Fréttablaðið - 30.08.2003, Qupperneq 21
Það er af svo mörgu að taka aðþað er erfitt að gera upp á
milli“, segir lögfræðingurinn og
pólfarinn Haraldur Örn Ólafsson
þegar hann er inntur eftir því
hvort hann eigi sér einhvern
draumaáfangastað til að heim-
sækja. Haraldur Örn hefur nefni-
lega síður en svo séð nóg af heim-
inum þó hann hafi endasenst
heimshornanna á milli og klifið
flest þau fjöll sem hafa orðið á
vegi hans.
„Ég fæ þessa spurningu nú
ansi oft og það eina neikvæða sem
ég sé við að svara henni núna er að
þá fer fólk endalaust að spyrja mig
hvenær ég ætli að leggja af stað.
En ég gæti vel hugsað mér að fara
til Nýja Sjálands þó ég sé ekkert
endilega á leiðinni þangað alveg á
næstunni.“
Haraldur segist ekkert endilega
vera með neinn fjallaleiðangur í
huga enda geti hann vel hugsað sér
að heimsækja landið heim sem al-
mennur ferðamaður. „Náttúran
þarna er stórbrotin og maður
myndi nú örugglega ganga eitt-
hvað um í henni. Það þarf ekkert
endilega að þýða fjall-
göngu. Það eru nú samt
mjög spennandi fjöll
þarna sem gaman væri
að klífa ef maður hefði
tíma. Þetta er mjög fjar-
lægt og ég hugsa að
maður myndi nú tengja
þetta Ástralíuferð þeg-
ar þar að kemur. Það er
helst syðri eyjan sem ég
er að hugsa um, þó ég sé
ekki búinn að kynna
mér þetta í smáatrið-
um.“
Hann hefur lesið
og heyrt margt um
Nýja Sjáland í gegn-
um tíðina. „Ég var svo
með Nýsjálendingum
á Everest í fyrra,
mjög skemmtilegt
fólk og þau sögðu mér
margt um landið og
gerðu það endanlega
af verkum að ég
ákvað að heimsækja
það einhvern daginn.
Hvenær sem það
verður að veruleika.“
LAUGARDAGUR 30. ágúst 2003 21
Verðsprengja
Gildir á meðan birgðir endast. Fæst eingöngu í Hagkaupum Smáralind
• Intel Pentium M 1.3 GHz
• 512 MB DDR vinnsluminni
• 30 GB Harður Diskur
• 15” TFT XGA Skjár
• Intel Graphics 64MB TV-Out
• DVD drif / CD-skrifari
• Intel PRO 2100 þráðlaust netkort
• Innbyggt 10/100 Netkort
• Innbyggt 56 Kbs módem
• Infrared
• Firewire
• 2 x USB
• Windows XP Pro
• 2 ára ábyrgð
Verð kr: 154.999 Verð kr: 124.999
Acer TravelMate 290LCi
• Intel Celeron 2.0 GHz
• 256mb DDR vinnsluminni
• 20 GB Harður Diskur
• 14” TFT XGA Skjár
• TV-Out
• DVD drif / CD-Skrifari
• Innbyggt 10/100 Netkort
• Innbyggt 56 Kbs módem
• Disklingadrif
• Firewire.
• 2 x USB.
• PS/2
• Infrared
• 2 ára ábyrgð
Verð kr: 94.999
Clevo Notebook 270S
Acer Aspire 1315LC
• AMD Athlon XP 2500+
• 256 MB DDR vinnsluminni
• 40 GB Harður Diskur
• 15” TFT XGA Skjár
• S3 ProSavage TV-Out 32MB
• DVD drif / CD-skrifari
• Innbyggt 10/100 Netkort
• Innbyggt 56 Kbs módem
• Disklingadrif
• Firewire
• 2 x USB
• Windows XP Home
• 2 ára ábyrgð
í Hagkaupum Smáralind
RAFBÓK
Hewlett Packard hefur þróað nýja kynslóð
rafbóka. Textanum er hlaðið inn á þær
með venjulegu UBS-tengi, en það sem
kemur helst í veg fyrir fjöldaframleiðslu nú
þegar fólk þreytist fljótt á að lesa af skján-
um, en um leið og það vandamál hefur
verið leyst telja sérfræðingar HP sig geta
gert rafbókina enn þynnri og öflugri og sjá
ekkert því til fyrirstöðu að hefja fjölda-
framleiðslu.
Rafrænn lestur:
Bók án
blaðsíðna
Snillingarnir í þróunardeildHewlett Packard hafa sett
saman frumeintak rafbókar sem
getur geymt heilt bókasafn í
tæki sem er litlu stærra en
pappírskilja. Rafbókin er um
það bil einn sentimetri á þykkt
og er aðeins meiri um sig en
venjuleg lófatölva.
Hönnuðir bókarinnar lögðu
mikið upp úr því að halda þeim
eiginleikum hefðbundnu bókar-
innar sem fólk kann að meta og
skjárinn er því aðalmálið en á
honum eru snertifletir sem gera
notandanum kleift að „fletta“ í
gegnum bókina.
„Við einblíndum á bókina sem
upplýsingamiðil, en fólk hefur
notað bókina svo lengi í þeim til-
gangi og kann því vel við til-
hugsunina um að geta flett í
gegnum eitthvað“, segir Huw
Robson hjá HP og til þess að
fullnægja flettiþörfinni komu
hann og félagar hans öflugri
töflu fyrir inni í rafbókinni og
líkir eftir blaðaflettingu á skján-
um þegar notandinn flytur sig
yfir á næstu síðu. Lesandinn
„flettir“ einfaldlega með því að
strjúka snertiflötinn og hraði
fingrahreyfingarinnar ræður
því hvort hann fari í gegnum
bókina á eðlilegum hraða eða
blaði hreinlega í henni. Þá er
vitaskuld hægt að setja bóka-
merki á ákveðnar síður og raf-
rænn fingur gerir lesandanum
kleift að hlaupa yfir heilu kafl-
ana.
Það verður einnig hægt að
lesa breiðsíður dagblaða í raf-
bókinni en lesandinn skannar þá
blaðið og þegar hann rekst á
eitthvað áhugavert notar hann
snertifletina til að stækka við-
komandi grein. ■
Haraldur Örn Ólafsson hefur áhuga á að skoða Nýja Sjáland:
Fjarlægt og heillandi fjallaland
■ TÆKNIUNDRIÐ
■ NÆSTA STOPP
HARALDUR ÖRN ÓLAFSSON
gæti vel hugsað sér að fara til Nýja Sjá-
lands sem almennurferðamaður og ganga
um í stórbrotinni náttúrunni. Útilokar þó
ekki fjallgöngu ef spennandi fjall yrði á
vegi hans.
NÝJA SJÁLAND
Er frekar afskekkt í Suður-
Kyrrahafi í um 1700 km fjar-
lægð frá Ástralíu. Landið er í
eyjaklasi með tveimur stórum
eyjum, Norður- og Suðurey.