Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 10

Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 10
Helgina 23. til 24. ágúst urðu þeir sem ekki voru þegar í kippnum var- ir við jarðskjálftakippi í námunda við Krýsuvík. Jarðskjálftafræðing- ar sem telja að jarðskjálftar séu hópdýr spáðu að fleiri skjálftar mundu fylgja á eftir. Þá hættu skjálftarnir. Mánudag 25. ágúst höfðu fleiri bandarískir hermenn fallið í Írak síðan Bush forseti tilkynnti að stríð- inu væri lokið en féllu meðan á stríðinu stóð. Þriðjudag 26. ágúst kunngerði Ingibjörg Sólrún fjölmiðlum fram- tíðaráform sín, en hún hefur eytt sumrinu í að hugsa um framtíðina. Hún vill verða varaformaður Sam- fylkingarinnar núna í haust en for- maður árið 2005. En fyrst ætlar hún til London í skóla til að finna upp sósíalismann og byggja upp innra starf flokksins. London er mjög góð- ur staður til að finna upp stjórn- málastefnur, og er þess skemmst að minnast að Karl Marx var svo hepp- inn að finna upp kommúnismann í Lundúnum. Menntastofnunin London School of Economics þar sem Ingibjörg ætlar að sækja tíma er mjög virtur skóli. Frægastur nemenda þaðan er skallapopparinn Mick Jagger. Við þessi tíðindi sagði Össur Skarphéðinsson að mjög hefði slaknað á spennunni í Samfylking- unni. Hann hlakkar til að mynda samhent tvíeyki með svilkonu sinni og starfa náið með henni þangað til hún gengur milli bols og höfuðs á honum. Ingibjörg Sólrún tók fram að þetta væri hugsað í þágu hins al- menna flokksmanns, enda hljómar það vel og skynsamlega að blóta nú- verandi formanni til árs og friðar, og á örugglega eftir að verða Sam- fylkingunni til mikillar blessunar. Miðvikudag 27. var enn einn fréttamaður á Stöð 2 látinn fjúka. Sumir álíta að þessar uppsagnir stafi af því að eigendum stöðvarinn- ar hafi blöskrað hversu sólgnir fréttamennirnir voru í að segja fréttir sem að áliti eigendanna koma almenningi ekki við, og jafnframt liður í sparnaðaraðgerðum, því að greinilega er lítil glóra í því að hafa fréttamenn á föstum launum við að þegja yfir fréttum. Á fimmtudag sögðust 63% lands- manna telja að Sjálfstæðisflokkur- inn sé spilltasti stjórnmálaflokkur- inn. Samkvæmt þessu virðist ónóg spilling vera öðrum stjórnmála- flokkum fjötur um fót í kosningum og munu leiðtogar annarra flokka nú liggja undir feldi að upphugsa leiðir til að auka spillingu í flokkum sínum til að auka fylgið og krefjast þess meðal annars að fá leyfi til að skipa hæstaréttardómara. Á sama tíma gerði Björgólfur Guðmunds- son bankaeigandi sér glaðan dag í mat og gleypti Kolkrabbann í heilu lagi og pantaði flamberuð Eimskip í eftirrétt. Föstudag 29. ágúst lá Stóri- Bjöggi á meltunni, saddur og sæll. Umhverfisverndarsinnar höfðu – aldrei þessu vant – ekki uppi mót- mæli þótt Kolkrabbanum væri út- rýmt. ■ Það er uppselt á landsleik Ís-lendinga og Þjóðverja í knatt- spyrnu. Sætin 7.000 sem í boði eru eftir nýlega stúkubyggingu á Laugardalsvelli verða fullsetin. Raunar hefur komið fram að að- eins 3.000 miðar voru í hefðbund- inni sölu. Hinum var dreift til styrktaraðila eftir öðrum leiðum. Forsvarsmenn Knattspyrnusam- bands Íslands hafa séð ástæðu til að ít- reka óskir um að hringnum í kring- um Laugardalsvöll verði lokað með stúku. Með glæsi- legum höfuðstöðv- um KSÍ sem byggð- ar yrðu samhliða er ljóst að kostnaður verður aldrei undir milljarði króna. Hefur verið farið fram á viðræður við ríki og Reykjavíkur- borg um fjárframlög. Nýleg stúkubygging með nær tvöföldun á sætaframboði Laug- ardalsvallar dugir ekki til á lands- leikjum vegna nýrra reglna FIFA. Allir verða að sitja. Þær kröfur eru nátengdar þeim sem UEFA hefur sett um stúkubyggingar við heimavelli knattspyrnuliða sem vilja vera gjaldgeng í Evrópu- keppni. Til að mæta þeim er fyrir- hugað að reisa stúkur um alla borg að kröfu KSÍ. Náðst hefur sátt um aðkomu Reykjavíkur- borgar að flestum þeim fram- kvæmdum. Aðeins einu sinni uppselt En er stúkubygging við Laugar- dalsvöll forgangsverkefni? Á síð- astliðnu ári hefur aðeins einu sinni áður verið uppselt á völlinn. Þegar Skotar sóttu Íslendinga heim. Á bikarúrslitaleikjum, leikjum í Evr- ópukeppni, lokaleikjum Íslands- mótsins, tónleikum Elton John eða öðrum viðburðum er fjarri því að allir miðar seljist. Er það skynsam- legt markmið að aldrei verði upp- selt á knattspyrnuleiki? Áherslan á aðrar stúkubygging- ar virðist sama marki brennd. Er verið að taka upp reglur alþjóða- samtaka sem sniðnar eru að deildakeppni milljarðaliða? Stór- liðin AC Milan og Inter Milan eru ekki stærri en svo að þau deila með sér heimavelli. Hvað þarf margar stúkur í Reykjavík? Íþróttafélög hafa takmarkað fé og eru borin uppi af sjálfboðaliða- starfi. Ég er ekki viss um að þau hundruð foreldra sem taka þátt í starfi barna sinna eða iðkendurnir sem fara hús úr húsi og selja sal- ernispappír, harðfisk og rækjur hafi verið spurð hvort stúka við Laugardalsvöll sé mikilvægari en æfingasvæði og sparkvellir, fag- legt starf eða félagsaðstaða. Borg- aryfirvöld þurfa að spyrja sig sömu spurninga. Fjármunir eru takmarkaðir. Þeim þarf að verja skynsamlega. ■ 10 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Var það ekki Jón Grunnvík-ingur sem lýsti svo þurrlega efni hinna rómuðu Íslendinga- sagna? Og þótti sumum ekki gott; að svo magnaðar sögur um ástir og örlög og stolt og heiður og göfugmennsku og glæpi skyldu redúseraðar niður í svo fáfengilegan hlut sem eintóm bændaáflog. En þegar grannt er skoðað, hafði Jón G r u n n v í k i n g u r þarna rétt fyrir sér – eins og ævin- lega!* Var hann kannski óafvitandi frumkvöðull í d íkonströksjon, sem gengur – eftir því sem ég hef vit á – út á að brjóta alla hluti svo til mergjar að helst ekkert stendur eftir? Alla vega er ljóst að þegar deil- ur og átök t.d. Njálssögu eru rakin til upphafs- ins, vill rifrildisefnið oft verða heldur lítilfjörlegt og ætti svo sem ekki að skipta nokkurn mann nokkru einasta máli - nema hina „stoltu“ rifrildisseggi sjálfa – en í þá tíð og löngum síð- an hefur spéhræðsla eins og menn vita verið kölluð „stolt“. Alþýða manna hefði að minnsta kosti mátt láta sér fátt um finn- ast – nema hvað henni var að vísu oft att á foraðið þegar „keisararnir“ deildu um skeggið á sér. Þetta sífellda vesin á Skarphéðni Þessi algildu sannindi Jóns Grunnvíkings hef ég stundum haft mér til huggunar þegar linnulausar fréttir af „svipting- um á hlutabréfamarkaði“ eru al- veg að gera mig vitlausan. Því þótt efni Íslendingasagnanna sé semsagt oft helst til ómerkilegt, þá verður því ekki á móti mælt að þar eru innan um góðar bækur. Og því má kannski ímynda sér að einhvers staðar í öllu fréttaflóð- inu af hlutabréfamarkaðnum séu geymd frækorn að Íslendinga- sögum næstu aldanna. En rétt eins og ég trúi því að óbreyttu bændafólki á Suðurlandsundir- lendinu hafi kringum árið 1000 dauðleiðst þetta sífellda vesin á Skarphéðni Njálssyni eða þrot- laus rifrildi Gunnars á Hlíðar- enda við konuna sína – þá verð ég að segja: Mikið ósköp er þetta leiðinlegt rétt á meðan það geng- ur yfir! Og virðist skipta okkur nákvæmlega engu máli. Eða hvað ragar það alþýðu þessa lands hvort Björgólfur á Eimskipafélagið eða hvort kol- krabbanum tekst að láta sér vaxa nýja griparma? Jú, víst eiga all- nokkrir Íslendingar hlutabréf og græða svolítið eða tapa eftir því hvernig kaupin gerast á eyrinni, en fyrr má nú rota en dauðrota! Það fer heldur ekki milli mála að það er ekki hlutabréfaeign al- mennings sem vekur áhuga fréttamannanna – heldur bara hlutabréfaeign Björgólfs, Jóns Ásgeirs, Benedikts og þeirra kalla. En er eignarhaldið á t.d. Eimskipafélaginu virkilega virði síðu eftir síðu í blöðunum, ótal Kastljóssþátta og fréttatímar undirlagðir? Þessarar spurning- ar spurði loks einhver um daginn og komu vöfflur á viðmælendur – jú, stamaði loks einhver, kannski hefur þetta einhver áhrif á flutn- ingsgjöld til og frá landinu. En má þá ekki bara segja frá því þegar þar að kemur? Ég viður- kenni að vísu: Það eru þarna fólgnar fréttir sem kunna að skipta máli. En þær fréttir snúast ekki um hvort einn kall frekar en annar á Eimskipafélagið og það- an af síður um hugsanleg áhrif á flutningsgjöld til og frá landinu. Þær eru náttúrlega pólitískar. Kvefast Sjálfstæðisflokkur- inn? Þótt að allir mínir góðu vinir í Sjálfstæðisflokknum muni seint viðurkenna það, þá vitum við nú samt öll að hreint ekki sísti þátt- urinn í starfi flokksins undan- farna áratugi hefur falist í marg- víslegri hagsmunagæslu fyrir kolkrabbann. Það er meira að segja stundum spurning í því efni, hvor er hænan og hvor er eggið. Ef kolkrabbinn líður nú undir lok, verður þá Sjálfstæðisflokkurinn munaðarlaus? Eða máske barn- laus? Mun hann fyrirhafnarlítið taka að sér sama hlutverk fyrir nýja „eigendur Íslands“ og hann hefur gegnt fyrir kolkrabbann? Eða verður hann kannski loksins að stjórnmálaflokki, frekar en hagsmunagæslufélagi - verður hann frjáls og óháður? Eða fer hann þvert á móti að upplifa til- gangsleysi tilverunnar - kvefast - fölna svolítið - eitthvað í þá átt- ina? Það eru í raun og veru þau einu tíðindi sem leitt gætu af þeim „sviptingum á hlutabréfamark- aði“ sem efst eru á baugi og kynnu að skipta fleiri Íslendinga máli en bara þá kalla og kellíngar sem nú eru ville vekk að kaupa og selja hlutabréf. En reyndar: Björgólfur Guðmundsson stjórn- arformaður Eimskipafélagsins? Jú, ég get ekki annað en viður- kennt: Það er fyndin tilhugsun. Og vissulega Íslendingasaga þar á kreiki. Mundi ekki hinn nafn- lausi höfundur þegar vera sestur við og farinn að líta kálfana hýru auga? *Þetta er meðvituð tilraun til að fá loksins boð um aðild að leynifé- laginu Góðvinir Grunnavíkur-Jóns sem þeir einir fá að ganga í sem farið hafa opinberlega hlýlegum orðum um Jón og störf hans. Fjöl- margir útvarpsþættir mínir um Jón hafa af einhverjum ástæðum ekki dugað! ■ Áróðurs- stríð vegna hvalveiða Sigurbjörn Friðriksson skrifar: Andstæðingum hvalveiða ermjög í mun að sem flestar ljós- myndir og sérstaklega kvikmyndir af hvalveiðum birtist í fjölmiðlum, vegna þess hve mikinn óhug og við- bjóð þær vekja hjá almenningi. Hver man ekki eftir myndunum af kópadrápi á ísnum undan strönd Kanada – sem voru víst sviðsettar af andstæðingum seladráps. Ef öfgasinnuðum grænmetisæt- um væri leyft að taka kvikmyndir og ljósmyndir í venjulegu slátur- húsi til að mótmæla nautgripaslátr- un væri hægt að vekja viðbjóð á steikar- og hamborgaraáti. Í Banda- ríkjunum er einfaldlega ólöglegt að taka fréttamyndir í almennum slát- urhúsum. Af sömu ástæðu ætti að vera ólöglegt að mynda hvala- og seladráp, til að vernda almenning. Ég hef sjálfur unnið í sláturhúsi, þegar ég var 14 ára fyrir 43 árum, og það var bara eins og hver önnur vinna. Ef gest bar að garði, gat bor- ið við að honum þætti nóg um; allt þetta blóð og lömbin í dauðateygj- unum eftir rothöggið, skorin á háls til að hirða blóðið o.s.frv. - og börn að vinna við þetta. Hafrannsóknastofnun ætti ekki að þurfa aðra ástæðu til að banna töku fréttamynda af hvalveiðum en mannvernd. ■ ILLUGI JÖKULSSON ■ skrifar um hræringar í viðskiptalífinu. ■ Bréf til blaðsins ■ Þótt að allir mínir góðu vinir í Sjálfstæðis- flokknum muni seint viður- kenna það, þá vitum við nú samt öll að hreint ekki sísti þátturinn í starfi flokksins undanfarna áratugi hefur falist í margvís- legri hags- munagæslu fyr- ir kolkrabbann. Um daginnog veginn „Bændur flugust á“ Eitt eilífðarsmáblóm ÞRÁINN BERTELSSON ■ hraðspólar fréttir vikunnar. Karl Marx, Jagger og I. Sólrún Leiðrétting Missagt var í viðtali við ÖrnólfÁrnason hér í blaðinu að átökin í íslenskum fjármálaheimi hefðu staðið á milli Landsbankans og SÍS fyrir rúmum tíu árum þeg- ar Örnólfur skrifaði bók um Kol- krabbann. Hið rétta er að sjálf- sögðu að átökin stóðu á milli Kol- krabbans svonefnda og SÍS. Landsbankinn var hins vegar við- skiptabanki SÍS. ■ Skoðun dagsins DAGUR B. EGGERTSSON skrifar um kröfur um stærri stúku við Laugardalsvöll. FRÁ LAUGARDALSVELLI „Er stúkubygging við Laugardalsvöll forgangsverkefni? Á síðastliðnu ári hefur aðeins einu sinni áður verið uppselt á völlinn. Þegar Skotar sóttu Íslendinga heim.“ Stórhugur í stúkubyggingum ■ Iðkendurnir sem fara hús úr húsi og selja salernispappír, harðfisk og rækjur hafa ekki verið spurðir hvort stúka við Laug- ardalsvöll sé mikilvægari en æfingasvæði og sparkvellir, faglegt starf eða félagsað- staða. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.