Fréttablaðið - 02.08.2003, Qupperneq 6
6 2. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 78.29 2,1%
Sterlingspund 125.48 0,77%
Dönsk króna 11.77 -0,25%
Evra 87.42 -0,30%
Gengisvístala krónu 123,69 -0,01%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 241
Velta 8.645,4 milljónir
ICEX-15 1.525 0,73%
Mestu viðskiptin
Pharmaco hf. 1.063.751.060
Kaupþ. Búnaðarbanki hf. 333.891.880
Íslandsbanki hf. 192.136.819
Mesta hækkun
Samherji hf. 8,98%
Landsbanki Íslands hf. 0,98%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 0,06%
Mesta lækkun
Marel hf. -5,59%
Flugleiðir hf. -3,49%
Bakkavör Group hf. -2,86%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 9179,3 -0,6%
Nsdaq: 1721, -0,8%
FTSE: 4098,4 -1,4%
NIKKE: 9611,7 0,5%
S&P: 981,6 -0,9%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hver er eini nýliðinn í kvennalands-liðinu sem mætir Rússum 9. ágúst í
Moskvu?
2Hvað heitir höfuðborg Líberíu?
3Hvaða hátíð verður um helgina íIðnó?
Svörin eru á bls. 21
Dætur Saddams Husseins og níu börn:
Fengu hæli í Jórdaníu
BAGDAD, AP Dætur Saddams
Husseins, fyrrum forseta Íraks,
hafa fengið hæli í Jórdaníu ásamt
níu börnum þeirra. Yfirvöld segj-
ast hafa veitt dætrunum, þeim
Raghad og Rana hæli af mannúð-
arástæðum. Saddam lét skjóta eig-
inmenn þeirra árið 1996 eftir að
þeir snéru aftur til Íraks, eftir að
hafa flúið land með fjölskyldur
sínar ári fyrr og boðið fram aðstoð
sína við að steypa Saddam af stóli.
Dæturnar hafa síðan búið við
kröpp kjör í Írak. Nabil al-Sharif,
upplýsingamálaráðherra Jórdaníu,
segir að Jórdaníukonungur hafi
ákveðið að veita konunum hæli en
ekki er gefið upp hvar í landinu
þær dvelja.
Þá hefur Bandaríkjastjórn sam-
þykkt að greiða manninum sem
sagði til dvalarstaðar Qusays og
Udays, sona Saddams, 30 milljónir
Bandaríkjadala. Lofað hafði verið
15 milljónum dala í verðlaun fyrir
upplýsingar sem gætu leitt til
handtöku eða dauða hvors sonar
um sig. Þetta eru hæstu greiðslur
sem Bandaríkjastjórn hefur greitt
uppljóstrara.
Fullyrt er að sá sem fær
greiðsluna sé Nawaf al Zweidane,
kaupsýslumaður, en hann átti hús-
ið þar sem synir Saddams fundust.
Þá hafa 25 milljónir dala verið
settar til höfuðs Saddam sjálfum.■
Ásökunum um
samráð mótmælt
Tryggingamiðstöðin segir mistök ástæðu þess að tilboð félagsins í slysa-
tryggingar lögreglumanna var dregið til baka. Þeir segja ályktanir Sam-
keppnisstofnunar um samráð í þessu útboði ekki eiga við rök að styðjast.
SAMRÁÐ Tryggingasmiðstöðin and-
mælir ályktunum um samráð fé-
lagsins og Sjóvá Almennra er
fram koma í frumskýrslu Sam-
keppnisstofnunar um meint sam-
ráð tryggingafélaganna. Í skýrsl-
unni eru leiddar að því líkur að fé-
lögin hafi haft með sér ólöglegt
samráð vegna útboðs dómsmála-
ráðuneytisins á
slysatryggingum
l ö g r e g l u m a n n a
árið 1996, eins og
sagt var frá í
Fréttablaðinu í
gær. Sama gerir
Sjóvá Almennar.
Í útboðinu skil-
uðu TM, Sjóvá Al-
mennar OG VÍS inn
tilboðum og var tilboð TM lang-
lægst eða tæpar 6,5 milljónir
króna. Sjóvá Almennar bauð rúm-
ar 9,5 milljónir og VÍS tæpar 12
milljónir. Síðar þennan sama dag
dró TM tilboð sitt til baka.
„Þar sem munur á tilboðunum
var meiri en eðlilegt gæti talist
var farið að athuga málið inna-
húss hjá TM, „ segir í símbréfi frá
félaginu. „Þá kom í ljós að tilboðið
byggðist á einfaldri vátrygginga-
fjárhæð en ekki tvöfaldri eins og
gert var ráð fyrir í útboðsskilmál-
um.“ Starfsmönnum TM hafði yf-
irsést þetta, þrátt fyrir að hafa
kynnt sér útboðsgögn rækilega,
segir ennfremur í símbréfinu.
Haft var samband við Ríkiskaup
sem önnuðust útboðið og þeim
gert grein fyrir að TM treysti sér
ekki til þess að standa við tilboð
sitt og í kjölfar þess var gengið til
samninga við Sjóvá Almennar
sem áttu næstlægsta tilboðið.
Í frumskýrslu Samkeppnis-
stofnunar kemur fram að næsta
dag hafi vitneskja um ákvörðun
TM legið fyrir hjá Sjóvá Almenn-
um, þar sem upplýsingar þess
efnis voru ritaðar í fundargerð fé-
lagsins. „Ekki skal fullyrt, sex
árum eftir umræddan atburð,
hvernig vitneskja barst SA um að
TM hafi fallið frá tilboði sínu. Um
leið og staðreyndir lágu fyrir um
þau mistök sem átt höfðu sér stað
hjá félaginu, var það hins vegar
ekkert leyndarmál og gat engin
áhrif haft á aðra tilboðsgjafa sem
ekki gátu breytt tilboðum sínum,“
segir í símbréfinu. Þar segir
einnig að ekki sé hægt að útiloka
að vitneskjan hafi komið frá Rík-
iskaupum, þrátt fyrir að engar
skriflegar upplýsingar þess efnis
liggi fyrir.
Tryggingarmiðstöðin hafnar
því algerlega að þessi liður frum-
athugunar Samkeppnisstofnunar
eigi við rök að styðjast.
helgat@frettabladid.is
ÓHAPP HJÁ SNARPI
Snarpur Jóhanns R. Skúlasonar varð fyrir
óhappi þegar verið var að færa hann í
hesthúsið að sýningu lokinni. Hann festist
með afturfót í gjörð á reiðhjóli sem datt í
veg fyrir hestinn. Ekki er búist við að
óhappið aftri þeim félögum frá þátttöku í
úrslitum á sunnudaginn.
HM íslenskra hesta:
Há einkunn
í tölti
HESTAR Forkeppni í slaktumtölti fór
fram á Heimsmeistaramóti ís-
lenskra hesta í Herning í Dan-
mörku í gær.
Tómas Örn Snorrason á Skör-
ungi komst einn Íslendinga í A-úr-
slit en hann varð þriðji með eink-
unnina 7,73. Efstur eftir forkeppn-
ina er Anne Balslev á Hrammi frá
Þóreyjarnúpi með 8,03. Einnig var
keppt í forkeppni tölts. Keppnin
var geysihörð og spennandi og
varð Jóhann R. Skúlason á Snarpi
efstur að stigum með einkunnina
8,97, sem er trúlega með því hæsta
sem gefið hefur verið fyrir tölt á
heimsmeistaramóti. Margir áttu
von á því að Karly Zingsheim á
Dökkva frá Mosfelli myndi blanda
sér í toppbaráttuna en hesturinn
varð fyrir því óhappi að missa
undan sér skeifu í byrjun yfir-
ferðartöltsins. ■
Vöruskiptajöfnuður:
Milljarða
viðsnúningur
EFNAHAGSMÁL Halli á vöruskiptum
við útlönd nam 400 milljónum
króna fyrstu sex mánuði þessa
árs. Þetta er tíu milljörðum króna
lakari útkoma en á sama tímabili á
síðasta ári, þegar vöruskiptajöfn-
uður var hagstæður um 9,6 mill-
jarða króna.
Vöruskiptajöfnuður var nei-
kvæður um 2,9 milljarða í júní. Þá
voru fluttar út vörur fyrir 14,6
milljarða króna en inn fyrir 17,5
milljarða. Fyrir ári síðan stóð
vöruskiptajöfnuður í járnum í
júní. ■
...laugardaginn
9. ágúst
Nú
lækkar
það!
STÓRFJÖLSKYLDAN
Raghad og Rana, dætur Saddams Husen, sem fengu hæli í Jórdaníu, eru hér með fjöl-
skyldu sinni, föður og móður. Myndin er tekin árið 1990, áður en dæturnar flúðu ásamt
eiginmönnum sínum og börnum til Jórdaníu. Saddam lét skjóta tengdasyni sína fyrir
flóttann og dæturnar hafa síðan búið við afar kröpp kjör.
M
YN
D
/A
P
■
Ekki skal fullyrt
6 árum eftir
umræddan at-
burð hvernig
vitneskja barst
SA um að TM
hefði fallið frá
tilboði sínu.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
Mótmæla því að hafa átt í ólöglegu samráði við Sjóvá Almennar um slysatryggingar lög-
reglumanna árið 1996.
Kaupm.höfn
London
París
Berlín
Algarve
Benidorm
Torrevieja
Krít
Kýpur
Róm
New York
Miami
23°C léttskýjað
19°C alskýjað
24°C skýjað
28°C skýjað
34°C léttskýjað
33°C heiðskírt
34°C heiðskírt
28°C heiðskírt
33°C heiðskírt
28°C þrumuveður
23°C skýjað
30°C heiðskírt
SunnudagurÍ dag
Mánudagur
Veðrið úti í heimi í dag
Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins.
Veðrið
VESTMANNA-
EYJAR
Veðrið í dag endur-
speglar horfurnar
eins og þær voru í
vikunni. Það verður
bjartviðri á suðves-
turfjórðungi
landsins og hýtt.
Veðrið verður því
ekki til að spilla
Þjóðhátíðinni í
Eyjum, Bindindis-
mótinu í Galtalæk
og fleiri hátíðum á
þessu svæði.
Reyndar verður
veðrið líklega best í
Reykjavík og Eyjum.
Það er lítið eitt kól-
nandi á Vestfjörðum
en þar ætti að vera
þurrt. Síst verður
veðrið á
Egils-
stöðum.
Kveðja,
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veðurfræðingur
Breytileg átt
Breytileg átt
Breytileg átt
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Breytileg átt
Hægur vindurHægur
vindur
Hægur
vindur