Fréttablaðið - 01.07.2003, Síða 15

Fréttablaðið - 01.07.2003, Síða 15
ANDLÁT Leikkonan Katharine Houghton Hepburn dó um helgina, 96 ára að aldri. Hún var mjög heilsulítil síðustu árin og hafði þeg- ar greinst með Parkinsonsveiki. Feril Hepburn var einn sá glæsi- legasti í Hollywood og hún talin til merkustu kvenna kvikmyndasög- unnar. Á þeim sex áratugum sem hún var í deiglunni fékk hún meðal annars ellefu tilnefningar til Ósk- arsverðlauna og vann þau fjórum sinnum. Hún tók styttuna heim fyr- ir myndirnar „Morning Glory“ (1933), „Guess Who’s Coming to Dinner“ (1967), „The Lion in Wint- er“ (1968) og „On Golden Pond“ (1981). Hún lék við hlið margra merk- ustu karlleikara sögunnar, þar á meðal James Stewart, Cary Grant, Humphrey Bogart og Spencer Tracy, sem var elskhugi hennar til langs tíma. Hepburn varð einnig þekkt fyrir að gera allt sem í sínu valdi stóð til þess að halda sig frá sviðsljósinu á meðan hún var ekki í vinnunni. Hún neitaði að ganga með andlitsfarða og þótti afar hisp- urslaus í fari, eitthvað sem var illa liðið á þeim tíma, og snerist al- menningur gegn henni á tímabili vegna þessa. Hepburn lærði leiklist í Bryn Mawr-háskólanum og fékk sín fyrstu hlutverk á Broadway stuttu eftir útskrift. Hún fékk aðeins aukahlutverk í fyrstu en þótti alltaf mjög áberandi á sviðinu. Eitt leiddi af öðru og Hepburn fékk sitt fyrsta kvikmyndahlutverk árið 1932 í myndinni „Bill of Divorcement“. Hún þótti standa sig vel og var boð- inn samningur hjá kvikmyndaveri. Hún lék í fimm myndum á tveimur árum og hlaut sín fyrstu Ósk- arsverðlaun á því tímabili fyrir „Morning Glory“. Hún lék í rúmlega 50 kvikmynd- um á ferli sínum en það var hlut- verk hennar í „The African Queen“ frá 1951, þar sem hún lék á móti Humphrey Bogart, sem skaut stjörnu hennar upp á himininn. Hún skrifaði síðar bók um tökur þeirrar myndar og varð þar með metsölurithöfundur, þá 77 ára göm- ul. Síðasta mynd Hepburn var „This Can’t Be Love“ sem gerð var fyrir sjónvarp árið 1994. Hepburn giftist sviðsleikaran- um Ludlow Ogden árið 1928 en þau skildu sex árum síðar. Hún og leik- arinn Spencer Tracy felldu hugi saman og eyddi hún 27 árum af ævi sinni með honum, allt fram að dauða hans árið 1967. Eftir það átti hún í fjögurra ára sambandi við milljarðarmæringinn Howard Hughes. ■ ÞRIÐJUDAGUR 1. júlí 2003 15 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 FRUMSÝNINGBRINGING DOWN THE H... 8, 10.10KANGAROO JACK kl. 6 Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 12 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 kl. 8 og 10 ANGER MANAGEMENTkl. 4 og 6AGENT CODY BANKS THEY kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 IDENTITY kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 KATHARINE HEPBURN Margir hafa minnst leikkonunnar í banda- rískum fjölmiðlum síðustu daga. Þar á meðal Bush Bandaríkjaforseti og leikkonan Elizabeth Taylor. Stórtíðindi í Hollywood: Katharine Hepburn látin Colin Farrell þarf að dúsa ísímaklefa í um það bil 80 mín- útur í Phone Booth eftir að hann slysast til að svara hringingu frá klikkaðri leyniskyttu sem hótar því að drepa hann yfirgefi hann klefann. Höfuðlausn Farrels felst í því að játa áhuga sinn á ungri leikkonu fyrir eiginkonu sinni. Geri hann ekki þessa yfirbót fær hann kúlu í hausinn. Skyttan hefur áður drepið barnaníðing og inn- herjasvindlara þannig að manni finnst nú brot hins ólánssama Farrells frekar lítilfjörlegt þar sem hann hafði ekki einu sinni af- rekað það að sofa hjá væntanlegu viðhaldinu sem hann hringir í á hverjum degi úr þessum síma- klefa dauðans. Hugmyndin að baki Phone Booth er ágæt og myndin heldur þrælgóðum dampi fram að hléi en þá lendir fléttan í bölvuðum ógöngum og hallærislegur endir- inn sýnir svo ekki verður um villst að þessi snjalla hugmynd var aldrei hugsuð til enda. Ódýr lausnin situr eftir í manni og grefur undan góðum fyrri hlutanum þannig að þrátt fyrir ágætis viðleitni veldur myndin vonbrigðum. Farrell nýtur sín ágætlega í hlutverki syndarans iðrandi og Forrest Whitaker er alltaf jafn sjarmerandi í hlutverki lögreglu- foringja sem reynir að átta sig á undarlegri hegðun ruglaða mannsins í símaklefanum. Þá er Kiefer Sutherland í góðum gír sem morðinginn. Hann sést nán- ast ekki neitt en kann greinilega að beita röddinni í síma. Þórarinn Þórarinsson Hremming- ar í símaklefa PHONE BOOTH: Leikstjóri: Joel Schumacher Aðalhlutverk: Colin Farrell, Kiefer Sutherland, Forest Whitaker Írskur hreimur leikarans SeanConnery í myndinni „The Untouchables“ var valinn „versti hreimur kvik- myndanna“ af lesendum breska kvikmyndablaðs- ins Empire. Í greininni sem fylgdi með stóð að Connery gæti aldrei falið skoska hreiminn sinn. Bandaríkja- menn eru líklegast ekki sammála Bretum í þessu því Connery vann einmitt Óskarsverðlaunin fyrir hlut- verk sitt í myndinni. Aðrir leikarar sem voru ofarlega á listanum voru Dick Van Dyke í „Mary Poppins“, Brad Pitt í „Seven Years in Tibet“, Charlton Heston í „Touch of Evil“ og Heather Graham í „From Hell“. Rússneski lesbíudúettinn t.A.T.u.komst aftur í heimspressuna um helgina þegar yfirvöld í Japan bönn- uðu stúlkunum að skjóta senur fyrir myndband. Þær höfðu ætlað sér að taka upp hluta af myndbandi í aðal- verslunarhverfi Tokíó, en beiðni þeirra var synjað á síðustu stundu af ótta við öngþveiti. Umfjöllunkvikmyndir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.