Fréttablaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 15
16 1. ágúst 2003 FÖSTUDAGUR
Á ÆFINGU
Undirbúningstímabilið á Spáni er
hafið. David Bekcham er í fullu fjöri hjá
Real Madrid.
FÓTBOLTI Helena Ólafsdóttir, lands-
liðsþjálfari kvenna í knattspyrnu,
hefur tilkynnt hópinn sem mætir
Rússum í Moskvu 9. ágúst í und-
ankeppni Evrópumótsins. Fjórir
leikmenn koma úr herbúðum Ís-
landsmeistara KR, fjórir frá Val
og þrír úr ÍBV og Breiðablik. Mar-
grét Ólafsdóttir kemur aftur inn í
landsliðshópinn eftir nokkurt hlé.
Margrét og Ásthildur Helgadóttir
munu bæta landsleikjametið en
þær hafa hvor um sig leikið 51
landsleik. ■
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns-
son, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, bíður nú niðurstöðu
samningaviðræðna á milli þýska
stórliðsins Dortmund og Real Bet-
is á Spáni en fyrrnefnda liðið hef-
ur hug á að festa kaup á honum.
Jóhannes Karl segist samt ekki
vera bjartsýnn á að samningar
takist. „Ég býst ekki við að Spán-
verjarnir verði eitthvað auðveld-
ari viðureignar nú. Ég hef ekki
hugmynd um hvaða verð þeir
setja á mig eða hvað er að gerast,“
segir Jóhannes Karl. Hann segist
vera orðinn langþreyttur á bið-
inni. Hann er samningsbundinn
Betis en hefur ekki fengið að
spreyta sig með liðinu og var lán-
aður til Aston Villa á síðustu leik-
tíð. Þjálfari Betis hefur lýst því
yfir að Jóhannes Karl falli ekki
inní framtíðarskipulag liðsins.
„Þetta er orðið frekar leiðin-
legt miðað við liðin sem hafa sýnt
mér áhuga og viljað fá mig. Það
hefur hins vegar ekkert gengið
þar sem Spánverjarnir hafa verið
svo erfiðir,“ segir Jóhannes Karl.
„Ég er bundinn til fjögurra ára
hjá þeim en þeir ráða hvort þeir
vilji selja mig. Ég held að þeir
vilji gera það en ætla að bíða fram
á síðustu stundu til að fá sem
mestan pening fyrir mig.“
Landsliðsmanninum var boðið
að kíkja á aðstæður hjá Dortmund
og ræða við Matthias Sammer,
þjálfara.
„Mér líst mjög vel á allt hérna
hjá þeim og gæti orðið spennandi
dæmi ef þetta gengur upp,“ segir
Jóhannes Karl, sem segir að málið
muni ekki skýrast fyrr en í næstu
viku.
Dortmund hefur um árabil ver-
ið stórveldi í þýsku knattspyrn-
unni. Liðið hafnaði í þriðja sæti
úrvalsdeildarinnar en náði ekki að
komast í Meistaradeild Evrópu.
Nýbúið er að stækka heimavöll
liðsins og tekur hann nú rúmlega
83 þúsund áhorfendur.
„Þetta er einn af stærstu völl-
um Evrópu og vonandi nær liðið
inn í Meistaradeildina. Þá gæti
verið gott að komast að hérna,“
segir Jóhannes Karl.
Þórður og Bjarni, bræður Jó-
hannesar, leika með Bochum í
þýsku úrvalsdeildinni. Þegar
Fréttablaðið náði tali af Jóhannesi
var hann á leið til þeirra í heim-
sókn. „Það er bara hálftími á milli
okkar svo ef samningar nást væri
fínt að vera hérna í nágrenninu.“
kristjan@frettabladid.is
...laugardaginn
9. ágúst
Nú
lækkar
það!
Jóhannes Karl Guðjónsson vonast til að samningar náist á milli Real Betis og Dortmund.
Orðinn þreyttur á biðinni hjá spænska liðinu. Dortmund er stórveldi í Þýskalandi.
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON
Líst vel á aðstæður hjá Dortmund en
segist ekki bjartsýnn á að samningar
takist milli Dortmund og Real Betis.
Jóhannes Karl er samningsbundinn
Betis til næstu fjögurra ára.
SUND „Ég fann mig aldrei al-
mennilega í 100 metra baksund-
inu,“ sagði Örn Arnarson land-
liðsmaður í sundi um árangur
sinn á heimsmeistaramótinu í
Barcelona.
„Það gekk illa þann dag, ég
fann aldrei taktinn í því sundi og
árangur minn þar eru sár von-
brigði en ég náði að bæta mig í
tveimur greinum og það má
segja að ég sé sáttur við seinni
hluta mótsins. En ég ætlaði mér
lengra en raun varð á í keppn-
inni. ■
Íslenska kvennalandsliðið:
Margrét aftur í hópinn
LANDSLIÐSHÓPURINN:
Markverðir:
María Björg Ágústsdóttir Stjarnan
Þóra Björg Helgadóttir KR
Aðrir leikmenn:
Ásthildur Helgadóttir KR
Hrefna H. Jóhannesdóttir KR
Edda Garðarsdóttir KR
Margrét R. Ólafsdóttir Breiðablik
Björg Ásta Þórðardóttir Breiðablik
Erna B. Sigurðardóttir Breiðablik
Olga Færseth ÍBV
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV
Íris Sæmundsdóttir ÍBV
Laufey Ólafsdóttir Valur
Dóra Stefánsdóttir Valur
Íris Andrésdóttir Valur
Málfríður Erna Sigurðardóttir Valur
Erla Hendriksdóttir FV København
LANDSLIÐIÐ Á GÓÐRI STUND
Helena ólafsdóttir landsliðsþjálfari
hefur valið Margréti Ólafsdóttur í
landsliðið á ný.
Örn Arnarson um
árangur sinn:
Vonbrigði
með
baksundið
ÖRN ARNARSON
Náði sér ekki á strik í sinni helstu grein.
Rijkaard er að gera
góða hluti:
Allt annað
Barcelona
FÓTBOLTI Barcelona lagði Evrópu-
meistara AC Milan af velli í vin-
áttuleik í Bandaríkjunum og hef-
ur nú á stuttum
tíma lagt bæði
liðin sem léku
til úrslita í
Meistarakeppni
Evrópu síðast-
liðið vor, AC
Milan og
Juventus, þrátt
fyrir að vera án
síns mesta
markaskorara,
Patrick Klui-
verts.
H o l l e n s k i
þjálfarinn Frank Rijkaard og nýir
leikmenn liðsins, þeir Quaresma
og Ronaldinho höfðu báðir mikil og
góð áhrif á leik Börsunga og skor-
aði hvor sitt markið. Var áberandi
hversu sóknarbolti Rijkaards hent-
aði liðinu vel og leikmenn Milan
áttu í stökustu vandræðum út um
allan völl. ■
RONALDINHO
Mikill munur á liði
Barcelona núna og
á síðustu leiktíð.
Ronaldinho á sinn
þátt í því.
Manitou
Burðargeta: 4,5 tonn
Mesta lyftihæð: 21 metrar
Fjölnota tæki með 360° snúningsgetu,
vökvaspili og 3-5 m. körfu.
Karfan er með 180° snúning og
fjarstýringu.
STÁLAFL ehf
Miðhraun 18 210 Garðabær
Uppl í síma 897-3154
Skotbómulyftari
Ti
l
sö
lu
Einnig til sölu
Fiat Ducato 4x4,
2000 model,
ekinn 65500 km
Dortmund afar
spennandi kostur