Fréttablaðið - 01.08.2003, Síða 21
1. ágúst 2003 FÖSTUDAGUR22
TÓNLIST Það hefur sýnt sig í gegnum
árin að því lengur sem popphreyf-
ingum er haldið niðri, því kraft-
meiri verður endurkoman. Þetta er
svipað og ef mönnum er haldið í
kafi of lengi, það er að segja ef þeir
drukkna ekki. Lungu íslensku
hiphophreyfingarinnar eru sem
betur fer stór og hvergi hætta á
dauða hennar þótt hún hafi horfið
af yfirborðinu þegar nýir eigendur
útvarpstöðvarinnar muzik.is
hreinsuðu hana út.
Um helgina fá rímurnar að
flæða á Akureyri þar sem stór hluti
íslensku hiphopsenunnar mun
halda sig.
X Rottweiler, Bæjarins Bestu,
Bent og 7Berg verða t.d. á Sjallan-
um í dag um sex leytið og á Ráðhús-
torginu á annað kvöld.
„Við erum vanir að spila um
Verslunarmannahelgina,“ segir
Steini Rottweilerhundur.
„Rottweiler hefur í rauninni verið
eina hiphoppið sem er í gangi um
Verslunamannahelgina síðustu ár.
Þetta er í fyrsta skiptið sem það er
svona mikið að gerast. Núna er allt
á Akureyri og við fögnum því. Mér
hefði nú fundist fínt ef þeir væru
bara með fjórar hljómsveitir. Þetta
Landsmót rappara
á Akureyri
Hjarta íslenska hiphopsins verður fært norður til Akur-
eyrar yfir Verslunarmannahelgina. X Rottweiler, Bæj-
arins Bestu, Bent & 7Berg, Móri, Mezzías, Vivid Brain,
Forgotten Lores og Skytturnar eru á meðal þeirra sem
koma fram í bænum um helgina.
Fréttiraf fólki
Tár sólarinnar“ er svo heimsku-lega full af bandarískri þjóð-
rembu og hernaðardýrkun að
manni dettur helst í hug að George
Bush hafi skrifað handritið og Don-
ald Rumsfeld leikstýrt henni.
Þarna segir frá bandarískum hetj-
um undir forystu Bruce Willis sem
reyna að bjarga brjóstgóðum trú-
boða (Monica Bellucci) og skjól-
stæðingum hennar frá biksvörtum,
íslömskum morðhundum einhvers
staðar í Nígeríu. Söguþráðurinn er
álíka trúverðugur og sagan af
Mjallhvít og dvergunum sjö en
langt því frá jafnspennandi.
Bruce Willis er þarna í sínu al-
versta formi, rogast um frumskóg-
inn löðursveittur með vélbyssu í
fanginu, og þegar hann tekur pásu
kemur Monica Bellucci hin brjóst-
góða og klifar á því „að fólkið sé
orðið þreytt á göngunni“ eins og
Brúsi sé Ingólfur í Heimsferðum
og þetta sé pakkaferð.
Það hefur kannski verið lýjandi
fyrir mannskapinn að leika í þess-
ari þvælu, en þó hlýtur það að hafa
verið skárra en að þurfa að horfa á
hana.
Þráinn Bertelsson
UmfjöllunKvikmyndir
TEARS OF THE SUN - TÁR SÓLARINNAR
Aðalhlutverk: Bruce Willis, Monica Bellucci
Handrit: Alex Lasker, Patrick Cirillo
Leikstjórn: Antoine Fuqua
Eftir handriti
George Bush?
KVIKMYNDIR Paramount Pictures
kenna nýja Tomb Raider tölvuleikn-
um, „TR: The Angel of Darkness“
um lélegt gengi nýju myndarinnar
„TR: The Cradle of Life“ hvað varð-
ar aðsókn um síðustu helgi. Myndin
þurfti að lúta í lægra haldi fyrir
bæði nýju myndinni „Spy Kids 3-
D“, og Jerry Bruckheimer-dúóinu
„Bad Boys 2“ og „Pirates of the
Caribbean: The Curse of the Black
Pearl“ og skilað aðeins tæpum 22
milljón dollara í kassann, eða um
1700 milljónum króna, sem er lítið
fyrir mynd sem kostaði 11 milljarði
að framleiða. Paramount vilja
meina að þeir slæmu dómar sem
nýi leikurinn um ævintýri Löru
Croft hafi fengið og óánægja spil-
ara með hann hafi dregið verulega
úr aðsókn á myndina, þar sem þeir-
ra helsti markhópur er fólk sem
spilar leikinn. Annars eiga Tomb
Raider kvikmyndirnar og Tomb
Raider leikirnir minna sameigin-
legt en marga grunar; einkennandi
fyrir leikina eru langar stundir
kyrrðar og þolinmæði með átökum
inn á milli. Myndirnar eru hins veg-
ar eins konar blanda af James Bond
hasar og Indiana Jones umhverfum
og það var einmitt ástæðan fyrir
því að fyrri myndin vakti jafn
mikla lukku og þekkt er. ■
Væmnisrapparinn og gospel-gangsterinn Ja Rule, sem er
þessa dagana á ferðalagi um Suður-
Afríku að „heimsækja móðurlandið
og standa fyrir (represent) upp-
runann“, segist líka mjög illa við
gatasigtið 50 Cent og það sé ekkert
djók. Þekkt er að það blási köldu
milli þeirra kollega, en sumir vilja
meina að rifrildið sé sett á svið af
markaðsfræðingum þeirra beggja
til að auka umtal og eftirspurn. Ja
segir að slíkt væri fáránlegt og 50
Cent væri maður sem honum líkaði
ekki við og einn þeirra rappara
sem þóttust lifa lífsstíl sem þeir
lifðu ekki. Ja undrast einnig að það
skuli ekki fleiri svartir skemmti-
kraftar sækja í að heimsækja Afr-
íku, því það sé sérlega mikilvægt
fyrir hann.
Missy Elliot og Madonna takaþátt í nýrri auglýsingaherferð
Gap fatakeðjunnar fyrir gallabux-
ur. Fyrir auglýsingarnar fengu þær
báðar par af buxum sem þær máttu
breyta eftir eigin hentisemi, enda
valdi Gap þær Missy og Madonnu
af því að þær eru frægar fyrir
skrautlegan klæðaburð. Madonna
úðaði sínar vítt og breitt en Elliot
prýddi sínar með málmgöddum.
Myndirnar ættu bráðlega að fara
að birtast í tískublöðum.
COLIN FARRELL
Írski leikarinn Colin Farrell mætir til frum-
sýningar myndarinnar „S.W.A.T.“ í Los Ang-
eles á miðvikudag en hann leikur eitt aðal-
hlutverkana. Farrell hefur á merkilega
stuttum tíma komið sér í hóp eftirsóttustu
leikara Hollywood.
X ROTTWEILER
Þeir sem syrgja fráfall hiphopsins í útvarpinu eiga von á bætum fljótlega. Verið er að
vinna í því að koma annarri stöð á laggirnar í haust sem ætlar að leika hiphop, r&b og
raftónlist. En meira um það síðar.
TR:CRADLE OF LIFE
Gengur verr en fyrsta myndin um ofurkvendið Löru Croft.
Tomb Raider:
Tölvuleikurinn
rústar aðsókn
TÖLVULEIKIR Nýr einmenningsleikur,
byggður á „Counter Strike“, fyrir
PC tölvur hefur lengi verið í burð-
arliðnum en sá nefnist „Counter-
Strike: Condition Zero“. CS:CZ hef-
ur verið í vinnslu í 2 ár og hefur
leikurinn tekið miklum stakka-
skiptum yfir þann tíma. Í dag er
leikurinn keyrður á mjög bættri og
breyttri myndvinnslu-vél gamla
Counter Strike leiksins og lítur
mun betur út. Leikurinn er nokkuð
flóknari í spilun en fyrirrennarinn,
enda stýrir maður mörgum sér-
sveitarmönnum en ekki einum.
Condition Zero heldur samt í hraða
og hasar fjölspilunarútgáfunar
með því að byggja leikinn ekki upp
eins og klassískan einmennings-
leik. Í stað þess að fara gegnum
heilsteypta sögu, fara úr einu teng-
du verkefni yfir í annað, þá velur
maður verkefni sem standa ein og
sér og lýkur margvíslegum minni
verkefnum í hverju þeirra; af-
tengja sprengjur, bjarga gíslum,
drepa alla hryðjuverkamennina
o.s.frv.. Svo eru líka kjánalegri
verkefni sem þarf að leysa; klára
heilt borð án þess að hlaða byssuna,
klára borð með 50% hittni, verjast
bylgjum af óvinum eins lengi og
spilarar endast og margt fleira.
Þannig minnir CS:CZ meira á létt-
vægari leiki eins og „Tony Hawks
Pro Skater“ eða „Gran Turismo“ en
harða skotleiki. Ekki er á hreinu
hvenær leikurinn kemur út. ■
COUNTER STRIKE: CONDITION ZERO
Þemað er hatrömm barátta hryðjuverka-
manna og sérsveitarmanna
Condition Zero:
Loksins einn