Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 18

Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 18
18 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Þetta skiptist í tvö horn. Annarsvegar eru það sólríkar myndir af lundum, Geysi og Hallgríms- kirkju... dæmigerðar túrista- myndir og svo listrænar myndir eftir lúnkna ljósmyndara á borð við RAX,“ segir Óttarr Proppé, verslunarstjóri Máls og menning- ar við Laugaveginn. Það er gömul saga og ný að ímynd Íslands – hvaða augum út- lendingar líta landið – er oft á skjön við það sem Íslendingar ætla. Hér er vísbending. Frétta- blaðið skoðaði hver eru vinsæl- ustu póstkortin. Hvaða kort velja þeir sem hingað leggja leið sína og senda vinum og aðstandend- um? Ætla má að þeir séu einmitt sérlegir áhugamenn um land og þjóð og hvaða kort þeir velja til að senda sínum nánustu hafi því nokkuð um ímynd landsins að segja. Óttarr upplýsir að Mál og menning selji upp undir 50 þús- und kort árlega og telur einsýnt að gera verði ítarlega úttekt á því hvaða kort það eru sem seljast því þau segi vissulega sína söguna. Taka þurfi með í reikninginn að viðskiptavinir M&m eru einkum helgartúristar og ætla megi að sölustaðir víða um land selji stað- bundnari myndir. „Þeir í Eden í Hveragerði eru líklega stærstir á þessu sviði og ég ímynda mér að þar seljist öðruvísi póstkort en hér.“ Starfsfólk M&m ætlar að hlut- fall þeirra sem kaupa póstkort sé 90 prósent útlendingar á móti 10 prósentum Íslendinga. Erfitt er að glöggva sig á samsetningu ferða- mannanna, en einkum eru nefndir til sögunnar Frakkar, Englendingar og Þjóðverjar. Svo koma skemmti- ferðaskip sem breyta miklu í þessu sambandi. Óttarr, sem hefur lengi velt fyrir sér póstkorta- markaðnum, enda var hann fyr- irsæta á frægum jólakortum sem Smekkleysa framleiddi, bendir á að líklega kaupi ferða- menn ekki síður póstkort fyrir sjálfa sig sem einhvers konar ‘mementó’ fremur en að ætla þau í póstinn. „Varðandi minn persónulega frama á þessu sviði má segja að Smekkleysu- kortin hafi liðið fyrir að dæmið var ekki hugsað til enda. Það var svo gaman að gera kortin að það gleymdist að hugsa fyrir því hvernig ætti að selja þau. Dæmi- gert Smekkleysumentalítet. Fram- leiðendur póstkorta eru ekki nema í kringum fimm, sem helgast af því að menn verða að fara í þetta af heilum hug og fylgja framleiðsl- unni eftir, meðal annars sjá til þess að standar séu fyrir hendi til að setja kortin í.“ jakob@frettabladid.is Hvaða ímynd hefur Ísland í hugum útlendinga? Það er sígild spurning. Ein góð vísbending er hvaða póstkort útlendingar kaupa hér á landi. Svo virðist sem Gljúfrabúinn við Kárahnjúka njóti mestra vinsælda, sem og lundinn: Með kveðju frá Íslandi ÓTTARR PROPPÉ Mál og menning er með stærri smásöluaðilum og selur upp undir 50 þúsund póstkort ár- lega. Kortin gefa ákveðna vísbendingu um hvaða augum ferðamenn líta land og þjóð. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M TÚRISTAR HUGA AÐ PÓSTKORTUM Öfugt við það sem ætla mætti er sennilega algengara að ferðamenn kaupi póstkort fyrir sig sjálfa sem eins konar ‘mementó’ fremur en ætla þau í póstkassann. HALLGRÍMSKIRKJA Þessi mynd er nokkuð lýsan di. Ferðamenn kaupa jafn an kort sem eru staðbund in, lýsa því sem fyrir augu ferðamannsins ber. Vvæ ri bókabúð Máls og men n- ingar við til dæmis Det ti- foss, þá væri mynd af h on- um líklega ofarlega á l ista. Ljósmynd Kristján Mag nússon og útgefandi er Laxako rt hf. GLJÚFRABÚINN Þetta kort trónir á toppnum en það er úr vinsælliljósmyndaseríu RAX þar sem þessi snjalli ljósmynd-ari beinir linsuopinu að landinu sem mun fara undirvatn þegar lónið við Kárahnjúkavirkjun fer að fyllast.Útgefandi Laxakort hf. LUNDINN VINSÆLIStarfsfólk valdi þetta kort úrnokkru úrvali lundamynda enþessi fótógeníski fugl er sívin-sæll. Að sögn Óttarrs má segjaað samanlagt séu lundakortin íefsta sætinu en dreifingin veldurþví að lundinn situr í fjórða sæti.Ljósmynd Freysteinn G. Jónsson og út-gefandi er Súla. NOKKRIR ÁNINGASTAÐ IR TÚRISTA Þetta póstkort er í öðru sæti á li sta M&m; kombó ljós- mynda af þekktum ferðam annastöðum með yf- irlitmynd af Íslandi í miðju . Bláa lónið, Jökulsár- lón, Strokkur og Norðurljó s sem Pálmi Guð- mundsson myndaði. Útgefa ndi er Demants-Kort. BEÐIÐ EFTI R VOR INU Þessi mynd er efti r RAX. Óttar r segir ekki ó algeng t að fó lk kau pi fjöld a korta úr söm u seríu nni til eigna r frem - ur en að það ætli s ér að nota þ au í póst. Þ etta ko rt er d æmige rt fyrir þá tilhnei gingu kaupe nda. Útgefa ndi La xakort hf. GOS Land íss og elda. Hér eru nokkr- ar myndir af þekktum eldgosum: Hekla 1970, Heimaey 1973, Krafla 1980 og Surtsey 1965. Ljósmyndir Rafn Hafnfjörð og útgefandi þessa korts er Litbrá hf. 1 23 4 5 6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.