Fréttablaðið - 01.07.2003, Síða 22
Knattspyrnufélagið Víkingur,“svarar Anton Örn Kærnested,
ritstjóri Símaskráarinnar, stutt og
laggott um áhugamál sín. Bætir svo
við stangveiði, bæði laxveiði og
sjóstangaveiði. „Ég var svo heppinn
að vera formaður Víkings á árunum
1981-1982 þegar við unnum allt sem
hægt var að vinna.“ Anton gekk í
Víking þrettán ára gamall og náði
hálfrar aldar afmæli sem félags-
maður nú í vor. „Ég spilaði með
yngri flokkunum en gat ekki neitt,“
segir Anton og hlær. „Ég hef lýst
því þannig að ég var fyrirliði þriðja
flokks 1953 eða 54 sem tapaði 22-0
fyrir Fram en formaður þegar við
unnum allt sem hægt var að vinna.“
Þá hafði mikið vatn runnið til sjávar
í uppbyggingu félagsins.
Anton lauk námi frá Loftskeyta-
skólanum 1963 og hóf þá störf hjá
Landssímanum. „Síðan fór ég í
námsferðalag, eins og ég kalla það,
sem stóð í 27 ár.“
Námsferðalagið fólst í því að
vinna við bókaútgáfu, bæði hjá Al-
menna bókafélaginu og í eigin rek-
stri. Forstjóri Almenna bókafélags-
ins á þeim tíma var ungur rekstrar-
hagfræðingur, Brynjólfur Bjarna-
son. Leiðir þeirra Antons lágu aftur
saman þegar Brynjólfur varð for-
stjóri Símans. „Mér til mikillar
gleði,“ segir Anton. Hann hugsar
hlýlega til áranna hjá Almenna
bókafélaginu. „Þar sá um fjármálin
Sophus faðir Friðriks, forstjóra
Landsvirkjunar. Ég verð að segja
það að ég hef ekki lært meira af
nokkrum manni mér óskyldum en
Sophusi Guðmundssyni.“ Sölumál-
in voru á könnu Antons og kom
hann á fót bókaklúbbi AB sem
hafði 17 þúsund meðlimi á blóma-
skeiði sínu.
Þegar Anton sneri aftur til Sím-
ans tók hann að sér ritstjórn Síma-
skrárinnar. Símaskráin er viðamik-
ið verkefni. „Fólk rekur oft upp
stór augu þegar ég segist vera rit-
stjóri Símaskráarinnar. Metnaður
okkar er að hafa hana helst villu-
lausa, en ég held ég hætti daginn
sem hún verður villulaus. Þá er
þetta fullkomið.“ ■
22 1. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Persónan
ANTON ÖRN KÆRNESTED
■ er ritstjóri Símaskráarinnar og eld-
heitur Víkingur. Hann er giftur og á þrjú
börn. Barnabörnin eru þrjú, en það
þriðja bættist nýlega í hópinn.
Fréttiraf fólki
Með Herjólfi á
Þjóðhátíð
Hægt er að bóka á netinu: www.herjolfur.is
Brottfarartími
03
-0
31
0
Miðasala hefst í dag!
Í dag byrjum við að taka á móti pöntunum og selja miða með Herjólfi
á Þjóðhátíðina í Eyjum. Athugið að greiða þarf pantaða miða fyrir 11. júlí
og ósóttar pantanir verða seldar 17. júlí.
Miðvikudagur 30. júlí Ferð 1 08.15 12.00 11.00
Ferð 2 16.00 19.30 17.50
Fimmtudagur 31. júlí Ferð 1 08.15 12.00 11.00
Ferð 2 16.00 19.30 17.50
Föstudagur 1. ágúst Ferð 1 08.15 12.00 11.00
Ferð 2 16.00 19.30 17.50
Laugardagur 2. ágúst Ferð 1 08.15 12.00 11.00
Sunnudagur 3. ágúst Ferð 1 13.00 16.00 14.50
Mánudagur 4. ágúst Ferð 1 11.00 14.30 12.50
Ferð 2 18.00 21.30 19.50
Þriðjudagur 5. ágúst Ferð 1 01.00 04.00 02.50
Ferð 2 08.15 12.00 11.00
Ferð 3 16.00 19.30 17.50
Frá Vestm.eyjum Frá Þorlákshöfn Frá BSÍFerðirDagar
ATHUGIÐ!
Breyttur brottfarartími
ATHUGIÐ!
Breyttur brottfarartími
Næturferð
aðfaranótt þriðjudags
Opið hjá Landflutningum-Samskipum
á milli 9.00 og 16.00 alla virka daga.
Sími 569 8400
vetraráætlun
N‡
til
Ali
cante
me›
Icelandair
í allan
vetur
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Fyrstir koma
- fyrstir fá!
22. október,
5. nóvember,
19. nóvember,
3. desember,
18. desember
og 5. janúar.
Kynningarver›
á fyrstu 200 sætunum
14.900 kr.
Flug aðra leið með flugvallarsköttum.
Vegna gífurlegrar
eftirspurnar höfum vi›
fengi› örfá vi›bótarsæti á
eftirfarandi dagsetningar:
25. júní 10 sæti - 9. júlí 8 sæti
23. júlí 15 sæti – 13. ágúst
10 sæti. – 27. ágúst – 10. sæti.
3., 10., 17. og 24. september
40 sæti.
Ver› frá
Ver› frá
27.930 kr.
Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Beint
leiguflug
fyrir
sumarhúsa-
eigendur
og a›ra
farflega
til Spánar!
Ungir vinstri grænir halda útiöflugu og beinskeyttu vefriti
á slóðinni www.uvg.vg. Félagar í
ungliðahreyfingunni eru hins
vegar dreifðir úti um allan heim í
sumar og því hefur ritstjórn vefj-
arins ákveðið að taka sumarfrí
frá 1. júlí til 1. ágúst. Það hefur
að vísu ekki þótt til eftirbreytni
að loka vefritum, né öðrum fjöl-
miðlum vegna sumarleyfa, en
ungir vinstri grænir hafa litlar
áhyggjur og beygja sig ekki und-
ir markaðslögmálin. Þeir hvetja
fólk til að njóta sumarblíðunnar
fullvissir að byltingin lifi af mán-
aðarsumarfrí.
Það vakti nokkra athygli þegarfélagar í ofbeldisvarnarhópi
femínista komu saman fyrir utan
nektardansstaðinn
Goldfinger í Kópa-
vogi á laugardags-
kvöld með það fyrir
augum að vekja
gesti staðarins til
meðvitundar um
það að þeir gætu,
með viðskiptum sínum, verið að
fótumtroða mannréttindi stúlkna
sem hugsanlega hefðu verið seld-
ar hingað mansali. Karlmenn eru
alla jafna stærsti kúnnahópur
staðarins en til þess að jafna
kynjahlutfallið þetta kvöld var
ungum og hressum stúlkum
smalað á staðinn gegn ókeypis
drykkjum á barnum. Líklega hef-
ur meiningin verið að svekkja
femínistana með því að sýna
fram á að ungar íslenskar konur
gætu vel hugsað sér að heim-
sækja staði á borð við Gold-
finger. Bleikklæddir femínistarn-
ir létu þetta hins vegar ekkert á
sig fá og voru ánægðir með ferð
sína í Kópavoginn og þá athygli
sem hún vakti. Stúlkurnar sem
fengu frítt að drekka voru ekki
síður sáttar við sitt og fengu far
með limósínu á djammið í mið-
bænum þegar hlutverki þeirra
var lokið.
Forláta stóll eftir Pétur B.Lúthersson hvarf sem kunn-
ugt er af húsgagnasýningu í
Kringlunni í síð-
ustu viku og ekk-
ert hefur spurst
til hans síðan.
Eftirgrennslan
hönnuðarins hef-
ur þó orðið til
þess að sjónar-
vottur hefur gef-
ið sig fram, en afgreiðslustúlka í
nálægri verslun tók eftir mani
sem gaf sér góðan tíma til að
skoða stólana á sýningunni áður
en hann gerði sér lítið fyrir og
valdi eitt stykki sem hann skellti
í innkaupakerru og trillaði með
hann burt. Hún gerði sér hins
vegar ekki grein fyrir því fyrr en
eftir á að hún hafði orðið vitni að
bíræfnu stólsráni sem enn er
óupplýst. Þeir sem hafa orðið
varir við ferðir stólsins eru sem
fyrr beðnir að snúa sér til lög-
reglu.
Össur Skarphéðinsson, formað-ur Samfylkingarinnar, er
mikill skákáhugamaður og félagi
í Hróknum, sem
stóð fyrir alþjóð-
legu skákmóti á
Grænlandi um
helgina. Össur
hafði haft hug á
að geta att kappi
við meistarana
sem tefldu á
mótinu en þar sem tvísýnt var að
hann kæmist tímanlega til Græn-
lands var fallið frá því að skrá
hann til leiks. Össur náði þó til
Qaqartoq fyrir setningu en þang-
að kom hann með þyrlu eftir flug
frá Íslandi til Narsarssuaq. Hann
hefur svo fylgst með mótinu af
hliðarlínunni en hefur tekið
nokkrar óformlegar skákir bæði
við meistara sem áhugamenn.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Condoleezza Rice.
Sólveig Pétursdóttir.
KK og Magnús Eiríksson.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Gísli Mart-
einn Baldursson er ekki skjallþáttastjórnandi.
ANTON ÖRN KÆRNESTED
Var formaður gullaldarliðs Víkinga. Félagið
náði mun betri árangri með hann sem for-
mann en sem leikmann.
Hættir þegar skráin verður villulaus