Fréttablaðið - 01.08.2003, Síða 11
11FÖSTUDAGUR 1. ágúst 2003
Full réttindi innan EES:
Tryggingar á
ferðalögum
TRYGGINGAR Dæmi eru um að
ferðamenn verði fyrir of mikl-
um útgjöldum vegna þess að
þeir huga ekki nægilega vel að
öllum þáttum trygginga. Í lönd-
um innan EES búa Íslendingar
við sömu kjör og íbúar viðkom-
andi lands. Þetta gildir þó aðeins
um þær sjúkrastofnanir, lækna-
stofur og heilbrigðisstéttir sem
hafa samninga við tryggingar-
stofnun viðkomandi lands. Ís-
lendingar sem hyggjast nýta sér
þennan rétt verða að framvísa
sérstöku vottorði sem nálgast
má hjá Tryggingastofnun ríkis-
ins. ■
VIÐSKIPTI Sveitarfélagið Árborg er
ennþá þinglýstur eigandi húss
Hótel Selfoss, en Brú hefur eign-
arhald á því samkvæmt kaup-
samningi. Árborg hefur veitt Brú
veðheimildir í húsinu og nema
þær nú um 450 milljónum króna.
Ekki er til þinglýstur eigna-
skiptasamningur vegna menning-
arsalar hússins og hvíla veð því
líklega á húsinu í heild.
Heildarskuldir Brúar eru nú
hátt í 900 milljónir króna. Þar til
viðbótar eru ókláraðar fram-
kvæmdir við veitingasal og
fleira. Er talið að þær fram-
kvæmdir muni kosta um 75-100
milljónir króna fyrir utan menn-
ingarsalinn. Af 250 milljón króna
heildarhlutafé Brúar á KÁ 63%
eða 141 milljón. Þar til viðbótar á
KÁ 140 milljóna viðskiptakröfu á
Brú. Hvort tveggja er metið til
eigna á 0 krónur, einskis virði, í
núverandi mati á eignum KÁ. Þá
er KÁ talið fyrir 180 m.kr.
ábyrgðum á Brú og eru þær tald-
ar til skulda í núverandi eigna-
stöðu KÁ, þ.e. að þær muni falla
á KÁ. Samtals eru þetta um 460
milljónir. ■
Selfoss:
Ekki ljóst hver
á Hótel Selfoss
HÓTEL SELFOSS
Myndin sýnir ófullgerða hlið Hótel
Selfoss en þar á eftir að byggja veitinga-
sal hótelsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
O
FF
ÍA
Elsta manneskja heims:
124 ára gam-
all Tjétjéni
ALDUR Talið er að elsta manneskja
heims hafi fundist í Tjétjéníu. Hún
heitir Zabani Khachukayeva og er
124 ára gömul, níu árum eldri en
núverandi methafi.
Enn á eftir að staðfesta aldur
konunnar. Að sögn yfirvalda í Tje-
tjeníu á Khachukayeva, sem er
múslimi, 24 barnabörn, 38 barna-
barnabörn og sjö barnabarnabarna-
börn. Hún er sögð við góða heilsu
utan þess að heyrnin er orðin slæm.
„Þrátt fyrir aldurinn vinnur hún
enn húsverkin, passar upp á öll
barnabörnin sín og biður bænirnar
fimm sinnum á dag,“ segir í frétt
Interfax. ■
VATNSLEKI „Við mættum snemma
og höfum verið að þurrka síðan.
Við verðum að bíða og sjá hvernig
þetta jafnar sig á næstu dögum,“
segir Þorsteinn Sæberg, skóla-
stjóri Árbæjarskóla, en mikið
vatn flæddi um
skólann í fyrri nótt
vegna sturtubarka
sem gaf sig í eld-
húsinu.
Hann segir að
búið sé að taka
nokkrar plötur úr
loftunum þar sem lekið hafði í
gegnum gólfið. „Dúkarnir á efri
hæðinni virðast hafa sloppið en
við erum að sjá til fram yfir helgi
hvernig restin jafnar sig. Þetta
var ein álma af nokkrum sem
flæddi um. Skólahaldi verður ekki
frestað. Hér verður byrjað 25.
ágúst, ekkert gefið eftir í því.“
„Mikið vatn var þar sem skrif-
stofur kennara eru og flaut yfir
hæðina sem lak svo niður á hæð-
ina fyrir neðan,“ segir Jón Viðar
Matthíasson aðstoðarslökkviliðs-
stjóri. Hann segir töluverðar
skemmdir hafa orðið vegna þessa
og mikið vatn sem flæddi. Þó hafi
farið betur en á horfðist, náðst
hafi að hreinsa vatnið tiltölulega
fljótt upp.
„Við vorum komnir á staðinn
korter í sjö um morguninn og
fórum af svæðinu rúmlega níu.
Frá okkur voru upp undir tutt-
ugu manns að hreinsa upp vatn-
ið. Dæla þurfti öllu vatninu út
þar sem engin niðurföll eru á
gólfinu. Ómögulegt er að segja
hvað þetta var mikið magn eða
hversu lengi það hafði lekið. Það
var lögn í sturtubarka í eldhús-
inu gaf sig.“
Jón Viðar segir stóran hluta af
hæðunum tveimur sem vatnið
flæddi hafa verið í endurbygg-
ingu. Mikið lán var að vatnið fór
ekki í nýbygginguna við hliðina.
Rennsli var svipað og úr venjuleg-
um heimiliskrana, óvíst hversu
lengi það var búið að renna.
„Brunakerfið gaf okkur viðvörun,
það hefur trúlega farið í gang
vegna gufu. Vatnið hefur örugg-
lega verið heitara í upphafi en
þegar við komum, þá var vatnið
búið að dreifast yfir stórt svæði
en var samt volgt.“
hrs@frettabladid.is
Töluverðar skemmdir
urðu í Árbæjarskóla
Jón Viðar Matthíasson segir erfitt að segja hversu mikið vatn flæddi um skólann. Vatnið var svo
mikið til að byrja með að stígvél voru nauðsynleg. Skólahald hefst 25. ágúst eins og ákveðið var.
Í ÁRBÆJARSKÓLA
Starfsfólk skólans vann hörðum höndum við að þurrka upp.
■
Ómögulegt er
að segja hvað
þetta var mikið
magn eða hver-
su lengi það
hafði lekið.
HERMAÐUR
Þessi hermaður var á verði í Bagdad,
höfuðborg Íraks, á dögunum. 166 banda-
rískir hermenn hafa fallið í Írak síðan ráðist
var inn í landið.
Átök halda áfram í Írak:
Tveir her-
menn féllu
ÍRAK,AP Tveir bandarískir hermenn
létust með skömmu millibili í Írak
seint á miðvikudag og snemma í
gær.
Annar þeirra lést í skotárás við
íraska uppreisnarmenn norðaust-
ur af Bagdad. Hinn lét lífið er hann
ók yfir jarðsprengju.
51 Bandaríkjamaður hefur lát-
ist í Írak síðan stríðinu lauk þann 1.
maí og alls hafa 166 Bandaríkja-
menn fallið í Írak síðan ráðist var
inn í landið. Það eru 19 fleiri en
dóu í Persaflóastríðinu árið 1991. ■
GHUFRON
Réttarhöld yfir Ali Ghufron standa nú yfir í
Indónesíu. Talið er að hann hafi stjórnað
aðgerðum vegna sprenginganna á Balí
sem urðu 202 manneskjum að bana.
Hryðjuverkin á Balí:
Fjármögnuð
af al-Kaída
INDÓNESÍA,AP Grunaður múslimsk-
ur öfgamaður, Wan Min Wan Mat,
segir að al-Kaída samtökin hafi
fjármagnað hryðjuverkaárásir í
Indónesíu, þar á meðal árásirnar á
Balí þann 12. október í fyrra.
Þessu hélt Wan Min fram við
réttarhöld yfir Ali Ghufron, sem
er talinn vera háttsettur meðlim-
ur í öfgasamtökunum Jemaah
Islamiyah. Þau samtök eru talin
hafa borið ábyrgð á sprengingun-
um á Balí, sem urðu 202 mann-
eskjum að bana.
Lengi hafa verið uppi grun-
semdir um tengsl al-Kaída við
hryðjuverkin og gefur vitnisburð-
ur Wan Min sterkustu vísbending-
ar til þessa um tengslin. ■
AP/M
YN
D
AP/M
YN
D