Fréttablaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 18
2. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Stundum eru fréttir á þann vegað það borgar sig fyrir okkur að láta eins og við vitum ekki af þeim. Ein slík frétt var í Morg- unblaðinu fyrir nokkrum vikum. Þar var okkur tilkynnt að búið væri að sanna að s n i l l i g á f a n dræpist í hjóna- bandinu. Þetta útskýrir margt, eins og til dæmis það af hverju gift fólk virðist aldrei hafa neitt merkilegt að segja. Auðvitað var þetta frétt sem hefði átt að óma í öllum fjölmiðl- um heims, okkur til viðvörunar og íhugunar. Og auðvitað hefði þessi frétt átt að leiða til rækilegrar innri sjálfsskoðunar okkar allra. En við leggjum ekki út í það. Það er dálítið svakalegt að fyrsta hugsun sem hvarfli að manni þeg- ar maður horfi á makann sé: „Er þetta manneskjan sem kom í veg fyrir að ég varð snillingur?“ Þetta er hugsun sem við þorum ekki að hugsa. Þess vegna verðum við að halda áfram að láta eins og ekkert sé. Og höldum áfram að lifa - með makanum sem drap í okkur and- ann. Er eitthvað sem getur orðið okkur til bjargar? Ég veit það ekki. Dettur helst í hug að farsæl- ast sé að geyma ástina sína úti í bæ og heimsækja hana bara stundum. Þannig hljótum við að geta rölt í gegnum lífið með frum- lega hugsun í heilabúinu. ■ Við tækið KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR ■ er uggandi yfir þeim fréttum að snilligáfan deyi í hjónabandinu. Hjónabandið drepur 18.00 Robert Schuller 19.00 Jimmy Swaggart 20.00 Billy Graham 21.00 Praise the Lord 23.00 Robert Schuller 0.00 Miðnæturhróp 0.30 Nætursjónvarp Með áskrift að stafrænu sjón- varpi Breiðbandsins fæst aðgangur að rúmlega 40 erlendum sjónvarpsstöðvum, þar á meðal 6 Norðurlanda- stöðvum. Nánari upplýsingar um áskrift í síma 800 7000. 16.00 Trans World Sport (Íþróttir um allan heim) 17.00 Toppleikir 18.50 Lottó 19.00 Nash Bridges IV (18:24) (Lög- regluforinginn Nash Bridges) 20.00 MAD TV (MAD-rásin) Geggjaður grínþáttur þar sem allir fá það óþvegið. Þátturinn dregur nafn sitt af samnefndu skopmyndablaði sem notið hefur mikilla vinsælda. 21.00 A B rooklyn State of Mind (Saga úr Brooklyn)Al Stanco hefur búið alla sína ævi í Brooklyn og framfleytir sér með því að sinna skítverkum fyrir mafíu- foringjann Danny Parente. Al kynnist Gabrielu sem er að gera heimildamynd um Brooklyn. Hann kemst svo að raun um að hún er að safna sönnunargögn- um á hendur Parente. Al bregst ókvæða við en það renna á hann tvær grímur þegar sönnunargögnin benda til að Parente tengist morðinu á föður Als. Að- alhlutverk: Danny Aiello, Vincent Spano, Maria Grazia Cucinotta, Tony Danza. Leikstjóri: Frank Rainone. 1996. Strang- lega bönnuð börnum. 22.30 Oscar de la Hoya - Campas Út- sending frá hnefaleikakeppni í Las Vegas. Á meðal þeirra sem mættust voru gull- drengurinn Oscar de la Hoya og Yory Boy Campas en í húfi var heimsmeistara- titill WBA- og WBC-sambandanna í velti- vigt (súper). Áður á dagskrá 3. maí 2003. 0.25 Vixen Erótísk kvikmynd. Strang- lega bönnuð börnum. 1.50 Dagskrárlok og skjáleikur 6.00 The World Is Not Enough 8.05 Since You Have Been Gone 10.00 My 5 Wives 12.00 Four Weddings And A... 14.00 Since You Have Been Gone 16.00 My 5 Wives 18.00 Four Weddings And A... 20.00 Scary Movie 2 22.00 Crimson Rivers 0.00 The World Is Not Enough 2.05 Silence of the Lambs 4.00 Crimson Rivers 7.00 Meiri músík 12.00 Lúkkið 14.00 X-TV.. 15.00 Trailer 16.00 Geim TV 17.00 Pepsí listinn 19.00 XY TV 20.00 Meiri músík Sjónvarpið 20.15 Stöð 2 20.45 Gamansöm glæpasaga. McCor- dle-fjölskyldan býður til mann- fagnaðar á sveitasetri sínu í Englandi árið 1932. Húsbóndinn William er velgjörðarmaður margra sem þangað eru mættir og flestir vilja meira af auðæf- um gestgjafans. En hversu langt er fólk tilbúið að ganga til að koma ár sinni vel fyrir borð? Er kannski hætta á að einhver gangi of langt? Myndin var til- nefnd til sjö Óskarsverðlauna. Aðalhlutverk: Kristin Scott Thomas, Maggie Smith, Michael Gambon. Leikstjóri: Robert Alt- man. 2001. 15.00 Jay Leno (e) 15.45 Jay Leno (e) 16.30 Dateline (e) 17.30 The World’s Wildest Police Vid- eos (e) 18.30 48 Hours (e) Dan Rathers hefur umsjón með þessum margrómaða fréttaskýringaþætti frá CBS sjónvarps- stöðinni. Í 48 Hours er fjallað um athygl- isverða viðburði líðandi stundar með ferskum hætti. 19.20 Guinness World Records Heimsmetaþáttur Guinness er eins og nafnið bendir til byggður á heimsmeta- bók Guinness og kennir þar margra grasa. Þátturinn er spennandi, forvitnileg- ur og stundum ákaflega undarlegur. Ótrúleg afrek fólks af ólíku sauðahúsi eða einfaldlega sauðheimskt fólk. 21.00 Law & order: Criminal Intent (e) 21.40 Bob Patterson (e) 22.00 Law & Order SVU (e) Bandarískir sakamálaþættir með New York sem sögusvið. Þættirnir eru tvískiptir; í fyrri hlutanum er fylgst með lögreglumönn- um við rannsókn mála og er þar hinn gamalreyndi Lennie Briscoe fremstur í flokki en seinni hlutinn er lagður undir réttarhöld þar sem hinir meintu saka- menn eru sóttir til saka af einvalaliði sak- sóknara en oft gengur jafn brösuglega að koma hinum grunuðu í fangelsi og að handsama þá. 22.50 Traders (e) Í kanadísku fram- haldsþáttaröðinni um Traders er fylgst með starfsfólki fjármálafyrirtækis, sem á köflum teflir heldur djarft í viðskiptum sínum. Þeim er ekkert heilagt, og þeim er sama hvað um þig verður, en þeim er afar annt um peningana þína... 23.40 The Drew Carey Show (e) Magnaðir gamanþættir um Drew Carey sem býr í Cleveland, vinnur í búð og á þrjá furðulega vini og enn furðulegri óvini. 0.10 NÁTTHRAFNAR 0.11 The Drew Carey Show (e) 0.35 Titus (e) 1.00 Powerplay (e) 1.40 Law & order: Criminal Intent (e) 9.00 Morgunstundin okkar 9.02 Mummi bumba (31:65) 9.05 Tommi togvagn (5:26) 9.19 Engilbert (24:26) 9.30 Albertína ballerína (27:39) 9.45 Stebbi strútur (4:13) 10.03 Babar (20:65) 10.18 Gulla grallari (41:53) 10.55 Timburmenn (7:10) 11.10 Kastljósið e. 11.50 Formúla 1 Bein útsending frá tímatöku fyrir kappaksturinn á Hockenheim-brautinni í Þýskalandi. 13.00 Vélhjólasport Þáttur um keppni vélhjólakappa sem fram fór um síðustu helgi. 13.20 Út og suður (12:12) Mynd- skreyttur spjallþáttur þar sem farið er vítt og breitt um landið og brugðið upp svip- myndum af fólki. 18.00 Táknmálsfréttir 18.10 Enn og aftur (8:19) (Once and Again) 18.54 Lottó 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.40 Fjölskylda mín (9:13) (My Family II) Aðalhlutverk: Robert Lindsay, Zoë Wanamaker, Kris Marshall, Daniela Denby-Ashe og Gabriel Thompson. 20.15 Póstur til þín (You’ve Got Mail) Rómantísk gamanmynd frá 1998 um tvo bóksala sem eiga í harðri samkeppni en eru um leið í innilegu tölvupóstsam- bandi án þess að vita deili hvort á öðru. Leikstjóri: Nora Ephron. Aðalhlutverk: Tom Hanks, Meg Ryan, Greg Kinnear og Parker Posey. 22.15 Gregory og stúlkurnar (Gregory’s Two Girls) Bresk bíómynd frá 1999 um kennara sem lætur sig dreyma um náið samneyti við unglingsstúlkurnar sem hann kennir. Leikstjóri: Bill Forsyth. Aðalhlutverk: John Gordon Sinclair, Carly McKinnon, John Murtagh, Hugh McCue og Dougray Scott. 0.10 Barnaby ræður gátuna - Ritað með blóði (Midsomer Murders: Written in Blood) Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. Aðalhlutverk: John Nettles, Daniel Casey, Jane Booker, Joanna David og Anna Massey. e. 1.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok Stjörnupar hvíta tjaldsins Meg Ryan og Tom Hanks fara enn aftur á kostum í þessari róman- tísku gamanmynd sem er frá ár- inu 1998. Myndin fjallar um tvo bóksala sem eiga í harðri sam- keppni en eru um leið í innilegu tölvupóstsambandi án þess að vita deili hvort á öðru. Leikstjóri myndarinnar er Nora Ephron og með önnur hlutverk fara Greg Kinnear og Parker Posey. Póstur til þín „Þar var okkur tilkynnt að búið væri að sanna að snilligáfan dræpist í hjónaband- inu.„ Gosford Park 18 8.00 Barnatími Stöðvar 2 Í Erilborg, Dagbókin hans Dúa, Tiddi, Biblíusögur 9.50 Beethoven’s Third (Beethoven þriðji) Bráðskemmtileg gamanmynd. 11.30 Yu Gi Oh (32:48) (Skrímslaspil- ið) 12.00 Bold and the Beautiful 13.40 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) 14.05 Afleggjarar - Þorsteinn J. (7:12) 14.30 Diana Krall - Live in Paris 15.30 Taken (2:10) (Brottnumin) 16.55 Monk (11:12) (Mr. Monk Meets The Red-Heeded Stranger) Sveitasöngv- arinn Willy Nelson er gestur þessa þáttar. Willy er grunaður um að hafa myrt um- boðsmann sinn en sönnunargögnin eru ótraust þar sem vitnið er blind kona. Monk er staðráðinn í að hreinsa nafn Willys þar sem hann var í miklu uppá- haldi hjá látinni eiginkonu hans. 17.40 Oprah Winfrey 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.55 Lottó 19.00 Friends 6 (24:24) (Vinir) 19.30 Whispers: An Elephant’s Tale (Saga fílsins) Kvikmynd fyrir alla fjölskyld- una. Hún segir frá fíl og uppvexti hans í frumskóginum, en þar eru hættur við hvert horn. Aðalhlutverk: Angela Bassett, Anne Archer, Joanna Lumley, Debi Derryberry. Leikstjóri: Dereck Joubert. 2000. 20.45 Gosford Park Gamansöm glæpasaga. McCordle-fjölskyldan býður til mannfagnaðar á sveitasetri sínu í Englandi árið 1932. Húsbóndinn William er velgjörðarmaður margra sem þangað eru mættir og flestir vilja meira af auðæf- um gestgjafans. En hversu langt er fólk tilbúið að ganga til að koma ár sinni vel fyrir borð? Aðalhlutverk: Kristin Scott Thomas, Maggie Smith, Michael Gambon. Leikstjóri: Robert Altman. 2001. 23.05 An Innocent Man (Saklaus mað- ur) Spennumyd um flugvirkjann Jimmie sem verður fyrir barðinu á tveimur mútu- þægum þrjótum frá fíkniefnalögreglunni. .Aðalhlutverk: F. Murray Abraham, Tom Selleck, Laila Robins. Leikstjóri: Peter Yates. 1989. 0.55 Raging Bull (Hnefaleikakappinn) Erfiðasti andstæðingur hnefaleika- kappans Jakes Lamotta var hann sjálfur. Aðalhlutverk: Joe Pesci, Robert De Niro, Cathy Moriarty. Leikstjóri: Martin Scor- sese. 1980. Stranglega bönnuð börnum. 3.00 Gunfight at the O.K. Corral (Byssubardaginn) Wyatt Earp er lögreglu- stjóri í villta vestrinu á 19. öld sem eltist við alls kyns skúrka. Einn þeirra er tann- læknirinn Doc Holliday sem nú er for- hertur fjárhættuspilari. En þegar Earp kemur Holliday til bjargar breytist viðhorf þess síðarnefnda. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Kirk Douglas, Rhonda Fleming. Leikstjóri: John Sturges. 1957. 5.00 Friends 6 (24:24) 5.25 Tónlistarmyndbönd SJÓNVARP Breska sjónvarpsstöðin BBC3 hefur fengið leyfi söngvar- ans Shaun Ryder til þess að elta hann á röndum í fjóra mánuði. Ástæðan fyrir því er að stöðin ætlar að gera heimildamynd um líf söngvarans. Eða öllu heldur ætla dagskrágerðarmenn að kom- ast til botns í því af hverju maður- inn sé enn á lífi miðað við sukklíf- erni og magn eiturlyfja sem hann á að hafa innbyrt um ævina. Shaun Ryder var söngvari Happy Mondays á sínum tíma en eftir það stofnaði hann sveitina Black Grape. Hann hefur alla tíð verið umdeildur og mikið fjallað um rokklíferni hans í breskum fjölmiðlum. Hann er einnig oft nefndur sem einn af brautryðj- endum „Manchester bylgjunnar“ sem reið yfir Bretland á tíunda áratuginum. Leikstjóri myndarinnar verður Richard Macer sem kallar Ryder „lifandi goðsögn“ og „eina af lit- ríkari persónum rokksins“. ■ SHAUN RYDER Hefur líklegast séð fleiri daga undir ein- hverskonar áhrifum en allsgáðum augum. BBC3: Heimildamynd um Shaun Ryder Foreldrar - Elskum börnin okkar Veist þú hvað unglingurinn þinn ætlar að gera um verslunarmannahelgina?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.