sjóvá Almennar og Eimskip keyptu upp
hlut Shell Petroleum í Skeljungi í gær.
Þrjú fyrirtæki kepptust við að kaupa hlutafé í Skeljungi:
Umbrot í Skeljungi
Þormaður rammi;
Brotist inn í
þriðja sinn
LÖGREGLUFRÉTT Brotist var inn í
humarvinnslu Þormóðs ramma í
Þorlákshöfn aðfaranótt fimmtu-
dags, í þriðja sinn á skömmum
tíma. Vaktmaður kom að tveimur
mönnum eftir að þeir höfðu spennt
upp útihurð og sá til þess að þeim
tækist ekki að ræna neinu. Þeir
komust þó á brott en Lögreglan í
Kópavogi stöðvaði þá við Rauða-
vatn. Þegar mennirnir urðu lög-
reglunnar varir hentu þeir út bak-
poka sem í voru vindlingalengjur.
Kom í ljós að mennirnir höfðu brot-
ist inn í Litlu kaffistofuna þaðan
sem vindlingarnir voru. Mennirnir
játuðu á sig bæði innbrotin. ■