Fréttablaðið - 25.08.2003, Blaðsíða 28
heimili o.fl.
V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heimili@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Edda Ársælsdóttir og Angantýr Val-ur Jónasson búa ásamt börnum
sínum fimm í fallegu raðhúsi í Smára-
hverfinu. Það sem er sérstakt við
heimili fjölskyldunnar er að þar er
rekaviður úr lerki á gólfum í stað
hefðbundins parketts, sem gerir íbúð-
ina sérlega hlýlega og sjarmerandi.
Það er þó heldur meiri fyrirhöfn að fá
timbur sem hefur rekið úti á heimsins
höfum í stofuna hjá sér en að skreppa
út í næstu byggingavöruverslun.
„Við töluðum við bónda á Krossanesi
í Norðurfirði á Ströndum,“ segir Edda.
„Hann sagaði fyrir okkur þennan við og
svo létum við þurrka hann og vinna í
Byko. Við þurftum að bíða í nokkra
mánuði til þess að fá þetta gert því það
tók þrjár vikur að þurrka en svo þurfti
að bíða í aðrar þrjár áður en hægt var
að leggja þetta á gólfið. Viðurinn þarf
að þorna svo rosalega vel þar sem hann
er búinn að liggja svo lengi í sjó.“ Eftir
að viðurinn var loksins tilbúinn á gólfið
var hann pússaður upp og lakkaður.
„Ég veit að bændurnir á Ströndum eru
farnir að selja meira af rekaviði en
bara í girðingarstaura. Það eru kannski
meiri verðmæti í þessu en þeir áttuðu
sig á fyrst.“
Auk þess að rekaviður sé á gólfum
er eldhúsborðið sömuleiðis sérsmíðað
úr rekaviði. Það er þungt og mikið.
„Mér fannst gott að fá svona stórt og
gott borð, það er alveg massíft.“ Inn-
réttingar og húsgögn á heimilinu eru
líka flest úr viði, þó ekki rekaviði.
„Mér finnst það gefa lífinu ákveðið
gildi að hafa svona lifandi við í kring-
um sig,“ segir Edda, sem er afar
ánægð með útkomuna og segist vel
geta hugsað sér að bæta við enn meiri
rekaviði. „Ég fylltist einhvers konar
stolti þegar ég fékk þennan rekavið
inn í húsið. Mér fannst líka koma góð-
ur andi hingað inn því viðurinn hefur
sögu, hefur rekið alla leið frá Síberíu
– kannski lengra frá. ■
RÓMANTÍSKT BAÐHERBERGI
Einföld og falleg baðherbergisinnrétting
úr viði. Baðkarið lét Edda sprauta grænt
á bílaverkstæði.
Heima hjá Eddu Ársælsdóttur/
Rekaviður
í hólf og gólf
HUGGULEGT VIÐ MORGUNVERÐARBORÐIÐ
Eldhúsborðið, sem er þungt og mikið, er sérsmíðað úr rekaviði.
ELDHÚSINNRÉTTING ÚR VIÐI
Edda segir að það gefi lífinu ákveðið gildi að
hafa lifandi við í kringum sig.
HLÝLEG OG SJARMERANDI STOFA
Rekaviður á gólfum í stað hefðbundins parketts.