Fréttablaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 22
22 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Í fornbókaversluninni Bókavörð-unni á Vesturgötu hefur undan-
farið verið til sölu nokkur fjöldi rita
sem gefin voru út af leiðtogum og
fræðimönnum Hitlerstímans á dög-
um Þriðja ríkisins í Þýskalandi, þar
á meðal eftir Hitler, Göbbels og
Rosenberg. Bækurnar koma flestar
úr dánarbúi manns sem á sínum
tíma var hallur undir foringjann.
Skemmst er frá því að segja að
ritin hafa rokið út. Ástæðan þarf þó
ekki endilega að vera sú að kaup-
endur séu hallir undir nasisma, þótt
ekki sé hægt að útiloka það. Bæk-
urnar hafa ýmislegt gildi. „Þessar
bækur hafa sagnfræðilegt gildi og
margir leita að þeim í fræðilegu
forvitnisskyni,“ segir Bragi Krist-
jónsson, eigandi Bókavörðunnar.
„Það finnast búðir sem sérhæfa sig
í sölu svona rita en fínni búðir á
meginlandinu vilja ekki hafa þau
uppi heldur geyma ofan í skúffum
ef um þau skyldi vera spurt.“
Bragi segist oft hafa fengið tugi
og hundruð bóka úr eigu einstak-
linga á Íslandi sem voru nasistar á
sínum tíma: „Ég man eftir að hafa
fengið töluvert magn frá einum
heiðursmanni sem nú er löngu lát-
inn. Þegar Hitler fór í stríðið setti
þessi maður upp hvítan trefil og
sagðist ekki myndu taka hann ofan
fyrr en Hitler
væri búinn að
vinna stríðið.
Og hann gekk
með þennan
hvíta trefil til
æviloka.“ ■
NASISTABÆKUR
Gamlar bækur eftir leiðtoga og fræði-
menn Þriðja ríkisins eru til sölu í Bóka-
vörðunni. Greinilegt er að einhverjir hafa
áhuga á nasistafræðunum, því bækurnar
rjúka út eins og heitar lummur.
Leiðtogar og fræðimenn Þriðja ríkisins voru iðnir við
skriftir. Bækur eftir þá eru til sölu í Bókavörðunni um
þessar mundir og njóta mikilla vinsælda:
Eftirsótt nasistarit
Það finnast búðir
sem sérhæfa sig í sölu
svona rita en fínni búðir á
meginlandinu vilja ekki hafa
þau uppi heldur geyma ofan
í skúffum ef um þau skyldi
vera spurt.
,,
A WILD SHEEP CHASE
eftir Haruki Murakami
Meðal þeirra höfunda sem
koma á bókmenntahátíð í sept-
ember er Haruki Murakami en
bækur hans njóta gríðarlegra vin-
sælda víða um heim. Murakami
er einn hugmyndaríkasti höfund-
ur samtímans og aðdáendur hans
eru þegar farnir að orða hann við
Nóbelinn. Ein besta bók hans er
A Wild Sheep Chase sem er sam-
bland af gamansögu, sakamála-
sögu og ævintýrasögu. Bók sem
kemur lesandanum sífellt á óvart.
■ Bók vikunnar
■ Bókatíðindi
METSÖLULISTI
EYMUNDSSONAR
Allar bækur
1. Dönsk-íslensk/íslensk-dönsk orða-
bók.
2. Ensk-íslensk/íslensk-ensk orðabók
3. Korku saga. Vilborg Davíðsdóttir
4. Brennu-Njáls saga m. skýringum
5. Óvinafagnaður. Einar Kárason
6. Egils saga m. skýringum
7. Dönsk-íslensk skólaorðabók
8. Þýsk-íslensk/íslensk-þýsk orðabók
9. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness
10. Eddukvæði
Skáldverk
1. Korku saga. Vilborg Davíðsdóttir
2. Brennu-Njáls saga m. skýringum
3. Óvinafagnaður. Einar Kárason
4. Egils saga m. skýringum
5. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness
6. Eddukvæði
7. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
8. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
9. Kaldaljós. Vigdís Grímsdóttir
10. Röddin. Arnaldur Indriðason
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA
EYMUNDSSONAR 20. - 26. ÁGÚST
TILNEFNINGAR TIL BOOKER
Á dögunum var tilkynnt um til-
nefningar til Booker-verðlaunan-
anna. Tuttugu og þrjár bækur eru
á listanum og í september verða
sex af þeim valdar til að keppa
um verðlaunin. Það vekur athygli
að á meðal þeirra bóka sem eru
tilnefndar er nýjasta skáldsaga
Martin Amis, Yellow Dog en höf-
undurinn hafði verið harðlega
gagnrýndur fyrir að senda frá
sér bók sem þætti ekki boðleg.
Meðal annarra þekktra höfunda
sem fengu tilnefningu má nefna
Margaret Atwood, Melvyn Bragg
og J.M. Coetzee.
Þetta verða mikil skáldsagnajólog fríður flokkur höfunda send-
ir frá sér metnaðarfullar sögur,“
segir Páll Valsson, útgáfustjóri
Máls og menningar. „Hallgrímur
Helgason, sem fékk Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir Höfund Ís-
lands, mun sýna á sér nýja hlið í
bók sem heitir Herra Alheimur.
Guð situr á plánetu sinni í miðju al-
heimsins og virðir fyrir sér sín 714
mannkyn þegar hann fær þær
fréttir að mannkyninu á plánetunni
Jörð hafi tekist að klóna sjálft sig.
Þetta er sem sé bráðfjörug vísinda-
skáldsaga með tilvistarlegum und-
irtóni.“
Titillinn á nýrri skáldsögu Gerð-
ar Kristnýjar vísar einnig í Drottin
en hún ber heitið Heima hjá Guði
og er sögð vera spennandi fjöl-
skyldusaga um óheilindi og svik úr
Reykjavík nútímans þar sem blaða-
kona er í aðalhlutverki.
Einar Kárason verður með
mikla bók sem heitir Stormur. Heit-
ið er dregið af aðalpersónunni Ey-
vindi Jónssyni Stormi. Sagan gerist
í nútímanum og sögusviðið er aðal-
lega Ísland og Danmörk. „Þetta er
skemmtileg og grípandi saga sem á
eftir að vekja mikla athygli og um-
tal,“ segir Páll. „Frásögnin er marg-
radda en hin skrautlega aðalper-
sóna Eyvindur Jónsson Stormur er
hryggjarstykki verksins með nokk-
uð svipuðum hætti og Þórður kakali
var í Óvinafagnaði.“
Síðasta skáldsaga Guðmundar
Andra Thorssonar var Íslandsförin
sem kom út 1996. Nú sendir hann
frá sér nýja skáldsögu sem beðið
hefur verið með óþreyju. Hún nefn-
ist Náðarkraftur og fjallar um „síð-
ustu sósíalistana“, þá kynslóð sem
bar uppi vinstri hreyfinguna í land-
inu en stendur frammi fyrir nýrri
heimsmynd og þarf að endurskoða
eitt og annað. „Metnaðarfull og
merkileg skáldsaga,“ segir Páll.
Hinn margverðlaunaði Gyrðir
Elíasson sendir frá sér skáldsöguna
Hótelsumar. Aðalpersónan er ný-
fráskilinn maður sem fer heim í
þorp bernsku sinnar og dvelst þar á
hóteli í eitt sumar til að leita rót-
anna og finna sjálfan sig að nýju.
Páll segir þetta magnaða sögu
Klassíkerar og kiljur
Af þýðingum sem koma út fyrir
jólin ber hæst klassíker í nútíma-
skáldsögum sem er Miðnæturbörn
eftir Salman Rushdie í þýðingu
Árna Óskarssonar. Bókin fékk á
sínum tíma Booker-verðlaunin og
var auk þess í fyrra kosin besta
Booker-verðlaunabók aldarinnar.
Einnig kemur út verðlaunasagan
Hálfbróðirinn eftir Lars Saabye
Christensen sem fékk Bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs. Bókin
hefur verið á mikilli sigurför um
heiminn að undanförnu og fengið
frábæra dóma. Fyrr á árinu gaf Mál
og menning út miðaldaklassík,
Kantaraborgarsögur eftir Chaucer.
Mál og menning gefur fjölmarg-
ar sögur út í kilju. Meðal kilja sem
koma út fyrir jól má nefna Bóksal-
ann í Kabúl eftir Åsne Seierstad,
norska blaðakonu sem dvaldi í
Afganistan í hálft ár og skrifar um
þá reynslu sína. „Þessi bók hefur
vakið gríðarlega athygli og við-
brögð, henni tekst að draga þar upp
mjög athyglisverða mynd af hvers-
dagslífinu í Kabúl,“ segir Páll.
Önnur bók sem kemur beint út í
kilju er eftir Nicholas Shakespeare,
niðja þess gamla. Bókin heitir
Dansarinn á efri hæðinni og er
vönduð spennusaga. Shakespeare
kemur á bókmenntahátíð eins og
Arto Paasilinna sem margir þekkja
af Ári hérans en nú kemur út eftir
hann í kilju bók sem heitir Dýrðlegt
fjöldasjálfsmorð og er ein af hans
frægari sögum.
Ævisögur og aðrar bækur
Í ævisagnageiranum ber hæst
seinna bindi Guðjóns Friðrikssonar
um Jón Sigurðsson. Gísli Pálsson
mannfræðiprófessor sendir frá sér
bók um ævi Vilhjálms Stefánssonar
sem ber heitið Frægð og firnindi og
byggir á ítarlegri rannsókn á ýms-
um áður ókunnum heimildum. Páll
segir þetta vera vandaða, athyglis-
verða og spennandi ævisögu.
Einnig kemur út ævisaga Magnús-
ar Magnússonar sjónvarpsmanns
eftir Sally Magnusson, dóttur hans.
Þorgerður og kórarnir er heitið á
listrænni ævisögu Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur, sem gefin verður út í til-
efni af sextugsafmæli hennar. Og
bókaútgáfan Þjóðsaga, sem Páll er
útgáfustjóri fyrir, mun gefa út eina
bók í ár sem er Einræður Steinólfs
í Fagradal, þar sem sá frægi bóndi
fer yfir lífshlaup sitt. Þarna er sögð
vera á ferð skemmtileg ævisaga á
sviði þjóðlegra fræða.
Af bókum af öðru tagi má
nefna Sagnalist, íslenska stílfræði
II sem fjallar um sagnastíl frá
1850-1970 eftir Þorleif Hauksson,
Heim spendýranna eftir David
Attenborough, Veldu þér flugu,
vinur minn - veiðisagnabók eftir
Pétur Steingrímsson og svo Islam
og Vesturlönd eftir Magnús Þor-
kel Bernharðsson.
kolla@frettabladid.is
GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON
Skrifar um síðustu sósíalistana.
Fjöldi athyglisverðra bóka kemur út hjá Máli og
menningu fyrir þessi jól:
Metnaðar-
fullar sögur
HALLGRÍMUR HELGASON
Sendir frá sér bráðfjöruga vísindaskáldsögu.
EINAR KÁRASON
Því er spáð að nýja bókin hans eigi eftir að
vekja umtal.
Ég er núna að lesa mjög áhuga-verða bók sem ætti að vera
skyldulesning stjórnmálamanna,“
segir Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir alþingiskona. „Þetta er met-
sölubók Michaels Moores, Stupid
White Men. Hann er mjög gagn-
rýninn á stjórnarfarið í Banda-
ríkjunum, vinnubrögð og spill-
ingu þar í landi og er duglegur við
að varpa ljósi á alla þessa þætti í
bókinni. Hann gerir það á hár-
beittan og fyndinn hátt og hikar
ekki við að gera grín að æðstu
ráðamönnum í Bandaríkjunum.“
Útgáfan sem Ásta er að lesa er
sú breska, en í henni er mjög fróð-
legur formáli, sem ekki er í
bandarísku útgáfunni, um allt
sem Moore þurfti að ganga í gegn-
um til að fá bókina gefna út. „Út-
gefendur hans voru búnir að
prenta fyrsta upplag bókarinnar,
50 þúsund eintök, og voru þau til-
búin að kvöldi 10. september
2001,“ segir Ásta. „Svo kom 11.
september, – og bókin fór ekki í
bókabúðir! Síðar lýsir hann ótrú-
legum samskiptum við útgefend-
ur, kröfum um ritskoðun og um að
hann endurskrifaði helming bók-
arinnar. Þeir hótuðu að setja ein-
tökin í tætara og annað eftir því.
Moore þverneitaði að breyta bók-
inni og eftir sögulega atburðarás
kom bókin út, en hefur ekki feng-
ist kynnt í fjölmiðum vestra nema
í tveimur litlum útvarpsstöðvum,
í þáttum sem var útvarpað um
miðja nótt.
Fyrir utan þessa bók hef ég
lesið nokkra reyfara í sumar,
meðal annars Syni duftsins eftir
Arnald Indriðason og svo eru
nokkrar hljóðbækur á náttborð-
inu, sem ég sofna út frá á kvöld-
in.“ ■
Skyldulesning
stjórnmálamanna
ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNES-
DÓTTIR
Hún er að lesa hina umdeildu bók
Heimskir hvítir menn.
■ Útgáfa