Fréttablaðið - 01.07.2003, Síða 23

Fréttablaðið - 01.07.2003, Síða 23
Veðurspá helgarinnar brást og ístað sólarinnar féll regnið í stríðum straumum. Meðal þeirra sem lögðu land undir fót var CP félagið sem hélt aðra sumarhátíð sína í Reykholti í Biskupstungum. „Við vorum með varðeld á föstu- dagskvöldi og þá rigndi ekki,“ segir Ingibjörg Óskarsdóttir, for- maður félagsins. Síðan lá leiðin í Friðheima. „Þar stytti líka upp á meðan við fórum á hestbak.“ Fyrst spáin brást gat hópurinn varla verið heppnari. Síðan var haldið í sundlaugina á Geysi og í dýragarðinn Slakka í Laugarási. „Þetta var vel heppnað og allir skemmtu sér konunglega.“ CP er skammstöfun fyrir Cerebral palsy eða heilalömun. Ingibjörg er reyndar ekki hrifin af hugtakinu heilalömun, sem þykir ekki lýsa þessari fötlun vel. „Í þessum hópi eru þeir sem verða fyrir heilaskaða á meðgöngu, í fæðingu eða rétt eftir fæðingu. Þetta er mjög breiður hópur og fötlunin misalvarleg.“ CP er stærsti fötlunarflokkur á Íslandi en eignaðist ekki félags- skap fyrr en í október 2001. Sam- eiginleg einkenni eru hreyfihöml- un, en annars konar fötlun getur einnig fylgt með. „Fötluninni get- ur fylgt þroskahömlun, en margir í þessum hópi eru vel greindir ein- staklingar.“ Samtökin hyggjast gefa út bækling með haustinu til fræðslu um CP. Ingibjörg segir að upplýs- ingar um CP á íslensku hafi ekki legið á lausu. „Það er mjög erfitt að fá upplýsingar um að barnið manns sé með einhverja fötlun og maður veit ekkert hvað er fram undan. Þetta hafa margir foreldar upplifað.“ Markmiðið er að bæta úr þessu og auðvelda fólki upplýs- ingar um fötlunina og miðla af reynslu. Í félaginu eru yfir 200 manns, fatlaðir, aðstandendur þeirra og fagfólk. Þeir sem vilja afla sér meiri upplýsinga geta gert það á vef samtakanna http://cp.is. 23ÞRIÐJUDAGUR 1. júlí 2003 Gatnanöfn eru æði skrautleg íFyrirtækjaskrá Hagstofunn- ar og sjálfsagt gætu einhverjir lent í vandræðum með að finna fyrirtæki sem skráð eru til heimilis að Bæjarhásli, Fjarð- gargötu, Hagamára, Harmarvík, Herólfsgötu, Kleetási, Njósundi, Norðurgöt, Nótúni Skólavörður- stíg og Stóholti. Glöggir menn telja víst að líklega heiti göturn- ar heiti Bæjarháls, Fjarðargata, Hagasmári, Hamravík Herjólfs- gata, Klettás, Mjósund, Norður- gata, Nóatún, Skólavörðustígur og Stórholt og eitthvað hafi inn- sláttur gatnaheita verið vafa- samur hjá skránni. Innsláttar- villurnar munu vera mun fleiri en þessi dæmi sýna en þessi þykja með þeim skondnari og því er allt útlit fyrir að starfs- menn Hagstofunnar eigi mikið og þreytandi leiðréttingarstarf fyrir höndum nema stefnan sé að halda þessum undarlegu gat- naheitum inni fólki ýmist til ama eða yndisauka. Fréttiraf fólki SKEMMTILEG HELGI Fánar, blöðrur, dráttarvél og glaður hópur á sumarhátíð CP félagsins. Allir skemmtu sér konunglega og uppstyttan kom eftir pöntun þegar á þurfti að halda. Samtök ■ CP er samheiti yfir fötlun þeirra sem hafa orðið fyrir heilaskaða í kringum eða í fæðingu. Þetta er breiður hópur sem skemmti sér konunglega saman í útilegu um helgina. Vel heppnuð sumarskemmtun CP félagsins Eyrnapinna- verk verð- launað MYNDLIST Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarmaður tók þátt í lista- hátíð í Luleå í Svíþjóð þar sem samankomnir voru 30 listamenn frá 22 löndum. Þetta er í fyrsta sinn sem Luleå-sumartví- æringurinn er haldinn en Luleå hefur árum saman staðið fyrir vetrarhátíð listamanna víðs veg- ar að úr heiminum. Listamennirnir dvöldu í Luleå í hálfan mánuð við sköpun og uppsetningu verka sinna en samsýning var síðan opnuð síð- asta laugardag. Verk Rósu Sigrúnar hét About Beauty og var saumað saman úr rúmlega 10 þúsund eyrnapinnum. Hluti verksins var myndband sem sýndi lista- konuna sauma saman á sér fing- urna í sama mynstri og eyrna- pinnana. Verkið og uppsetning þess í Konstens Hus í Luleå vakti verð- skuldaða athygli og var Rósa Sig- rún valin úr hópnum ásamt ítölsk- um listamanni, Marco Dessardo, og voru verk þeirra verðlaunuð með fjárframlagi. ■ FÖNGULEGUR HÓPUR Þessi myndarlegi hópur kvenna hljóp kvennahlaupið í fjallaþorpi á Spáni. Hlaupið í Pýrenea- fjöllum KVENNAHLAUP Íslenskar konur láta ekki fjarlægð frá heimahögunum aftra sér að hlaupa kvennahlaup- ið sem hlaupið er í tilefni af 19. júní, degi íslenskra kvenna. Föngulegur hópur sem var í gönguferð í Pýreneafjöllum með ÍT ferðum hljóp kvennahlaupið. Í fjallaþorpinu Torla í Aragon, sem er í 1.000 metra hæð, enduðu kon- urnar viku gönguferð með því að taka þátt í Kvennahlaupinu og fengu bol og pening að launum eins og vera ber. Í ferðinni gekk hópurinn meðal annars til Frakk- lands yfir Rolandskarðið og gisti tvær nætur í Frakklandi í rúm- lega 2.500 metra hæð. Hæsta fjallið sem hópurinn gekk á heit- ir Mont Tallion og er í 3.144 metra hæð, en náttúrufegurð er mikil á þessum slóðum. Einnig hlupu tvær konur sem voru á vegum ÍT-ferða í Tossa de Mar-kvennahlaupinu, þannig að samtals hlupu 18 konur úr þess- um hópi kvennahlaupið á Spáni. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.