Fréttablaðið - 02.08.2003, Síða 15

Fréttablaðið - 02.08.2003, Síða 15
15LAUGARDAGUR 2. ágúst 2003 GOLF Sérfræðingar Sports Illu- strated hafa tekið saman laus- lega úttekt á því sem þeir kalla „fáránlegar reglur í golfi.“ Með því helsta sem þeir týndu til er meðal annars það að danski kylf- ungurinn, Thomas Björn, hefði að líkindum unnið opna breska meistaramótið í golfi ef ekki hefði verið fyrir tvö víti sem hann fékk dæmd á sig á fyrsta degi mótsins. Eftir að hafa mis- tekist högg úr sandglompu, þannig að golfboltinn lá enn í sandinum, lamdi Daninn kylfu sinni í sandinn í andartaksbræði en það er kallað að „kanna ástand glompunnar“ og er bann- að. Eitt víti þar handa Birni. Hins vegar, ef að hann hefði stutt sig við kylfu sína í sandin- um til að bjarga sér frá falli; ekkert víti. Mark Roe kláraði 18. holu á opna breska mótinu við dynjandi lófatak áhorfenda, enda með tveg- gja högga forskot á næsta mann á þriðja degi mótsins. Brosið hvarf þó fljótlega þegar ljóst varð að hann hafði gleymt að skiptast á skorkorti við spilafélaga sinn, Sví- ann Jesper Parnevik, eins og regl- ur kveða á um. Báðir voru dæmd- ir úr keppni. Bandaríkjamaðurinn Jeff Maggert hitti illa högg úr glompu á öðrum degi meistara- mótsins bandaríska svo kúlan endurkastaðist af bakkanum og í bringu Maggerts. Það þýddi tvö víti og hann komst ekki áfram í úrslit keppninnar. ■ Lausleg úttekt á golfíþróttinni: Merkilegar reglur ANNIKA Í SANDGLOMPU Margvíslegar reglur eru til um högg úr sandi. Evrópukeppni einstaklinga í golfi: Íslensku liðin valin GOLF Evrópukeppni einstaklinga í golfi karla fer fram í Skotlandi dagana 20. - 23. ágúst næstkom- andi og hefur landsliðsþjálfarinn í golfi, Staffan Johansson, valið hóp bæði í karla- og kvennaflokki. Í karlahópnum eru Birgir Már Vigfússon GR, Guðmundur Ingvi Einarsson GR, Heiðar Davíð Bragason GKJ og Sigurpáll Geir Sveinsson GA. Kvennaflokkurinn spilar á Shannon vellinum á Írlandi 27. - 30. ágúst og er liðið skipað þeim Helenu Árnadóttur GA og Nínu Björk Geirsdóttur GKJ. ■ GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Nú styttist óðum í að deildakeppnin hefjist á Englandi. Óþolinmæði í Barnsley: Gavin Ward farinn FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Barnsley, er orðinn óþreyjufullur eftir að Gavin Ward markvörður, sem verið hefur við æfingar hjá Barnsley undanfarna daga, hefur fært sig um set til Coventry í von um saming þar. Er því orðið brýnt fyrir forráðamenn Barnsley að aflétta banni enska knattspyrnusambandsins af liðinu til að hægt sé að ganga frá samn- ingum við þá leikmenn sem Guð- jón hefur hug á að fá fyrir leiktíð- ina. ■ HERMANN HREIÐARSSON Var seldur frá Ipswich til Charlton. Er kom- inn á ný í baráttuna í úrvalsdeildinni. Hermann Hreiðarsson: Stendur fyrir sínu FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, átti góðan leik þegar Charlton gerði 2- 2 jafntefli við Plymouth í æfinga- leik. Hermann var í byrjunarlið- inu og samkvæmt heimasíðu Charlton stóð hann fyrir sínu. „Hreiðarsson sýndi enn og aft- ur hversu megnugur hann er í loftinu þegar hann sveif tignar- lega og skallaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu Parkers. En því miður dæmdi dómarinn á Íslend- inginn fyrir að klifra upp á and- stæðing, dómur sem ekki var hægt að mótmæla,“ segir meðal annars á heimasíðu Charlton. Þó nokkrir æfingaleikir eru fyrirhugaðir hjá Charlton áður en enska úrvalsdeildin hefst. Fyrsti leikur Charlton á tímabilinu verð- ur heimaleikur gegn Manchester City þann 17. ágúst. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.