Fréttablaðið - 30.08.2003, Qupperneq 12
12 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
CAMERON DIAZ
Leikkonan Cameron Diaz er 31 árs í dag.
Hún er fædd í San Diego í Californiu.
Cameron byrjaði ung að starfa sem fyrir-
sæta en 1994 hlaut hún fyrsta hlutverk sitt
í kvikmynd en það var í The Mask. Slúður-
blöðin segja að Cameron leggi núna lag
sitt við poppprinsinn Justin Timberlake.
Uppþot á kjötkveðjuhátíð
Flytja þurfti rúmlega hundraðlögregluþjóna á sjúkrahús eftir
að þeir lentu í átökum á Notting
Hill-kjötkveðjuhátíðinni í Lundún-
um á þessum degi árið 1976.
Flestir lögregluþjónanna voru
útskrifaðir af sjúkrahúsinu eftir
meðhöndlun lækna en að minnsta
kosti tuttugu og sex þurftu að
gangast undir frekari skoðun. Um
sextíu manns sem tóku þátt í hátíð-
inni voru einnig fluttir á sjúkrahús.
Talið er að uppþotin hafi brotist
út eftir að lögreglan reyndi að
handtaka vasaþjóf á svæðinu. Þó
nokkur ungmenni reyndu að hjálpa
vasaþjófnum og á örfáum mínútum
brutust út mikil læti. Meðal annars
var ráðist á lögregluna með stein-
um og öðrum hlutum. Kveikt var í
lögreglubíl með tveimur lögreglu-
þjónum innanborðs en þeir náðu að
flýja. Að minnsta kosti 60 manns
voru handteknir þennan dag.
Þetta var annar dagur hátíðar-
innar en sá fyrri hafði gengið eins
og í sögu. „Við höfðum enga
ástæðu til að ætla eitthvað annað í
dag,“ sagði einn skipuleggjend-
anna. „Þetta átti að snúast um
skemmtun og kærleika – ekki of-
beldi.“ ■
Bjargaði stúlku frá
drukknun
Vikan hefur verið mjögskemmtileg og flestir sem
ég hef hitt minnast á þetta at-
vik,“ segir Einar Örn Bjarna-
son, maður vikunnar, sem
bjargaði fimm ára gamalli
stúlku frá drukknun í Breið-
holtslaug um síðustu helgi. „Það
var einstök upplifun að verða
þess megnugur að bjarga
mannslífi,“ segir hann.
Einar segist ekki hafa hugsað
á meðan björguninni stóð. Hann
hafi brugðist við eins og honum
hafi verið kennt og viðbrögðin
verið alveg ósjálfráð. „Það var
ekki fyrr en eftir að barnið var
komið til lífs sem ég áttaði mig
á hvað hafði gerst og það var
yndisleg tilfinning, adrenalínið
streymdi um mig allan.“
Einar er alinn upp í Breiðholt-
inu frá níu ára aldri en áður bjó
hann í Hafnarfirði. Hann er sonur
þeirra Sigurlaugar Waage og
Samúels Bjarnasonar og er einn
fjögurra bræðra. Í Breiðholtinu
sótti hann skóla og æfði fótbolta
með Leikni. „Fótboltinn átti ekki
alveg við mig og ég hætti á ung-
lingsárum. Þess í stað eru það
tölvurnar sem eiga hug minn
allan og ég ætla mér í nám til
Kaupmannahafnar í vetur. Ég fer
með vini mínum, Páli Lúthers-
syni, sem kom að björguninni
með mér, og vinkonu okkar.“
Einar reiknar með að næstu
fimm árin verði hann við nám í
Danmörku en nú sem stendur er
hann að vinna á Select í Breið-
holti. „Það var ákveðið að ég færi
að vinna þar en ég hóf störf í
byrjun vikunnar og kann mjög
vel við mig.“
Einar hefur gaman af að lesa
góðar bækur, hlusta á tónslist og
fara í bíó. „Ætli ég sé ekki bara
ósköp venjulegur ungur maður.
Ég hef gaman af að hitta vini
mína og vera til,“ segir Einar Örn,
sem brást hárrétt við í starfi sínu
um síðustu helgi. ■
1918 Lenín varð fyrir skotárás. Árás-
armaðurinn, Fanya Kaplan, skaut
hann tveimur skotum. Lenin lifði
árásina af en hún hleypti illu
blóði í borgarastyrjöldina.
1982 Yasser Arafat, leiðtogi PLO, var
knúinn til að yfirgefa Beirút. Hann
flúði yfir til Grikklands.
1983 Fyrsti blökkumaðurinn fór út í
geim. Hann hélt út með geim-
skutlunni Challenger og dvaldist
úti í geimnum í sex daga.
1987 Ben Johnson setti heimsmet í
100 metra hlaupi. Hann hljóp
100 metrana á 9,83 sek.
2001 Slobodan Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíuforseti, var ákærður fyrir
glæpi gegn mannkyninu. Málið
var rekið fyrir Stríðsglæpadóm-
stólnum í Haag.
EINAR ÖRN BJARNASON
Hann hyggst sækja nám til Kaupmannahafnar í vetur og reiknar með að verða þar næstu
fimm árin.
Já, ég er að taka við fjölmiðla-fræðinni í Háskólanum,“ segir
Þorfinnur Ómarsson fjölmiðla-
maður. „Ég mun stýra deildinni
auk þess sem ég fer fyrir hópi
sem mun endurskoða námið. Eins
og er þá er fjölmiðlafræðin 1 árs
framhald ofan á BA-gráðu en við
munum skoða hvort þetta ætti
frekar að vera mastersnám eða
eitthvað slíkt.“
Þorfinnur fór fyrir Kvik-
myndasjóði Íslands í áraraðir,
eins og frægt er orðið, en nú er
hann að fara í þetta nýja starf en
það er ekki fullt starf. Þorfinnur
mun því áfram sjá um þáttinn Í
vikulok á Rás eitt, auk þess sem
hann sinnir ýmsum kynningar-
málum fyrir fyrirtæki.
Þorfinnur segir að hann muni
ekki kenna í Háskólanum, í það
minnsta ekki á þessari önn, en
starfstitill hans er verkefnastjóri
Hagnýtrar fjölmiðlunar hjá Há-
skóla Íslands, en í ár eru 28 ný-
nemar skráðir við deildina og mik-
il vinna við að búa þá undir harðan
heim fjölmiðlanna:
„Þetta eru vissulega ólíkinda-
tímar sem við lifum á núna,“ segir
Þorfinnur og á við uppsagnir
þungavigtarfjölmiðlamanna sem
dunið hafa á í fréttum undanfarið.
„Það er í raun ótrúlegt þegar
reyndustu og bestu fjölmiðlamenn
okkar eru látnir fara. Skrýtið að
fyrirtæki, jafnt sem ríkið, fari
svona með fjárfestinguna sem
mannauður vissulega er. Þetta er
mjög furðulegt og maður þarf ekki
að horfa lengra en til sjónvarps-
þáttarins 60 mínútur til að sjá að
þetta er ekki nógu sniðugt hjá ís-
lenskum fjölmiðlum.“
Þorfinnur segir að samt sé það
öllum hollt og gott að breyta aðeins
til og byrja í nýju starfi. Hann er
því bjartsýnn á framtíðina. Var að
fá skrifstofu og fyrsti fundur með
nemendum var í gær en nám
þeirra hefst formlega á mánudag.
■
ÞORFINNUR ÓMARSSON
tekur við fjölmiðlafræðinni í Háskólanum.
Tímamót
ÞORFINNUR ÓMARSSON
■ fjölmiðlamaður sér ekki lengur um
Kvikmyndasjóð og er því búinn að finna
sér nýtt starf: Hann tekur nú við fjöl-
miðlafræðinni í Háskólanum.
Maður vikunnar
EINAR ÖRN BJARNASON
■ bjargaði fimm ára gamalli stúlku frá
drukknun í Breiðholtslaug um síðustu
helgi. „Einstök upplifun að verða þess
megnugur að bjarga mannslífi,“ segir
hann.
Tekur við fjöl-
miðlafræðinni
Anna Ingibjörg Sigurðardóttir, frá Ísa-
firði, Digranesheiði 21, Kópavogi, lést
miðvikudaginn 21. ágúst.
Sigríður Sveinbjörnsdóttir, Skálholtsvík,
lést miðvikudaginn 27. ágúst.
Ingibjörg Þórstína Einarsdóttir Rains
lést sunnudaginn 17. ágúst. Útförin fór
fram fimmtudaginn 21. ágúst í Rockford
í Illinois.
Birgitta Íris Harðardóttir lést mánudag-
inn 25. ágúst.
Sigurður R. Ingimundarson, Álfheimum
4, lést miðvikudaginn 27. ágúst.
Jóhann E. Óskarsson lést miðvikudag-
inn 27. ágúst.
Valgerður Sveinsdóttir, frá Ósabakka,
Skeiðum, Borgarholtsbraut 24, lést mið-
vikudaginn 27. ágúst.
■ Andlát
■ Jarðarfarir
■ Afmæli
13.30 Eiríkur Valdimarsson, frá Norður-
garði á Skeiðum, verður jarðsung-
inn frá Selfosskirkju.
13.30 Anton Sigurjónsson, Goðabraut
20, Dalvík, verður jarðsunginn frá
Dalvíkurkirkju.
14.00 Guðlaugur Sveinn Sigurðsson,
Mánagötu 25, Reyðarfirði, verður
jarðsunginn frá Búðareyrarkirkju.
14.00 Hólmfríður Þorleifsdóttir, frá
Efra-Firði, verður jarðsungin frá
Hafnarkirkju.
14.00 Kristján Viðar Hafliðason, Ása-
heimum, Króksfjarðarnesi, verður
jarðsunginn frá Garpdalskirkju.
Sigrún Edda Björnsdóttir, leikkona, er
45 ára.
Tvíburasysturnar Dalla og Tinna Ólafs-
dætur eru 28 ára.
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum að
senda inn tilkynningar um dánar-
fregnir, jarðarfarir, afmæli eða
aðra stórviðburði. Tekið er á móti
tilkynningum á tölvupóstfangið:
tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að
vera ítarlegar og helst tæmandi. ■
30. ágúst 1976
UPPÞOT
■ urðu á Notting Hill-kjötkveðjuhátíðinni
í Lundúnum. 100 lögreglumenn voru
fluttir á sjúkrahús.
Í FULLUM SKRÚÐA
Fólk klæðir sig upp og skemmtir sér á
Notting Hill-kjötkveðjuhátíðinni.
■ Þetta gerðist
30 ágúst
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T