Fréttablaðið - 30.08.2003, Page 13

Fréttablaðið - 30.08.2003, Page 13
13LAUGARDAGUR 30. ágúst 2003 fæst nú í Hagkaupum Smáralind Kynning verður á grillunum og VSOP lambakjöti í Hagkaup Smáralind í dag kl. 13.00 - 17.00 heilsugrill Þegar þú vilt besta fáanlega lambakjötið, er VSOP merkið sem þú skalt leita eftir. Skammstöfunin merkir vöð- vamikið, sérvalið og prýðis- gott enda getur einungis úrvals lambakjöt sem látið er meyrna við kjöraðstæður orðið VSOP kjöt. V • S • O • P Foreman rotar keppinautana! Rafmagnsgrill með hallandi teflonhúðuðum grillplötum, þannig að fitan lekur burt. Hækkanlegt grilllok fyrir þykkari mat. Ofan á grillinu er sérstakur brauðhitari, t.d. fyrir hamborgara- eða pylsubrauð. Bakkar fyrir fituvökvann og plastspaðar fylgja með. Er mjög fljótt að hitna og auðvelt að þrífa. 1. 2. 3. 4. 5. Fitusnauðari matur með George Foreman heilsugrillinu 9.490kr NÝJUNG Á AKUREYRI Nýstofnuð félagsvísinda- og laga- deild Háskólans á Akureyri mun í vetur brydda upp á nýjung í há- skólanámi þar sem boðið er upp á aukin tengsl við almenning og nemendur fá þjónustu og vett- vang sem ekki hefur verið fyrir hendi í íslenskum háskóla. Nýj- ung þessi hefur fengið heitið Lög- fræðitorg annars vegar og Fé- lagsvísindatorg hins vegar, en þetta eru reglubundnir fyrirlestr- ar opnir almenningi. Fyrirlestrar Lögfræðitorgs verða á þriðjudög- um kl. 16.30 og verður Ármann Snævarr fyrsti fyrirlesari torgs- ins. Félagsvísindatorg verða á sama tíma á miðvikudögum og er það Birgir Guðmundsson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, sem verður fyrsti fyrirlesarinn. Sjálfboðaliða vantar Rauði Kross Íslands auglýsireftir fólki í sjálfboða- starf innan Reykjavíkur- d e i l d a r . Kynning á s t a r f s e m i sjálfboðaliða verður á þriðjudaginn kl. 20 í Sjálf- boðamiðstöð Rauða krossins, Hverfisgötu 105. Sjálfboðaliðar eru undirstaða starfsemi Rauða krossins og með 2-4 tíma framlagi á viku, eða 6-12 tíma framlagi á mánuði, er hægt að láta virkilega gott af sér leiða. ■ GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR Er að undirbúa þingstörfin fyrir komandi vetur. ??? Hver? Þingmaður, félagsráðgjafi og fjölmiðla- fræðingur. Félagsráðgjafagrunnurinn og reynslan úr því starfi er ómetanleg í því sem ég er að fást við. ??? Hvar? Nú er ég heima, var að koma barninu í skólann, fer síðan á skrifstofuna og læt hendur standa fram úr ermum. ??? Hvaðan? Algjört borgarbarn og hef búið á mörg- um stöðum í henni Reykjavík, en vænst þykir mér um Ölfusið, en þaðan á ég að rekja föðurættina mína. Ómetanleg víð- sýni í þeirri sveit í margföldum skilningi þess orðs sem haft hefur gríðarleg áhrif á mig. ??? Hvað? Er meðal annars að laga til á skrifstof- unni og ræða við ýmsa aðila. Einnig er ég að fara yfir og undirbúa mál okkar Samfylkingarfólks í hinum ýmsu nefnd- um þingsins og auðvitað eru einhver ný mál á döfinni – nóg að gera. ??? Hvernig? Það þarf að ræða við ýmsa aðila, lesa skýrslur, fara á fundi og ráðstefnur, skoða og skilgreina. Alltaf á vaktinni. ??? Hvers vegna? Þetta er nauðsynlegt til þess að koma vel undirbúin í þau mál sem við viljum leggja áherslu á á komandi þingvetri. ??? Hvenær? Þetta verður allt sýnilegt í upphafi þings. Lykilorðin eru: ábyrg, málefnaleg og sterk stjórnandstaða Samfylkingarinnar. Þess vegna er góður undirbúningur nauðsynlegur. ■ Persónan NÝGIFT Ólöf Sara Árnadóttir og Páll Isólfur Óla- son giftu sig þann 5. júlí í Garðakirkju. Það var séra Friðrik J. Hjartar sem gaf þau saman. Með þeim á myndinni er dóttir þeirra Helena María. ■ Fundir RAUÐI KROSSINN Óska eftir sjálfboðalið- um. M YN D /R U T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.