Fréttablaðið - 01.08.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Hátíðaveðrið 20
Tónlist 21
Leikhús 21
Myndlist 21
Íþróttir 16
Sjónvarp 24
FÖSTUDAGUR
1. ágúst 2003 – 176. tölublað – 3. árgangur
HJÓNABÖND SAMKYN-
HNEIGÐRA Vatíkanið í Róm hefur skor-
ið upp herör gegn
hjónaböndum sam-
kynhneigðra. Um þau
er hart deilt og vill
Bandaríkjaforseti að
hjónaband sé skil-
greint í lögum sem
bandalag milli karls og
konu. Sjá bls. 2
SKATTURINN Skattgreiðendur voru
226.462 á síðasta ári og borguðu samtals
121,6 milljarða í tekjuskatt og útsvar. Friðrik
Steinn Kristjánsson greiddi mest í opinber
gjöld og borgaði 95,7 milljónir til samfé-
lagsins. Sjá bls. 4
PLÁSSUM ÚTIGANGSFÓLKS
FÆKKAR Plássum fyrir fólk sem eiga
hvergi höfði sínu að halla hefur fækkað
mikið á síðustu misserum. Við flutninga
Byrgisins í Grímsnes fækkaði plássum um
helming og vistheimilinu Gunnarsholti
verður lokað í haust. Sjá bls. 8
VATNSFLÓÐ Í SKÓLA Lögn í sturtu-
barka eldhúss Árbæjarskóla gaf sig með
þeim afleiðingum að heitt vatn flæddi um
skólann. Nota þurfti stígvél til að vaða
vatnselginn. Óvíst hversu lengi lekinn hefur
staðið yfir. Sjá bls. 11
VEÐRIÐ Í DAG
fann sig aldrei almennilega
Örn Arnarson:
▲
SÍÐA 16
Vonbrigði með
baksundið
á leið til Afríku
Gauti B. Eggertsson:
▲
SÍÐA 30
Gleymir
afmælinu
REYKJAVÍK BEST Víða verður skýjað
með köflum og hlýtt í dag en þungbúnara
á Vestfjörðum og sums staðar suðaustan-
lands. Besta veðrið verður í höfuðborginni
og nágrenni, bjartviðri og hlýtt. Þó gæti
gert skúri. Sjá bls. 6
VERSLUNARMANNAHELGIN
HEFST Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
verður formlega sett klukkan 14.30 og
mun Gerður Kristný flytja hátíðarræðuna.
Þá verður Síldarævintýri á Siglufirði sett
klukkan hálf fimm og Ein með öllu á Akur-
eyri hefst formlega á Ráðhústorginu klukk-
an 19.30. Sjá nánar:
DAGURINN Í DAG
matur o.fl.
íslenskt grænmeti ● ný vín
Klara Sigurbjörnsdóttir:
▲
SÍÐUR 18 og 19
Þorskurinn
vanmetinn
Átökin í Líberíu:
Taylor í
útlegð
MONRÓVÍA, AP Fyrstu friðargæslulið-
arnir koma til Líberíu eftir helgina.
Frá þessu var greint eftir fund leið-
toga Afríkuríkja í Gana í gær.
Reiknað er með að 1.500 friðar-
gæsluliðar verði sendir til Líberíu.
Tíu hernaðarsérfræðingar komu
til Líberíu í gær til að undirbúa
komu friðargæsluliða til landsins.
Um leið varð hlé á bardögum stjórn-
arhersins og uppreisnarmanna. Þá
var samþykkt að Charles Taylor
forseti landsins fari í útlegð til Ní-
geríu, innan þriggja daga frá komu
friðargæsluliðsins.
Sjá nánar bls. 10.
HERNAÐARSÉRFRÆÐINGUM FAGNAÐ Í LÍBERÍU Íbúar Monróvíu, höfuðborgar Líberíu, fagna tíu hernaðarsérfræðingum frá Nígeríu.
Þeir komu til landsins í gær til að undirbúa komu friðargæsluliðsins eftir helgi.
SAMRÁÐ Sjóvá Almennar og Trygg-
ingamiðstöðin höfðu samráð
vegna útboðs á slysatryggingum
lögreglumanna þegar þær voru
boðnar út í desember 1996. Þessi
ályktun kemur
fram í frumskýrslu
Samkeppnisstofn-
unar á meintu sam-
ráði tryggingafé-
laganna.
Þegar slysa-
trygging lögreglumanna hækkaði
um 60% í ársbyrjun 1996 ákvað
dómsmálaráðuneytið, í samvinnu
við Landssamband lögreglu-
manna, að bjóða tryggingarnar út.
Ríkiskaup buðu tryggingarnar út í
desember og skiluðu þrjú trygg-
ingafélög, Sjóvá Almennar, Trygg-
ingamiðstöðin og Vátryggingafé-
lag Íslands, inn tilboðum.
Tryggingamiðstöðin bauð
lægsta verðið, 6.484.000 krónur og
er tekið fram í tilboði fyrirtækis-
ins að það sé í samræmi við út-
boðsgögn sem starfsmenn fyrir-
tækisins hafi kynnt sér rækilega.
Tilboð Sjóvár Almennra var rúm-
um þremur milljónum króna
hærra og tilboð VÍS hljóðaði upp á
tæpar tólf milljónir króna. Engar
athugasemdir voru gerðar við
opnun tilboðanna sem fulltrúar
allra félaganna voru viðstaddir.
Síðar sama dag sendi Trygginga-
miðstöðin Ríkiskaupum bréf og
afturkallar tilboðið þar sem „ið-
gjaldið sem boðið var er iðgjald
fyrir einfaldar vátryggingarfjár-
hæðir en ekki tvöfaldar, eins og
skilyrt er í útboðinu.“
Næsta dag er ritað í fundar-
gerð Sjóvá Almennra: „Tilboð TM
var lægst en verður dregið til
baka. Þeir lýsa því yfir að mistök
hafi verið gerð við útreikninginn.
Þannig erum við orðnir með
lægsta tilboðið og höldum vænt-
anlega viðskiptunum.“ Þessar
upplýsingar virðast fengnar frá
Tryggingamiðstöðinni því Ríkis-
kaup höfðu ekki greint Sjóvá Al-
mennum frá þessu.
Samkeppnisstofnun ályktar að
Tryggingamiðstöðin og Sjóvá Al-
mennar hafi sammælst um að
Tryggingamiðstöðin dragi tilboð
sitt til baka eftir að ljóst varð að
það hefði boðið lægsta verðið. Sjó-
vá Almennar héldu því viðskipt-
unum.
Ekki náðist í Gunnar Felixson
forstjóra Tryggingamiðstöðvar-
innar þar sem hann er í fríi. Ágúst
Ögmundsson aðstoðarforstjóri
vildi ekkert tjá sig um málið.
Tryggingafélögin skiluðu inn
andsvörum sínum á síðasta ári en
nokkurra mánaða bið er eftir loka-
skýrslu.
brynjolfur@frettabladid.is
Höfðu samráð
um tryggingar
f
í
t
o
n
/
s
í
a
F
I
0
0
6
4
4
8
Skelltu þér á
pylsu og kók
Fljótt og gott
í Nesti
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON
Hefur ekki verið í náðinni hjá
þjálfara Real Betis.
Jóhannes Karl:
Á leið til
Dortmund?
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns-
son, landsliðsmaður í knattspyrnu,
bíður nú eftir niðurstöðu úr samn-
ingaviðræðum þýska stórliðsins
Dortmund og Real Betis á Spáni.
Fyrrnefnda liðið hefur hug á að
festa kaup á landsliðsmanninum.
Jóhannes Karl segist samt ekki
vera bjartsýnn á að samningar
takist. „Ég býst ekki við að Spán-
verjarnir verði auðveldir viður-
eignar. Ég hef ekki hugmynd um
hvaða verð þeir setja á mig,“ segir
Jóhannes Karl. „Þetta er orðið
frekar leiðinlegt miðað við þau lið
sem hafa sýnt mér áhuga.“
Jóhannes Karl segir málið ekki
skýrast fyrr en í næstu viku.
Sjá nánar blaðsíðu 16.
Samkeppnisstofnun telur að Sjóvá Almennar og Tryggingamiðstöðin
hafi haft samráð vegna útboðs á slysatryggingum lögreglumanna.
Tryggingamiðstöðin bauð lægst en dró tilboð sitt til baka.
■
Slysatrygging
lögreglumanna
hækkaði um
60% í ársbyrjun
1996
GAS Greinilegar vísbendingar
hafa fundist um gasmettuð setlög
í botni Skjálfanda.
„Við erum að gera okkur í hug-
arlund að þetta sé olíugas af ein-
hverju tagi,“ segir Bjarni Richter,
sérfræðingur hjá Íslenskum
orkurannsóknum, en hann var
einn leiðangursmanna í ferð
Bjarna Sæmundssonar, skips
Hafrannsóknarstofnunar, þar
sem sjávarbotn Skjálfanda var
kortlagður.
„Þetta eru fyrstu skref í átt til
þess að vekja áhuga stærri olíu-
leitarfélaga að koma hingað og
gera almennar olíu- og gasrann-
sóknir,“ segir Bjarni, en þegar
hugsanleg vinnsla olíu og gass á
Norðurlandi var metin fyrir
nokkrum árum voru líkur á að
finna vinnanlegt magn taldar litl-
ar. „Við teljum að í dag séu meiri
líkur á að hægt sé að finna eitt-
hvað í vinnanlegu magni, en það
er langur vegur þar til það verður
ljóst.“
Bjarni segir Íslenskar orku-
rannsóknir ætla að reyna að halda
rannsóknunum áfram. „Það kem-
ur þó að þeim tímapunkti að við
verðum að láta gott heita og
reyna að fá aðra til þess. Rann-
sóknirnar eru gríðarlega dýrar og
við höfum ekkert bolmagn til að
standa í þeim.“ ■
Vísindamenn finna greinilegar vísbendingar um gasmettuð setlög:
Auknar líkur á olíu í Skjálfanda