Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 2
2 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Já. Þar sem er reykur þar er eldur.
Karl Th. Birgisson skrifaði blaðagrein á dögunum
þar sem hann bar lof á Viceroy sígarettur. Í nýrri
löggjöf um tóbaksvarnir segir að ekki megi fjalla
um sérstakar tóbakstegundir nema til að vara við
skaðsemi þeirra.
Spurningdagsins
Karl, áttu eld?
Bílsprengja sprakk við bænahús í Írak:
Þekktasti leiðtogi
Sítamúslima fórst
BAGDAD, AP Að minnsta kosti 75 lét-
ust og yfir 140 særðust þegar bíl-
sprengja sprakk fyrir framan
bænahús Sítamúslima í hinni
helgu borg Najaf í Írak í gær-
morgun. Sprengjan sprakk við
Iman Ali moskuna, rétt eftir að
föstudagsbænum lauk og var mik-
ill manfjöldi fyrir framan mosk-
una.
Meðal þeirra sem fórust var
einn þekktasti leiðtogi sítamúslí-
ma í Írak, Mohammed Baqr al-
Hakim. Réttur hálfur mánuður er
síðan dagblöð í Írak skýrðu frá
því að al-Hakim hefði fengið
morðhótanir. Enginn hefur enn
lýst ábyrgð á hendur sér en
Sítamúslimar segja fylgismenn
Saddams Husseins, fyrrum Íraks-
forseta, standa að baki morðinu.
Rúmar 24 milljónir manna búa í
Írak og eru 60% þeirra Síta-
múslimar. Árásir á Sítamúslima
hafa verið tíðar að undanförnu.
Tæp vika er síðan Mohammed al-
Sadr var sýnt banatilræði. Þrír lét-
ust í árásinni. ■
Átökin um Straum:
Farið yfir
stöðuna
VIÐSKIPTI Fulltrúar Íslandsbanka og
Landsbanka funduðu í gær í kjölfar
átakanna um Straum. Landsbankinn
og Samson eiga um 34% Í Straumi
og Íslandsbanka og tengdir aðilar
ráða yfir um 32%. Samkvæmt heim-
ildum eru Íslandsbankamenn ósátt-
ir við atburði vikunnar og létu hana
í ljós á fundinum.
Markmið viðræðnanna er að
eyða tortryggni á milli hópanna og
marka stefnu um samstarf í
Straumi sem sátt er um. Menn
munu ræða áfram saman og telja
að auðveldara verði að ná saman
þegar ryk atburðarásarinnar hefur
sest. ■
Enn ráðist á
hernámsliðið í Írak:
Einn féll
og fjórir
særðust
ÍRAK, AP Bandarískur hermaður
féll og að minnsta kosti fjórir
særðust þegar uppreisnarmenn
réðust á bílalest hermannanna
skammt frá borginni Baqouba, 70
kílómetra norðaustur af Bagdad,
höfuðborg Íraks. Alls hafa 282
Bandarískir hermenn fallið í
Íraksstríðinu, þar af 67 frá form-
legum stríðslokum 1. maí. Mann-
fall í röðum breskra hermanna er
mun minna eða samtals 49, þar af
hafa 11 fallið frá 1. maí. ■
PAKKAR SAMAN
Alastair Campbell, upplýsingafulltrúi Tony
Blair, segist vera þakklátur fyrir þann tíma
sem hann hafi unnið við hlið Blair.
Alastair Campbell:
Tryggur
þjónn lætur
af störfum
LUNDÚNIR, AP Alastair Campbell,
upplýsingafulltrúi Tony Blair,
ætlar að segja af sér á næstu vik-
um, að sögn breska forsætisráðu-
neytisins. Hvorki liggur fyrir
hvenær hann mun láta af embætti
né hver verði eftirmaður hans.
Campbell hefur verið ásakaður
um að hafa gert breytingar á
skýrslum bresku ríkisstjórnarinn-
ar um vopnaeign Íraka til að rétt-
læta hernaðaraðgerðir gegn Írak.
Hann hafnaði þessum ásökunum
þegar hann bar vitni í tengslum við
rannsókn á dauða vopnasérfræð-
ingsins David Kellys.
Í yfirlýsingu frá Campbell seg-
ir hann ástæðu afsagnarinnar
tengjast fjölskyldumálum. Hann
segist ætla að einbeita sér að
skriftum og halda ræður og fyrir-
lestra. Campbell fullyrðir að hann
hafi íhugað að láta af störfum í
rúmt ár og endanleg ákvörðun hafi
verið tekin þegar í byrjun apríl.
Campbell hefur starfað við hlið
Blair síðan árið 1994.
„Sá Alastair Campbell sem ég
þekki er mjög fær, óttalaus og
tryggur þjónn þess málstaðar sem
hann trúir á. Hann er sterkur per-
sónuleiki sem getur eignast óvini
en þeir sem þekkja hann best
kunna vel við hann“ sagði Blair. ■
Kjötneysla eykst:
Hvítt
vinsælla
en rautt
NEYTENDAMÁL Á fyrstu sjö mánuð-
um ársins hefur kjötneysla lands-
manna aukist um 7,5%. Sala á
rauðu kjöti, þ.e. kindakjöti og
nautakjöti hefur hins vegar dreg-
ist saman, samkvæmt Hagstofu Ís-
lands.
Nautakjötssala hefur dregist
saman um 4,5% og kindakjötssala
hefur dregist saman um 5,5%. Á
sama tíma hefur sala á svínakjöti
aukist um 8,8% og sala á fuglakjöti
um 7,4%. Þetta þýðir að árssala á
svínakjöti er orðin meiri en árssala
á kindakjöti.
Samkvæmt Hagstofunni borðar
hver Íslendingur að meðaltali um
70 til 80 kíló af kjöti á ári eða um
200 grömm á dag og er þá ekki tal-
in neysla á villibráð og hvalkjöti. ■
PERSÓNUVERND Lyfjastofnun hefur
verið fyrirskipað af Persónu-
vernd að eyða gagnagrunni sínum
um lyfjaneyslu einstaklinga.
Úttekt Persónuverndar á
vinnslu persónuupplýsinga hjá
Lyfjastofnun leiddi í ljós víðtæka
ólögmæta vinnslu persónuupplýs-
inga um lyfjakaup. Lyfjastofnun
hafi verið heimilt að safna upplýs-
ingum um svokölluð eftirritunar-
skyld lyf. Hins vegar hafi stofn-
unin ekki mátt skrá persónuupp-
lýsingarnar um lyfjaneyslu í
gagnagrunn. Það verður að eyða
grunninum fyrir 1. janúar 2005.
Að því er segir í niðurstöðum Per-
sónuverndar eru öryggismál
Lyfjastofnunar ófullnægjandi.
Stofnunin verði, fyrir 1. febrúar á
næsta ári, að hafa tryggt viðhlít-
andi öryggi við vinnslu persónu-
upplýsinga um sölu og neyslu eft-
irritunarskyldra lyfja. Meðal þess
sem þurfi að gera er að koma á
innra eftirliti, gera skriflegan
samning við Nýherja hf. sem hýs-
ir sumar upplýsingar fyrir stofn-
unina og tryggja öryggi innra nets
stofnunarinnar. ■
Gylliboð um síma á
bjagaðri ensku
Dæmi eru um að fólk fái símhringingar erlendis frá með gylliboðum
um fjárfestingatækifæri. Sölumennirnir hringja ítrekað og jafnvel um
miðjar nætur. Fjármálaeftirlitið segir ástæðu til að vera á varðbergi.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI
Embætti ríkislögreglustjóra berast
vikulega nokkrar ábendingar um
vafasöm fjárfestingartilboð erlendra
aðila til Íslendinga í gegnum síma.
LYF
Lyfjastofnun býr til ólöglega gagnag
runna og uppfyllir ekki öryggiskröfur,
segir Persónuvernd,
SÍTAMÚSLIMAR
Bálillir Sítamúslimar mótmæltu á dögun-
um við höfuðstöðvar Bandaríkjanna í
Bagdad og sögðu Bandaríkjamenn hvorki
vilja né geta gætt öryggis sítamúslima. Þá
hafði sprengja sprungið við heimili
Sítaleiðtogans Mohammed al-Sadr. Annar
Sítaleiðtogi var myrtur í sprengjutilræði í
Najaf í gærmorgun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
RÓ
B
ER
T
Spennandi tækifæri
Til leigu húsnæði
fyrir sjúkraþjálfun og sjúkranudd
Í Egilshöllinni er lögð áhersla
á íþróttaiðkun, afþreyingu og ýmsa þjónustu.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband í síma 568 9600 eða pall@egilshollin.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
O
L
21
95
9
0
8/
20
03
FJÁRMÁL „Við höfum fengið tugi
símhringinga og það dugir ekki að
segja nei,“ segir Ólafur Magnús
Magnússon, sölu- og markaðs-
stjóri, sem hefur orðið fyrir áreiti
af völdum erlendra sölumanna
sem vilja selja honum hlut í fjár-
festingafyrirtæki. Sölumennirnir
tala bjagaða ensku og segjast vera
frá Japan. Þeir segjast veita við-
mælendum sínum einstakt tæki-
færi til að fjárfesta í framrás
þriðju kynslóðar farsíma.
Ólafur hefur margneitað fjár-
festingatilboðinu, en enn er haldið
áfram að hringja frá sama aðila.
„Þau hringja að næturlagi, jafnvel
með klukkutíma millibili. Stund-
um hringir kona, og stundum
maður.“
Sölumennirnir hafa hringt í
eiginkonu hans, bróður og dætur,
auk þess að hafa ítrekað sent fax á
vinnustað eiginkonunnar.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir tilboð
um fjármálaþjónustu erlendis frá
berast í vaxandi mæli til Íslands og
misjafnt hversu verð traustsins
þau eru. „Það er ástæða til að biðja
fólk um að vera á varðbergi. Í sum-
um tilfellum hefur þessi starfsemi
ekki tilskilin leyfi og lýtur ekki
þeim lögum og reglum sem stuðla
að hagsmunum viðskiptavinanna.“
Embætti ríkislögreglustjóra
berast tilkynningar um vafasöm
fjárfestingatilboð nokkrum sinn-
um í viku. „Fólkið er að bjóða allt
mögulegt, til dæmis hlutabréf í
fjarskiptafyrirtækjum og tölvu-
fyrirtækjum. Þá þarf gjarnan að
leggja fram peninga til að taka þátt
og stundum eru send mjög sann-
færandi gögn um viðskiptin. Heilu
hóparnir gera mjög skipulega út á
að svíkja fé út úr tilteknum stétt-
um í tilteknum löndum,“ segir
Arnar Jensson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra.
Aðeins er um ein og hálf vika
síðan fjármálaeftirlitið varaði við
tveimur fyrirtækjum sem höfðu
ekki starfsleyfi sem fjármálafyrir-
tæki á Íslandi. Fjármálaeftirlitið
mælir með því að fólk hafi sam-
band ef vafasöm viðskiptatilboð
berast.
jtr@frettabladid.is
Lyfjastofnun fór út fyrir heimildir:
Gagnagrunni um
lyfjatöku skal eytt
Forsætisráðherra Dan-
merkur veldur fjaðrafoki:
Gagnrýnir
fyrirrennara
DANMÖRK Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur,
gagnrýnir harðlega undirlægjuhátt
danskra stjórnmálamanna þegar
landið var hernumið af Þjóðverjum
í síðari heimsstyrjöldinni, í um-
deildri grein sem birtist í dagblað-
inu Politiken.
Greinin hefur vakið mikla at-
hygli enda er þetta í fyrsta sinn
sem danskur forsætisráðherra tjáir
sig á þennan hátt um samstarf fyr-
irrennara sinna við þýska hervald-
ið. Fogh ásakar dönsku ráðamenn-
ina fyrir að hafa svikið lýðræðið og
segir að í stað þess að gæta hlut-
leysis hafi þeir lagt sig fram um að
þóknast innrásarliðinu.
Margir af virtustu sagnfræðing-
um Danmerkur hafa gert athuga-
semdir við grein forsætisráðherr-
ans og bent á að hann sé ekki fær
um að dæma gjörðir manna við þær
aðstæður sem ríktu á tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Fogh er enn-
fremur gagnrýndur fyrir að fara
frjálslega með staðreyndir. ■