Fréttablaðið - 30.08.2003, Side 20
20 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
VIÐTAL „Þetta er saga af dreng sem
reynir að bæta samband sitt við
móður sína og berst meðal annars
um athygli hennar við sambýlis-
mann hennar og reynir að komast
upp á milli þeirra,“ segir breski
leikstjórinn Ken Loach um mynd
sína Sweet Sixteen, sem var opn-
unarmynd Breskra bíódaga í Há-
skólabíói sem byrjuðu í gær.
„Það sem heillaði mig við þessa
sögu eru flóknu fjölskyldusam-
böndin í henni, til dæmis milli
sonar og móður og bestu vina.
Bakgrunnur sögunnar er svo at-
vinnuleysi og kröpp kjör Glas-
gowbúa en það eru fyrst og
fremst djúpstæð tengslin milli
persónanna sem höfðuðu til mín.“
Sweet Sixteen segir frá Liam,
sem býr í Glasgow. Móðir hans
situr í fangelsi fyrir glæp sem
sambýlismaður hennar framdi en
Liam á von á því að hún losni fyr-
ir 16 ára afmælið hans. Hann þrá-
ir eðlilegt fjölskyldulíf en til þess
að sá draumur megi rætast þarf
hann að losa móður sína undan
valdi sambýlismannsins, sem er
dópsali, og afa síns sem er óttaleg-
ur ruddi. Liam ákveður því að
koma sér upp húsnæði þar sem
hann getur búið með móður sinni í
friði fyrir skúrkunum en fjáröfl-
unartilraunir hans eiga eftir að
koma honum í klandur.
Einstefna frá
Bandaríkjunum
Loach er einn virtasti kvik-
myndaleikstjóri Evrópu en því er
þó eins farið með hann og fleiri
aðra listamenn sem fara sínar eig-
in leiðir að hann er ekki spámaður
í eigin föðurlandi og myndir hans
falla jafnan Frökkum, Ítölum og
Þjóðverjum betur í geð en löndum
hans. Loach lætur þessa stað-
reynd þó ekki raska ró sinni og
heldur ótrauður sínu striki. „Það
er ríkari hefð fyrir fjölbreyttum
kvikmyndum í þessum löndum og
fólk hefur vanist því að horfa á
myndir sem taka á erfiðum mál-
um.“
Loach þykir dæmigerður sjálf-
stæður leikstjóri og nýtur mikillar
virðingar sem slíkur enda hefur
hann engan áhuga á því að gera
kvikmyndir fyrir dollara og eiga um
leið frelsisskerðingu yfir höfði sér.
„Ég hef einu sinni gert mynd í
Bandaríkjunum en það var þó
ekki fyrir ameríska kvikmynda-
iðnaðinn heldur var myndin fjár-
mögnuð í Evrópu“, segir Loach
um Bread and Roses, sem fjallar
um mexíkóskar systur sem berj-
ast fyrir bættum kjörum þvotta-
kvenna í Los Angeles. „Myndin
var ódýr á amerískan mælikvarða
en það breytti því ekki að það var
mikið mál að fjármagna hana. Við
gerðum tilraunir til þess í Banda-
ríkjunum en þar voru menn með
skoðanir á öllu og vildu til dæmis
ráða því hvaða leikarar yrðu not-
aðir og svo framvegis. Mér fannst
forvitnilegt að kvikmynda í Los
Angeles og lagði áherslu á að sýna
þá hlið borgarinnar sem sést
sjaldan og einbeita mér að kröpp-
um kjörum innflytjendanna. Hug-
myndaleysi og skortur á frum-
leika hefur verið vandamál í
bandarískri kvikmyndagerð eins
lengi og ég man eftir mér. Eini
áhugi Bandaríkjamanna á um-
heiminum, hvað kvikmyndir varð-
ar, felst í því að þeir vilja hagnast
á okkur og dæla framleiðslu sinni
yfir okkur. Það er ekki hægt að
tala um neitt samstarf eða félags-
skap, þetta er alger einstefna.“
Vinur litla mannsins
Ken Loach er 67 ára gamall,
fæddur þann 17. júní 1936 og Ís-
lendingar hljóta því að freistast til
þess að álykta að val hans á við-
fangsefnum sé í einhverju sam-
hengi við fæðingardaginn en bar-
átta fyrir frelsi, verkföll og mót-
mæli ásamt ríkri smælingjasamúð
eru stef sem aðdáendur leikstjór-
ans kannast vel við úr myndum á
borð við Bread and Roses, Land
and Freedom og Carla’s Song.
Hann gerði sína fyrstu kvik-
mynd, Poor Cow, árið 1967. Hann
hitti svo beint í mark tveimur
árum síðar með Kes en hún er í 7.
sæti yfir 100 bestu bresku kvik-
myndirnar að mati sérfræðinga
Bresku kvikmyndastofnunninar
(BFI).
Hann festi sig síðan í sessi með
Gamekeeper og Looks and Smiles
frá árunum 1980 og 1981 og mynd-
ir hans á tíunda áratugnum,
Hidden Agenda (1990), Riff Raff
(1990), Raining Stones (1993),
Land and Freedom (1995) og My
Name Is Joe (1998), sópuðu að sér
hinum ýmsu verðlaunum og tóku
af allan vafa á því að hann er í
hópi athyglisverðustu kvik-
myndagerðarmanna Evrópu.
Myndirnar Bread and Roses
(2000) og The Navigators (2001)
hafa haldið nafni hans á lofti und-
anfarið en Bread and Roses var
sýnd á Íslandi á Kvikmyndahátíð í
Reykjavík í nóvember árið 2001.
Sweet Sixteen hefur svo aukið
hróður Loach enn frekar. Hún
hefur hlotið fjölda tilnefninga á
alþjóðlegum kvikmyndahátíðum
og keppti til dæmis um
Gullpálmann í Cannes og þar var
handritshöfundurinn, Paul Laver-
ty, verðlaunaður fyrir handrit
myndarinnar. Þá hefur Sweet
Sixteen fengið góðar viðtökur
áhorfenda og gagnrýnenda í
Bandaríkjunum.
Frá Glasgow til Nicelands
Loach kveðst hæstánægður
með frammistöðu Martins
Compstons í hlutverki Liams í
Sweet Sixteen. Hann hafði leitað
lengi að manni í hlutverkið áður
en hann datt niður á Compston,
sem var þá 17 ára og hafði nánast
enga reynslu af kvikmyndaleik,
en hann lítur ekki á sig sem leik-
ara heldur knattspyrnumann.
Það er þó allt útlit fyrir að leik-
ferillinn verði ofan á hjá drengn-
um en hann hefur fengið mikið
lof fyrir leik sinn í Sweet Sixteen
og var meðal annars tilnefndur
sem besti leikarinn á Evrópsku
kvikmyndaverðlaununum og val-
inn besti nýliðinn á British
Independent Film Awards.
Compston er þessa dagana í
Berlín ásamt Friðriki Þór
Friðrikssyni en hann fer með
hlutverk í Niceland, næstu mynd
leikstjórans.
Loach segist aðspurður ekki
hafa séð neina mynda Friðriks.
„Við höfum því miður ekki feng-
ið að sjá margar íslenskar mynd-
ir í Bretlandi en það rætist von-
andi úr því. Það er öruggt að ég
mun sjá þessa mynd.“
Loach er á kafi í klippingum á
næstu mynd sinni og telur ekki
tímabært að segja of mikið frá
henni. „Það er svo langt í land en
handrit þessarar myndar er eftir
Paul Laverty eins og Sweet
Sixteen. Þessi mynd gerist líka í
Glasgow á svipuðum slóðum og
Sweet Sixteen,“ segir Ken Loach
að lokum, en hann hefur í nógu
að snúast og sá sér ekki fært að
koma til Íslands að þessu sinni til
að fylgja eftir mynd sinni.
thorarinn@frettabladid.is
KEN LOACH OG MARTIN COMPSTON
Loach leitaði lengi að rétta manninum til að leika Liam þar til hann datt niður á hinn unga og óreynda Compston. Drengurinn hefur fengið
frábæra dóma fyrir leik sinn í Sweet Sixteen og vinnur um þessar mundir með Friðriki Þór Friðrikssyni við gerð myndarinnar Niceland.
MARTIN COMPSTON
Fer á kostum í hlutverki Liams í Sweet
Sixteen eftir Ken Loach. Leikstjórinn fylgist
með framhaldinu hjá drengnum og er
ákveðin í að sjá hann í Niceland eftir
Friðrik Þór Friðriksson.
Einn á móti öllum
Breski leikstjórinn Ken Loach er einn virtasti kvikmyndagerðarmaður Evrópu. Mynd hans Sweet Sixteen var opnunar-
mynd Breskra kvikmyndadaga sem byrjuðu í gær. Þar segir frá 16 ára dreng sem berst einn gegn ofurefli til að skapa sér og
móður sinni betra líf. Sjálfur er Loach þekktur fyrir að fara eigin leiðir og vill fá að vinna starf sitt í friði fyrir peningaöflum.
HELSTU MYNDIR KEN LOACH:
Sweet Sixteen 2002
The Navigators 2001
Bread and Roses 2000
My Name Is Joe 1998
Carla’s Song 1996
Land and Freedom 1995
Raining Stones 1993
Riff-Raff 1990
Hidden Agenda 1990
Looks and Smiles 1981
The Gamekeeper 1980
Kes 1969
Hugmyndaleysi og
skortur á frumleika
hefur verið vandamál í
bandarískri kvikmyndagerð
eins lengi og ég man eftir
mér. Eini áhugi Bandaríkja-
manna á umheiminum, hvað
kvikmyndir varðar, felst í því
að þeir vilja hagnast á okkur
og dæla framleiðslu sinni
yfir okkur.
,,
Við höfum því
miður ekki fengið
að sjá margar íslenskar
myndir í Bretlandi en það
rætist vonandi úr því.
,,