Fréttablaðið - 30.08.2003, Síða 6
6 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 80.35 0.04%
Sterlingspund 126.9 0.83%
Dönsk króna 11.79 0.71%
Evra 87.57 0.68%
Gengisvístala krónu 125,710,34%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 432
Velta 3.764 milljónir
ICEX-15 1.760 0,54%
Mestu viðskiptin
Eimskipafélag Íslands hf. 187.144.468
Sjóvá-Almennar hf. 182.823.617
Össur hf. 160.476.146
Mesta hækkun
Opin kerfi hf. 8.57%
Nýherji hf. 5.88%
Jarðboranir hf. 5.41%
Mesta lækkun
Aco Tæknival hf. -11.11%
Vátryggingafélag Íslands hf. -3.45%
Marel hf. -2.56%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 9.393,7 0,2%
Nasdaq*: 1.807,2 0,4%
FTSE: 4.161,1 -0,9%
DAX: 3.484,6 -0,2%
NK50: 1.360,4 0,2%
S&P*: 1004,4 0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Málverk eftir einn frægasta listmálarasögunnar var stolið í vikunni. Hvað
heitir málarinn?
2Í hvaða klaustri dvaldi HannesHólmsteinn Gissurarson fyrir
skömmu?
3Hvaða miðvallarleikmann var knatt-spyrnuliðið Chelsea að kaupa í fyrra-
dag?
Svörin eru á bls. 39
ORKUVINNSLA Þorsteinn Hilmars-
son, upplýsingafulltrúi Lands-
virkjunar, segir fyrirtækið ekki
munu blanda sér í samskipti verk-
taka og starfsmanna þeirra við
Kárahnjúkavirkjun.
Þorsteinn segir að þegar
Landsvirkjun semji við vertaka sé
ævinlega kirfilega frá því gengið
að íslenskum lögum og kjara-
samningum sé fylgt í hvívetna.
Það sé síðan á ábyrgð verktak-
anna að standa skil á því að fara
að lögum og annast samskipti sín
við launþega. „Þetta er fullorðið
fólk sem á að kunna fótum sínum
forráð,“ segir hann.
Þrátt fyrir þetta hefur Lands-
virkjun, að sögn Þorsteins, þrýst á
að vinnubúðum starfsmanna
verði komið upp eins og áætlanir
segi til um. Það liggi fyrir að tafir
hafi orðið á afgreiðslu erlendis á
hlutum í búðirnar og skilningur sé
á því.
„Ef verktakinn hins vegar lenti
í því að stjórnvöld lokuðu vinnu-
búðum vegna þess að þær væru
ekki í lagi og framkvæmdir stöðv-
uðust af þeim sökum gæti það á
endanum orðið samningsrof við
okkur. Það yrði þá að skoðast, en
það er langur vegur í það. Það
hlýtur að vera áhugamál allra
aðila að þessi atriði séu í lagi og
þróunin virðist vera í þá átt.“ ■
Kostuðu tæplega
70.000 manns lífið
PERÚ, AP Að minnsta kosti 69.000
manns létu lífið eða hurfu í átök-
um stjórnvalda og uppreisnar-
manna í Perú á 20 ára tímabili.
Í nýrri skýrslu rannsóknar-
nefndar segir að lögregla, her og
skæruliðasamtökin Skínandi stíg-
ur stunduðu fjöldamorð, pynting-
ar og aftökur í aðgerðum sínum
sem hófust í maí árið 1980 og lauk
ekki fyrr en í nóvember árið 2000.
Þá hvarf fólk í stórum stíl á sama
árabili. Áður höfðu mannréttinda-
samtök áætlað að átökin hefðu
kostað allt að 30.000 manns lífið.
Rannsóknarnefnd skipuð tólf
mönnum tók til starfa árið 2001.
Síðan hefur nefndin tekið
skýrslur af 17.000 manns, þeirra á
meðal leiðtogum uppreisnar-
manna sem sitja í fangelsi. Nöfn
32.000 fórnarlamba átakanna eru
birt í skýrslunni en fullyrt er að
fórnarlömbin séu 69.280, stærstur
hluti fátækir bændur. Skýrsla
nefndarinnar er mikil að vöxtum
en einungis lítill hluti hennar
verður birtur almenningi.
Rannsóknarnefndin segir
skæruliðasamtökin Skínandi stíg
ábyrg fyrir stærstum hluta dráp-
anna og samtökunum er einnig
kennt um upphaf átakanna.
Andúð samtakanna á Inkum, of-
beldi gegn þeim og dráp í kjölfar
þess að Inkar neituðu að ganga
til liðs við Skínandi stíg og ræna
völdum í Perú, eru rót þessarar
blóðugu borgarstyrjaldar.
Lögregla og her landsins eru
einnig gagnrýnd harkalega fyrir
sinn hlut, sem nefndin kallar
glæpi gegn mannkyninu.
„Því miður hefur rannsókn
okkar leitt í ljós að herinn og lög-
reglan frömdu mannréttindabrot
og jafnvel glæpi gegn mannkyn-
inu,“ sagði
Salomon Lerner, formaður
rannsóknarnefndarinnar.
Þremur fyrrverandi forsetar
Perú, þeir Fernando Belaunde,
Alan Garcia og Alberto Fujimori
eru allir sagðir bera ábyrgð á
grimmdarverkum gegn almenn-
ingi í landinu.
the@frettabladid.is
Eiturlyfjahringur
upprættur:
Ólögleg sala
alnæmislyfja
NEW JERSEY, AP Yfirvöld í Banda-
ríkjunum hafa upprætt eiturlyfja-
hring sem keypti alnæmislyf af
eiturlyfjaneytendum og seldi þau
lyfsölum. Borgað var fyrir al-
næmislyfin með heróíni eða
reiðufé.
Forsprakki hópsins, Alberto
Castane, hefur verið ákærður fyr-
ir að standa fyrir skipulagðri
verslun með eiturlyf og ólöglegan
vopnaburð. Fjórir aðrir hafa verið
handteknir.
Að sögn lögreglu stóðu menn á
vegum Castane fyrir utan heilsu-
gæslustöðvar í New York sem út-
deila ókeypis alnæmislyfjum og
buðu eiturlyfjaneytendum sem
svarar um 16.000 íslenskum krón-
um eða heróínskammt í skiptum
fyrir lyfin. ■
Hrefnuveiðar Íslendinga:
Þrettán
veiddar
HVALVEIÐAR Áhöfn Halldórs Sig-
urðssonar ÍS veiddi 7,4 m hrefnu
og hefur því veitt fimm hrefnur
eins og áhöfnin á Sigurbjörgu. Er
þetta þrettánda hrefnan sem
veidd er síðan að áætlun um hval-
veiðar í rannsóknarskyni hófust
að nýju.
Eins og komið hefur fram
gerðu áætlanir Hafrannsókna-
stofnunnar ráð fyrir að 20 hrefnur
yrðu veiddar í ágústmánuði og
vantar því enn talsvert upp á að
það markmið náist. ■
Svæði þar sem búast má við talsverðri vætu eru skyggð á kortinu. Minniháttar úrkoma er táknuð með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi.
BLÁBER
OG SKYR
Það gengur af-
spyrnu illa að fá
sólina til að skína
hér í höfuðborginni
þessa dagana enda
þótt ég reyni hvað
ég get. Áfram verður
þungbúið vestan til
á landinu þar á
meðal hér í Reykja-
víkinni Góðu
tíðindin eru að það
verður úrkomulítið
eða jafnvel úrkomu-
laust. Aukinheldur
hægur vindur og
milt. Það er því
tilvalið að fara til
berja, því brátt
koma næturfrostin.
Bláber og skyr
.mmmm.
Kaupmannahöfn 16°C sk. m. köflum
London 18°C sk. m. köflum
París 20°C sk. m. köflum
Berlín 18°C sk. m. köflum
Algarve 26°C sk. m. köflum
Mallorca 28°C sk .m. köflum
Torrevieja 32°C sk. m. köflum
Krít 31°C sk. m. köflum
Kýpur 32°C sk. m. köflum
Róm 23°C sk. m. köflum
New York 28°C þrumur
Miami 31°C þrumur
Mánudagur
Sunnudagur
+11
+12
+14
+11
+13
+15
+14
+13
+13
+12
+12
+14
+15+12
+12
+14
+15+13
Víða nokkur strekkingur, síst á
Austurlandi.
Víðast hægur vindur og
súld með köflum.
+11
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Strekkingur
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Landsvirkjun stendur utan deilunnar:
Fullorðið fólk
við Kárahnjúka
LANDSVIRKJUN
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir langan veg frá því að
Impregilo hafi brotið samninga um virkjun við Kárahnjúka.
HREFNUVEIÐAR:
Halldór Sigurðsson ÍS 5 hrefnur
Sigurbjörg BA 5 hrefnur
Njörður KÓ 3 hrefnur
Bæjarlind 2
Kópavogi
: 544 2210
www.tsk.is
Öryggi upplýsingakerfa A til Ö
Mjög sérhæft og ítarlegt 180 kennslustunda nám haldið í samstarfi við
áhættuþjónustudeildDeloitte &Touche.
Tekið er á öllum þáttum öryggis upplýsingakerfa s.s. dulkóðun og PKI,
samskiptaöryggi, notendaöryggismál, viðbrögð við óæskilegum
aðstæðum, forvarnir, gerð öryggisstefna o.fl.
Unnið verður með vélbúnað og hugbúnað sem notaður er til að tryggja
öryggi í nútíma upplýsingakerfum, t.d. Cisco, Microsoft, Linux,
Checkpoint, ISS Scanner, Nmap, Netcat, Neotrace, TCPdump og Snort.
Einnig verður árásarbúnaður eins og L0pht, Netbus, Sub Seven,
Keylogger, Crackog fleiri skoðaðir.
Þessi námsbraut er fyrst og fremst fyrir starfandi kerfisstjóra í
meðalstórum og stærri fyrirtækjum og stofnunum sem og starfsmenn
tölvuþjónustufyrirtækja.
Þátttakendur þurfa að hafa amk. 2ja ára starfsreynslu sem kerfisstjórar
auk góðrar enskukunnáttu.
Hægt er að velja um eftirfarandi tíma:
Mánudaga og miðvikudaga, 13:00 - 17:00, byrjar 8. sept.
Þriðjudaga og fimmtudaga, 08:30 - 12:30, byrjar 9. sept.
Helgarnám, kennt er föstudaga, laugardaga og sunnudaga, aðra
hverja helgi, alls 6 helgar, byrjar 19. sept.
Námslýsing:
Fyrir hverja?
Kennslutímar:
Leiðbeinendur:
Sérfræðikennari á öryggissviði,MCSE:Security, CISSP
Sérfræðingur frá áhættuþjónustudeildDeloitte &Touche,MCSE,CCA
Linux og IDSsérfræðingur frá Deloitte &Touche,RHCE
Löglærður fulltrúi frá efnahagsbrotadeildRíkislögreglustjóra
Eldveggjasérfræðingur, CCSA,CCSE
Dulkóðunarsérfræðingur
Cisco sérfræðingur frá Sensa, CCIE
Veiruvarnasérfræðingur frá Friðrik Skúlasyni
Opið hús laugardaginn 30. ágúst 13 - 16
BITUR SANNLEIKURINN BIRTUR
Forseti Perú, Alejandro Toledo, kynnir
skýrslu rannsóknarnefndar um borgarstyrj-
öldina sem stóð yfir í Perú 1980 til 2000.
Tæplega 70.000 manns létust eða hurfu í
átökunum sem eru sögð þau blóðugustu í
Rómönsku-Ameríku.
NÝR AÐSTOÐARMAÐUR Björn
Ingi Hrafnsson, skrifstofustjóri
þingflokks framsóknarmanna,
hefur verið ráðinn nýr aðstoðar-
maður Halldórs Ásgrímssonar ut-
anríkisráðherra. Björn Ingi starf-
aði um árabil við blaðamennsku.
■ Innlent
Átök stjórnvalda og uppreisnarmanna í Perú sem stóðu í tvo áratugi
kostuðu ríflega tvöfalt fleiri lífið en mannréttindasamtök höfðu áætlað.
Her og lögregla landsins eru sökuð um glæpi gegn mannkyninu.