Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 8

Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 8
8 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR ■ Leiðrétting ENN EITT VÍGIÐ FALLIÐ „Þannig höfum við sýnt fram á að það er ekki heitara undir Ís- landi en annars staðar.“ Dr. Gillian R. Foulger jarðfræðingur, í Morgunblaðinu 29. ágúst. Kastar mæðinni „Fylgið sem Framsóknarflokk- urinn ávann sér í kosningabar- áttunni er hrunið af honum.“ Leiðari DV, 29. ágúst. Einfalt mál „Mér finnst að Samkeppnis- stofnun hljóti að sinna sínum verkefnum og ríkislögreglu- stjóri sínum.“ Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Fréttablaðinu 29. ágúst. Orðrétt PEKING, AP „Bandaríkin segjast ekki hafa ekki í hyggju að ráðast gegn Norður-Kóreumönnum eða bola stjórnvöldum þar í landi frá völdum,“ sagði Wang Yi, aðstoð- arutanríkisráðherra Kína, að loknum þriggja daga fundi um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Sex ríki tóku þátt í viðræðun- um sem fram fóru í Peking. Sam- komulag tókst um að halda við- ræðunum áfram innan tveggja mánaða. Wang Yi segir að fulltrúar ríkjanna sex séu sammála um mikilvægi þess að Kóreuskaginn verði kjarnorkuvopnalaus. „Þá urðu aðilar ásáttir um að grípa ekki til neinna aðgerða sem auka spennuna, svo lengi sem við- ræður eru í gangi,“ sagði Wang Yi. Yi segir ríkin sammála um nauðsyn friðsamlegrar lausnar. Yfirmaður Alþjóða kjarnorku- málastofnunarinnar segir að Norður-Kóreumenn hóti öðrum þjóðum með kjarnorkuáætlun sinni og að þeim sé ekki treyst- andi. Norður-Kóreumenn hafa hótað að efla kjarnorkuvopnabúr sitt. Bandaríkjamenn krefjast þess að Norður-Kóreumenn falli frá áætlunum sínum. Yoon Young-kwan, utanríkis- ráðherra Suður-Kóreu, þingar með Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í næstu viku um árangurinn af viðræðunum. ■ Þjófar með línuívilnun SJÁVARÚTVEGSMÁL „Kjarni málsins er sá að það er þjófnaður að færa veiðiheimildir frá einum til ann- ars með þessum hætti. Ég lærði þá grundvallarkenningu í gamla kirkjuskólanum á Ísafirði að menn eiga ekki að stela,“ segir Jón Guðbjartsson, útgerðarmaður togbátsins Gunnbjarnar ÍS 302 í Bolungarvík, sem hefur risið gegn þeim áformum ríkisstjórn- arinnar að bæta hag smábáta- manna með því að færa þeim línuívilnun. Jón hefur gert út bátinn Gunn- björn, í félagi við son sinn Guð- bjart Jónsson, í rúm tíu ár. Hann segir að á þeim tíma hafi stöðugt verið gengið á þá sem eigi veiðiheimildir í gamla kvótakerfinu. Þessar millifærslur stjórnvalda hafi kostað útgerð hans lauslega reiknað hátt í 100 milljónir króna og útgerðin hafi engan veginn haft undan að kaupa kvóta. Jón útgerðarmaður nefnir sem dæmi að þegar þeir feðgar keyptu útgerðina árið 1992 hafi smábátarnir veitt sem nemur níu þúsund tonnum á ári en nú veiði þessi floti 45 þúsund tonn. „Þetta þýðir í einföldu máli að 30 þúsund tonn hafa verið færð frá einum útgerðarflokki til annars. Kvóti okkar var þegar best lét rúm 700 tonn á ári og þrátt fyrir að við höfum keypt eignarkvóta jöfnum höndum höfum við ekki undan. Nú er kvóti Gunnbjarnar 480 tonn og við erum í þeirri stöðu að þurfa stöðugt að leigja aflaheimildir til okkar. Þetta er óþolandi mismunun og þjófnaður. Ég fæ upp í kok þeg- ar ég sé að fram undan er einhver stórfundur á Vestfjörðum til þess að betla meira,“ segir Jón, sem skrifaði bæjarstjórninni bréf til að mótmæla því sem hann kallar að stela af einum til að færa öðrum. Jón bendir á að nú séu aðeins þrír bátar af þeirri stærð sem hann gerir út eftir í Bolungarvík en þeir hafi verið sextán þegar best lét. Lögbrot? Hann segir að nú stefni í að stjórnarflokkarnir samþykki að taka upp línuívilnun eins og gert sé ráð fyrir í stjórnarsáttmála. Það feli í sér enn einn þjófnaðinn. Það er gráglettin tilviljun að það er sveitungi Jóns Guðbjartssonar út- gerðarmanns, Guðmundur Hall- dórsson, trillukarl og formaður Smábátafélagsins Eldingar, sem fékk tillögu um línuívilnun samþykkta á landsfundi Sjálfstæð- isflokksins. Jón Guðbjartsson segir að mælirinn sé fyrir löngu fullur. Alþingismenn Vestfirðinga hafi gengið erinda smábátaeigenda varðandi línuívilnun án þess að hugsa málið til enda. Linnulaus áróður smábátamanna hafi skilað sér. „Þessir menn eru að vaða reyk. Ef hugmynd Davíðs Oddssonar um línuívilnun verður troðið í gegn, munum við enn einu sinni upplifa þjófnað. Ég bíð raunar spenntur eftir því að sjá hvort hann gerist þjófur eins og allir hinir. Þessi að- ferð, að taka frá okkur til að hygla öðrum, er alröng og felur í sér lög- brot. Ef Davíð Oddsson vill færa einhverjum veiðiheimildir gæti hann látið ríkissjóð kaupa til dæmis Síldarvinnsluna á Neskaupstað og færa atvinnustarfsemina vestur á firði og bjóða Vestfirðingum að kaupa. Menn verða að beita heil- brigðri skynsemi við svona milli- færslur og forðast að verða þjófar,“ segir hann. Jón útgerðarmaður segir að ekki sé nóg með að stjórnvöld dansi í kringum trillukarla heldur hagi bæjaryfirvöld í Bolungarvík mál- flutningi sínum með sama hætti. Jón hefur því hótað að færa útgerð sína og „allt sitt hafurtask“ úr bæj- arfélaginu. „Bæjarstjórnin vinnur að því öllum árum að taka af einum til að færa öðrum. Þetta mun ég ekki þola og þess vegna hef ég skrifað bæjarstjórninni þar sem ég lýsi þessum skoðunum mínum. Þeir beita sér leynt og ljóst gegn því að útgerðarflokkur sá sem ég tilheyri lifi ekki af,“ segir Jón og vitnar til þess að hólf sem voru úti af Vest- fjörðum innan landhelgi og Gunn- björn ÍS mátti veiða innan voru af- numin. Hann segir að það hafi meðal annars verið fyrir tilstilli bæjaryfirvalda sem lagst hafi á sveif með smábátaeigendum og farið á bak við sig og aðra útgerðar- menn togskipa. „Við keyptum bátinn á sínum tíma með það fyrir augum að veiða innan þessara hólfa. Niðurstaðan varð sú að þau voru afnumin. Staða okkar sem útgerðaraðila innan þessa sveitarfélags er sífellt að versna,“ segir hann. Jón Guðbjartsson segir að sér sé það gjörsamlega óskiljanlegt hvers vegna stjórnvöld gangi ítrekað eft- ir smábátamönnum með þeim hætti sem raun beri vitni. „Við erum skornir og skornir. Ég vil ekki leggja þetta á mig lengur,“ segir Jón. rt@frettabladid.is Dauði Díönu prinsessu: Rannsókn hrundið af stað BRETLAND Ákveðið hefur verið að hrinda af stað réttarrannsókn á dauða Díönu prinsessu og Dodi Al Fayed. Parið lést í bílslysi í París árið 1997. Yfirvöld í Frakklandi höfðu áður rannsakað slysið en þetta er í fyrsta sinn sem málið er tekið fyrir í Bretlandi. Michael Burgess, dánardóm- stjóri í Surrey, mun stjórna rann- sókninni sem miðar að því að varpa ljósi á staðreyndir en ekki að finna sökudólg. Talsmaður Mohammeds Al Fayed, föður Dodis, fagnaði fréttunum. Al Fayed, sem er eigandi Harrods- verslunarinnar í London og knattspyrnufélagsins Fulham, hefur árum saman krafist frekari rannsóknar á dauða sonarins og prinsessunnar. ■ Ífrétt í Fréttablaðinu, 20. júli síð-astliðinn, var fjallað um stef- gjöld og þar var sagt að 60% þess gjalds sem fyrirtæki greiða í stef- gjöld, flytji þau eða spili tónlist fyrir viðskiptavini sína, fari beint til útgefanda en ekki til listamann- anna sjálfra. Hið rétta er að þókn- un til útgefenda og listflytjenda er 60% álag á stefgjald og þeim 60% skipta útgefendur og flytjendur með sér jafnt. Með öðrum orðum, ef verslun greiðir 16 þúsund til Stefs og SFH þá er stefgjaldið tíu þúsund, þóknun til útgefenda þrjú þúsund og til flytjenda þrjú þús- und. Beðist er afsökunar á þess- um rangfærslum. Jón Guðbjartsson, útgerðarmaður í Bolungarvík, segir útgerð sína hafa tapað hundrað milljón- um króna vegna kvóta til smábáta. Hann segir bæjaryfirvöld og þingmenn ganga erinda smá- bátamanna á kostnað annarra útgerðarmanna. JÓN GUÐBJARTSSON Lýsir þeim sem standa muni að línuívilnun sem þjófum. ■ „Þetta er óþolandi mismunun.“ FÁIR Í FUNDARLOK Þungstígir ganga fulltrúar sex ríkja burt af fundi um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Kim Yong Il, aðstoðarutanríkisráðherra Norður-Kóreu, fer þar fremstur í flokki. Viðræðunum var frestað í gær en samkomulag tókst um að halda þeim áfram innan tveggja mánaða. Kjarnorkuviðræðum Norður-Kóreu frestað: Samkomulag um frekari viðræður ÁFRAM FLOGIÐ TIL AKUREYRAR Dönsk samgönguyfirvöld hafa staðfest áframhaldandi leyfi Air Greenland til áætlunarflugs milli Kaupmannahafnar og Akureyrar. ■ Innlent

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.